Skýrasta myndin af okr Stóra myndin á þessari síðu segir meira en þúsund orð um gegndarlaust okur tryggingafélaganna á bíleigendum. Þar sést hvernig vísitala bílatrygginga hefur flogið fram úr vísitölu neysluverðs.
Hlutfallsleg hækkun bílatrygginga* miðað við hækkun vísitölu neysluverðs *Ábyrgðartryggingar ökutækja (skyldutryggingar)
Framúrakstur iðgjalda ábyrgðartrygginga ökutækja hófst fyrir alvöru 2014. Á hverju ári eftir það hækkuðu bílatryggingarnar langt umfram vísitölu neysluverðs. Hlutfallslega hækkuðu bílatryggingar um 84% frá 2008 til 2019 meðan vísitala neysluverðs hækkaði um 42%. Með öðrum orðum, á þessum 10 árum hækkuðu bílatryggingar helmingi meira en neysluvörur almennings.
90% 80% 70%
60% 50% 40% 30%
20%
Heimild: Hagstofan
10%
Ótrúverðugar skýringar tryggingafélaga
0%
Tryggingafélögin hafa í gegnum tíðina komið með fjölbreyttar skýringar til að réttlæta hækkanirnar. Spennan í þjóðfélaginu hafi gert ökumenn óvarkárari, fjölgun bíla og fjölgun ferðamanna var viðtekin viðbára. Við bættist svo talnaleikfimin um að „samsett hlutfall“ tjónakostnaðar væri ekki nógu hagstætt. FÍB hefur margoft bent á að „samsetta hlutfallið“ byggist á áætlunum
2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 Vísitala ábyrgðartrygginga
tryggingafélaganna um tjónaog rekstrarkostnað – ekki raunverulegum tjónakostnaði. Félögin hafa leyft sér í gegnum tíðina að hagræða þessum tölum eftir hentugleikum til þess ýmist að sýna góðan hagnað eða til að dæla peningum inn í skattfrjálsu bótasjóðina.
8.000
300
7.000
250
6.000 200
5.000 4.000
150
3.000
100
2.000 50
1.000 0
2009
2010
2011
2012
Fjöldi slysa
8
2013
2014
2015
Fjöldi slasaðra
2016
2017
2018
2019
Fjöldi ökutækja
0
Þúsundir ökutækja
Slysafjöldi og fjöldi ökutækja
Vísitala neysluverðs
Slysatölurnar segja aðra sögu Umferðarslysum án meiðsla fækkaði frá 2009 til 2012 en fjölgaði síðan í takt við fjölgun ökutækja. Iðgjöld hefðu því átt að lækka til að byrja með og síðan í mesta lagi fylgja vísitölu neysluverðs. Fjöldi slasaðra, þar á meðal alvarlegra slasaða, hefur verið lítið breyttur allan þennan tíma. Mesti kostnaður tryggingafélaganna er einmitt vegna líkamstjóna. Umferðarslysafjöldi er nánast sá sami 2009 og 2019, í kringum 6.600 óhöpp og yfir 80% án meiðsla. Á þessum áratug fjölgaði ökutækjum um 32%, úr 205 þúsund í 270 þúsund. Þetta þýðir að umferðarslysum á hvern bíl hefur fækkað um 22%. Slysin voru 0,025 per bíl árið 2019 en 0,032 árið 2009. Samt hækka iðgjöld trygginganna.