Vetrardekkjakönnun 2024

Page 1


2024 VETRARDEKKJA KÖNNUN

FÍB hefur á undanförnum árum kynnt niðurstöður í vetrardekkjakönnun sem unnin er af Félagi norskra bifreiðaeigenda (NAF) sem er systurfélag FÍB í Noregi. Að könnuninni koma sérfræðingar sem hver um sig sinnir sérþekkingu sínum í dekkjum og bíltækni.

Í könnuninni voru margvíslegir eiginleikar dekkjanna skoðaðir í mismunandi vetraraðstæðum á norðlægum slóðum. Prófuð voru 16 mismundandi dekk frá 10 framleiðendum: 7 nagladekk og 7 ónegld vetrardekk ásamt viðmunardekkjum sem notuð voru í báðum flokkum. Gott er að hafa í huga að þessir tveir flokkar eru alveg sjálfstæðir og því er ekki hægt að bera þá beinlínis saman.

Í prófununum í gegn um árin hefur komið glöggt í ljós að mestu skiptir að velja stundum gæði fram yfir verð. Það gæti borgað sig bæði til skemmri og lengri tíma litið. Könnunin gefur ítarlegar upplýsingar um mismundandi dekk og eiginleika þeirra.

Hafa skal í huga að dekkið sem „skorar“ hæst hverju sinni þarf ekki að vera besti kosturinn. Mælt er eindregið með því að ekki séð horft á heildareinkunnina, því að gott getur verið að skoða niðurstöður í hverjum lið fyrir sig. Könnunin ætti að gefa ökumönnum nytsamar upplýsingar varðandi val á dekkjum fyrir komandi vetur.

Eftirfarandi negld dekk voru notuð í könnuninni:

Negld vetrardekk

Bridgestone Spike 3

Continental IceContact3

Goodyear Ultra Grip Artic 2

Mazzini Ice Leopard

Michelin X-Ice North 4

Nokian Hakkapelitta 10

Nordman North 9

Óneglda dekkið Nokian Hakkapelita R5 var notað sem viðmunaðardekk.

Ónegld vetrardekk

Continental VikingContact8

Greenmax LL Winter Ice I-15

Goodyear Ultra Grip Ice3

Hankook Winter i*ceptIZ2 W616

Michelin X-Ice Snow

Nokian Hakkapelitta R5

Radar Dimax Ice

Heilsársdekkið CrossClimate 2 var notað sem viðmunaðardekk.

Myndir: Niklas Carle

VETRARDEKKJAKÖNNUN 2024

Í prófununum var ekið í hálku og snjó á tilraunastöð fyrir utan Älvsbyn í Svíþjóð í lok febrúar með framhjóladrifnum Volkswagen Golf. Rafræn aðstoðarkerfi eins og ABS og hálkuvörn voru virkjuð þar sem hálkuvarnir eru í sportstillingu til að leyfa aðeins meiri hjólsnúning og skriðhalla sem gefur betra flæði í akstri.

Hemla- og hröðunarprófanir á ís voru gerðar í innanhússaðstöðunni Arctic Falls fyrir utan Piteå í Svíþjóð. Mælingarnar voru ræstar og stöðvaðar á 5 km/h í stað þess að vera í fullu stoppi til að lágmarka skekkjumörkin sem skapast af tækni bílsins (hemlalæsi- og spólvörn).

Malbikunarprófanir á þurrum og blautum vegum voru gerðar í Tampere í Finnlandi í lok apríl með VW Golf. Eldsneytismælingarnar voru gerðar á sporöskjulaga braut á jöfnum hraða (60 km/klst) með Golf GTI. Notast er við rafmagnsbifreið (MG 4) til að mæla veggný í farþegarými.

Til viðbótar við prófunardekkin voru notuð sérstök viðmiðunardekk með reglulegu millibili á meðan öll undirprófin stóðu yfir til að fanga breytingar á yfirborði.

Öll dekk eru með stærðina 225/45 R 17 og hraðastuðul T (190 km/klst), H (210 km/klst) eða V (240 km/klst).

Hvað nagladekkin áhrærir er ekkert dekk fremst í öllu. Mestu skiptir að finna bestu málamiðlunina, hvað finnst ökumanninum mikilvægast og hverju er hann tilbúinn að fórna. Það hefur verið sagt í fyrri könnunum að val á dekkjum snýst um aðstæður á hverjum stað og á það sérstaklega við um vetrardekk án nagla. Þau verða að vera tilbúin að takast á við allt frá frosnu yfirborði til þurra vega – frá plús 20 gráðum niður í mínus 30 gráður.

Heilsársdekk koma ekki vel út

Heilsársdekk koma ekki vel út en þau voru tekin með í naglalausa vetrardekkjaprófinu til að fá skýrt svar við hvaða aðstæður dekkið í raun og veru höndlar og hvar það fellur. Niðurstöðurnar eru sérstaklega slakar á ísilögðum vegi. Gæði heilsársdekkja

hafa aukist síðastliðin ár og þau geta reynst ágætlega við vissar aðstæður en miður við aðrar. Engin vafi leikur á því að þau eru ekki eins og góð og sumarog vetrardekk.

Til dæmis má nefna að í danskri könnun kom í ljós að við akstur í hálku tók það vetrardekkið 39 metra að stöðva bifreið úr 30 km/klst en heilsársdekkið stöðvaðist eftir 44–48 metra. Þegar ekið var á þurrum vegi jókst munurinn enn frekar þar sem gott sumardekk náði að stöðva bíl á 37 metra kafla úr 100 km/klst. Það heilsársdekk sem skoraði lakast þurfti heila 52 metra við sömu aðstæður. Miðað við þessar niðurstöður er bifreið sem ekur á heilsársdekkjum enn á 53 km/klst þegar sams konar bíll á sumardekkjum hefur stöðvast algjörlega.

Heilsársdekk geta í vissum tilfellum verið ágæt lausn þegar kemur að akstri yfir vetrarmánuðina en veikleiki þeirra kemur best í ljós við akstur á ís í samanburði við vetrardekk. Nokkur lönd eins og Svíþjóð og Austurríki hafa gengið svo langt að banna notkun heilsársdekkja og ökumönnum er skylt að nota vetrardekk yfir vetrartímann.

Þegar vetrardekk eru valin undir bílinn þá stendur eigandi frammi fyrir þeirri ákvörðun hvort velja eigi nagla eður ei. Niðurstöður úr vetrardekkjaprófununum geta vonandi gefið ökumönnum hugmynd um hvaða dekk henti þeim hverju sinni.

Nýja nagladekkið frá Spike3 Bridgestone kemur ferskt inn í ár og þótti ágætt í flestum aðstæðum og deildi 2-3 sæti með Michelin. Þó var dekkið ekki gallalaust en naglarnir þóttu fremur lausir í sætum sínum og höfðu þó nokkrir tapast eftir prófanir í ís og snjó akstri.

Einnig var Michelin í svipuðum vandræðum með sín dekk þar sem naglarnir þóttu ójafnir og skakkir. Þessi frávik má mögulega rekja til þess að framleiðsla hefur verið flutt frá Rússlandi yfir til Ítalíu þar sem enn er verið að ná tökum á vinnslunni.

Fyrsta sætið tók Nokian með sína yfirburði í vetrarakstri, en þrátt fyrir það þá er dekkið ekki endilega besti kosturinn fyrir alla ökumenn.

Í seinasta sæti var kínverska dekkið frá Mazzini og því miður, þá eru gæði í takt við verð að þessu sinni.

Mikilvæg atriði í prófuninni

Hemlun

Blautt malbik er yfirleitt hættulegasta sumarfærið og veggrip dekkja í bleytu er þar af leiðandi mismikið. Sum eru hreinlega flughál í bleytu meðan önnur hafa tryggt grip bæði í akstri og hemlun. Gott veggrip í bleytu er mjög mikilvægur eiginleiki og þess vegna vegur þyngst akstur og hemlun í bleytu. Einkunnir hvers hjólbarða eru reiknaðar út frá meðaltali allra mælda hemlunarvegalengda á þurru annars vegar og blautu hins vegar.

Veggrip

Veggrip hjólbarða er metið með því að mæla brautartíma aksturs eftir votri braut. Aksturinn og mælingarnar eru margar og endurteknar og margir ökumenn annast þennan hluta. Brautin er fjölbreytt og krefst hröðunar og hemlunar en einnig eru krappar beygjur á henni. Einkunn hvers hjólbarða er reiknuð út frá meðaltali fjölda brautarmælinga.

Flotun

Negld eða ónegld?

Í prófunum í ár var naglalaust vetrardekk frá Nokian einnig prófað samhliða þeim negldum. Og því hægt að sjá svart á hvítu hvernig óneglt dekk stenst samanburð við þau negldu. En eins og búast mátti við, þá var dekkið langt á eftir þeim bestu við hemlun og upptak á ís. Niðurstöðurnar voru ágætar við akstur í snjó en dekkið þótti ekki nógu gott á malbiki og var þar mjúkri gúmmíblöndunni aðallega kennt um.

Aksturstilfinning

Ökumenn í könnunni meta á eigin forsendum hvernig hver hjólbarðategund hegðar sér í almennum akstri á malbiki og ýmsum mismunandi akstursaðstæðum. Þar má nefna hvað gerist þegar bíllinn skrikar, hvernig það gerist og hversu erfitt eða létt er að ná aftur fullri stjórn á bílnum. Slíkar aðstæður koma oft upp í akstri í umferðinni. Um er að ræða blindpróf, það er að segja að ökumenn vita ekki hvaða hjólbarðategund er undir bifreiðinni hverju sinni.

Veggnýr

Hraðinn er aukinn inn á brautarhluta sem þakinn er vatni. Skráður er sá hraði sem bíllinn hefur náð þegar veggripið hefur algerlega tapast.

Veggnýr er bæði mældur með mælitækjum og metinn af öku-mönnum. Ekið er eftir vegi með grófu yfirborði. Ökumenn vita ekki hvaða hjólbarðategund er undir hverju sinni.

Núningsmótstaða

Núningsmótstaða hjólbarða er mæld með sérstökum tækja-búnaði á rannsóknarstofu. Niðurstöðurnar eru umreiknaðar út frá því dekki sem mælist með minnstu mótstöðu (rennur lengst). Einkunn er reiknuð út sem aukin eldsneytiseyðsla.

1

NOKIAN HAKKAPELITTA 10

Fjöldi nagla: 216

Hörkustig (Slitflötur): 55

Hraða- og burðarþol: 94 T

Framleiðsludags: Vika 52, 2023

Framleiðsluland: Finnland

Söluaðili: Max1

Verð per. dekk: 50.900 kr.*

83 STIG

Enginn vafi leikur á hvar áherslur Nokian liggja, enda skilaði Hakkapeliitta 10 bestu einkunn negldra vetrardekkja.

Dekkið lætur vel að stjórn í kröppum beygjum, jafnt í hálku og snjó. Þá bregst það skjótt og hratt við stýringu og er með gott jafnvægi milli fram- og afturenda. Þó gætu einhverjum bílstjórum þótt afturendinn vera full laus og hleypa bílnum á skrið.

Niðurstöðurnar dala þó nokkuð þegar kemur að akstri á malbiki, þrátt fyrir að ná bestu einkunn í akstri á snjó og ís. Á þurru yfirborði þykir stýring ekki nægjanlega nákvæm og stöðug. Í bleytu er hemlunarvegalengd dekkjanna í lengra lagi ásamt því að hafa lágan flot hraða.

Þegar allt er tekið saman skilar yfirburðagrip í snjó og hálku flestum stigum og nær fyrsta sætinu í flokki nagladekkja.

Kostir: Lætur vel að stjórn undir álagi, akstursánægja

Ókostir: Lágur flothraði, hemlun í bleytu, stöðugleiki í beinum akstri.

2-3

MICHELIN X-ICE NORTH 4

Fjöldi nagla: 252

Hörkustig (Slitflötur): 59

Hraða- og burðarþol: 94T

Framleiðsludags: Vika 20, 2023

Framleiðsluland: Ítalía

Söluaðili: N1

Verð per. dekk: 44.990 kr.*

X-Ice North 4 er ein elsta hönnunin á markaðnum en dekkið kom í sölu 2018. Þrátt fyrir það hefur það alltaf verið í flokki þeirra bestu, ár eftir ár.

Dekkið heldur sérstaklega góðum aksturseiginleikum við mismunandi aðstæður. Það nær góðum árangri á flestum sviðum án þess að þurfa að gefa eftir á öðrum. Þannig stendur það sig vel á ís, hefur lágan veggný og viðnám. Einnig voru góðar niðurstöður við akstur á malbiki. Þó gætu eiginleikar verið betri í akstri í bleytu.

Eiginleikar dekksins eru góðir í línulegum akstri á malbiki en þegar kemur að kröppum beygjum getur farið að skort grip umfram önnur dekk í prófununum.

Þægilegt dekk með gott vetrargrip deilir öðru- og þriðjasæti með Bridgestone

Kostir: Grip á ís, veggnýr, tilfinning við akstur á malbiki

Ókostir: Grip í bleytu, grip í skörpum beygjum.

2-3

BRIDGESTONE SPIKE 3

Fjöldi nagla: 262

Hörkustig (Slitflötur): 63

Hraða- og burðarþol: 94 T

Framleiðsludags: Vika 32, 2023

Framleiðsluland: Ungverjaland

Söluaðili: BJB

Verð per. dekk: 43.905 kr.*

Spike 3 er nýtt dekk frá Bridgestone og skilar afbragðseinkunn í nokkrum flokkum.

Dekkið hefur besta viðnám gegn floti og mjög gott grip á ís í línulegum akstri, á þetta bæði við um hemlun og upptak. Það getur þó valdið vandræðum til framtíðar að naglarnir voru fremur lausir í sætum sínum umfram önnur dekk í prófununum en það getur orsakað snemmbúna naglaglötun.

Skipe 3 dekkin eru með stífa gúmmíblöndu sem skilar sér í stöðugum akstureiginleikum á malbiki. Og sömu sögu var að segja á blautu yfirborði.

Dekkið stóð sig lakar í snjó og ís. Það hefur tilhneigingu til að missa skyndilega grip og erfitt reyndist að halda stjórn þegar dekkið var komið að þolmörkum. Þó ollið það ekki vandræðum.

Góð blanda milli eiginleika í snjó og bleytu skilar dekkinu öðru til þriðja sæti.

Kostir: Hemlun á ís, hár flothraði, stöðugleiki á malbiki Ókostir: Getur skyndilega tapað gripi við vetraraðstæður, veggnýr.

4

GOODYEAR ULTRAGRIP ARCTIC 2

Fjöldi nagla: 190

Hörkustig (Slitflötur): 60

Hraða- og burðarþol: 94 T

Framleiðsludags: Vika 29, 2023

Framleiðsluland: Pólland

Söluaðili: Klettur

Verð per. dekk: 43.990 kr.*

Goodyear stendur sig vel við allar aðstæður, sérstaklega eru niðurstöður í hemlunarprófunum góðar, bæði í þurru og bleytu.

Mynsturdýptin er sú mesta af öllum dekkjum sem voru prófuð en það getur mögulega valdið skort á tilfinningu og ónákvæmni upp í stýri og kom það sérstaklega fram á malbiki.

Góð öryggistilfinning skila ánægjulegum akstri. Meðalgóð niðurstaða hvað varðar veggný og viðnám gefur fjórða sæti, hársbreidd frá því að komast á pall.

Kostir: Hemlun við allar aðstæður

Ókostir: Nákvæmni við stýringu, veggnýr.

Nagladekk

Fjöldi nagla: 190

Hörkustig (Slitflötur): 61

Hraða- og burðarþol: 94 T

Framleiðsludags: Vika 43, 2023

Framleiðsluland: Þýskaland

Söluaðili: Dekkjahöllin

Verð per. dekk: 47.790 kr.*

NORDMAN NORTH9

Fjöldi nagla: 196

Hörkustig (Slitflötur): 57

Hraða- og burðarþol: 94 T

Framleiðsludags: Vika 42, 2023

Framleiðsluland: Finnland

Söluaðili: Max1

77 STIG

Continental stendur sig almennt vel en þrátt fyrir að vera nagladekk nær það engum sérstökum niðurstöðum á ís.

Strax við hemlun frá 25 km hraða er dekkið farið að skilja sig frá samkeppnisaðilum og lengist vegalengdin enn frekar umfram önnur dekk þegar hraðinn er aukinn.

Á móti gefur Continental mjög góðar niðurstöður við hemlun á auðum vegi, bæði í þurru og bleytu.

Tilfinningin fyrir veginum er einnig með þeim betri, yfirvegun og rólegheit skila sér í fyrirsjáanlegri hegðun, jafnvel undir álagi. Þessir eiginleikar eiga einnig við um akstur í snjó.

Því miður eru niðurstöðurnar ekki jafn góðar og á ís. Fimmta sæti varð því niðurstaðan.

Kostir: Auðkeyrt undir álagi, eiginleikar á malbiki, lágur veggnýr

Ókostir: Slakt grip á ís.

Fjöldi nagla: 0

Hörkustig (Slitflötur): 52

Hraða- og burðarþol: 94 T

Framleiðsludags: Vika 1, 2024

Framleiðsluland: Finnland

Söluaðili: Max1

Verð per. dekk: 49.900 kr.*

Naglalaust vetrardekk til samanburðar, sömu prófanir voru lagðar fyrir dekkið eins og um negld dekk væri að ræða. Í beygju á grófum ís náði mjúkt dekkið að halda betra gripi en þau negldu. Á móti er erfiðara að ná stjórn aftur þegar það loks missti grip.

Grip á ís var breytilegt eftir veðuraðstæðum. Hemlun og upptak á sléttum ís var mun lakara en hjá hinum negldu. Á móti voru niðurstöðurnar á snjó með þeim bestu.

Mjúk blandan í dekkinu framkallar undirstýringu á öllu yfirborði. Á malbiki gaf það „fljótandi“ stýringu og slakari stöðugleika. Þá veldur mjúkt mynstrið einnig skjótu floti og lengir hemlunarvegalengd á blautum vegi.

Óneglda dekkið er ekki svo langt frá þeim negldu í vetrarakstri en missir fleiri stig við prófanir á malbiki.

Niðurstaðan varð sjöunda sæti.

Kostir: Yfirvegað undir álagi, lágur veggnýr, lágt viðnám

Ókostir: Lágur flothraði, skortur á stöðugleika og tilfinningu upp í stýri á malbiki.

Verð per. dekk: 38.688 kr.*

Nordman er ódýrara undirmerki frá Nokian. Þegar framleiðslan var færð frá Rússlandi nýtti félagið tækifærið og uppfærði dekkið úr 8 yfir í Nordman 9.

Mynstrið kemur frá Nokian Hakkapeliitta 9 en gúmmíblandan er stífari í Nordman-útgáfunni. Mögulega er það með vilja gert til að halda Nordman einum flokki neðar og halda sig í hæfilegri fjarlægð frá Nokian.

Við akstur auðum vegi er Nordman jafnt eða betra en Hakkapeliitta 10 en við vetraraðstæður eru niðurstöðurnar lakari. Dekkið stenst ekki jafnvel krappar beygjur á auknum hraða og auknar líkur eru á skyndilegu gripleysi. Niðurstaðan varð sjötta sæti, rétt á eftir gæðadekkjunum.

Kostir: Hemlunarvegalengd í snjó, lágt viðnám.

Ókostir: Veggnýr, erfitt að finna jafnvægi þegar mest reynir á.

8

ICE LEOPARD

Fjöldi nagla: 123

Hörkustig (Slitflötur): 61

Hraða- og burðarþol: 94 T

Framleiðsludags: Vika 21, 2023

Framleiðsluland: Kína

Söluaðili:

Verð per. dekk:

56 STIG

Kínverska dekkið frá Mazzini gefur svipaða niðurstöður og vænta má frá dekki í ódýrari flokknum.

Dekkið stendur sig einna verst þegar mest á reynir, með umtalsvert lakara grip á ís í samanburði við þekktari framleiðendur. Grip í beygjum getur horfið án fyrirvara. Jafnvel á sléttum ís nær dekkið ekki að stöðva á skemmri tíma en naglalausa dekkið frá Nokian.

Ice Leopard stendur sig best á malbiki enda með stutta hemlunarvegalengd. Þrátt fyrir stífa gúmmíblöndu er dekkið óstöðugt í línulegum akstri og lítil tilfinning er upp í stýri. Í svigakstri kemur bersýnilega í ljós hvernig dekkið missir grip til hliðanna en sem betur fer er auðvelt að leiðrétta það.

Takmarkað grip í vetraraðstæðum skilar seinasta sæti.

Kostir: Stutt hemlunarvegalengd á malbiki, grip í bleytu

Ókostir: Slakt grip á ís, erfitt að halda stjórn undir álagi.

NOKIAN HAKKAPELIITTA R5 (NAGLALAUST)
MAZZINI

Nagladekk

Myndir: Niklas Carle

Hröðun frá 5 til 25 km/klst. Meðaltal úr tveimur aksturslotum og 12 hröðunum á hvert dekk. Bridgestone hefur allra besta gripið og þar á eftir koma Nokian og Nordaman.

Continental og Mazzini átti í basli við að komast af stað á hálu yfirborðinu. Á sléttum ísnum hefur naglalausa dekkið ekki möguleika að ná þeim negldu.

ABS hemlun frá 25 til 5 km/klst. Meðaltal 24 hemlana í tveimur lotum. Bridgestone og Nokian skila skemmstri hemlun. Goodyear og Michelin skila einnig jákvæðum niðurstöðum. Þrátt fyrir að hafa umtalsverðan fjölda nagla þá er Mazzini nánast á pari við naglalausa dekkið.

Meðaltal aksturstíma í þremur hringjum á grófum ís. Mjúk gúmmíblandan á naglalausa dekkinu gefur því gott grip í beygjum og er auðstýrt með vott af undirstýringu. En Nokian stendur sig best í beygjunum. Bridgestone missir grip án aðvörunar í samanburði við Goodyear og Michelin. Verst var Mazzini sem gat skyndilega misst allt grip þegar hraðinn var farinn að aukast.

Hröðun 5-35 km/klst. Meðaltal 12 tilrauna í tveimur lotum. Ólíkt hröðun á ís þá skila öll dekkin svipuðum niðurstöðum. Bestu hröðun í snjó var hjá naglalausa dekkinu. Þar á eftir koma Michelin og Goodyear. En Bridgestone og Mazzini reka lestina.

ABS hemlun frá 35 til 5 km/klst. Meðaltal 24 tilrauna í tveimur lotum. Continental sýnir styrkleika sína í snjó umfram ís. Það er ekki teljandi munur á milli framleiðanda en aftur eru það Bridgestone og Mazzini sem eru með slökustu útkomuna.

Meðaltími þriggja umferða um akstursbraut. Continental og naglalausa dekkið eru einstaklega fyrirsjáanleg undir álagi. Nokian hafði meiri tilhneigingu til að fara á skrið, en þó auðvelt að stýra. Erfitt er að halda jöfnum akstri á Bridgestone og Nordaman og þau líklegri að missa grip undir álagi.

Hemlað frá 80-5 km/klst. Hér sannast að slakt grip á ís þarf ekki að endurspeglast á blautu malbiki. En Mazzini og Continental hafa vinninginn. Nokian og Michelin þurfa þrjá auka metra til að stöðva bílinn. Niðurstöður naglalausa dekksins sýna hvar veikleikarnir liggja.

Hemlað frá 80-5 km/klst. Mjúk gúmmíblandan í naglalausa dekkinu skilar skemmstri hemlunarvegalengdinni. Þar á eftir koma Continental og Mazzini ásamt Goodyear. Stíft Bridgestone dekkið hefur ívið slakari niðurstöðu en annars eru þær fremur jafnar.

Hér er sýndur hraðinn þegar dekk flýtur upp (planar) í 6 mm djúpu vatni og dekkið fer að snúast 15% umfram raunhraða bílsins. Bridgestone stendur sig best við að ryðja vatni undan sér. Nokian fer snemma að fljóta og mjúkt naglalausa dekkið á í mestum erfiðleikum.

Hröðun frá 5 -
Hemlun úr 80 - 5 km/h mælt í metrum
Mældur km. hraði við flot
Hemlun úr 80 - 5 km/h mælt í metrum

VETRARDEKKJAKÖNNUN - ÓNEGLD DEKK

Í ónegldu dekkjunum raða fjórir dekkjaframleiðendur sér nokkuð afgerandi í fjögur efstu sætin. Goodyear

Ultragrip Ice 3 fær 92 stig í efsta sætinu. Continental

Viking Contact 8 er í öðru sæti með 90 stig og Nokian

Hakkapelitta R5 með 87 stig í þriðja sætinu. Þar á eftir

kemur Michelin X-Ice Snow með 83 stig.

Kínversku dekkin Radar Dimax Ice og Greenmax LL

Winter Ice I-15 koma sínu verst út úr þessari könnun.

Radar fékk 51 stig og Greenmax 45 stig.

Viðmunaðardekkið, heilsársdekk) Michelin

CrossClimate 2 fékk aðeins 54 stig.

Þarfagreining:

Veðurfarslegar aðstæður geta verið mismunandi eftir svæðum. Notkun ökutækis ræðst af búsetu og þörfum hvers og eins. Sumir fara lítið út fyrir nærumhverfi sitt á meðan aðrir sækja vinnu og tómstundir um langan veg. Hver og einn þarf að vera meðvitaður um algengustu aðstæður til að taka upplýsta ákvörðun. Þannig er ekki víst að sama dekk henti íbúa á höfuðborgarsvæðinu og þeim sem búa úti á landsbyggðinni.

Þannig eru stigin reiknuð

Einkun frá 1-5 í öllum prófunarþáttum. 5 er ágætt, 4 gott, 3 sæmilegt, 2 slakt og 1 er lélegt.

Hlutlæg og huglæg mæligögn:

Einkunnagjöfin er byggð á mælanlegum gögnum en við mat á aksturseiginleikum og hávaða er huglæg reynsla ökumanna höfð í huga í einkunnagjöfinni.

Mismunandi vægi eftir mikilvægi:

Sum prófin eru metin mikilvægari en önnur. Einkunn í ákveðnum prófunarþáttum margfaldast þess vegna með tveimur eða þremur. Til dæmis má nefna veggrip á ís og snjó vegur þungt og er margfaldað upp með þremur og gefur 15 stig að hámarki. Þannig fást niðurstöður sem meta frekar góða eiginleika við erfiðar vetraraðstæður en eiginleika á þurru malbiki þar sem grip er yfirleitt mun betra.

25/45R17

2

1

GOODYEAR ULTRAGRIP ICE3

Hraða- og burðarþol: 94 T

Hörkustig (Slitflötur): 60

Framleiðsludags: Vika 26, 2023

Framleiðsluland: Pólland

Söluaðili: Klettur

Verð á eitt dekk: kr.

2

CONTINENTAL VIKINGCONTACT8

Hraða- og burðarþol: 94T

Hörkustig (Slitflötur): 56

Framleiðsludags: Vika 49, 2023

Framleiðsluland: Þýskaland

Söluaðili: Dekkjahöllin

Verð á eitt dekk: 45.490 kr.*

92 STIG

Goodyear stendur upp úr sem naglalaus valkostur í vetrarfærðina og stendur sig einna best á blautum vegi.

Flothraðinn á dekkinu er sá hæsti í sínum flokki. Þá er hægt að viðhalda miklum hraða í gegn um beygjur, bæði á blautu og þurru. Aukalega er hemlunarvegalengd á þurrum vegi mjög góð og tilfinning upp í stýri á malbiki ein sú mesta og besta.

Eiginleikar dekksins eru einnig mjög góðir í snjó, þrátt fyrir að Goodyear hafi sett malbiksakstur í forgang við hönnun. Á móti er það aðeins á eftir öðrum við akstur á ís þar sem það getur verið erfitt að halda gripi undir miklu álagi og það alveg glatast án fyrirvara.

Goodyear er flott fyrir þá sem aka mest á auðum vegi en vilja samt halda góðu gripi í vetraraðstæðum. Frábærar niðurstöður í snjó og á malbiki skila dekkinu fyrsta sæti.

Kostir: Fyrsta flokks við akstur í bleytu, gott grip í snjó, lágt viðnám

Ókostir: Slakt grip á ís í samanburði við bestu dekkin.

3

Hraða- og burðarþol: 94 T

Hörkustig (Slitflötur): 52

Framleiðsludags: Vika 1, 2024

Framleiðsluland: Finnland

Söluaðili: Max1

Verð á eitt dekk: 49.900 kr.*

Finnski sérfræðingurinn í vetrardekkjum tæki fyrsta sætið ef eingöngu væri litið til stiga fyrir akstur í snjó og á ís.

Hemlunarvegalengd er stutt og á dekkið einnig mjög auðvelt með að takast á við beygjur á miklum hraða. Þetta er eitt skemmtilegasta akstursdekkið og hefur ekki tilhneigingu til að undirstýra eins og sum önnur. Á malbiki er það áreiðanlegt og öruggt í gegn um svigakstur þó er gripið töluvert slakara en hjá þeim bestu, bæði við hemlun og í beygju. Stýring í línulegum akstri er ekki nógu nákvæm og að auki missir Nokian stig fyrir lágan flothraða á blautu malbiki.

Mikil áhersla á vetrarfærð umfram malbiksakstur skilar þriðja sæti.

Kostir: Mjög gott vetrargrip, akstursánægja, lágt viðnám

Ókostir: Lágur flothraði, tilfinning í stýri á malbiki, veggnýr.

Stærstu dekkjafréttirnar að þessu sinni eru að VikingContact8 hefur fengið rafbílamerkingu, þ.e. að dekkið er hannað bæði fyrir eldsneytis- og rafbíla.

Eins og hjá forvera þess viðheldur dekkið jöfnum og góðum árangri. Breytingar eru þó á milli dekkja þar sem það heldur betri stöðugleika í hringakstri á malbiki, líklegast til að vega upp á móti aukinni þyngd rafbíla.

Aukinn stöðugleiki á auðum vegi kemur niður á gripi á ís. Dekkið er þó enn með þeim bestu og sérstaklega auðkeyrt undir álagi. Einkunn fyrir hemlun og upptak hefur þó dalað á milli ára.

Slakar niðurstöður með flot draga stigin niður og því lendir VikingContact8 í öðru sæti.

Kostir: Öruggt í akstri við allar aðstæður og undir álagi Ókostir: Lágur flothraði.

* Continental VikingContact 7

4

X-ICE SNOW

Hraða- og burðarþol: 94 H

Hörkustig (Slitflötur): 60

Framleiðsludags: Vika 24, 2023

Framleiðsluland: Kína

Söluaðili: N1

Verð á eitt dekk: 39.990 kr.*

X-Ice snow er með harða gúmmíblöndu og eina dekkið sem er uppgefið yfir 200 km/klst.

Þrátt fyrir það er hemlun á ís ein sú besta en á móti gæti dekkið staðið sig betur í hröðum beygjum við vetraraðstæður. Það missir grip fyrr og án aðvörunar í samanburði við önnur dekk.

Góðar niðurstöður komu úr hemlunarprófunum og góð tilfinning er fyrir veginum í línulegum akstri þó að grip í beygjum mætti vera betra. Undir álagi bregst það hægar við með greinilegri undirstýringu.

Þrátt fyrir góða eiginleika dregur slök frammistaða í beygjum dekkið niður og endar það í fjórða sæti.

Kostir: Hemlun á öllu yfirborði, tilfinning í stýri á auðum vegi

Ókostir: Slakt grip í beygjum, hár veggnýr.

HANKOOK WINTER I*CEPT IZ2 W616

Hraða- og burðarþol: 94 T

Hörkustig (Slitflötur): 63

Framleiðsludags: Vika 23, 2023

Framleiðsluland: Suður-Kórea

Söluaðili: Klettur

Verð á eitt dekk: kr.

MICHELIN CROSSCLIMATE 2 (HEILSÁRSDEKK)

Hraða- og burðarþol: 94 V

Hörkustig (Slitflötur): 69

Framleiðsludags: Vika 26, 2023

Framleiðsluland: Ítalía

Söluaðili: N1

Verð á eitt dekk: 39.990 kr.*

65 STIG

Þessi er ein elsta hönnunin í flokki naglalausra dekkja með mynstur sem kom á markað 2016.

Óbreytt hönnunin er greinanleg þar sem erfitt er að ná jafnvægi milli vetrargrips og eiginleika á malbiki.

Grip á ís er umtalsvert lakara en hjá dýrari dekkjum, jafnt þegar kemur að hemlun og akstri í gegn um beygjur. Einnig er dekkið slakt í snjó.

Á auðum vegi koma í ljós bestu eiginleikar dekksins, það veitir góða tilfinningu og stöðugleika. Að auki er viðnám og veggnýr í lágmarki.

Hins vegar er grip á malbiki ekki á við þau bestu og er þar hemlun á malbiki ívið of löng.

Niðurstöðurnar skila dekkinu í fimmta sæti.

Kostir: Stöðugleiki í beinum akstri á auðum vegi

Ókostir: Grip á ís, löng hemlunarvegalengd við allar aðstæður.

Hraða- og burðarþol: 94 T

Hörkustig (Slitflötur): 53

Framleiðsludags: Vika 24, 2023

Framleiðsluland: Kína

Söluaðili:

Verð á eitt dekk: kr.

Radar-dekkið frá Singapúr fékk sérfræðiaðstoð frá fyrrum hönnuðum Nokian til að ná fram betri eiginleikum í vetrarfærðinni.

Mögulega hafa áhrif frá Finnunum skilað sér í áherslum á gott grip á ís, umfram allt annað.

Dekkið er eitt það mýksta í prófununum og kemur það því á óvart með gott grip á ís og í beygjum eru það á pari við þau bestu.

Því miður er dekkið eins og svo mörg á sama verðbili á þann hátt að það er einungis gott á einu sviði en slakt á öllum öðrum. Þegar prófunum á ís var lokið var lítið eftir af góðum kostum. Löng hemlunarvegalengd er bæði á blautum og þurrum vegi, lágur flothraði, hár veggnýr og mikil undirstýring í svigakstri.

Í mesta lagi má segja að dekkið sé það besta af þeim verstu og Radar-dekkið er ekki þess virði þrátt fyrir lágt verð.

Kostir: Þokkalegt grip í beygjum á ís

Ókostir: Óráðin stýring, lágur flothraði, lætur illa að stjórn undir pressu.

Hér er tekið fyrir sama heilsársdekk og var í samanburði í sumardekkjakönnuninni 2024. Nú er það hins vegar borið saman við ónegld vetrardekk.

Eins og við mátti búast er dekkið umtalsvert slakara en vetrardekkin þegar kemur að akstri á ís en það stendur sig ágætlega í snjó. Dekkið er fínt í hemlunarprófunum en slakara þegar kemur að beygjum, bæði í snjó og á ís, og rennur óþægilega mikið áður en stjórn næst aftur.

Á móti er það mun betra en vetrardekkin við akstur á malbiki. Sérstaklega á það við á blautum vegi en þar er það skrefi framar en vetrardekkin. Samtal stiga úr öllum prófununum slá út ódýru vetrardekkin.

Fyrir þá sem geta skilið bílinn eftir heima þegar snjór er á götum getur heilsárdekk verið álitlegur kostur en þau eru alls ekki góð ef aka þarf í hálku.

Kostir: Hár flothraði, yfirburða grip á blautum vegi, tilfinning í stýri á malbiki

Ókostir: Slakt grip í hálku, lætur illa að stjórn á ís og í snjó.

Hraða- og burðarþol: 94 T

Hörkustig (Slitflötur): 60

Framleiðsludags: Vika 37, 2023

Framleiðsluland: Kína

Söluaðili: BJB

Verð á eitt dekk: kr.

Kínverska merkið Greenmax, áður Linglong, er eins og mörg önnur ódýr dekk einungis gott á einu eða tveimur sviðum en annars slæmt. Þannig var Radar gott á ís en slakt við aðrar aðstæður. Greenmax stendur best að vígi hvað varðar veggný og háan flothraða en að öðru leyti er lítið um góða kosti.

Gúmmíblandan er fremur stíf og grip á ís er aðeins betra en á heilsársdekkinu. Í vetrarfærð missir dekkið grip snemma og án viðvörunnar.

Sama hegðun á sér stað í svigakstri á þurru undirlagi þar sem Greenmax lætur illa að stjórn og fer á fullt skrið án aðvörunar. Slök niðurstaða úr hemlunarprófunum á malbiki og hátt viðnám skila dekkinu í neðsta sæti. Forðist þetta dekk.

Kostir: Hár flot hraði, lágur veggnýr

Ókostir: Missir grip undir álagi, almennt léleg grip.

54 STIG
51 STIG
GREENMAX LL WINTER ICE I-15
45 STIG
Myndir: Niklas Carle

Hröðun frá 5 til 25 km/klst. Meðaltal úr 12 hröðunum í tveimur lotum á hvert dekk. Michelin tekur vinninginn á ísnum. En Nokian og Continental koma þar fast á eftir. Greenmax vermir neðsta sætið, nær tvöfalt lengur að ná upp í 25 km/h miðað við Michelin. Heilsársdekkið var rétt yfir Michelin.

ABS hemlun frá 25 til 5 km/h klst. Meðaltal 24 hemlana í tveimur lotum. Michelin sýnir aftur fram á bestu hæfni á ís. Einnig skila Nokian og Continental góðum niðurstöðum, ásamt Goodyear. Kínverska dekkið Radar náði betri árangri en Hankook. Lestina rekur heilsársdekkið þar sem það tekur bílinn hátt í átta metra að stöðva umfram Michelin dekkin.

Ekið á ísilagðri braut. Brautartímar eru meðaltal þriggja tilrauna í tveimur umferðum. Continental stendur sig best í kröppum beygjum og Nokian auðkeyrt í gegnum brautina. Radar skilaði góðum árangri með gott grip í svigakstri. Michelin kom þar á eftir og átti erfitt með að láta að stjórn með undir- og yfirstýringu. Heilsársdekkið var í neðsta sæti og átti í erfiðleikum með að halda gripi.

Hröðun 5-35 km/h. Meðaltal 12 tilrauna í tvemur lotum. Ólíkt miklum mun á dekkjum í hröðun á ís þá er munurinn fremur lítill milli dekkja. Goodyear hefur vinningin en Radar stóð sig verst með 10% lakari árangur.

ABS hemlun frá 35 til 5 km/klst. Meðaltal 12 nauðhemlana í tveimur lotum. Þríeykið Goodyar, Nokian og Michelin standa sig hvað best. Með Goodyear á toppnum. Lengstu hemlunarvegalengdina átti heilsársdekkið.

Meðaltími sex umferða um akstursbraut í tveimur lotum. Goodyear hefur besta tímann og klárar beygjur á miklum hraða án vandræða. Nokain bregst vel við og er auðkeyrt á meðan Coninental hefur tilhneyingu til að missa grip að aftan, sértaklega þegar komið er að þolmörkum. Erfiðast var að halda Greenmax dekkinu innan brautar þar sem það rann út úr öllum beygjum.

Hemlað frá 80-5 km/klst. Heilsársdekkið stóð sig ekki bara best heldur var það lang um betra en vetrardekkin. Goodyear sem er stóð sig best af vetrardekkjunum stöðvaðst ekki fyrr en 10 metrum á eftir heilsársdekkinu. Sem eru 37% lengri hemlunarvegalengd. Ódýru dekkin Greenmax og Radar þurftu fimm metra aukalega.

Hemlað frá 80-5 km/klst. Fyrir utan heilsársdekkið þá eru niðurstöðurnar mjög jafnar á milli dekkja við hemlun á þurru malbiki. Bestu vetrardekkin eru Continental, Nokian og Michelin. Það eru vonbrigði að Greenmax sem er að standa sig illa á ís er einnig að skila lélegum niðurstöðum á þurru.

Hér er sýndur hraðinn þegar dekk flýtur upp (planar) í 7 mm djúpu vatni. Og dekkin snúast 15% umfram raunhraða. Flot er helsti veikleiki vetrardekkja sem eru hönnuð fyrir norðlægar slóðir. Goodyear er best í sínum flokk og þar á eftir kemur Michelin. En bæði eru þau langt á eftir yfirburðum heilsársdekksins. Nokian og Continental er jafnvel enn verri.

Mældur hraði við flot
Hemlun úr 80 - 5 km/h

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.