2 minute read

FÍB Aðstoð á Hellu

Öryggi fyrir félagsmenn í FÍB að vita af þessari aðstoð á svæðinu FÍB-Aðstoð á Hellu: Á annan áratug hefur Erlingur Gíslason sinnt FÍB Aðstoð á Hellu og á svæðinu þar um kring. Erlingur sagði í spjalli við FÍB Blaðið starfið vera skemmtilegt og gefandi í hinum ýmsu aðstæðum sem koma upp. Flest útköll fara í að aðstoða erlenda ferðamenn yfir sumartímann og þá aðallega í bilunum. Gríðarleg umferð ferðamanna fer um Hellu Erlingur sagðist aðstoða bílaleigurnar mikið. Ósk um aðstoð þar sem ökumenn væru búnir að festa sig uppi á hálendi eru alltaf að koma inn á borð til okkar. Við bregðumst skjótt við og yfirleitt gengur þetta vel. Hann sagðist vera ágætlega tækjum búinn í þetta starf en hann hefur yfir að ráða Dodge Ram á 35 tommum sem hafi reynst afar vel til starfans. „Ég er samhliða FÍB–aðstoðinni búinn að reka bílaverkstæðið EET bílar ehf. frá 1996. Það er mín aðalvinna en afskaplega mikil tilbreyting felst í því að skjótast í FÍB–aðstoð. Það er gott að komast af verkstæðinu í annað umhverfi og hjálpa fólki þegar kallið kemur. Það er mikið öryggi fyrir félagsmenn í FÍB að vita af þessari aðstoð á svæðinu,“ sagði Erlingur Gíslason á Hellu í spjallinu við FÍB–blaðið

„Auðvitað varð maður var við aukningu í þessari aðstoð þegar straumur ferðamanna til landsins jókst jafnt og þétt. Um Hellu fer gríðarleg umferð ferðamanna á hverjum degi svo að óneitanlega finnum við fyrir því í starfsemi okkur hér á svæðinu. Íslenskir ferðamenn óska einnig eftir aðstoð en hún er helst í formi dekkjaskipta eða þegar upp kemur rafmagnsleysi. Einkum snýr starfsemin þó að erlendum ferðamönnum,“ sagði Erlingur.

Réttu handtökin við að gefa bílum start

47 Hjörtur Gunnar Jóhannesson hjá Félagi íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, kennir réttu handtökin við að gefa bílum start. Nýir og nýlegir bílar eru með ýmsum flóknum tölvu- og rafeindabúnaði sem getur verið viðkvæmur fyrir snöggum breytingum á spennu í rafkerfinu. Þess vegna er mikilvægt, þegar gefa á bíl með tóman rafgeymi startstraum með startköplum milli bíla, að tengja kaplana milli þeirra í réttri röð,“ segir Hjörtur og gefur leiðbeiningar um hvernig gefa megi start þannig að ekki verði hætta á skemmdum sem kostað getur stórfé að lagfæra. Leiðbeiningarnar má sjá hér fyrir neðan. 1. Þegar startkaplar eru tengdir milli bíla og annar bíllinn er með fullhlaðinn rafgeymi en hinn með tóman neistar á milli þegar fjórða og síðasta kapalklemman er tengd. Á því augnabliki sem neistinn myndast getur orðið allt að 3.000 volta yfirspenna. 2. Áður en startkaplar eru tengdir er í öryggisskyni skynsamlegt að fjarlægja lyklana úr kveikilásum beggja bíla. 3. Þegar startkaplar eru tengdir skal síðasta kapalklemman látin bíta sig fasta við ómálaðan málm. 4. Þegar startkaplar eru tengdir við báða bíla skal setja hjálparbílinn (þann sem gefur strauminn) í gang og síðan skal starta straumlausa bílnum. 5. Þegar bíllinn með tóma geyminn er kominn í gang skulu startkaplarnir vera tengdir saman um stund. Þetta skal gera til að forðast að neisti og yfirspenna hlaupi út í „galopið“ rafkerfið, eftir að búið er að gefa straum, og skemmi eða eyðileggi rafeindabúnað bílanna. FÍB mælir með: Notið einvörðungu vandaða startkapla.

This article is from: