7 minute read

Oft var líf í tuskunum

Oft var líf í tuskunum Viðtal við Ögmund Runólfsson fyrrum starfsmann FÍB:

Á dögunum settumst við niður með Ögmundi Runólfssyni fyrrum starfsmanni FÍB og fórum með honum yfir myndir sem félaginu áskotnaðist nýverið. Það er fátt skemmtilegra þegar rennt er yfir farinn veg en að sökkva sér niður í ljósmyndir sem gefa skýra mynd frá hverjum tíma. Fljótlega eftir flutninginn að Suðurlandsbraut, sem varð algjör bylting í starfsemi félagsins, hófst mikil vinna í kjölfar þess þegar skipt var yfir í hægri umferð á Íslandi. FÍB bauð bíleigendum upp á skiptingu á framljósaperum vegna þessara umfangsmiklu breytinga. Ögmundur er lærður bílvélavirki og útskrifaðist sem slíkur árið 1962 í Ólafsvík.

Ögmundur starfaði hjá FÍB árin 1967–1969 sem stöðvarstjóri í höfuðstöðvum félgsins sem þá voru á Suðurlandsbraut 10. Áður en FÍB flutti á Suðurlandsbraut voru bækistöðvar félagsins í Ekjuvogi. „Ég réði mig til starfa hjá FÍB snemma árs 1969 sem stöðvarstjóri. Þetta var uppgangstími hjá félaginu og það ný flutt inn á Suðurlandsbraut í glæsilegt og nútímalegt húsnæði. Það var í mörg horn að líta á þessum tíma og við blasti að vinstri umferð var að víkja fyrir hægri umferð. Við blasti ærið verkefni í endurnýjun framljósa í kjölfar þess að skipt var yfir í hægri umferð. Við tókum þátt í þessu verkefni sem var umfangsmikið. Það var oft mikið að gera, mikil vinna Ögmundur Runólfsson starfaði hjá FÍB á sjöunda áratugnum.

þessu samfara og við leystum þetta vel úr hendi enda starfsfólkið og allir tilbúnir að láta gott af sér leiða,” sagði Ögmundur Runólfsson í spjalli við FÍB-blaðið.

Ögmundur starfði hjá FÍB til loka árs 1969 en þá stofnaði hann bifvélaverkstæði í Súðarvogi ásamt félaga sínum, Sveini Karlssyni, sem einnig hafði verð starfsmaður hjá FÍB. Ögmundur rak bifvélaverkstæðið í Súðarvogi í 40 árs allt þar til hann lét af störfum 2002. Eftir það starfaði hann um tíma við Lágafellsskóla. Ögmundur fagnar áttræðisafmæli sínum á þessu ári.

„Ég minnist áranna hjá FÍB með hlýjum hug. Það var oft líf í tuskunum og FÍB var traustur bakhjarl bifreiðaeigenda í landinu eins og það hefur verið allar götur til dagsins í dag.“

Aðspurður hvernig honum litist á tímana í dag og þróunina sem er að eiga sér stað segir Ögmundur vissulega áhugaverða og skemmtilega tíma fram undan í þeim efnum.

„Rafbílar verða alltaf meira í umræðunni. Ég hef setst inn í þá en þeir eru bara fulllitlir fyrir manna eins og mig. Drægi þeirra er ekki alveg nægilegt fyrir mínar þarfir og þær leiðir sem ég þarf að fara. Að öllu gamni slepptu er þetta framtíðin, hjá því verður ekki litið. Þeir eiga eflaust eftir að sanna gildi sitt með tíð og tíma og aukinni þróun. Það verður skemmtilegt og spennandi að fylgjast með,” sagði Ögmundur Runólfsson.

Bílafloti FÍB fyrir utan Tónabíó í Skipholti í Reykjavík.

FÍB 2. Bjarni Einarsson vegaeftirlitsmaður er hér á myndinni.

GMC sem var í eigu FÍB. Þetta var bill sem kom á undan Bedfordinum.

Einn uppáhaldsbíllinn í góðu yfirlæti á Samgönguminjasafninu Ystafelli

María Jóna Magnúsdóttir er framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins. Hún er alin upp á Akureyri, dóttir Magnúsar Aríusar Ottóssonar vélstjóra og Margrétar Jónsdóttur stofnanda Glófa ehf. prjónastofu. Á yngri árum var ekki sjaldséð sjón að sjá hana renna sér niður brekkur Hlíðarfjalls en þar eyddi hún ófáum stundunum við æfingar og keppni. Leiddi sú vegferð hana um tíma í skíðamenntaskóla í Noregi. Þegar því ævintýri var lokið hóf hún störf hjá P. Samúelssyni hf. sem síðar varð Toyota á Íslandi og hófst þar vegferð hennar í bílgreininni en í dag hefur hún starfað á þeim vettvangi í tæpa tvo áratugi.

42 Áður en hún tók við starfi sem framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins, fyrst kvenna, starfaði hún síðast sem framkvæmdastjóri viðskiptatengsla og síðar framkvæmdastjóri sölusviðs Heklu. Áður var María yfirmaður viðskiptatengsla hjá Toyota ásamt því sem hún var sérfræðingur og verkefnastjóri við innleiðingu straumlínustjórnunar hjá Arion banka. María útskrifaðist með MS.c. í fjármálum og stefnumótun frá Copenhagen Business School árið 2012 og áður með BS.c í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík.

Fyrsti bíllinn sem þú eignaðist

Fyrsti bíllinn minn var skínandi fallega rauð Toyota Corolla G6 beint úr kassanum.

Hvernig borgarðu bílinn

Ég var svo heppin en á þeim tíma var ég að vinna hjá P. Samúelssyni ehf. (Toyota á Íslandi) og þá var í boði að taka bíl á leigu í gegnum fyrirtækið á rekstrarleigu sem ég nýtti mér.

Manstu eftir fyrstu bílferðinni

Nei, ég man reyndar ekkert sérlega eftir fyrstu ferðinni. Hins vegar man ég vel eftir fjölmörgum ferðum þar sem við vinkonurnar settum geisladisk í tækið, hækkuðum vel og sungum með á meðan brunað var í sjötta gírnum norður til Akureyrar. Man hvað mér fannst töff að geta sett hann í sjötta gírinn.

Hvað ertu búinn að eiga marga bíla

Ekkert rosalega, sennilega bara svona passlega marga. Frá því ég eignaðist fyrsta bílinn hef ég átt átta sinnum nýjan bíl og svo einu sinni fjárfesti ég í notuðum. Ég keypti mér notaðan bíl þegar ég var að koma úr mastersnámi og flutti aftur til landsins. Það var um áramótin 2012–2013 og ætlaði ég að kaupa mér eins til tveggja ára gamlan bíl en ég man að það var eins og að leita eftir gulli því að á þeim árum voru ekki margir bílar seldir svo að það tók sinn tíma að finna eina og rétta bílinn.

Uppáhaldsbíllinn

Uppáhalds bíllinn minn er einn sem hefur verið eigu afa míns og föður frá upphafi og eftir að þeir féllu frá var tekin ákvörðun um að hann myndi erfast í karllegg. Því var bróðir minn gerður ábyrgur fyrir bílnum. Er það rauður Ford Taunus ´64–´67 sem er í dag í góðu yfirlæti á Samgönguminjasafninu að Ystafelli. Ég á margar góðar minningar frá því ég var krakki að rúnta með pabba mínum í honum. Einnig man ég eftir góðri ferð þegar það var farið að nálgast í að ég fengi ökuskírteini að afi minn fór með mig á rúntinn inn í Eyjafjörð á honum og ég fékk að keyra. Það gekk nú ekki betur en svo að lögreglan stoppaði okkur. Ástæðan var ekki hraðakstur heldur kunni ég ekkert á gírana sem voru í stýrinu og orðnir nokkuð slitnir svo ég kom honum

Einn uppáhaldsbíllinn í góðu yfirlæti á Samgönguminjasafninu Ystafelli

Uppáhalds bíllinn er rauður Ford Taunus 64-67 módel sem var í eigu afa Maríu. Mynd af sambærilgum bíl

ekki í annan gír. Því var aksturslagið frekar undarlegt. Ég var þó nokkuð heppin að vera ekki spurð um ökuskírteini og fékk því að halda för minni áfram.

Ef þú hefðir næg fjárráð hvaða bíll yrði fyrir valinu

Ef ég hefði næg fjárráð þarf að breyta þessari spurningu í hvaða bílar yrðu fyrir valinu. Það yrði klárt að það yrði keyptur bíll fyrir hvert tilefni. Góður ferðabíll fyrir alla fjölskylduna kæmi sér vel en í dag erum við fimm í fjölskyldunni, þar af eitt ungabarn sem fylgir ótrúlega mikið magn af aukahlutum þegar verið er að ferðast og svo eigum við einnig hund á stærð við hest, því er það líka pláss sem við erum að leita eftir. Þá kæmi sér vel að eiga einn Bentley Bentayga í skúrnum.

Hversu mikilvægur er bíllinn í þínum huga

Fullyrða má að engin einn hlutur hefur á síðari öldum haft eins mikil áhrif á og valdið eins miklum breytingum í okkar þjóðlífi og þegar fyrsti bíllinn kom til landsins. Íslenskt efnahags- og menningarlíf byggist á samgöngum og samgöngur á Íslandi byggjast á bílnum. Ég hef verið námsmaður í Kaupmannahöfn þar sem maður var án bíls og fór leiða sinna á hjóli eða með almenningssamgöngum sem eru mjög góðar þar. Þrátt fyrir það fannst mér ég bundin niður og vantaði það frelsi sem einkabíllinn gefur manni og það er mér mikilvægt.

Eru bílar dýrir í dag

Bílar í dag eru á sanngjörnu verði. Verðbilið er einnig breytt og því á að vera hægt að finna sér góðan bíl við hæfi. Einnig er jákvætt að ívilnanir stjórnvalda eru áfram í boði fyrir rafmagns og tengiltvinnbíla sem gera þá samkeppnishæfa.

Uppáhaldslitur á bíl

Mér finnst svartur bíll nánast alltaf fallegur og hefur hann því oftast verið fyrir valinu hjá mér.

Hvaða bíll yrði fyrir valinu í dag, jarðefnaeildsneytisbíll eða rafbíll

Með þeirri löngu drægni sem rafbílar bjóða upp á í dag myndi ég velja að kaupa mér slíkan bíl. Hér á landi búum við það vel að við höfum mjög gott aðgengi að rafmagni og því hentar þessi lausn vel. Hins vegar sakna ég að heyra ekki vélina vinna og það hljóð sem góður dísilbíll framkvæmir.

Með næg fjárráð þá yrði Bentley ákjósanlegur fjölskyldubíll.

This article is from: