7 minute read

Ferðalag um Florida

Skipulagning og samvinna skiptir miklu máli Ferðalag um Flórídafylki

Hjónin Björn Kristjánsson og Íris Dögg Guðjónsdóttir voru á ferð um Flórída skömmu fyrir síðustu áramót. Fjölmargir Íslendingar ferðast um á þessu svæði allan ársins hring og enn aðrir hafa þar fasta búsetu meira eða minna. Því hafa margir reynslu af því að keyra um á bíl þar um kring enda er margt að sjá. Þetta svæði var alveg nýtt fyrir þeim Birni og Írisi Dögg en þau höfðu undirbuið sig vel en fyrir mestu var að njóta ferðarinnar og nýta vel þessa rúmlega viku sem þau ætluðu að dvelja í Flórída. Björn sagði að þau hefðu pantað flug og bíl með góðum fyrirvara en þann hátt hafa þau á þegar þau halda til útlanda. Þau hefðu skoðað vel hvað myndi henta þeim á þessum tíma og hvert þau myndu fara.

„Við gefum okkur alltaf nægan tíma til þessara hluta, leita tilboða og sjá hvað er í boði. Við fengum að lokum mjög góðan bíl frá bílaleigunni Alamo í Orlando þar sem við hófum ferðina, en leigu fyrirkomulagið var ekki eins og ég hef vanist því þarna stóðu bílar í röðum af ýmsum stærðum og gerðum og ég hafði frjálsar hendur með að velja bíl í þeim stærðarflokk sem við höfðum greitt fyrir. Þegar á hólminn var komið skipti undirbúningurinn sköpum en með góðum fyrirvara færðu alltaf besta verðið. Við bókuðum fyrstu gistingu ferðarinnar á móteli rétt við flugvöllinn en eftir það var hreinlega opin bók hvar við myndum gista hverju sinni. Ekki er rukkað sérstakleg fyrir hvern ekinn kílómetra þegar bílaleigubíll er tekinn og því gátum við keyrt eins og við vildum. Þar sem við vorum ekki með börnin í ferðinni ætluðum við frekar að láta hlutina ráðast. Einhverja beinagrind vorum við búin að gera um hvert við ætluðum að fara og hvaða áhugaverðir staðir yrðu skoðaðir,“ sagði Björn í spjalli við FÍB-blaðið um ferðina.

Björn sagði að sú ákvörðum hefði verið tekin að keyra niður eftir ströndinni frá Orlando til Miami. Það skemmtilega við þetta allt saman hefði verið að þau settu inn skemmtilega punkta af leiðinni áður en þau lögðu af stað og stoppuðu á mörgum stöðum áður en til Miami var komið en ekki skemmdi fyrir að á þeim tíma var í gangi bílasýningin Miami Autoshow sem er árlegur viðburður þar sem allir helstu bílaframleiðendur mæta og kynna sína framleiðslu. Sem betur fer var eiginkonan hin skilningsríkasta þar sem skoða þurfti vel allar hliðar á hverjum bíl fyrir sig.

Fín ákvörðun að hafa fastan gististað

„Við fundum bara ágætt hótel við flugvöllinn í Miami eftir að hafa skoðað okkur um í borginni. Daginn eftir ákváðum að staldra ekki lengur við á Miami-svæðinu heldur að taka stefnuna til Orlando með nokkrum viðkomustöðum og skoða okkur um. Síðustu dagana í ferðinni gistum við á sama gistiheimilinu en alls urðu gistinæturnar átta í ferðinni. Það var ágæt ákvörðum að hafa fastan stað síðustu dagana, hafa punkt til að miða við og geta gengið að öllu vísu,“ sagði Björn.

Að lokinni svona ferð, hvað finnst þér að fólk ætti að leggja áherslu á áður en lagt er af stað?

„Það fyrsta er að þegar ferðast er til Bandaríkjanna ert þú ekki að fara neitt nema að hafa bíl til umráða. Þótt vegalengdir séu stuttar á korti er lítið gert ráð fyrir

Skipulagning og samvinna skiptir miklu máli

gangandi umferð, að minnsta kosti ekki á þeim stöðum sem við vorum á. Enn fremur þarf að vera búið að ganga frá helstu hlutum eins og Apis og Esta. Einnig þarf að vera tilbúinn að aka því að í mörgum tilfellum er um langar vegalengdir að ræða. Þá er ekki endilega skemmtilegast að taka fljótustu leiðina, jafnvel að velja heldur hliðarvegi og þá sleppur þú frekar við að borga vegtolla. Einnig skiptirmiklu máli að vera búinn að tala við símafyrirtækið en þau bjóða mörg hver upp á fína pakka sem eru fyrir utan Evrópu. Það þarf alltaf samt að vera vakandi yfiir því hvað felst í kostnaðinum að nota síma í Bandaríkjunum. Að nota GPS–tæki í símanum getur verið kostnaðarsamt ef maður er ekki meðvitaður um það. Á móti fást hins vegar mikið af upplýsingum, bæði hvað varðar umferðina og líka áhugaverða staði sem gaman er að skoða. Sé ákveðið er að aka er góð regla að fara yfir hvaða umferðareglur og venjur gilda í hverju landi fyrir sig. Það er ekkert svigrúm fyrir neinar tafir. Þegar kemur grænt ljós þá leggur þú af stað og þegar kemur rautt ljós ertu ekkert að skjóta þér yfir. Manni sýndist ökumenn í Flórída virða umferðarlögin í hvívetna. Það er góður punktur að benda á að í forgangsakstri lögreglu-, sjúkra- og slökkviliðsbifreiða áttu að færa þig yfir á hægri akrein og hægja á þér. Björn og Íris um borð í fenjabát.

Eins koma umferðarskilti manni spánst fyrir sjónir og þá skiptir máli að fletta þeim upp, kynna sér vel áður en lagt er af stað. Varðandi vegtolla er boðið upp á passa í bílinn þar sem allir vegtollar eru greiddir fyrir þig og þú getur keyrt beint í gegnum hliðin. Reikning fyrir því færð þú sendan eftir á. Þegar við vorum búinn að skoða þetta til hlítar þá felst í því gríðarlegur sparnaður að vera með klink í bílnum og greiða á hverjum stað eins og við gerðum raunar alltaf. Starfsmaður tekur nær alltaf á móti þér í tollhliðunum. Mig langar að minnast á tvær hraðbrautir í Orlando sem eru raunverulega hlið við hlið meðfram strandlengjunni. Önnur þeirra er einkarekin, gengur að vísu hraðar fyrir sig og kostar að aka á henni. Við lentum að vísu á henni og þurftum að keyra um 50 km áður en við komust aftur út af henni,“ segir Björn.

Gott að hafa meðferðis alþjóðlegt ökuskírteini sem þú nálgast á skrifstofu FÍB

Þegar Björn er inntur eftir því hvað standi upp úr eftir svona ferð segir hann það ótalmargt. Hann segist vera mikill áhugamaður um akstur og því þótti honum mjög skemmtilegt að keyra um þessar slóðir. Við keyrðum mikið og það er afskaplega gott að athafna sig þarna og við fengum mjög stóran bíl á góðu verði.

„Ég var mjög feginn því eftir á að hafa tekið svona stóran bíl. Maður er umkringdur stórum bílum á miklum

hraða og þú vilt ekki aka á smábíl á þessum vegum. Það sem stendur aðallega upp úr að þetta var gott frí, gaman að fara út í þetta sem skilar sér allt saman í reynslubankann. Eins og ég sagði áðan fórum við ein í þessa ferð en ef öll fjölskyldan er tekinn með og farið í skemmtigarða

Einn af hápunktum ferðarinnar var án efa klukkustunda akstur á fenjabát hjá Boggy Creek Airboat Rides.

er best að koma sér inn á hótel sem er eins nálægt þessum stöðum. Gott að verða sér úti um allar upplýsingar og leiðbeiningar á Netinu áður en farið er af stað hverju sinni. Sé hugmyndin hins vegar að aka meira er gott að vera með sólgleraugu og vel skipulagður. Það er gott að hafa meðferðis alþjóðlegt ökuskírteini sem þú nálgast á skrifstofu FÍB. Maður hefur margsinnis heyrt af því að lögreglan í Bandaríkjunum hafi ekki tekið íslenskt ökuskírteini gilt í fyrstu atrennu. Því er nauðsynlegt og mikið öryggi í því að enska þýðingin sé meðferðis,“ segir Björn. Björn hefur kynnst því að taka bílaleigubíl á Spáni og í samanburði við Bandaríkin var bílaleigan í Orlando ekki að halda að þeim viðbótartryggingum. Björn segir það brýnt að lesa vel yfir leigusamninginn áður en gengið er frá öllum málum. Björn kom enn fremur inn á að gott væri að fara í stórmarkaði og versla hreinlega inn í bíllinn. Það getur reynst dýrt að versla á bensínstöðvum, það er fljótt að telja þegar upp er staðið.

Dodge Dakota fór vel með ökumann og farþega á löngum amerískum hraðbrautunum.

Fara af stað með opnum huga og njóta ferðarinnar

„Við fórum mjög skemmtilega og eftirminnilega ferð á vatnabátum um fenin og sáum meðal annars krókódíla. Við heimsóttum dýragarða, markaði ýmiss konar og gaman var að ræða við íbúana og kynnast menningunni. Það getur verið skemmtileg upplifun að fara á svona stað, ætla sér ekki of mikið til að forðast stress og getur það verið mjög gott. Góð skipulagning skiptir öllu, sparar tíma og peninga. Það skiptir líka gríðarlegu máli að hafa góðan aðstoðarökumann sem eiginkona mín var sannarlega í þessari ferð. Aðstoðarökumaður er mikil hjálparhella, því að velja þarf leiðir og það geta skapast flækjur að koma sér inn í þessar stórborgir. Sé maður einn að aka og ekki með gott GPS-tæki ráðlegg ég fólki að setjast vel yfir kortið áður en lagt er af stað. Fara af stað með opnum huga og njóta ferðarinnar út í ystu æsar,“ sagði Björn Kristjánsson í viðtalinu við FÍB-blaðið.

Miami Auto Show er haldin ár hvert og er ein stærsta bílasýning í Bandaríkjunum. Um 300 þúsund gestir komu á þessa sýningu sem var í 10 daga.

This article is from: