
1 minute read
Hringtorg draga úr hraða
Hringtorgin draga úr hraða
Verkfræðistofan EFLA vann rannsóknarverkefni þar sem skoðað var samspil hönnunar hringtorga og umferðarhraða í þéttbýli og dreifbýli. Helstu niðurstöður sýna að hraði við innog útkeyrslur hringtorga í þéttbýli er meiri en æskilegt er. Hringtorg í dreifbýli draga almennt séð úr umferðarhraða en hönnun á slíkum hringtorgum er síður æskileg í þéttbýli.
Dróni og myndgreining notuð til að rannsaka hraða ökutækja
Til að meta hraða ökutækja voru myndbönd myndgreind í samstarfi við Logiroad. Hraði í ákveðnum sniðum var borinn saman til að meta áhrif hringtorga á hraða ökutækja og ýmsa hönnunarþætti þeirra, s.s. stærð miðeyju og radíus inn- og útkeyrslu. Ýmsar aðrar upplýsingar fást úr myndgreiningu,
Meiri hraði í tvíbreiðum hringtorgum Niðurstöðurnar sýna einnig að hraði er meiri í tvíbreiðum hringtorgum (hringtorg með tvær akreinar í sömu akstursstefnu). Ástæðan fyrir því er að ökutæki hafa þá möguleika á að nýta sér breiddina til að hraða á sér. Vegna þessa og að sökum skerðinga á sjónlengdum er ekki ráðlagt að láta gangandi og hjólandi þvera hringtorg sem hafa tvær akreinar í sömu akstursstefnu án þess að vera með sérlausnir. Svíar hafa til
Fram kemur að síðastliðið ár vann EFLA að verkefni um aksturshraða á hringtorgum sem styrkt var af Rannsóknarsjóði Vegagerðarinnar. Í rannsókninni var notast við dróna til að mynda ökutæki sem keyrðu um hringtorg. Skoðuð voru sex hringtorg, fjögur á höfuðborgarsvæðinu og tvö utan þéttbýlis en leyfilegur hámarkshraði var sá sami við öll hringtorgin í þéttbýli (50 km/klst.) og í dreifbýli (70 km/ klst). til dæmis flokkar ökutækja og greining akstursleiða.
Niðurstöður verkefnisins sýna meðal annars að hringtorgin draga öll markvisst úr hraða ökutækja en þó mismikið. Niðurstöður sýna að 85%1 hraði við inn- og útkeyrslu mældist yfir 30 km/klst fyrir öll hringtorgin í þéttbýli. Þar sem gangandi og hjólandi vegfarendur þvera götur er hins vegar æskilegt að 85% hraði sé um og undir 30 km/klst. dæmis leyst þetta með því að hafa millimiðeyjur fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur staðsettar á milli akreina í sömu akstursstefnu.
Hringtorg í dreifbýli draga úr hraða
Helstu niðurstöður fyrir hringtorg utan þéttbýlis gefa til kynna að hringtorg í dreifbýli (sænsk hönnun) séu góð leið til að draga úr hraða ökutækja fyrir utan þéttbýli en þau henta hins vegar ekki vel innan þéttbýlis. Með það til hliðsjónar þjóna hringtorg utan þéttbýlis vel hlutverki sem þéttbýlishlið og draga úr hraða ökutækja þegar þéttbýli nálgast.