2 minute read

Bílnum gefið start

Dýrir bílar stoppa síður

Ólíklegra er að ökumenn dýrari bíla stöðvi bíla sína fyrir vegfarendur sem fara yfir gangbrautir. Þetta kemur fram í bandarískri rannsókn sem var birt í tímaritinu Journal of Transport & Health. Vísindamenn sem unnu að rannsókninni fylgdust með hundruðum bíla við gangbrautir á nokkrum stöðum í Bandaríkjunum, þar sem ökutækjum er skylt samkvæmt lögum að stöðva. Þeir komust að þeirri niðurstöðu að líklegra var að eigendur ódýrari bíla myndu stöðva fyrir gangandi vegfarendur heldur en þeir sem óku dýrari bílum. Verðmæti bíla sem stöðvaðir voru taldist að meðaltali 5.900 dollarar en verðmæti hinna, sem ekki stöðvuðu, var 8.000 dollarar og yfir. Dr. Courtney Coughenour við Háskólann í Nevada, sem stýrði rannsókninni, sagði að túlka mætti niðurstöðurnar með ýmsum hætti. Ein væri sú að samkennd og réttlætiskennd væri hærri hjá þeim sem ættu ódýrari bíla.

Meðalaldur fólksbílaflotans að hækka

Bílgreinasambandið spáir því að um 12.750 nýir fólksbílar verði skráðir árið 2020 en það gerir um 10% aukningu frá árinu sem er að ljúka. Samkvæmt bæði Arion banka og Íslandsbanka er spáð lítils háttar vexti í einkaneyslu fyrir næsta ár. Þá hefur stórkaupavísitala Gallups, sem mælir meðal annars hversu líklegt er að neytendur festi kaup á bifreið á næstu sex mánuðum, hækkað í síðustu þremur mælingum miðað við sama tíma á síðasta ári. Að sama skapi eru vextir í sögulegu lágmarki og gæti það ýtt undir sölu á nýjum bílum. Meðalaldur fólksbílaflotans er einnig að hækka en stórir árgangar í bílaflotanum eru komnir á meðalaldur sem í fyrra var 12,3 ár og fer hækkandi. Uppsöfnuð fjárfestingaþörf bílaleigna mun hafa áhrif á fjölda seldra nýrra fólksbíla árið 2020 en nýskráðir fólksbílar til bílaleigna í ár voru um 30% undir sölu þeirra á árinu 2018. Meðalaldur bílaleiguflotans er einnig að hækka og um 20% flotans eru nýir bílar sem er töluvert lægra en hefur verið síðustu 4 ár. Fram kemur í upplýsingum frá Bílgreinasambandinu að einnig séu jákvæðar breytingar þar sem Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis hefur nú skilað af sér í áliti vegna frumvarps um breytingar á ýmsum lögum um skatta (vistvæn ökutæki o.fl.). Þar er m.a. er fjallað um ívilnanir vegna rafmagns-, vetnis-, og tengiltvinnbíla næstu árin. Þar er lagt til að hækka ívilnanir til rafmagns- og vetnisbíla en einnig tekur nefndin undir sjónarmið Bílgreinasambandsins og leggur til að frumvarpinu verði breytt á þann hátt að það framlengi enn frekar ívilnanir vegna tengiltvinnbíla ásamt því að hækka fjöldamörk þeirra ökutækja upp í 15.000 í stað 12.500. Á næsta ári munum við einnig að sjá aukið úrval rafmagns- og tengiltvinnabíla koma á markað.

This article is from: