FÍB Blaðið 1.tbl. 2020

Page 44

Ferðalag um Flórídafylki

Skipulagning og samvinna skiptir m Hjónin Björn Kristjánsson og Íris Dögg Guðjónsdóttir voru á ferð um Flórída skömmu fyrir síðustu áramót. Fjölmargir Íslendingar ferðast um á þessu svæði allan ársins hring og enn aðrir hafa þar fasta búsetu meira eða minna. Því hafa margir reynslu af því að keyra um á bíl þar um kring enda er margt að sjá. Þetta svæði var alveg nýtt fyrir þeim Birni og Írisi Dögg en þau höfðu undirbuið sig vel en fyrir mestu var að njóta ferðarinnar og nýta vel þessa rúmlega viku sem þau ætluðu að dvelja í Flórída. Björn sagði að þau hefðu pantað flug og bíl með góðum fyrirvara en þann hátt hafa þau á þegar þau halda til útlanda. Þau hefðu skoðað vel hvað myndi henta þeim á þessum tíma og hvert þau myndu fara. „Við gefum okkur alltaf nægan tíma til þessara hluta, leita tilboða og sjá hvað er í boði. Við fengum að lokum mjög góðan bíl frá bílaleigunni Alamo í Orlando þar sem við hófum ferðina, en leigu fyrirkomulagið var ekki eins og ég hef vanist því þarna stóðu bílar í röðum af ýmsum stærðum og gerðum og ég hafði frjálsar hendur með að velja bíl í þeim stærðarflokk sem við höfðum greitt fyrir. Þegar á hólminn var komið skipti undirbúningurinn sköpum en með góðum fyrirvara færðu alltaf besta verðið. Við bókuðum fyrstu gistingu ferðarinnar á móteli rétt við flugvöllinn en eftir það var hreinlega

44

opin bók hvar við myndum gista hverju sinni. Ekki er rukkað sérstakleg fyrir hvern ekinn kílómetra þegar bílaleigubíll er tekinn og því gátum við keyrt eins og við vildum. Þar sem við vorum ekki með börnin í ferðinni ætluðum við frekar að láta hlutina ráðast. Einhverja beinagrind vorum við búin að gera um hvert við ætluðum að fara og hvaða áhugaverðir staðir yrðu skoðaðir,“ sagði Björn í spjalli við FÍB-blaðið um ferðina. Björn sagði að sú ákvörðum hefði verið tekin að keyra niður eftir ströndinni frá Orlando til Miami. Það skemmtilega við þetta allt saman hefði verið að þau settu inn skemmtilega punkta af leiðinni áður en þau lögðu af stað og stoppuðu á mörgum stöðum áður en til Miami var komið en ekki skemmdi fyrir að á þeim tíma var í gangi bílasýningin Miami Autoshow sem er árlegur viðburður þar sem allir helstu bílaframleiðendur mæta og kynna sína framleiðslu. Sem betur fer var eiginkonan hin skilningsríkasta þar sem skoða þurfti vel allar hliðar á hverjum bíl fyrir sig. Fín ákvörðun að hafa fastan gististað „Við fundum bara ágætt hótel við flugvöllinn í Miami eftir að hafa

skoðað okkur um í borginni. Daginn eftir ákváðum að staldra ekki lengur við á Miami-svæðinu heldur að taka stefnuna til Orlando með nokkrum viðkomustöðum og skoða okkur um. Síðustu dagana í ferðinni gistum við á sama gistiheimilinu en alls urðu gistinæturnar átta í ferðinni. Það var ágæt ákvörðum að hafa fastan stað síðustu dagana, hafa punkt til að miða við og geta gengið að öllu vísu,“ sagði Björn.

Að lokinni svona ferð, hvað finnst þér að fólk ætti að leggja áherslu á áður en lagt er af stað? „Það fyrsta er að þegar ferðast er til Bandaríkjanna ert þú ekki að fara neitt nema að hafa bíl til umráða. Þótt vegalengdir séu stuttar á korti er lítið gert ráð fyrir


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.