FÍB Blaðið 1.tbl. 2020

Page 40

Viðtal við Ögmund Runólfsson fyrrum starfsmann FÍB:

Oft var líf í tuskunum Á dögunum settumst við niður með Ögmundi Runólfssyni fyrrum starfsmanni FÍB og fórum með honum yfir myndir sem félaginu áskotnaðist nýverið. Það er fátt skemmtilegra þegar rennt er yfir farinn veg en að sökkva sér niður í ljósmyndir sem gefa skýra mynd frá hverjum tíma.

Fljótlega eftir flutninginn að Suðurlandsbraut, sem varð algjör bylting í starfsemi félagsins, hófst mikil vinna í kjölfar þess þegar skipt var yfir í hægri umferð á Íslandi. FÍB bauð bíleigendum upp á skiptingu á framljósaperum vegna þessara umfangsmiklu breytinga. Ögmundur er lærður bílvélavirki og útskrifaðist sem slíkur árið 1962 í Ólafsvík.

„Ég réði mig til starfa hjá FÍB snemma árs 1969 sem stöðvarstjóri. Þetta var uppgangstími hjá félaginu og það ný flutt inn á Suðurlandsbraut í glæsilegt og nútímalegt húsnæði. Það var í mörg horn að líta á þessum tíma og við blasti að Ögmundur Runólfsson starfaði hjá FÍB á sjöunda áratugnum. vinstri umferð var Ögmundur starfaði hjá FÍB árin að víkja fyrir hægri umferð. Við blasti 1967–1969 sem stöðvarstjóri í ærið verkefni í endurnýjun framljósa höfuðstöðvum félgsins sem þá í kjölfar þess að skipt var yfir í hægri voru á Suðurlandsbraut 10. Áður umferð. Við tókum þátt í þessu en FÍB flutti á Suðurlandsbraut voru verkefni sem var umfangsmikið. Það bækistöðvar félagsins í Ekjuvogi. var oft mikið að gera, mikil vinna

40

Jeppar og kranabíll í vegaþjónustunni. Þessir bílar voru úti um allar helgar.

þessu samfara og við leystum þetta vel úr hendi enda starfsfólkið og allir tilbúnir að láta gott af sér leiða,” sagði Ögmundur Runólfsson í spjalli við FÍB-blaðið. Ögmundur starfði hjá FÍB til loka árs 1969 en þá stofnaði hann bifvélaverkstæði í Súðarvogi ásamt félaga sínum, Sveini Karlssyni, sem einnig hafði verð starfsmaður hjá FÍB. Ögmundur rak bifvélaverkstæðið í Súðarvogi í 40 árs allt þar til hann lét af störfum 2002. Eftir það starfaði hann um tíma við Lágafellsskóla. Ögmundur fagnar áttræðisafmæli sínum á þessu ári. „Ég minnist áranna hjá FÍB með hlýjum hug. Það var oft líf í tuskunum og FÍB var traustur bakhjarl bifreiðaeigenda í landinu eins og það hefur verið allar götur til dagsins í dag.“ Aðspurður hvernig honum litist á tímana í dag og þróunina sem er að eiga sér stað segir Ögmundur vissulega áhugaverða og skemmtilega tíma fram undan í þeim efnum. „Rafbílar verða alltaf meira í umræðunni. Ég hef setst inn í þá en þeir eru bara fulllitlir fyrir manna eins og mig. Drægi þeirra er ekki alveg nægilegt fyrir mínar þarfir og þær leiðir sem ég þarf að fara. Að öllu gamni slepptu er þetta framtíðin, hjá því verður ekki litið. Þeir eiga eflaust eftir að sanna gildi sitt með tíð og tíma og aukinni þróun. Það verður skemmtilegt og spennandi að fylgjast með,” sagði Ögmundur Runólfsson.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
FÍB Blaðið 1.tbl. 2020 by Félag íslenskra bifreiðaeigenda - Issuu