Reynsluakstur: Peugeot 208e Vel flestir kannast við þá nostalgíu sem ríkir í kringum þá bíla sem maður þekkti á uppvaxtarárunum. Reglulega lendir maður í samræðum við aðra bílaáhugamenn um þá bíla sem áttu stærstu sögurnar og sigra á götunum á hverjum tíma þegar ökuskírteinið var brakandi ferskt í vasanum. Bílprófstímabilið mitt var einmitt um síðustu aldamót þegar Hondur VTI og Subaru Impresur Turbo voru að sigra heiminn, að manni fannst. Og svo var það auðvitað Peugeot 205 GTI sem var í raun litli bíllinn sem gat, með sinn1900 mótor og 140 hestöfl. 205 Peugeotinn er nú að mestu horfinn af götum bæjarins en það kviknaði einhver vonarneisti þegar ég sá fyrstu myndir af nýja 208 bílnum og þá sérstaklega þegar tekið er tillit til þess hönnuðirnir hjá Peugeot og Citroen hafa í auknum mæli sótt í fyrri hönnun til að glæða nýjustu bíla persónuleika fyrri tíma.
36
Að utan
Að innan
Að utan lítur bíllinn einstaklega vel út, sérstaklega í ljósi þess að um smábíl er að ræða. Bíllinn er með grimman framenda og einkenndi Led–dagljósalínu sem liggur frá framljósum og niður á framstuðara. Grillið er samlitt bílnum með blöndu af háglans svörtum lit en það er eitt af fáum einkennum sem aðskilur rafmagnsbílinn frá bensínbílnum. Prufubíllinn var í Active útfærslu en það er minnst búna útgáfan en á eftir henni kemur síðan Allure og að lokum GT. Þrátt fyrir að vera með „ódýrustu“ útgáfuna bar bíllinn það ekki með sér í útliti. Svartir háglans brettakantar, vindskeið á þaki og þótt ótrúlegt sé þá var bíllinn bara á þokkalegustu hjólkoppum. Það er síðan ekki fyrr en í dýrustu útgáfu að bíllinn fær að auki Led–framljós, skyggðar rúður og auðvitað álfelgur sem koma einnig í Allure–útgáfunni.
Þegar sest er inn í bílinn er alveg ljóst að um smábíl er að ræða. Mælaborðið og innréttingin umlykur mann, eins og búast má við af Peugeot, og er það alls ekki meint á slæman hátt. Þrátt fyrir að vera smábíll hefur ekki verið dregið úr íburði og minnir mælaborðið mjög á stærri bíla þó að það sé minna í sniðum. Það var sérlega ánægjulegt að sjá hliðræna (e. analog) mæla með gamaldags nál skila öllum helstu upplýsingum á eins einfaldan máta og hægt er. Þannig er rafhlöðustaðan t.d. skilgreind eins og um bensíntank sé að ræða. „Hálf rafhlaða eftir“ sagði mér í raun ekki mikið en þær upplýsingar nægja ágætlega þegar maður er farinn að þekkja bílinn. Aksturstölvan í bílnum gat hins vegar veitt nákvæmar upplýsingar um hversu mikið hálf rafhlaða þýddi fyrir drægni mína miðað við aksturslag.