FÍB Blaðið 1.tbl. 2020

Page 14

Eldsneyti á Íslandi hefur lækkað mun minna en á erlendum mörkuðum Kórónafaraldurinn hefur í för með sér mikinn efnahagslegan samdrátt sem ekki sér fyrir endann á. Ekkert bólar á samkomulagi um framleiðslukvóta á olíu á milli Saudi Araba og Rússa og bæði löndin hafa aukið framboð sitt á olíumörkuðum samhliða miklum samdrætti í eftirspurn. Mikið framboð í lítilli eftirspurn mun halda olíuverði niðri á næstunni. Eldsneytisverð til íslenskra neytenda hefur lækkað töluvert undanfarið en mun minna en á flestum öðrum mörkuðum. Fram kom í frétt á FÍB vefnum þann 25. mars sl. að frá miðjum janúar í ár til 25. mars hefði bensínlítrinn hjá N1 lækkað um 20,90 krónur og kostaði 221,90 krónur. Dísillítrinn hafði lækkað á sama tíma um 18,50 krónur niður í 217,40 krónur. Í Danmörku hafði bensínlítrinn á sama tíma lækkað að meðaltali um 45 krónur og dísillítrinn um ríflega 35 krónur. Í Svíþjóð var lækkunin að meðaltali 43 krónur fyrir bensínið og 29 krónur fyrir dísilolíuna. Veiking íslensku krónunnar skýrir hluta af þessum mikla mun en aukin álagning vegur þyngst.

Síðustu tvo daga marsmánaðar lækkuðu íslensku olíufélögin verðin hjá sé um allt að 5 krónur á lítra. miðað við þróun heimsmarkaðarins. Brent hráolíuverðið hefur fallið um allt að 60% á síðustu vikum, farið niður undir 22 Bandaríkjadali og hefur ekki verið lægra frá árinu 2002. Þrátt fyrir drjúgar verðlækkanir á í mars hér heima þá hafa olíufélögin ekki verið að skila eðlilegri verðlækkun til neytenda. Meðalálagning á hvern bensínlítra á íslenskum markaði er yfir 13 krónum hærri í mars samanborið við febrúar í ár. Líklega reyna olíufélögin að réttlæta aukna álagningu með með tilvísun í mikinn sölusamdrátt sem fylgir kreppunni. Costco hefur svarað lækkuðu heimsmarkaðsverði einna best og líklega mun það auka við markaðshlutdeild þeirra. Lækkun eldsneytisverðs hefur jákvæð áhrif á eftirspurn

almennra neytenda og fyrirtækja til skamms og lengri tíma. Lægra eldsneytisverð hefur einnig jákvæð áhrif á neysluvísitöluna og þar með verðólguþróun. Allt eru þetta ríkir hagsmunir neytenda og þjóðfélagsins í heild sem hjálpa til við að draga úr hægagangi efnahagslífsins á ólgutímum. Þessi verðstefna á íslenskum fákeppnismarkaði skaðar neytendur og atvinnulífið og skapar vantraust hjá almenningi gagnvart fyrirtækjum í olíuviðskiptum.

Costco hefur svarað lækkuðu heimsmarkaðsverði einna best og líklega mun það auka við markaðshlutdeild þeirra. Mynd tekin 19.03.20

Er sjúkrataska í þínum bíl? Verð frá aðeins 2100 kr.

www.FIB.is 14


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
FÍB Blaðið 1.tbl. 2020 by Félag íslenskra bifreiðaeigenda - Issuu