Nýjar leiðbeiningar
Hleðsla rafbíla Flestir gera sér nú ljóst að rafbílar eru framtíðin varðandi orkuskipti í samgöngum og að nýir bensín- og dísilbílar munu ekki verða seldir í framtíðinni. Margar þjóðir og einstaka borgir hafa gefið það út að bílar með mengandi útblástur verði bannaðir á komandi áratug. Fólk sem er að hugsa um að kaupa nýjan bíl ætti ekki að kaupa bensín- eða dísilbíla, þar sem þeir verða brátt úreltir. Mikilvægt er að halda fast í tauma svo aðþróunin í fjölgun rafbíla haldi áfram á Íslandi og markmið okkar um orkuskipti í samgöngum nái fram að ganga. Ísland á nokkuð langt í land að ná settum markmiðum og því þarf að halda stuðningi við orkuskipti áfram. Breytingar á byggingarreglugerð 2018 og á fjöleignarhúsalögum eru mikilvæg skref í þessu ferli. Nýjum leiðbeiningum um hleðslu rafbíla er ætlað að styðja við þessa þróun. Kröfur í byggingarreglugerð Í byggingarreglugerð frá 20. júní 2018 eru kröfur um hleðslumöguleika fyrir rafbíla fyrir allar nýjar byggingar og vegna endurbygginga. Kröfurnar eru mismunandi fyrir íbúðarhúsnæði annars vegar og byggingar til annarra nota hins vegar. Byggingarreglugerð gerir nú kröfu um að í nýbyggingum og við endurbyggingu skuli gert ráð fyrir tengibúnaði vegna hleðslu rafbíla við hvert bílastæði. Kröfurnar gilda fyrir allar nýjar byggingar sem samþykktar hafa verið af byggingarnefnd viðkomandi sveitarfélags frá þeim tíma. Athuga ber að kröfurnar gilda óháð því hvort þær koma fram á aðaluppdráttum eða hvort láðst hefur að geta þeirra. Allir aðilar tengdir byggingarframkvæmdum þurfa því að vera vakandi í byggingarferlinu, 12
þannig að ekki þurfi að ráðast í kostnaðarsamar aðgerðir eftir á. Nýjar leiðbeiningar fyrir fjölbýlishús Árið 2019 setti Mannvirkjastofnun (nú Húsnæðis- og mannvirkjastofnun) af stað verkefni um gerð leiðbeininga fyrir rafbílahleðslu í fjölbýlishúsum. Mikil þörf er fyrir heildstæðar leiðbeiningar varðandi fyrirkomulag hleðslu í nýjum og eldri byggingum. Þær eru ætlaðar bæði leikmönnum og fagaðilum varðandi kröfur og bestu leiðir til uppsetningar á hleðslustöðvum. Leiðbeiningarnar verða með nánari útlistun á kröfum byggingarreglugerðar til nýbygginga. Þar kemur fram hverju þarf að huga að í nýjum byggingum varðandi hönnun og frágang til að uppfylla byggingarreglugerð. Mikilvægt er að auðvelt verði að setja upp hleðslu í fjölbýlishúsum á hagkvæman hátt. Til þess að það megi verða þarf að ganga nokkuð langt í frágangi, þannig að hver og einn íbúi þurfi ekki að leggjast í kostnaðarsamar aðgerðir eftir á. Til dæmis þarf nægjanlega mikið afl rafmagns inn í bygginguna til að anna núverandi notkun og þeirri notkun sem fyrirsjáanleg er í framtíðinni. Fyrir fjölbýlishús er aflstýring milli hleðslustöðva vitrænasti kosturinn til að nýta afl byggingarinnar sem best og rétt að gera ráð fyrir því frá byrjun í hönnun nýbygginga. Ekki er þörf á að allir rafbílar geti hlaðið með hámarksafköstum á sama tíma.
hleðsla fer fram en æskilegt er að hlaða á nóttunni þegar almenn rafmagnsnotkun er einna minnst. Í flestum tilvikum er hægt að koma upp ásættanlegri rafbílahleðslu í eldri byggingum með aflstýringu. Í framtíðinni, þegar flestir verða komnir á rafbíla, gæti aflþörfin verið meiri en kerfið ræður við. Sú lausn, sem valin er til rafbílahleðslu, þarf því að taka mið af þessum breytingum. Myndirnar sýna hvernig rafmagnsálag (notkun) er í fjölbýlishúsum á mismunandi tímum og hvernig best er að nýta þá orku sem er til staðar.
Dæmigerð álagskúrfa notkunar fjölbýlishúss. Mest álag er á milli 16 og 22.
Álagskúrfa almennrar notkunar (grá) að viðbættu álagi við hleðslu rafbíls (græn)
Eldri fjölbýlishús Fyrir eldri fjölbýlishús skiptir aflstýring sérstaklega miklu máli, þar sem nýta verður sem best aflið sem er til aflögu. Þó nokkur kostnaður getur verið fólginn í því að stækka rafmagnsinntak bygginga. Fyrir flesta rafbíla og fullkomnari hleðslustöðvar er hægt að stilla hvenær dagsins
Mögulegt afl sem er til staðar í kerfi fjölbýlishúss, miðað við að hleðslu sé dreift á allan sólarhringinn