Heimilispósturinn - október 2020

Page 9

Ljósmyndir í tengigangi Markar Jólahugvekja 2019 Skiptir út myndum á nokkurra vikna fresti

H

afliði Hjartarson, íbúi í Íbúðum 60+ í Mörkinni, hefur tekið ljósmyndir frá því hann var ungur maður. Safnið af myndum sem hann á er orðið fjölbreytt og hann hefur leyft þeim að njóta sem búa og starfa í Mörk. „Ég hef sett upp sýningar í gangi tengibyggingarinnar í það minnsta átta sinnum og hefur hver þeirra staðið yfir í 3 til 4 mánuði“ segir Hafliði „og einnig hafa oft hangið þarna uppi myndir frá mér, án þess að flokkast sem sýningar og þá hef ég skipt út myndum á 3ja til 4ra vikna fresti“.

Ekkert nefna þetta við frúna með geymsluplássið

Hann segist alla tíð hafa haft ánægju af ljósmyndun og finnst gaman að fólk skuli sýna myndunum hans áhuga. Sumar selur hann fyrir andviriði pappírs og ramma en oft gefur hann líka myndirnar. Þegar hann er spurður hvar hann geymi allar þessar myndir, segir hann mesta safnið vera á tölvutæku formi en biður mig síðan lengstra orð að nefna þetta ekki við frúna, með það hvar hann hafi geymslupláss fyrir allar gömlu filmurnar og unnu myndirnar. Það borgi sig ekki.

Heimilispósturinn

9


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
Heimilispósturinn - október 2020 by Grund, dvalar- og hjúkrunarheimili - Issuu