
1 minute read
Buðu upp á upplestur og hringjakast
Þar sem ýmislegt hefur verið með óhefðbundum hætti á Covid tímum á Grund, sem á öðrum heimilum, þá var ánægjulegt að sjá hvað sumarstarfsfólkið var tilbúið að hella sér út í allskonar verkefni til að stytta heimilisfólki stundir. Það var sungið og trallað, boðið upp á upplestur, hringjakast og spjallstundirnar ófáar. Rósa Einarsdóttir deildarstjóri á Litlu og Minni Grund segir að það hafi verið ómetanlegt að fá allt þetta jákvæða og góða sumarstarfsfólk í húsið.

Advertisement
Sumarstarfsfólkið var jákvætt og til í að skella sér út í allskonar verkefni
