1 minute read

Ýmislegt brallað til að stytta stundir

JólahugvekJaiðjuþjálfunin í 2019 mörk Ýmislegt brallað til að stytta stundir

Það er ýmislegt brallað í iðjuþjálfun Markar og um þessar mundir er verið að byrja á mósaík samvinnuverkefni. En það er meira en handverk sem heimilisfólk fæst við, öll iðja er í raun iðjuþjálfun. Hér koma nokkrar myndir sem endurspegla fjölbreytileikann sem iðjuþjálfunin er með á sínum snærum bæði á heimilunum sjálfum og í vinnustofu. Þrátt fyrir Covid hefur tekist að halda uppi starfsemi sem er frábært því þörfin er líklega aldrei meiri en einmitt á þessum tímum.

Advertisement

Lilja, Thelma og Ása í iðjunni bjóða stundum upp á söngstund á heimilunum og þá syngja þær af innlifun eins og sést á myndinni og smita auðvitað útfrá sér þannig að heimilismenn taka undir

Öll iðja er í raun iðjuþjálfun og því fjölbreyttari sem hún er því betra

Það vekur alltaf gleði þegar börn koma í heimsókn sama á hvaða aldri þau eru

This article is from: