1 minute read

Bakað, flaggað og tjúttað í tilefni dagsins

Skiptir út myndum á nokkurra vikna fresti

Hafliði Hjartarson, íbúi í Íbúðum 60+ í Mörkinni, hefur tekið ljósmyndir frá því hann var ungur maður. Safnið af myndum sem hann á er orðið fjölbreytt og hann hefur leyft þeim að njóta sem búa og starfa í Mörk. „Ég hef sett upp sýningar í gangi tengibyggingarinnar í það minnsta átta sinnum og hefur hver þeirra staðið yfir í 3 til 4 mánuði“ segir Hafliði „og einnig hafa oft hangið þarna uppi myndir frá mér, án þess að flokkast sem sýningar og þá hef ég skipt út myndum á 3ja til 4ra vikna fresti“.

Advertisement

Ekkert nefna þetta við frúna með geymsluplássið

Hann segist alla tíð hafa haft ánægju af ljósmyndun og finnst gaman að fólk skuli sýna myndunum hans áhuga. Sumar selur hann fyrir andviriði pappírs og ramma en oft gefur hann líka myndirnar. Þegar hann er spurður hvar hann geymi allar þessar myndir, segir hann mesta safnið vera á tölvutæku formi en biður mig síðan lengstra orð að nefna þetta ekki við frúna, með það hvar hann hafi geymslupláss fyrir allar gömlu filmurnar og unnu myndirnar. Það borgi sig ekki.

This article is from: