Skip to main content

Heimilispósturinn - október 2020

Page 1

HEIMILISPÓSTURINN Heimilisblað Grundar, Áss og Markar 56. árgangur

október 2020

2. tölublað


Efnisyfirlit Smalamennska og framkvæmdir við nýjan matsal ........................................................ 3 Hjálpast að við garðverkin ............................................................................................... 7 Þetta er hún Lilja .............................................................................................................. 8 Bakað, flaggað og tjúttað í tilefni dagsins ....................................................................... 9 Er öryggi æðsta dyggðin?...............................................................................................10 Heima er á Rauðasandi ................................................................................................ 11 Blómastúlkurnar í Ási .....................................................................................................18 Púttað og farið í leiki .......................................................................................................19 Fyrsti í aðventu................................................................................................................18 Ýmislegt brallað til að stytta stundir ............................................................................... 20 Hattaþema þennan daginn..............................................................................................22 Starfsfólkið átti saman notalega stund........................................................................... 24 Buðu upp á upplestur og hringjakast ............................................................................ 25 Til stendur að halda sýningu á næstunni .......................................................................26 Réttarholt vann þetta árið .............................................................................................. 28 Færðu sig út í sólina....................................................................................................... 31 Snillingar í Ási................................................................................................................. 32 Gáfu fjögur málverk ....................................................................................................... 33 Uppskeran með besta móti............................................................................................ 34 Allir hjálpast að við sultugerðina .................................................................................... 36 Sumar veislur eru bara flottari en aðrar......................................................................... 38 Sólarmegin í lífinu .......................................................................................................... 40 Vinirnir Sigtryggur og Eros............................................................................................. 41 Gefur lífinu tilgang að hafa hlutverk............................................................................... 42 Göngutúrar og prjónaskapur ......................................................................................... 44 Tíkin leitar alltaf að Lísu ................................................................................................. 46 Boðið upp á hreyfingu inni á heimilum .......................................................................... 47 Símon, Sara og Keli vinna og búa á heimilinu............................................................... 48

Forsíðumyndin: Er af heimiliskonunni Ólöfu Fríðu Gísladóttur að hreinsa ber. Ritstjóri: Guðbjörg R. Guðmundsdóttir Hönnun og uppsetning: Sigrún Jóna Leifsdóttir Prentun: GuðjónÓ Upplag: 1600

2

Heimilispósturinn


Pistill fráJforstjóra Grundarheimilanna ólahugvekja 2019

Smalamennska og framkvæmdir við nýjan matsal Kæri lesandi

N

ú er komið að öðrum pistli mínum í Heimilispóstinn. Undanfarnar vikur hafa, því miður, einkennst af Covid 19. Með hvaða hætti við tæklum þessa bráðhættulegu veiru. Sýnist að við verðum að læra að lifa með veirunni, eins og Þórólfur hefur margoft ítrekað við okkur. Í það minnsta þangað til að alvöru bóluefni verður til reiðu. Líklega verður það á Gísli Páll Pálsson forstjóri fyrri hluta næsta árs. En þangað til Grundarheimilanna við smölun verðum við að passa okkur vel, alls staðar þar sem við förum um. Enn hefur okkur á Grundarheimilunum tekist að halda veirunni frá okkur og verður vonandi áfram. Vegna veirunnar höfum við þurft að takmarka aðgengi að heimilunum okkar. Við höfum miðað við að einungis einn aðstandandi heimsæki hvern heimilismann til að lágmarka líkur á að smit berist inn á heimilin. Hafa allir viðkomandi aðilar tekið þessum takmörkunum vel og þakka ég ykkur öllum kærlega fyrir það jákvæða viðhorf sem við höfum upplifað frá ykkur undanfarnar vikur. Við vitum eðli máls samkvæmt ekki hvernig þetta kemur til með að breytast í vetur. Vonandi þarf ekki að koma til heimsóknarbanns en verði af slíku þá verður það gert með fyrirvara. Ég er nú frekar vongóður að við förum heldur í hina áttina en það kemur allt saman í ljós.

Heimilispósturinn

3


Pistill fráJforstjóra Grundarheimilanna ólahugvekja 2019 Nýr matsalur í Ási

Framkvæmdir sem ég sagði frá í síðasta blaði eru mislangt á veg komnar. Búið er að steypa upp nýjan matsal í Ási og byrjað að ganga frá þaki og gluggum. Við stefnum að því að opna salinn mánudaginn 21. desember næstkomandi. Á nýju ári verður síðan hafist handa við að breyta gamla matsalnum í eldhús og tengja Stebbaskúr við matsalinn. Við erum ekki búin að tímasetja lok framkvæmda en vonandi verður það fyrir 18. febrúar á næsta ári. Það verður spennandi og krefjandi verkefni að elda og undirbúa allan mat fyrir Grundarheimilin í Ási. En ég treysti Eyjólfi og co til allra góðra verka í þeim málum og hlakka til þessa. Sem formaður Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu hef ég komið að samskiptum samtakannna við Sjúkratryggingar Íslands. Þau hafa ekki verið til gagns. Viðhorf SÍ til okkar sem rekum hjúkrunarheimilin eru heldur óvinveitt, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Veit satt að segja ekki hvað hægt að gera til að laga, líklega ekkert.

Stefnt er að formlegri opnun í desember

4

Heimilispósturinn


Pistill fráJforstjóra Grundarheimilanna ólahugvekja 2019 Endurbætur á inngöngum Grundar

Framundan er veturinn. Með snjó og jólum. Og framkvæmdum. Breytingar á A2 hefjast nú á haustmánuðum og munu iðnaðarmenn ganga inn um gluggann á suðurenda gangsins þannig að þeir þurfa ekki að koma inn á heimilið. Stefnt er að verklokum fyrir áramót. Í undirbúningi eru einnig breytingar og endurbætur á inngöngum á Grund og Litlu Grund auk merkinga á húsin.

Eiginlega ekki hægt að lýsa frelsistilfinningunni

Að lokum á persónulegum nótum. Fór í mína árlegu smalaferð í byrjun september. Þetta árið fór ég fyrst norður að Hallgilsstöðum sem er bær um það bil 10 km sunnan við Þórshöfn á Langanesi. Þar smalaði ég Austurheiðarafrétt sem afmarkast af Litlu Kverká í austri og Kverká og svo Hafralónsá í vestri. Mjög fallegt og gróið svæði en ægilega mikið af stórum þúfum sem erfitt er að keyra

Ytri Hágangur séð frá Kílabrúnum á Austurheiði

Heimilispósturinn

5


Pistill fráJforstjóra Grundarheimilanna ólahugvekja 2019 fjórhjólið í gegnum. En maður lætur sig hafa það. Talsvert snjóaði daginn áður en smalamennskan hófst og hjálpaði það til við að koma fénu af hæsta svæðinu okkar og sparaði okkur talsverða smalamennsku. Að norðan hélt ég sem leið lá í Skaftártunguna en þar hef ég smalað á fjórhjóli undanfarin 15 ár. Ekki síður fallegt svæði, mjög víðfeðmt og hægt að keyra nánast um allt á fjórhjóli. Og láta gamminn geysa, sem ég geri nú reyndar í þokkalegu hófi. Á þessu svæði eru miklar náttúruperlur, Langisjór, Fögrufjöll, Ófærudal, Rauðabotn og svo mætti lengi telja. Ég á mínar bestu stundir í þessum víðernum einn á fjórhjólinu að eltast við kindur. Frelsistilfinningin er svo mikil og góð, eiginlega ekki hægt að lýsa því með orðum. Þvílík tilbreyting frá skrifborðinu og tölvupóstunum. Og að gista fyrir norðan í gömlum smalakofa, hvorki með rafmagni né rennandi vatni. Með 10 manns í einum skála og hesthúsið í viðbyggingu. Óborganlegt í alla staði. Góðar stundir Gísli Páll Pálsson

Eystri Morauðavatnshnúkur í Skaftártungu

6

Heimilispósturinn


lómlegt á Grund JB ólahugvekja 2019

Hjálpast að við garðverkin

Þ

að var fallegt blómskrúðið í kringum Grund í sumar. Og það er ekki bara starfsfólkið sem sá um að reyta arfa, vökva og hlúa að gróðrinum. Heimiliskonan Kolbrún Pálsdóttir var liðtæk við arfann og svo pössuðu Jón Ólafur Þorsteinsson og Eyjólfur Veturliði Jónsson upp á að það væri ekkert óþarfa rusl eða lauf að flækjast fyrir í portinu.

Heimilispósturinn

7


GJaman í vinnunni 2019 í Mörk ólahugvekja

Þetta er hún Lilja

S

umir eru alveg til í að leggja ýmislegt á sig til að létta öðrum lífið og þannig er hún Lilja Benjamínsdóttir sem vinnur í Mörk. Oftar en ekki er hún með bros á vör í vinnunni og ef henni dettur eitthvað í hug sem gæti glatt eða kætt þá kýlir hún á það. Eitthvað fannst henni um daginn frekar grámyglulegt í vinnunni svo hún ákvað að skella á sig gleraugum og rauðu nefi og það var eins og við manninn mælt, bros læddist fram á varir flestra ef ekki allra sem henni mættu.

Lilja gerir ýmislegt til að laða fram bros hjá samferðafólki sínu

8

Heimilispósturinn


Ljósmyndir í tengigangi Markar Jólahugvekja 2019 Skiptir út myndum á nokkurra vikna fresti

H

afliði Hjartarson, íbúi í Íbúðum 60+ í Mörkinni, hefur tekið ljósmyndir frá því hann var ungur maður. Safnið af myndum sem hann á er orðið fjölbreytt og hann hefur leyft þeim að njóta sem búa og starfa í Mörk. „Ég hef sett upp sýningar í gangi tengibyggingarinnar í það minnsta átta sinnum og hefur hver þeirra staðið yfir í 3 til 4 mánuði“ segir Hafliði „og einnig hafa oft hangið þarna uppi myndir frá mér, án þess að flokkast sem sýningar og þá hef ég skipt út myndum á 3ja til 4ra vikna fresti“.

Ekkert nefna þetta við frúna með geymsluplássið

Hann segist alla tíð hafa haft ánægju af ljósmyndun og finnst gaman að fólk skuli sýna myndunum hans áhuga. Sumar selur hann fyrir andviriði pappírs og ramma en oft gefur hann líka myndirnar. Þegar hann er spurður hvar hann geymi allar þessar myndir, segir hann mesta safnið vera á tölvutæku formi en biður mig síðan lengstra orð að nefna þetta ekki við frúna, með það hvar hann hafi geymslupláss fyrir allar gömlu filmurnar og unnu myndirnar. Það borgi sig ekki.

Heimilispósturinn

9


insegin dagar2019 í Ási JHólahugvekja

Bakað, flaggað og tjúttað í tilefni dagsins

Í

byrjun ágúst ákvað starfsfólk og heimilisfólk að gera sér glaðan dag og halda hinsegin daga. Það var bakað, skreytt, dansað, sungið, farið í spurningaleik og rætt um stöðu hinsegin fólks bæði nú og áður. Dásamlegur dagur þar sem fjölbreytileikinn var í hávegum hafður og engin spurning að þetta verður að árlegri hefð. Það var líka spilað

Spurningaleikir eru allaf vinsælir

10

Heimilispósturinn


insegin dagar2019 í Ási JHólahugvekja

Guðjón og Kristinn sælir með daginn

Kristjana Sveinsdóttir flaggaði

Eyjólfur Kolbeins sýndi meistaratakta við skreytinguna

Hinsegin tertan sló í gegn

Heimilispósturinn

11


Gott að búa á Litlu Grund Jólahugvekja 2019

Heima er á Rauðasandi

„É

g heyri enn fuglasönginn og ég heyri enn í briminu“, segir Brynjólfur Kristinsson sjómaður þegar Guðbjörg R. Guðmundsdóttir sest niður með honum á Litlu Grund einn rigningardaginn nú í september og byrjar á að spyrja hann um fæðingarstaðinn, sem er Gröf á Rauðasandi.

Brynjólfur Kristinsson

Bærinn Gröf á Rauðasandi

12

Heimilispósturinn


Gott að búa á Litlu Grund Jólahugvekja 2019

Börnin hans þrjú Arna, Sæunn og Kristinn

„Á ég að segja þér nokkuð“, bætir hann við og segir svo: „Ég hef búið á Patreksfirði, í Hafnarfirði og Reykjavík og miklu lengur en á Rauðasandi en ég dvaldi bara þar um stund. Heima er á Rauðasandi. Ef þú hugsar um fallegustu sinfóníu sem þú þekkir þá get ég með sanni sagt að brimið og fuglasöngurinn á Rauðasandi slær það út. Og náttúrufegurðin er engu lík, maður stendur bara agndofa.“

Var ömmustrákur

Brynjólfur er frá Gröf og þar ólst hann upp til átta ára aldurs en þá fluttu foreldrar hans Sigríður Halldórsdóttir og Kristin Jónasson á Patreksfjörð. En Brynjólfur sagði ekki skilið við Gröf því þar bjó amma hans Magnfríður Ívarsdóttir áfram og móðurbræður hans Bjarni og og Jóhannes og þangað fór hann á haustin til að smala fé upp í Nátthaga og liðsinna. „Langamma mín, Guðrún Jónsdóttir, var mikil hjálparhella á heimilinu. Hún hjálpaði Ömmu Magnfríði að koma upp börnunum sérstaklega eftir að afi minn, Halldór Bjarnason dó. Heimilispósturinn

13


Gott að búa á Litlu Grund Jólahugvekja 2019 Langamma var lág vexti og óhemju frísk og áræðin kona. Hún hljóp í klettum, réri til fiskjar ef þurfti og var alveg óhemju dugleg kona. Fyrir nokkrum árum færði Arna dóttir mín mér stein þar sem búið var að mála Gröf á. Ég sat með steininn í fanginu, orðlaus og þá varð þetta til: Undir grafarhyrnu stóð gamli bærinn minn Þar var mikil gleði og sólin skein þar inn.

Oft ég hugsa þangað þá heyri ég fuglasöng Brimið tekur undir kveðið á Lómatjörn.

Þar haldið var fast um alla svo enginn félli úr Oft ég hugsa þangað þegar ég fæ mér dúr.

Brynjólfur ásamt vinum sínum Pétri Snæland, Ingimundi Magnússyni og Sigurði Ingólfssyni

14

Heimilispósturinn


Gott að búa á Litlu Grund Jólahugvekja 2019

Hjónin Kristrún Grímsdóttir og Brynjólfur Kristinsson

Ég á svo fallegar minningar frá þessum árum sem leita meira á hugann eftir því árin færast yfir. Ég var ömmustrákur og eru minnisstæðar gönguferðirnar okkar upp með ánni þar sem við skoðuðum steinana og amma fræddi mig um það sem fyrir augu bar.“

Dansleikur sem hann gleymir aldrei

Þegar Brynjólfur var sautján ára hleypti hann heimdraganum og fór suður með sjó á vertíð. Hann snéri aldrei aftur vestur nema til að fara í heimsókn og hann gerði alltof lítið af því bætti hann við. En nokkru áður en hann fór suður fór hann á dansleik. „Þar hitti ég unga stúlku frá Grundum í Kollsvík í Rauðasandshreppi, Kristrúnu Grímsdóttur.“ Það var eitthvað við hana sem heillaði hann. „Við dönsuðum saman og það gerðist svosem ekkert alvarlegt þetta kvöld. Við föðmuðumst og ég kyssti hana á kinn. Síðan skildu leiðir í nokkra áratugi“, bætir hann við kíminn og segir svo: „Ég skal segja þér frá því á eftir.“

Heimilispósturinn

15


Gott að búa á Litlu Grund Jólahugvekja 2019 Aflinn oft lyginni líkastur

Brynjólfur var sjómaður í hálfa öld og sigldi um heiminn og þegar ég spyr afhverju hann hafi alltaf verið sjómaður verður hann hugsi en segir svo: Það er líklega spennan sem gerði sjómennskuna svona skemmtilega. Ég sigldi um höfin blá, var í Norðursjó, Hvítahafi, við Grænlandsstendur, á Nýfundnalandi og um allar trissur.“ En minnisstæðast og já skemmtilegast var þegar hann var í áhöfn hjá Halldóri Benediktssyni skipstjóra á Ásbirni og Ásgeiri. „Það var ævintýralegur tími og aflinn oft lyginni líkastur, þá var nú gaman að vera á sjó. Reyndar voru síldarárin líka spennandi tímar. “ Það kemur glampi í augu Brynjólfs þegar hann talar um útgerð og sjómennsku og segir að líklega hafi aldrei neitt komið annað til greina en vera á sjó þó oft hafi það verið erfitt. Þegar hann nálgaðist virðulegan aldur fór hann að vinna við netagerð hjá Hampiðjunni.

Dansleikurinn var afdrifaríkur

En aftur að fyrstu árunum fyrir sunnan. Hann hitti brátt unga konu Ásdísi Ingibergsdóttur og þau felldu saman hugi og gengu í hjónaband árið 1958. Saman eignuðust þau þrjú börn, Örnu, Kristinn og Sæunni. Þau bjuggu sína búskapartíð í Hafnarfirði en þegar börnin voru uppkomin skildu leiðir þeirra árið 1980. Og þá er komið að framhaldi dansleiksins forðum. „Ég var nýskilinn þegar þetta gerist og hafði farið með vinum mínum á Hótel Sögu. Það komu þarna vinkonur okkar og settust hjá okkur. Vinir mínir voru orðnir nokkuð kenndir og ég nennti ekkert að vera með þeim. Vinkonurnar segjast ætla að fara í Glæsibæ og bjóða mér með. Ég nennti því ekki heldur en á síðustu stundu sé ég mig um hönd og slæst í hópinn. Fyrsta sem ég sé þegar ég geng inn í Glæsibæ er þá Kristrún Grímsdóttir. Hún er þá líka fráskilin sjö barna móðir. Það er ekki að sökum að spyrja við Rúna vorum saman eftir þetta í meira en þrjátíu ár. Hún átti sjö börn og ég þrjú svo það var oft 16

Heimilispósturinn


Gott að búa á Litlu Grund Jólahugvekja 2019 gestkvæmt hjá okkur, svo ekki sé nú talað um þegar barnabörnin og barnabarnabörnin fóru að koma í heiminn. Við áttum saman gott líf við Rúna mín en svo lést hún á síðasta ári og skömmu eftir það flutti ég á Grund.“

Stórkostlegur staður

Og fer þokkalega um þig? „Mér finnst þetta stórkostlegur staður. Auðvitað byggist staðurinn á fólkinu sem þar býr og starfar og hér er gott fólk. Starfsfólkið er alltaf tilbúið að rétta hjálparhönd og ég er kominn með Parkinson og þá er gott að hafa góða nálægt. Ég borða með sömu köllunum niðri og við höldum mikið saman, sitjum saman og ljúgum að hvor öðrum. Þetta eru fínir kallar og það er bara skínandi gott að búa hér á Litlu Grund.“

Góðir vinnufélagar

Heimilispósturinn

Brynjólfur innan við árs gamall

17


VelJhugsað um sumarblómin ólahugvekja 2019

Blómastúlkurnar í Ási

V

íða á Ási má sjá falleg blóm sem hafa vaxið og dafnað yfir sumarið. Heimilisfólk og starfsfólk hefur hjálpast að við að hugsa um blómin, vökvað þau og á stundum spjallað við þau um daginn og veginn. Svona eins og gengur. Í Ásbyrgi hefur Guðrún Hallgrímsdóttir tekið að sér blómin fyrir utan matsalinn og gert það af stakri prýði og blómin vaxið og dafnað öðru heimilisfólki til ánægju og yndisauka. Á hjúkrunarheimilinu tók Ragna Erlendsdóttir að sér blómin á svölunum. Hún sagði að sú iðja hafi verið henni mjög mikilvæg og stytt henni stundirnar í sumar.

Ragna Erlendsdóttir tók að sér blómin á svölum hjúkrunarheimilisins

18

Guðrún Hallgrímsdóttir sá um blómin fyrir utan matsalinn í Ásbyrgi

Heimilispósturinn


Góða Jveðrið nýtt til útiveru ólahugvekja 2019 í Ási

Púttað og farið í leiki

P

úttvöllurinn er fyrir utan Vinnustofuna í Ásbyrgi og starfsmaður frá golfvellinum í Hveragerði sem sér um að hann sé sleginn og haldið við yfir sumarið. Hvenær sem tækifæri gefst, þ.e. þegar ekki rignir eldi og brennisteini fer heimilisfólk út með kylfur og kúlur og tekur hring. Sumir heimilismenn eru með kylfu og kúlu heima hjá sér og nýta sér völlinn líka seinnipart dags og um helgar.

Kubbur og krikket Í vor var fjárfest í nokkrum mismunandi útispilum og leikjum til að geta nýtt þetta dásamlega umhverfi sem er fyrir austan. Að sögn Fanneyjar B. Karlsdóttur iðjuþjálfa var mjög vinsælt að spila kubb og kom þægilega á óvart hvað margir gátu í raun og veru tekið þátt í þessum leik. Þó kubburinn hafi verið vinsælastur var líka farið í krikket og úti mylluspil þegar færi gafst til.

Hvert tækifæri er nýtt til útiveru á sumrin í Ási

Heimilispósturinn

19


örk JIðjuþjálfunin ólahugvekjaí M 2019

Ýmislegt brallað til að stytta stundir

Þ

að er ýmislegt brallað í iðjuþjálfun Markar og um þessar mundir er verið að byrja á mósaík samvinnuverkefni. En það er meira en handverk sem heimilisfólk fæst við, öll iðja er í raun iðjuþjálfun. Hér koma nokkrar myndir sem endurspegla fjölbreytileikann sem iðjuþjálfunin er með á sínum snærum bæði á heimilunum sjálfum og í vinnustofu. Þrátt fyrir Covid hefur tekist að halda uppi starfsemi sem er frábært því þörfin er líklega aldrei meiri en einmitt á þessum tímum.

Lilja, Thelma og Ása í iðjunni bjóða stundum upp á söngstund á heimilunum og þá syngja þær af innlifun eins og sést á myndinni og smita auðvitað útfrá sér þannig að heimilismenn taka undir

20

Heimilispósturinn


Iðjuþjálfunin í Mörk

Öll iðja er í raun iðjuþjálfun og því fjölbreyttari sem hún er því betra

Það vekur alltaf gleði þegar börn koma í heimsókn sama á hvaða aldri þau eru

Heimilispósturinn

21


Lífgað upp á tilveruna í Ási Jólahugvekja 2019

Hattaþema þennan daginn

Þ

ær eru bara nokkuð uppátækjasamar konurnar í iðjuþjálfuninni í Ási og einn daginn fannst þeim kominn tími á tilbreytingu í sumar. Og hvað er þá betra en hafa bara hattadag? Allir tóku vel í uppátækið og skemmtu sér hið besta. Hláturinn lengir lífið segir máltækið og það var nóg af slíku þennan daginn.

Vera og Sólveig Lilja voru flottar

22

Fanny Björg og Guðmunda

Heimilispósturinn


Lífgað upp á tilveruna í Ási Jólahugvekja 2019

Guðmunda Helgadóttir

Arnfríður Gunnarsdóttir

Guðrún Hallrímsdóttir, Sólveig Björgvinsdóttir og Sóley Ármannsdóttir sem allar búa í Ásbyrgi

Heimilispósturinn

23


Keila J og pítsupartí í boði 2019 aðstandanda ólahugvekja

Starfsfólkið átti saman notalega stund

Í

sumar hélt starfsfólk Minni og Litlu Grundar sannkallaða sumargleði. Rósa Einarsdóttir deildarstjóri sagði að einn aðstandandi hefði viljað gera eitthvað fyrir starfsfólkið sem þakklætisvott fyrir að hugsa svo vel um móður hans. „Við ákváðum að skipta hópnum í tvennt svo sem flestir kæmust og fórum svo saman og fengum okkur pítsu og spiluðum keilu. Þetta var alveg frábært, hóparnir hristust vel saman og áttu frábæra stund.

Kátur starfsmannahópur Minni og Litlu Grundar

24

Heimilispósturinn


Sumarstarfsfólk áhugasamt um afþreyingu Jólahugvekja 2019

Buðu upp á upplestur og hringjakast

Þ

ar sem ýmislegt hefur verið með óhefðbundum hætti á Covid tímum á Grund, sem á öðrum heimilum, þá var ánægjulegt að sjá hvað sumarstarfsfólkið var tilbúið að hella sér út í allskonar verkefni til að stytta heimilisfólki stundir. Það var sungið og trallað, boðið upp á upplestur, hringjakast og spjallstundirnar ófáar. Rósa Einarsdóttir deildarstjóri á Litlu og Minni Grund segir að það hafi verið ómetanlegt að fá allt þetta jákvæða og góða sumarstarfsfólk í húsið.

Sumarstarfsfólkið var jákvætt og til í að skella sér út í allskonar verkefni

Heimilispósturinn

25


GafJÁólahugvekja si lyklakippusafnið 2019 sitt

Til stendur að halda sýningu á næstunni

S

íðastliðinn vetur var okkur gefið merkilegt lyklakippusett sem telur um eitt þúsund lyklakippur. Það var Ragna Erlendsdóttir heimiliskona á hjúkrunarheimilinu Ási sem gaf þetta skemmtilega safn en hún hefur í mörg ár verið að safna lyklakippum af öllum stærðum og gerðum. Hún segir að margir hafi komið henni til aðstoðar við þessa söfnun sína en vinir og ættingjar hafa oft og iðulega komið færandi hendi með eina eða tvær kippur í farteskinu þegar komið er úr ferðalagi bæði hérlendis og erlendis. Fanney Björg Karlsdóttir segir að í sumar hafi iðjuþjálfunin verið að fara í gegnum safnið, sortera, þvo og skoða með það að markmiði að setja upp sýningu á heimilinu í haust eða vetur. Margar hendur vinna létt verk segir máltækið og það má með sanni segja um þessa vinnu því bæði starfsfólk og heimilisfólk hafa lagst á eitt við að gera safnið tilbúið fyrir sýningu.

Flokka, þrífa og laga, allir hjálpast að

26

Heimilispósturinn


GafJÁólahugvekja si lyklakippusafnið 2019 sitt Margir dýrgripir eru í þessu safni og skemmtilegar minningar rifjast upp. Þarna eru til dæmis kippur frá Kvennahlaupi ÍSÍ frá upphafi, kippur merktar tryggingafélögum, íþróttafélögum, bílamerki stór og smá…..

Fanney og Ragna við safnið

Brátt verður haldin sýning í Ási á lyklakippunum

Heimilispósturinn

27


Flottustu svalirnar í Mörk Jólahugvekja 2019

Réttarholt vann þetta árið

S

ú hefð hefur skapast að senda dómnefnd á svalir hjúkrunarheimilisins í Mörk og meta flottustu svalirnar. Að þessu sinni var valið erfitt því flest heimili höfðu lagt sig í líma við að hafa svalirnar snyrtilegar, litríkar og heimilislegar. Ragnhildur veitir Mörtu verðlaun fyrir flottustu svalirnar

Hugsað fyrir öllu

Fyrstu verðlaun fékk heimilið Réttarholt á fjórðu hæðinni. Þetta voru svalirnar sem voru hvað mest heimilislegar og sjá mátti hvað öll smáatriði höfðu verið hugsuð til enda. Álfastyttum var vel raðað, púðar í stólum, festingar fyrir dúka, bjalla fyrir heimilisfólk til að klingja og hugsað fyrir öllu. Niðurstaðan var að það væri virkilega eftirsóknarvert að setjast niður á þessar svalir til að njóta.

28

Heimilispósturinn


Flottustu svalirnar í Mörk Jólahugvekja 2019 Glaumbær í öðru sæti

Önnur verðlaun hlaut heimilið Glaumbær á annari hæð og svalirnar fylgdu fast á hæla þeirra sem lentu í fyrsta sæti. Þar er einstaklega notalegt að sitja líka á kvöldin því þau eru með tímastilltar luktir og teppi. Þriðju verðlaun hlaut Miðbær í miðjunni á 2. hæð. Þar vakti blómskrúðið sértaka athygli og ekki síst tómatplantan. Að þessu sinni skipuðu dómnefndina Ása Lára Axelsdóttir, Thelma Hafþórsdóttir Byrd og Vaida Stankute.

Þvílík litadýrð

Heimilispósturinn

Barbara og Pawel tóku við viðurkenningu hjá Ragnhildi

Vigdís tekur við viðurkenningu

29


Flottustu svalirnar í Mörk Jólahugvekja 2019

Þvílíkt blómskrúð

Marta og Ása hrósa happi yfir 1. sætinu

Davíð að spóka sig á svölunum

Svona gaurar lífga upp á tilveruna

30

Heimilispósturinn


Sjúkraþjálfun og iðjuþjálfun

Færðu sig út í sólina

Þ

að var ekki óalgengt í sumar að iðjuþjálfunin og sjúkraþjálfunin færðu sig út í sólina þegar hún lét sjá sig. Og til að verja heimilisfólk fyrir sterkum geislum sólar var leitað í hattasafn Markar sem er orðið nokkuð stórt og fjölbreytt.

Það er til fjölbreytt úrval af höfuðfötum í Mörk sem er dregið fram þegar sólin skín

Heimilispósturinn

31


Tólahugvekja óku þátt í samprjóni J 2019 Snillingar í Ási

S

tarfsfólkinu okkar er margt til lista lagt og hér eru þær Fanney Björg Karlsdóttir iðjuþjálfi og Rósa Jóhanna Guðmundsdóttir sjúkraliði með sjöl sem þær luku nýlega við að prjóna. Þæ tóku ásamt Helgu Baldvinu Ásgrímsdóttur sjúkraliða þátt í samprjóni á vegum síðunnar Svöl sjöl á facebook en hönnuðurinn heitir Guðmunda Dagbjört Guðmundsdóttir.

Fanney og Rósa með sjölin sem þær prjónuðu

32

Heimilispósturinn


ÍJbúar hjá Mörkin 60+ ólahugvekja 2019 Gáfu fjögur málverk

H

jónin Þórhildur Maggý Halldórsdóttir og Hreinn Aðalsteinsson sem búa í íbúð hjá Íbúðum 60+ komu á dögunum færandi hendi á skriftofu Öldu Pálsdóttur, framkvæmdastjóra Íbúða 60+, með fjögur málverk eftir listmálarann Hans Christiansen. Hreinn og listamaðurinn eru þremenningar en langamma þeirra og langafi hétu Þórður Ívarsson og Sigríður Gunnlaugsdóttir. Hreinn segir að langamma sín og langafi hafi eignast 19 börn en fyrir átti Þórður tvö börn svo frændgarðurinn er örugglega býsna stór. Þeim hjónum eru færðar alúðarþakkir fyrir þessa rausnarlegu gjöf.

Hjónin Þórhildur Maggý Halldórsdóttir og Hreinn Aðalsteinsson með eitt verkanna

Heimilispósturinn

33


Heimilismenn sjá um gróðurkassann Jólahugvekja 2019

Uppskeran með besta móti

B

aldvin Ársælsson og Svanhvít Hannesdóttir búa á Litlu og Minni Grund og í sumar sáu þau um gróðurkassa heimilisins eins og undanfarin ár með dyggri aðstoð Jóns Ólafs Þorsteinssonar. Uppskeran var með besta móti í ár og þau fengu auðvitað heiðurinn að því að smakka á fyrstu jarðarberjunum. Bragðið var auðvitað óviðjafnanlegt.

34

Heimilispósturinn


Heimilismenn sjá um gróðurkassann Jólahugvekja 2019

Uppskeran var með besta móti í sumar

Berin smökkuðust ákaflega vel

Heimilispósturinn

35


Haustverkin í Bæjarási Allir hjálpast að við sultugerðina

Þ

að vantar ekki myndarskapinn í heimilisfólk og starfsfólk í Bæjarási svo mikið er víst. Þar hafa haustverkin verið tekin með trompi, búið að kíkja undir kartöflugrösin, búa til rifsberjahlaup, sólberjahlaup og safta og það sem meira er, þar hjálpast allir að.

Pálrún og Fríða mæla sykurinn í hlaupið

Fríða stendur vaktina yfir pottinum

36

Guðrún Erna og Ellen Margrét skrifa á miðana á sultukrukkurnar

Heimilispósturinn


HJaustverkin í Bæjarási ólahugvekja 2019

Vinkonur hreinsa berin fyrir sultugerðina

Sulturnar tilbúnar

Dagbjört Kristjánsdóttir og Erla Þorsteinsdóttir að taka upp kartöflur

Dagbjört og Guðný Eygló voru iðnar við berjatínsluna

Heimilispósturinn

37


Grillað í Mörk

Sumar veislur eru bara flottari en aðrar

Þ

að var svo sannarlega glatt á hjalla þegar boðið var í grillveislu á 2. hæðinni nýlega. Skálað var í kampavíni og nýtt sparistell vígt formlega með veislumat. Umræðuefnin voru fjölbreytt en líklega mesta fjörið þegar rætt var um framandi mat sem fólk hafði bragðað. Þar voru á meðal ánamaðkar, krókódílar, pöddur og eiturslanga. Það var svo klappað fyrir starfsfólkinu sem hafði lagt sig fram um að leggja fallega á borðin, sérstaklega þó fyrir Jónu sem hafði lagt mikinn metnað í skreytingar.

Mikill metnaður var lagður í skreytingar

38

Heimilispósturinn


Grillað í Mörk Jólahugvekja 2019

Herdís stóð við grillið

Gróa og Húni

Kristján, Torfi, Klaudia og Birna voru bara sátt með veitingarnar

Heimilispósturinn

39


svölum Grundar JÁ ólahugvekja 2019

Sólarmegin í lífinu

H

eimiliskonurnar Magnea og Lilja María nýttu sólina nýverið og prjónuðu úti í blíðviðrinu. Það er gott að hafa svalirnar á Grund sem snúa í suður og geta setið þar í rólegheitum og spjallað eða prjónað.

Guðrún Jóna og Björg Dúfa sáttar með sólríkar svalirnar

Magnea og Lilja María prjónuðu í blíðviðrinu

40

Heimilispósturinn


Vinátta í Mörk

Vinirnir Sigtryggur og Eros

E

ros kemur oft í vinnuna í Hugheima með Viktoríu, eiganda sínum, en hann á samt góða vini líka á öðrum heimilum í Mörk. Hér er það Sigtryggur sem er heimilismaður í Álfheimum sem gerði sér ferð til að heilsa upp á þennan ferfætta vin sinn. Það er magnað að sjá og fylgjast með hvað dýr og menn á Grundarheimilunum ná oft að mynda einlæga vináttu.

Sigtryggur heimilismaður í Álfheimum heilsaði upp á Eros

Heimilispósturinn

41


Margar hendur vinna2019 létt verk Jólahugvekja

Gefur lífinu tilgang að hafa hlutverk

Á

stóru heimili þarf að vinna mörg verk til að hlutirnir gangi upp og það er í Ási eins og annarsstaðar að þegar margir hjálpast að ganga hlutirnir betur. Heimilisfólkið leggur sitt af mörkum og margir eru með sín föstu verkefni sem þarf að inna reglulega af hendi.

Grétar og Vera tóku saman reglulega göngutúra í sumar

42

Heimilispósturinn


Margar hendur vinna2019 létt verk Jólahugvekja Sér um stólana í matsalnum Í Ási hefur Grétar Aðalsteinsson tekið að sér að stóla í matsalnum áður er gólfið er skúrað og hann setur svo stólana aftur niður þegar búið er að skúra. Þetta hefur Grétar gert í átta ár og segir það gefa lífinu tilgang að fá að sinna þessu verkefni. Grétar setti sér það markmið í sumar að hreyfa sig meira. Hann bauð Veru iðjuþjálfa að koma með sér, þannig að einu sinni í viku fóru þau saman í göngutúr, Grétar réð hvert ferðinni er heitið hverju sinni og Vera eltir. „Þetta eru góðar stundir“, segir Grétar.

Sendist fyrir þá sem ekki komast í búðina Smári Guðlaugsson hefur sinnt samskonar starfi í Ásbyrgi síðastliðin fjórtán ár og gert það með sóma, hann hefur á þessum 14 árum einu sinni verið frá vegna veikinda og geri aðrir betur. Smári sér einnig um að fara með kaffibrauðið í vinnustofuna í Ásbyrgi og hann hefur tekið að sér að skjótast í sjoppuna fyrir þá sem ekki komast sjálfir.

Grétar í vinnunni sem hann segir að gefi lífinu tilgang

Heimilispósturinn

Smári hefur bara einu sinni orðið veikur á 14 árum

43


G æðastundir á G rund Jólahugvekja 2019

Göngutúrar og prjónaskapur

N

ú á tímum Covid hefur verið minna um heimsóknir og uppá komur en venjulega á Grund. En þá er bara að sníða sér stakk eftir vexti og nýta félagsskapinn sem fyrir er. Og það hafa þau svo sannarlega gert heimilisfólkið og starfsfólkið á Minni og Litlu Grund. Heimiliskonurnar prjóna saman, hekla og spjalla um allt milli himins og jarðar, skella sér í göngutúra og svo hafa þær í sumar nýtt skjólgóða aðstöðuna í portinu til að sitja og sleikja sólina með starfsfólkinu. Jón Ólafur var duglegur í sumar að mæta með nikkuna í portið og þegar hann var ekki að spila nú þá steig hann bara dans með dömunum.

Jón Ólafur og Dúna á góðri stund

44

Heimilispósturinn


G æðastundir á G rund Jólahugvekja 2019

Svanhildur og Aðalbjörg í gönguferð

Jóhanna og Guðrún Hrönn

Þessar tvær njóta samverunar

Rut í veðurblíðunni

Heimilispósturinn

45


Vinasamband í 2019 Ási Jólahugvekja Tíkin leitar alltaf að Lísu

F

anney iðjuþjálfi í Ási á tík sem heitir Mýra og stundum fær hún að fara með í vinnuna. Þegar hún mætir í Ás þá bregst það ekki að hún leitar Lísu uppi til að heimsækja. Fanney segir að það sé eins og það sé einhver strengur á milli þeirra, vinastrengur.

Lísa og Mýra eru miklar vinkonur

46

Heimilispósturinn


MJ orgunleikfimin ólahugvekja 2019 í Mörk Boðið upp á hreyfingu inni á heimilum

N

ú á tímum Covid er í ríkara mæli en áður boðið upp á afþreyingu inni á Grundarheimilunum. Hér er það hún Alda íþróttafræðingur sem sér til þess að heimilisfólkið á þriðju hæðinni í Mörk fái tækifæri til að hreyfa sig og liðka.

Alda mætir á heimilin og liðkar heimilismenn

Heimilispósturinn

47


Nýir íbúar í M2019 örk Jólahugvekja

Símon, Sara og Keli vinna og búa á heimilinu

Þ

au Símon og Sara hófu störf í Mörkinni í sumar. Markmið þeirra er að veita heimilisfólkinu hlutverk, hlýju og nærveru en dúkkurnar eru sérstaklega hannaðar til að ná augnsambandi við þann gefur sig að þeim. Nokkru eftir að Símon kom í Mörk ættleiddi ein heimiliskonan hann, kona sem á orðið erfitt með að tjá sig vegna heilabilunar. Hann býr nú hjá henni og kúrir hjá henni á nóttunni. Starfsfólkið talar um Símon við hana, hvernig hann hafi sofið og hvort hann sé góður og svo framvegis og heimiliskonan nýtur þessara samskipta. Ef hún er eirðarlaus er ávallt hægt að aðstoða hana við að ná ró með því að leggja Símon í fang hennar. Þá flutti líka í Mörk krúttpjakkurinn Keli sem hagar sér næstum eins og heimiliskisur eiga að gera, hann malar þegar honum er strokið, vælir ámátlega þegar enginn sinnir honum og kúrir svo í fangi einhvers sem veitir honum hlýju og ástúð.

Símon og Sara búa og starfa í Mörk

48

Bríet Elsa Magnúsdóttir og Keli krúttpjakkur

Heimilispósturinn


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Heimilispósturinn - október 2020 by Grund, dvalar- og hjúkrunarheimili - Issuu