
1 minute read
Réttarholt vann þetta árið
Sú hefð hefur skapast að senda dómnefnd á svalir hjúkrunarheimilisins í Mörk og meta flottustu svalirnar. Að þessu sinni var valið erfitt því flest heimili höfðu lagt sig í líma við að hafa svalirnar snyrtilegar, litríkar og heimilislegar.
Ragnhildur veitir Mörtu verðlaun fyrir flottustu svalirnar
Advertisement
Hugsað fyrir öllu
Fyrstu verðlaun fékk heimilið Réttarholt á fjórðu hæðinni. Þetta voru svalirnar sem voru hvað mest heimilislegar og sjá mátti hvað öll smáatriði höfðu verið hugsuð til enda. Álfastyttum var vel raðað, púðar í stólum, festingar fyrir dúka, bjalla fyrir heimilisfólk til að klingja og hugsað fyrir öllu. Niðurstaðan var að það væri virkilega eftirsóknarvert að setjast niður á þessar svalir til að njóta.

Glaumbær í öðru sæti
Önnur verðlaun hlaut heimilið Glaumbær á annari hæð og svalirnar fylgdu fast á hæla þeirra sem lentu í fyrsta sæti. Þar er einstaklega notalegt að sitja líka á kvöldin því þau eru með tímastilltar luktir og teppi. Þriðju verðlaun hlaut Miðbær í miðjunni á 2. hæð. Þar vakti blómskrúðið sértaka athygli og ekki síst tómatplantan. Að þessu sinni skipuðu dómnefndina Ása Lára Axelsdóttir, Thelma Hafþórsdóttir Byrd og Vaida Stankute.

Barbara og Pawel tóku við viðurkenningu hjá Ragnhildi

Þvílík litadýrð Vigdís tekur við viðurkenningu


Þvílíkt blómskrúð Marta og Ása hrósa happi yfir 1. sætinu
Davíð að spóka sig á svölunum Svona gaurar lífga upp á tilveruna