Heimilispósturinn - október 2022

Page 1

HEIMILISPÓSTUR

Grundarheimilanna

Forsíðumyndina tók Pétur Thomsen um 1958-1960.

Loftmynd þar sem Grund sést vel.

Ritstjóri: Guðbjörg R. Guðmundsdóttir

Prentun: Litróf

Upplag: 1600

Heimilispósturinn Efnisyfirlit Afmæliskveðja frá forsetahjónum 1 Forgöngumennirnir 2 Pistill forstjóra 3 Tveir heimilismenn 100 ára á árinu 15 Jóhann J. Ólafsson stjórnarformaður Grundar 16 Afmælisgjöf til starfsfólks 18 Afmælisgjöf til heimilisfólks Grundarheimilanna 19 Hjálmar Svanur vinnur á Grund 23 Linda Björk vinnur á Grund 28 Afmælisrit 32 Systkini á Grund 34 Framkvæmdir 35 Fallegur haustdagur á Grund.......................................................................... 36 Daglegt líf á Grund 38 Grundarheimili í október 46

Afmæliskveðja frá forsetahjónum til Grundar á 100 ára afmæli

hjúkrunarheimilisins 29. október 2022

Á þessum merku tímamótum sendum við íbúum og starfsliði Grundar heillaóskir. Í hundrað ár hefur eldra fólk notið skjóls og aðhlynningar á þessum fallega stað. Sú verður raunin áfram. Megi virðing, fagmennska og ástúð ætíð einkenna allt mannlíf á Grund, okkur öllum til heilla.

Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid

JólahugvekJa 2019 Heimilispósturinn 1 Afmæliskveðja frá forsetahjónum

Forgöngumennirnir

Þetta eru forgöngumennirnir, með Sigurbjörn Ástvald Gíslason í forsvari, sem ótrauðir og hiklaust lögðu fram krafta sína og tíma án ávinningsvonar til að bæta líf aldraðra Reykvíkinga sem bjuggu við kröpp kjör í upphafi þriðja áratugs síðustu aldar.

2 Heimilispósturinn JólahugvekJa 2019Forgöngumennirnir
Flosi Sigurðsson, Haraldur Sigurðsson, Júlíus Árnason, Páll Jónsson og Sigurbjörn Á. Gíslason.

Framtíð Grundar er björt

Ræða flutt í hátíðarsal Grundar á afmælisdegi heimilisins 29. október 2022.

Til þessa heimilis var stofnað fyrir einni öld með langafa minn Sigurbjörn Ástvald Gíslason í fararbroddi en með honum voru nokkrir aðrir sem skipuðu líknarfélagið Samverjann. Fátækt og húsnæðisþrengsli í kjölfar mikilla fólksflutninga til höfuðborgarinnar ollu því að verulega kreppti að þeim sem minna máttu sín og þar má sérstaklega nefna aldraða.

Grund við Sauðagerðistún

Aðdragandinn að stofnun Grundar var meðal annars skemmtisamkomur sem voru haldnar af Samverjanum á túninu við Ás, heimili Sigurbjörns og konu hans frú Guðrúnar Lárusdóttur. Söfnuðust nokkrir fjármunir á þessum samkomum auk þess sem frjáls

JólahugvekJa 2019 Heimilispósturinn 3 Pistill forstjóra
Gísli Páll Pálsson forstjóri Grundarheimilanna. Skemmtisamkoma haldin af Samverjanum.
4 Heimilispósturinn
Grund við Sauðagerðistún.
Ljósmynd/Pétur
Sr. Sigurbjörn Ástvaldur Gíslason ávarpar Ásgeir Ásgeirsson forseta og frú Dóru Þóhallsdóttur. Thomsen

Pistill forstjóra

til að koma á fót elliheimili fyrir þá sem þurftu á slíku að halda. Býlið Grund við Sauðagerðistún þar sem nú er Kaplaskjólsvegur, var keypt og tekið í notkun fyrir nákvæmlega 100 árum eða þann 29. október 1922. Þar var pláss fyrir 23 heimilismenn. Það var stórt framfaraskref í öldrunarmálum borgarinnar. Það kom fljótt á daginn að stíga þyrfti stærri skref þar sem þörfin fyrir mun fleiri pláss var þegar orðin brýn um það leyti sem þetta nýja heimili var tekið í notkun. Lóðinni við Hringbraut er úthlutað til Grundar sumarið 1927 og var nýtt hús, það sem við erum í hér og nú, tekið í notkun 28. september árið 1930. Byggingarárin voru á tíðum erfið, sérstaklega hvað varðar fjármögnun framkvæmda. En allt hafðist þetta með Guðs hjálp og góðra manna.

Forstjóri í 60 ár Í október árið 1934 fellur verandi forstjóri Grundar, var reyndar kallaður ráðsmaður í fundargerðarbókum Grundar, sem hét Haraldur Sigurðsson. Átta dögum síðar, þann 21. október samþykkti stjórn Grundar að ráða afa minn Gísla Sigurbjörnsson í starf forstjóra með þessum orðum og tilvitnun hefst: „að fela Gísla Sigurbirnssyni fyrst um sinn að sjá um innheimtu, bókfærslu og forstöðu elliheimilisins, þar til frekari ráðningar verða gerðar.“

Heimilispósturinn 5
Hjónin Gísli Sigurbjörnsson og Helga Björnsdóttir.

Pistill forstjóra

Afi var forstjóri Grundar í sextíu ár, frá 1934 til 1994, en hann lést í janúar það ár. Þetta er eflaust lang lang lengsta tímabundna ráðning forstjóra á Íslandi og jafnvel þó víðar væri leitað. En ráðning hans var mesta gæfuspor þessa heimilis fyrr og síðar. Afi stýrði og stjórnaði Grund, í samráði við föður sinn, meðan hans naut við, í framangreinda sex áratugi. Og hann gerði Grund að því leiðarljósi sem heimilið hefur verið í

6 Heimilispósturinn
Gísli, Helga og dæturnar Nína Kirstin, Sigrún, Guðrún Birna og Helga. Nafnarnir.

eina öld í öldrunarþjónustu hér á landi. Í raun má segja að Grund hafi verið nær eina öldrunarheimilið hér á landi þangað til Hrafnista í Laugarásnum tók til starfa árið 1957.

Heimilislegur og hlýr blær

Móðir mín Guðrún Birna tók svo við af föður sínum árið 1994 og stýrir Grund í 25 ár til ársins 2019. Hún, ásamt eiginmanni sínum Júlíusi Rafnssyni fósturföður mínum, byggði við Grund margoft og bætti aðstöðu heimilismanna svo um munar. Mamma hefur átt stóran þátt í því að halda þeim heimilislega og hlýja blæ sem

Grund hefur haft á sér. Henni var afar annt um heimilis- og starfsfólk Grundar og er það enn, þrátt fyrir að hafa látið af störfum fyrir rúmum þremur árum.

Grund hefur vaxið og dafnað undanfarna öld. Stærstu stökkin voru árið 1930 þegar þetta hús sem við nú erum í var tekið í notkun, þá bygging Minni Grundar við Blómvallagötu árið 1945 og svo

JólahugvekJa 2019 Heimilispósturinn 7
a Pistill forstjóra
Ljósmynd/Kjartan Örn Júlíusson
Júlíus Rafnsson, Guðrún Gísladóttir og Gísli Páll Pálsson.

Pistill forstjóra

bygging Litlu Grundar við Brávallagötu árið 1982. Grund tók að sér rekstur öldrunarheimilis í Ási í Hveragerði árið 1952 og við þau tímamót bættist talsvert við rekstur Grundar. Nýtt hjúkrunarheimili var svo byggt í Ási og tekið í notkun árið 1998.

Starfsemin í Mörk

Það er síðan óhætt að fullyrða að stærsta einstaka stækkun Grundarheimilanna hafi verið árið 2010 þegar við tókum að okkur rekstur 113 rúma hjúkrunarheimilis í Mörkinni ásamt því að við keyptum af Landsbankanum þrjá íbúðarklasa við Suðurlandsbraut 58 – 62, með 78 íbúðum til að leigja út til 60 ára og eldri. Þar að auki byggðum við í Mörkinni og tókum í notkun árið 2018 74 nýjar íbúðir til útleigu fyrir 60 ára og eldri. Það hafa verið mikil forréttindi að stýra þeirri uppbyggingu frá upphafi. Íbúðirnar allar eru glæsilegar og henta vel hjónum jafnt sem einstaklingum.

8 Heimilispósturinn
Grund tók að sér rekstur í Ási árið 1952. Ljósmynd/Kjartan Örn
Júlíusson

Félagslífið er sjálfsprottið og samanstendur af margskonar klúbbum. Þar að auki stendur íbúum til afnota tæki til líkamsræktar, sundlaug, heitur pottur og gufuböð auk sjúkraþjálfunaraðstöðu. Þá geta íbúar sótt ýmsa þjónustu í hjúkrunarheimilið og má þar nefna hádegismat, hárgreiðslu, fótsnyrtingu og læknisþjónustu. Þá er kaffihúsið Kaffi Mörk opið íbúum auk þess sem fallegur púttvöllur prýðir garðinn.

Rúmlega 400 á biðlista

Nábýli íbúða við hjúkrunarheimilið gefur oft á tíðum möguleika á að veikari aðili sambúðarfólks fær notið umönnunar og öryggis á hjúkrunarheimilinu. Hinn aðilinn, sá hraustari, nýtur lífsfyllingar í því að geta verið með maka sínum á daginn, átt gæðastundir og svo sofið í íbúðinni sinni við hlið hjúkrunarheimilisins áhyggjulaus vitandi af maka sínum í öruggum höndum starfsmanna hjúkrunar-

JólahugvekJa 2019 Heimilispósturinn 9
a Pistill forstjóra
Ljósmynd/Kjartan Örn Júlíusson
Heimilismenn í Mörk eru 113 og íbúðir fyrir 60 ára og eldri alls 152 talsins.

heimilisins. Í dag eru rúmlega 400 manns á biðlista eftir íbúð fyrir 60+ í Mörkinni og biðlisti eftir plássi á hjúkrunarheimilið er einnig langur.

Leitað að lóð fyrir íbúðir og hjúkrunarheimili

Þessi misserin erum við að leita að lóð undir nýja þyrpingu íbúða og hjúkrunarrýma, allt að 200 rýma hjúkrunarheimili ásamt 200 íbúðum fyrir 60 ára og eldri. Vonandi finnum við viðeigandi lóð sem fyrst og getum hafist handa við byggingu framangreindra húsa innan örfárra ára. Eitt er víst að þörfin er mjög mikil.

Eins og ég nefndi fyrr í ræðu minni þá var þetta hús tekið í notkun fyrir rúmum 90 árum. Minni Grund fyrir 77 árum og Litla Grund fyrir 40 árum. Verulegar endurbætur hafa verið gerðar á Grund á undanförnum áratugum á þann veg að fækka fjölbýlum og útbúa eins manns herbergi, hvert með sér baðherbergi. Samfara þessu hefur heimilismönnum á Grund til dæmis fækkað úr 380 árið 1970 í rúmlega 170 í dag, þrátt fyrir byggingu Litlu Grundar sem hýsir 20 heimilismenn.

Kröfurnar hafa breyst

Þegar ég var barn á Grund, fyrir um það bil hálfri öld, voru nokkur átta og jafnvel tíu manna herbergi. Þeim hefur sem betur fer verið lokað fyrir mörgum árum en í dag eru 12 tveggja manna herbergi á Grund. Þessum breytingum, úr tveggja manna herbergjum í eins manns herbergi, með baðherbergi, þarf að ljúka innan örfárra ára. Kröfur nútímans eru eins manns herbergi með sér baðherbergi. Ef við, hér á Grundinni, verðum ekki við þessum sjálfsögðu kröfum þá dagar Grund uppi sem nátttröll, sem enginn vill dvelja hjá. Og til þess að enda ekki sem óvinsælt nátttröll, þá þurfum við dygga aðstoð þeirra sem stjórna okkar góða landi og sjá til þess að við fáum greidda sanngjarna húsaleigu fyrir það húsnæði sem Grundarheimilin leggja til reksturs hjúkrunarheimila hér í vesturbænum og í Hveragerði.

10 Heimilispósturinn
Pistill forstjóra

Kaffihús í suðurgarð Grundar

Auk þess að breyta tvíbýlum í einbýli með baðherbergi á Grund stefnum við á byggingu nýs kaffihúss sem verður hægt að ganga út í frá jarðhæð þar sem nú er borðsalur starfsmanna, beint út í suðurgarð Grundar, í svokölluðu U-i, sem er hérna rétt vestan við okkur. Garðurinn verður lokaður þannig að allir heimilismenn geta farið þangað án þess að eiga á hættu að týnast, notið veitinga, ýmist inni í kaffihúsinu eða úti í góða veðrinu með ættingjum og vinum. Er ég sannfærður um að þessi mikla framkvæmd kemur til með að bæta alla aðstöðu heimilismanna og aðstandenda Grundar til að njóta góðra stunda saman. Hér á veggnum í salnum að vestanverðu má sjá yfirlitsteikningu af því hvernig þetta kemur til með að verða.

Í tilefni 100 ára afmælisins ákvað stjórn Grundar að láta rita sögu heimilisins. 75 ára saga okkar var gefin út fyrir 25 árum en hana

JólahugvekJa 2019 Heimilispósturinn 11
a Pistill forstjóra
Nýja kaffishúsið í garði Grundar.

Framkvæmdin í garði bætir aðstöðu heimilismanna svo um munar.

ritaði þáverandi stjórnarformaður Grundar, séra Guðmundur Óskar Ólafsson. Það vill svo skemmtilega fallega til að dóttir hans, Guðbjörg Guðmundsdóttir starfar á skrifstofu Grundar, er jafnframt í stjórn Grundar og þar að auki blaðamaður. Það var því skynsamlegur og góður kostur að fá hana til að bæta við þeim aldarfjórðungi sem upp á vantar. Og í dag er bókin tilbúin, rúmlega 300 blaðsíður, ríkulega myndskreytt. Vil ég fyrir hönd stjórnarinnar þakka Guðbjörgu kærlega fyrir bókarskrifin. Öllum gestum er boðið að taka eina bók með sér heim.

Tímamótunum fagnað með ýmsum hætti

Þið takið eflaust eftir því að hér í salnum eru engir heimilismenn og afar fáir starfsmenn. Við höfum í þessari viku fagnað þessu afmæli með öllum heimilismönnum Grundarheimilanna, Grundar, Áss og Markar með sérstöku hátíðarboði þar sem þeim var boðið

12 Heimilispósturinn JólahugvekJa 2019 Pistill forstjóra

með aðstandendum sínum upp á veglegar veitingar og fallega tónlist. Þá buðum við einnig heimilismönnum okkar upp á fallega og skemmtilega tónleika þeirra Guðrúnu Gunnars, Jógvan Hansen og Siggu Beinteins. Og í kvöld bjóðum við öllum starfsmönnum Grundarheimilanna þriggja til glæsilegrar árshátíðar þar sem við fögnum þessum tímamótum saman.

Þakka

langafa mínum

Að lokum er komið að þökkum. Þáði ráð frá góðum samstarfsmanni og ætla ekki að þakka neinum, þannig er tryggt að enginn verði skilinn útundan. Nema einum manni. Langafa mínum Sigurbirni. Ég var með honum í þessum hátíðarsal fyrir rúmum 56 árum, hvítasunnudaginn 29. maí árið 1966, hann þá níræður, ég rúmlega þriggja mánaða. Hann skírði mig í höfuðið á syni sínum, afa Gísla. Sigurbjörn lést í ágúst árið 1969 þannig að ég náði því miður ekki að kynnast honum. Af því sem ég hef lesið, hefur hann verið

Úrklippa úr Morgunblaðinu en myndin er tekin á hvítasunnudag 29. maí 1966 þegar sr. Sigurbjörn skírði langafabörnin sín Gísla Pál og Helgu.

JólahugvekJa 2019 Heimilispósturinn 13 Pistill forstjóra

stórfenglegur einstaklingur, drífandi athafnamaður með mikinn eldmóð og Guðstrú í hjartanu. Og hann mátti ekkert aumt sjá og á þessum tíma voru það aldraðir sem fátæktin bitnaði hvað mest á. Bágborin staða aldraðra og Guðstrúin hefur án efa verið það sem gaf honum kraft til að hrinda þessu þrekvirki í framkvæmd, að stofna elliheimili á þessum tíma.

Ætlun mín var aldrei að starfa á Grundarheimilunum en örlögin hafa háttað því að hér stend ég, stoltur afkomandi Sigurbjörns og Guðrúnar langömmu minnar og hef starfað sem stjórnandi á Grundarheimilunum frá árinu 1990. Sennilega hefur langafi sáldrað einhverju af sínum Guðs­ og eldmóðsgeislum yfir mig þennan hvítasunnudag, og fyrir það er ég þakklátur. Án hans værum við ekki hér saman komin til að fagna þessum stóru tímamótum í öldrunarþjónustu landsins.

Framtíð Grundar er björt. Aldurssamsetning þjóðarinnar er með þeim hætti að það er óhætt að segja að það sé afar góður bisniss að þjónusta eldri borgara á Íslandi. Efnahagur þeirra er þar að auki að styrkjast þannig að slíkt gefur enn meiri möguleika á útfærslu ýmiskonar þjónustu sem þarf ekki endilega að greiðast með skattpeningum ríkisins.

Ég vil að lokum óska öllum heimilismönnum, starfsmönnum, aðstandendum og öðrum velunnurum Grundar innilega til hamingju með 100 ára afmælið.

14 Heimilispósturinn JólahugvekJa 2019 Pistill forstjóra

Jafnaldrar Grundar

Tveir heimilismenn á Grundarheimilunum fögnuðu aldarafmæli nú sama ár og Grund. Þetta eru þau Garðar Sigurðsson sem býr á hjúkrunarheimilinu í Mörk og varð hundrað ára í febrúar og hins vegar Sigrún Þorsteinsdóttir sem er búsett á hjúkrunarheimilinu í Ási og fagnaði þessum merka áfanga í september.

Afmælum þeirra var fagnað á öllum Grundarheimilunum með veisluhöldum og Gísli Páll Pálsson forstjóri Grundarheimilanna heimsótti afmælisbörnin og færði þeim blóm í tilefni dagsins.

JólahugvekJa 2019 Heimilispósturinn 15
Tveir heimilismenn 100 ára á árinu

Jóhann J. Ólafsson

Grund siglir inn í næstu öld

Á 100 ára afmæli sínu nær Grund aldri elstu heimilismanna sinna en þeir eru þó nokkrir yfir 100 ára. Eftir það má reikna með að dragi í sundur. Heimilismenn munu skipta um vist af ýmsum ástæðum en Grund mun stefna í 200 árin samkvæmt gangi himintungla.

Öll erum við jarðarbúar átta og hálfur milljarður, kominn í þennan heim á hefðbundinn hátt. En við þurfum öll einnig að komast útúr þessum heimi samkvæmt okkar örlögum. Það veltur á ýmsu. Flestir hverfa snögglega án fyrirhafnar en fyrir suma tekur þessi breyting mörg ár. Menn veikjast, eldast illa, verða fyrir slysum með þeim afleiðingum að þeir verða ósjálfbjarga og upp á aðra komnir í mörg ár. Í slíkum tilfellum hjálpar hjúkrunarheimili eins og Grund sem veitir þá þjónustu árum saman. Hjúkrunarheimili verður bágstöddum annað heimili, oft í mörg ár þar sem þeir fá alla þjónustu og læknishjálp. Heimilismennirnir þurfa meira, talstundir, dægradvöl og skemmtun, einnig líkamsþjálfun og allt þetta sér Grund um að útvega. Starfsfólk Grundar, Áss og Markarinnar er boðið og búið til að létta undir með heimilisfólkinu hvenær sem er.

Þess vegna er það uppljómun fyrir okkur þegar okkur er endurgoldið. Guðjón Jónsson, heimilismaður í Ási, færði okkur bekk að gjöf sem þakklæti fyrir allt það sem Ás hefur gert fyrir hann og

16 Heimilispósturinn
Grundar
stjórnarformaður
Jóhann J. Ólafsson stjórnarformaður Grundar

Á hjúkrunarheimilum þarf engum að leiðast.

konu hans Ásu sem nú er látin. Það er ómetanlegt fyrir starfsfólk og stjórnendur að fá svona vottorð um að við séum að gera eitthvað rétt og vermir starfsfólki um hjartarætur.

Á hjúkrunarheimilum þarf engum að leiðast, maður er manns gaman og mörg vináttubönd myndast. Menn bindast í hópa og skemmta sér og öðrum með fjölbreyttum tómstundum. Starfsemi Grundar verður æ fjölbreyttari og vonandi hefur hinn vaxandi styrkur og reynsla sem okkur hefur hlotnast á þessum langa tíma gefið okkur byr undir báða vængi til að takast á við viðfangsefni næstu hundrað árin.

Ég óska heimilisfólki og starfsfólki Grundarheimilanna til hamingju með aldarafmælið.

JólahugvekJa 2019 Heimilispósturinn 17 a Jóhann J. Ólafsson stjórnarformaður Grundar

Grund gaf starfsfólki

heimilanna flíspeysu

Við stór tímamót eins og þegar Grund fagnar aldarafmæli er gaman að geta glatt starfsfólkið sem vinnur á Grundarheimilunum þremur. Stjórn heimilisins ákvað að gefa því flíspeysuna VÍK í afmælisgjöf.

Fallega tréð, lógó heimilisins, er á upphandlegg. Starfsfólk bregður sér oft út með heimilisfólk í gönguferðir eða til að anda að sér fersku lofti og þá er gott að geta skellt sér í hlýja peysu. Með afmælisgjöfinni er einnig verið að þakka okkar frábæra starfsfólki óeigingjarnt starf, hlýju og umhyggju sem það sýnir alla daga i

18 Heimilispósturinn Afmælisgjöf til starfsfólks
Ljósmynd/Kjartan Örn Júlíusson
Nokkrir starfsmenn komnir í peysu frá Grund.

a

Tónleikar með lögum

Sigfúsar Halldórssonar

Í september var tekið forskot á sæluna og boðið upp á afmælistónleika á öllum Grundarheimilunum og einnig fyrir íbúa hjá Íbúðum 60+. Það voru þau Guðrún Gunnars, Jógvan og Sigga Beinteins sem komu fjórum sinnum til okkar í sömu vikunni með klukkustundar tónleika og sungu lögin hans Sigfúsar Halldórssonar við undirleik Gunnars Gunnarssonar. Þess má til gamans geta að Fúsi hefði orðið aldargamall árið 2020. Lögin kannaðist heimilisfólkið svo sannarlega vel við en á meðal þeirra voru Litla flugan, Dagný og Tondeleyó. Heimilisfólk og íbúar sungu með hástöfum

JólahugvekJa 2019 Heimilispósturinn 19
Afmælisgjöf til heimilisfólks Grundarheimilanna
Ljósmynd/Írena McCabe
Gunnar Gunnarsson, Guðrún Gunnars, Sigga Beinteins og Jógvan Hansen.
20 Heimilispósturinn JólahugvekJa 2019 Afmælisgjöf til heimilisfólks Grundarheimilanna
Berglind, María Jóhanna og Sigga Beinteins. Guðrún, Jógvan og Sigga heilluðu alla upp úr skónum.
JólahugvekJa 2019 Heimilispósturinn 21 Afmælisgjöf til heimilisfólks Grundarheimilanna
22 Heimilispósturinn JólahugvekJa 2019 Afmælisgjöf til heimilisfólks Grundarheimilanna
Ljúf og notaleg stund í hátíðarsal.
Ljósmynd/Írena McCabe Ljósmynd/Írena McCabe
Á Grund mættu margir til að hlusta á lögin hans Fúsa.

Ég vildi að ég hefði byrjað

átján ára að vinna á Grund

Hann var blankur fyrir um fimmtán árum og ætlaði að vinna á Grund í mánuð áður en hann færi í hársnyrtinám. „Ég er hér enn“, segir Hjálmar Svanur Hjálmarsson hópstjóri á Grund.

JólahugvekJa 2019 Heimilispósturinn
Hjálmar Svanur vinnur á Grund

Hjálmar Svanur vinnur á Grund

„Ég hafði unnið á Hrafnistu en systir mín Katrín Hjálmarsdóttir sem var og er að vinna á heimilinu hvatti mig til að koma yfir. Ég sé aðallega eftir því að hafa ekki byrjað fyrr, því í þessu starfi þroskast maður hratt. Ég hef því lagt að börnum vina minna að koma og vinna á Grund og nokkur hafa gert það.“ Ekkert varð úr að hann yrði hársnyrtir en Svanur, eins og hann er kallaður, segist fá útrás fyrir þá þörf með því að klippa karlana í austurhúsi Grundar þar sem hann starfar. „Við erum allir eins klipptir herrarnir í austurhúsinu“ segir hann og bendir brosandi á sig sjálfan.

Sjúkraliði og nú hjúkrun

Ekki hafði Svanur unnið í mörg ár á Grund þegar hann uppgötvaði að vinnan ætti það vel við sig að hann ætlaði í sjúkraliðanám. Hann fór í svokallaða sjúkraliðabrú og lauk því námi. Nokkrum árum síðar ákvað hann svo að fara í hjúkrun í HÍ. „Hjúkrun hafði blundað í mér frá því ég fór að vinna með öldruðum og mig langaði æ meir að sinna þeim störfum sem hjúkrunarfræðingar inna af hendi hér á Grund. Deildarstjórinn minn, Elsa K. Gunnlaugsdóttir og fleiri reyndar, hefur verið óspör á að kenna mér, treysta mér og hvetja mig til að læra hjúkrun og ég finn bara í náminu núna hvað ég bý vel að þeirri reynslu sem ég hef fengið hér. Ég skemmti mér konunglega í náminu og kann vel að meta áherslurnar þar, sem eru gagnrýnin hugsun, að treysta á eigið innsæi og einstaklingsmiðuð hjúkrun.“

Þetta eru vinir mínir

Þegar ég spyr Svan hvað heilli hann við vinnuna á Grund þarf hann ekkert að hugsa sig um. „Fólkið, bæði heimilisfólk og starfsfólk. Þetta eru vinir mínir og það eru margir heimilismenn sem eru látnir núna sem ég sakna og ættingja þeirra líka. Samskiptin verða náin og oft verður úr dýrmæt vinátta.“ Svanur dregur fólk með sér á Grund því konan hans, Mercy Aikhlomionia, starfar

24 Heimilispósturinn

við hlið hans, börn vina hans og litli frændi hans Christian. Systir hans hefur svo verið að vinna í austurhúsinu eins og hann en mun lengur en Svanur.

Við spjöllum um breytt landslag í öldrunarmálum og hann segir lífið á Grund hafa gjörbreyst til hins betra frá því hann hóf störf. „Þegar ég kom til starfa voru kannski þrír og fjórir saman í herbergi og fyrir vikið andrúmsloftið stofnanalegra. Í dag er búið að breyta næstum öllum herbergjum í einbýli en samt er nándin meiri og allt einstaklingsmiðaðra en var.

Langar að fá morgunstundina aftur í hátíðarsal „Mig langar rosalega til að fá morgunstundina aftur í hátíðarsalinn“, segir Svanur þegar ég spyr hvort hann sjái fyrir sér eitthvað sem geti bætt lífið á Grund. „Það var oft viðkvæði hjá heimilismönnum þegar þeir voru fluttir hingað að þeir hefðu bara ekki haft jafn mikið að gera lengi. Svo kom covid og þá datt starf eins og morgunstundin niður. Fólkið saknar þess. Það vill hafa eitthvað fyrir stafni og dagskrá.“

Heimilispósturinn 25

Vinirnir Svanur og Edda.

Heilaþjálfun

Svanur segir að margir sem komi til að búa á Grund séu farnir að missa minnið. Þeir eru iðnir við sudoku til að halda í minnið en hann sér fyrir sér hóptíma í heilaþjálfun. „Ég held það væri rosalega gott að bjóða upp á hóptíma þar sem markvisst væri unnið með minni og heilaþjálfun. Nokkurs konar hópefli með heilaþrautir.“

Rakstursstundirnar bestar

Þegar ég spyr Svan hverjar séu notalegustu stundirnar í vinnunni segir hann: „Það eru t.d. rakstursstundirnar. Á sunnudögum, ef ég er að vinna, þá heimsæki ég karlana í austurhúsinu, spyr þá um

26 Heimilispósturinn

uppáhaldstónlist og finn á Spotify, legg rakan klút á andlit og byrja svo að raka upp á gamla mátann. Þetta eru ljúfar stundir fyrir mig og líka fyrir heimilismennina. Við spjöllum um lífið og hlustum á uppáhaldstónlistina þeirra í leiðinni. Ég spjalla líka við heimiliskonur, sest niður og gef þeim góðan tíma en læt stelpurnar um að bjóða þeim rúllur í hárið.“

Hann segir að á kvöldin sé líka notalegt í vinnunni: „ Þá gefst oft góður tími til að spjalla fyrir svefninn. Það hafa allir þörf fyrir að tala og mér finnst gott að hlusta. Ef ég horfi á þetta út frá okkur starfsfólkinu þá held ég að svona stundir sporni við kulnun. Að eiga góða stund með heimilisfólki þar sem við sitjum bara og spjöllum og eigum náin og hlý samskipti.“

Heimilisfólk og starfsfólk borðar saman

Starfsfólk er farið að borða inni á deildum. Borðið þið með heimilisfólkinu þegar færi gefst?

„Já og það er þvílíkur munur. Við sitjum með fólkinu og spjöllum og það tekur oft virkan þátt í spjallinu. Heimilisfólki finnst skondið að hlusta á ýmislegt sem við erum að tala um og ef það er ekki ræðið sjálft þá brosir það bara að sumri vitleysunni sem við erum að spjalla um.“ Hann segir að heimilisfólk kunni að meta matinn á Grund og það sé sérstök ánægja með að fá nú daglega salat og aukið úrval af grænmeti. Hann segir að lokum að ekki sé hægt að sleppa starfsmanninum Dario þegar talið berist að mat. „Þar er einstakur starfsmaður. Hann gefur sér tíma til að gera „þetta litla og smá auka“ og það er það sem skiptir svo miklu máli. Þið ættuð að sjá gleðisvipinn á heimilismönnum þegar hann er á vakt um helgar. Þá útbýr hann svo listilega ljúffengar samlokur í morgunmat og heimilisfólkið borðar hreinlega á sig gat.“

JólahugvekJa 2019 Heimilispósturinn 27 a Hjálmar Svanur vinnur á Grund
GRG

Linda Björk vinnur á Grund

Linda

Björk Logadóttir vinnur við umönnun á Litlu og Minni Grund

Guð geymi þig Linda mín

„Ég hélt að þetta væri miklu ópersónulegra starf en uppgötvaði að þetta er manneskjulegt samfélag, mjög náið og andrúmsloftið heimilislegt“, segir Linda Björg Logadóttir sem sótti um starf við umönnun á Grund mánuði eftir að hún missti ömmu sína Valborgu Sveinsdóttur í apríl síðastliðnum.

„Ég bý á Víðimel og það er stutt í vinnuna á Grund sem er kostur en það hafði lengi blundað með mér að prófa að vinna með öldruðum og ætli ömmur mínar eigi ekki einhvern hlut þar að máli. Ég er nefnilega svo heppin að hafa alltaf átt ömmurnar mínar báðar á lífi þangað til önnur þeirra lést í vor og þær voru miklar vinkonur mínar og bjuggu í göngufjarlægð frá mér.“

Æðislegt að vinna á Grund

Þegar hún er spurð hvernig henni finnist svo að vinna á heimilinu segir hún að sér finnist það æðislegt. „Ég vinn á Litlu og Minni Grund og stundum eru dagarnir þungir og erfiðir en þá segir einhver heimiliskonan við mig í lok dags, Guð geymi þig Linda mín, eða kyssir mig á kinnina og þakkar fyrir daginn og þá er dagurinn orðinn frábær. Margir heimilismenn eru orðnir góðir vinir mínir og ég hef deilt gleði og sorgum með þeim. Þegar ég var nýbyrjuð að vinna á Grund kynntist ég heimiliskonunni Unni Sigurjónu. Við settumst niður í dágóða stund, drukkum nokkra kaffibolla og spjölluðum um lífið og það var svo gaman að heyra hvernig hún hefur um ævina tekist með svo mikilli seiglu á við þau verkefni sem lífið

28 Heimilispósturinn

hefur fært henni. Ég er alltaf að læra af heimilisfólkinu, t.d. þegar það er að segja frá lífi sínu og hvernig það tókst á við hlutina. Unnur Sigurjóna var sú fyrsta til að verða vinkona mín hér á Grund en síðan á ég orðið marga góða vini hérna.“

Linda segist fá ýmis verkefni á Grund. „Ég var t.d. beðin að þrengja buxur fyrir heimiliskonu. Ég læri af því. Buxurnar fór ég með til ömmu minnar, Jórunnar Erlu Þorvarðardóttur, og hún gat kennt mér og aðstoðað þó hún sé komin með dapra sjón.“

Spjallstundirnar frábærar

Þegar talið berst að gæðastundum í vinnunni segir Linda að hennar bestu stundir séu þegar hún finnur að fólk er einmana en nær því til að setjast niður til að spjalla. „Það er gefandi að finna þakklætið þegar maður finnur sér stund til að spjalla en ekkert síður bara til að hlusta. Ég tek prjónana mína með mér og stundum

Heimilispósturinn 29

þegar ég er að prjóna á kvöldin skapast skemmtilegar samræður útfrá prjónaskap. Flestir hafa prjónað og hafa gaman af því að deila sögum. Það er meira að segja einn heimilismaður hérna sem gerði mikið af því að prjóna.“

Auka samverustundir

En sér hún eitthvað sem hún vildi breyta eða bæta?

„Já ég væri til í að sjá heimilisfólkið spila meira og eyða meiri tíma saman. Það hefur stundum verið klúbbastarf hérna og það mætti efla það, saumaklúbba, spilaklúbba, herraklúbba og svo framvegis. Nokkrar konur eru að sauma og prjóna og það væri gaman að leiða þær saman. Svo er aldrei of mikill söngur. Það verður allt svo létt og kátt til dæmis þegar Jón Ólafur Þorsteinsson mætir með nikkuna. Fólk þekkir lögin og fer að syngja með.“

Það getur verið fallegt að deyja

Vinnan á Grund hefur líka opnað augu Lindu fyrir því að það getur verið fallegt að deyja. „Þegar amma dó í apríl sögðu margir að hún hefði verið tilbúin að fara og mér fannst það eitthvað svo skrítið að halda að fólk vildi deyja. En í dag átta ég mig á því að það getur verið mjög fallegt þegar fólk loksins fær að kveðja. Það þráir að fá að fara og mér finnst það fallegt þegar að því kemur.“

Farðu í hjúkrun

„Amma mín prófaði að fara í dagdvöl og var ekki hrifin. Hún býr heima, komin á tíræðisaldur. Henni fannst allt ákveðið fyrir sig og líkaði það ekki. Ég sé að hér er þessu öðruvísi farið. Hér er allt persónulegra og einstaklingsmiðaðra. Fólk er spurt hvað það vilji gera og það er einmitt þannig sem hlutirnir eiga að vera.“

En hvað skyldi Linda gera þegar hún er ekki að vinna á Grund?

„Þá er ég í skóla. Ég er á síðasta ári í stjórnmálafræði og sé alveg fyrir mér að vinna í ráðuneyti eða í stjórnsýslunni. Þar að auki er

30 Heimilispósturinn JólahugvekJa 2019 Linda Björk vinnur á Grund

ég mikil fjölskyldukona, á sex systkini og lítil frændsystkini og líka kærasta og kött svo mig skortir ekki verkefni. Annars segir hún Rósa Einarsdóttir deildarstjóri hér á Minni og Litlu Grund að ég eigi að drífa mig í hjúkrun, þar eigi ég heima. Hver veit...“

JólahugvekJa 2019 Heimilispósturinn 31
Linda Björk vinnur á Grund
Vinkonurnar Linda og Ragnheiður.

Saga Grundar í hundrað ár

Í tilefni aldarafmælis Grundar kom út saga heimilisins

í 300 síðna afmælisriti nú í október. Þar er stiklað

á stóru um líf og starf á Grund í 100 ár.

Fyrstu heimilismennirnir á Grund við Hringbraut.

Flutt í nýja húsið

Við grípum niður í kafla bókarinnar þegar flutt var í nýja húsið, Grund við Hringbraut, í september árið 1930. „Umskiptin voru mikil fyrir heimilisfólk að koma í nýja húsið og mátti oft heyra það á mæli þeirra sem fluttu. Sigurbjörn segir frá: Vistmaður frá gömlu Grund skoðaði húsið og sagði svo er heim kom. „Húsið er reisulegt og fjarska fínt, en ég tók samt eftir slæmum galla á húsinu, það er nær ómögulegt að rata þar út.“ Það voru samt fernar dyr á húsinu. Gömul kona gekk um húsið og mælti: „En hvar eigum við

32 Heimilispósturinn Afmælisrit

að vera?“ Hún varð alveg orðlaus, er henni var sagt að hún mætti kjósa sér herbergi þar sem hún stóð. Annars voru það fleiri en aldraðir einstaklingar sem töluðu um að húsið væri óþarflega fínt, of mikið borið í það o.s.frv. Ritað er í blöðin um hið nýja reisulega hús og sagt m.a. að hér sé um að ræða eina af merkustu byggingum þessa lands og svo vandað í alla staði að leitun muni að öðru eins elliheimili meðal stærri og ríkari þjóða. Alls eru í húsinu 125 herbergi og er frágangur þeirra eins og á bestu gistihúsum. Sjúkraherbergi eru þar þrjú, 7 baðherbergi, 7 salerni og 5 kaffieldhús. Þvottahús og eldhús eru búin allra bestu nútímatækjum. Húsið kostaði ásamt öllu innanstokks krónur 650 þúsund.“

Feðgin skráðu söguna

Fyrir 25 árum tók sr. Guðmundur Óskar Ólafsson þáverandi heimilisprestur og stjórnarformaður Grundar saman 75 ára sögu heimilisins. Nú aldarfjórðungi síðar tók dóttir hans, Guðbjörg R. Guðmundsdóttir saman þá 25 ára sögu sem liðin er frá skráningu afmælisritsins 1997. Faðir sr. Guðmundar Óskars og afi Guðbjargar, Ólafur Jónsson sem kallaður var Óli Flosa, sat í stjórn Grundar á undan þeim feðginum og fósturfaðir hans, Flosi Sigurðsson, var einn af stofnendum heimilisins.

JólahugvekJa 2019 Heimilispósturinn 33 Afmælisrit
20mm 20mm 15mm 246 mm 246 mm 15mm 15mm 15mm 15mm 15mm 15mm 15mm 166mm 166mm 9 9 9 9 166mm 166mm

Systkini á Grund

Sitt hvoru megin við 100 ára

Það eru fleiri en Grund sem ná háum aldri. Heimilisfólkið og systkinin Rósa Oddsdóttir og Hallgrimur Oddsson fögnuðu 101 árs

Systkinin Rósa Oddsdóttir og Hallgrímur Oddsson á góðum degi.

34 Heimilispósturinn

Alltaf verið að bæta og

lagfæra á Grund

Það er alltaf verið að bæta húsnæðið á Grund, um þessar mundir hafa staðið yfir umfangsmiklar breytingar á jarðhæðinni í austurhúsi heimilisins.

Fyrir nokkru var gerð andlitslyfting á anddyrinu þegar komið er inn á jarðhæð í austurhúsi en nýverið var svo ákveðið að færa skrifstofu deildarstjóra og opna rýmið sem hýsir setustofu og borðstofu, setja þar upp nýja eldhúsinnréttingu og nýtt gólfefni.

Við þetta verður öll aðstaða fyrir heimilisfólk og starfsfólk betri og bjartari.

Í vesturhúsi Grundar er verið að skipta um eldhúsinnréttingar

Heimilispósturinn 35 Framkvæmdir
Þór og Thorvald að mála í austurhúsi.

Notalegt í porti heimilisins

Haustið hefur verið milt og einn slíkan dag í október voru þessar myndir teknar. Heimilisfólkið komið út til að anda að sér fersku lofti. Tónlistarmaðurinn Bjarni Hall bauð að þessu sinni upp á söngstund í blíðunni úti en oftar en ekki er Jón Ólafur Þorsteinsson harmonikkusnillingur líka með honum. Portið á bak við Grund breytist nefnilega á góðum dögum í kaffihús. Það verður ekki amalegt þegar nýja kaffihúsið verður tilbúið í suðurgarði Grundar. Þar verður hægt að opna út í garðinn og eflaust ótal tækifæri til að vera með svona ljúfar stundir þar.

36 Heimilispósturinn JólahugvekJa 2019 Fallegur haustdagur á Grund
Í góðu veðri er oft þétt setið úti.
JólahugvekJa 2019 Heimilispósturinn 37 Fallegur haustdagur á Grund
Heimilisfólki finnst gott að sitja úti í porti. Bjarni Hall mættur með gítarinn.

Daglegt líf á Grund

Heimilisfólk tók virkan

þátt í heimilisstörfum

Það hefur ýmislegt breyst í starfsemi Grundar á heilli öld. Hér áður fyrr var heimilisfólk að taka slátur fyrir heimilið, pússa skó, ríða net og baka pönnukökur. Við erum svo heppin að eiga úrval gamalla mynda hér á Grund og við þessi tímamót er gaman að sýna nokkrar myndir frá daglegu lífi á heimilinu, aðallega frá fimmta og sjötta áratug síðustu aldar.

38 Heimilispósturinn
Vígsla Grundar 28. september árið 1930.
JólahugvekJa 2019 Heimilispósturinn 39 Daglegt líf á Grund
Ljósmynd/Pétur Thomsen Ljósmynd/Pétur Thomsen
40 Heimilispósturinn JólahugvekJa 2019 Daglegt líf á Grund
Heimiliskonur aðstoða við sláturgerð, sauma vambir. Við vígslu á kór kapellunnar hinn 6. febrúar 1955. Ljósmynd/Pétur Thomsen Ljósmynd/Pétur Thomsen
Jólahugvek 2019 Heimilispósturinn 41 Daglegt líf á Grund
unnu margir þar því þar var líka þvegið fyrir fók úti í bæ.

Daglegt líf á Grund

42 Heimilispósturinn
Á hverjum morgni var hugvekja á heimilinu.
Ljósmynd/Pétur Thomsen
Hugguleg stund í setustofunni en takið eftir fröken Steinunni „hjúkrunarkonu“ sem stendur upp í glugga.

á Grund

Kveðjuathöfn fyrir fröken Jakobínu Magnúsdóttur yfirhjúkrunarkonu en hún var jarðsungin frá Neskirkju. Skátar standa hér heiðursvörð en Jakobína var fyrsti kvenskátahöfðinginn á Íslandi.

Heimilispósturinn 43
líf
Daglegt
Ljósmynd/Sigurður
Guðmundsson
44 Heimilispósturinn
2019 Daglegt líf á Grund
JólahugvekJa
Heimilisfólk fékk tíma í ljósalampa hjá fröken Stein.
Heimilispósturinn 45
Myndin er tekin á Frúargangi þar sem heimilskonur voru að bursta skóna sína.

Bleik lýsing á Grundarheimilunum

Í október eru landsmenn hvattir til að sýna lit, bera slaufuna, klæðast bleiku og lýsa skammdegið upp með fallegum bleikum lit. Þetta er gert svo allar konur sem fengið hafa krabbamein finni samstöðu og stuðning. Grundarheimilin taka þátt í ár og lýsa upp á sínum heimilum.

46 Heimilispósturinn Grundarheimili í október
Ljósmynd/Kjartan Örn Júlíusson
Birtan af bleika litnum gefur hlýju.

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.