
1 minute read
Þetta er hún Lilja
Sumir eru alveg til í að leggja ýmislegt á sig til að létta öðrum lífið og þannig er hún Lilja Benjamínsdóttir sem vinnur í Mörk. Oftar en ekki er hún með bros á vör í vinnunni og ef henni dettur eitthvað í hug sem gæti glatt eða kætt þá kýlir hún á það. Eitthvað fannst henni um daginn frekar grámyglulegt í vinnunni svo hún ákvað að skella á sig gleraugum og rauðu nefi og það var eins og við manninn mælt, bros læddist fram á varir flestra ef ekki allra sem henni mættu.
Lilja gerir ýmislegt til að laða fram bros hjá samferðafólki sínu
Advertisement