3 minute read

Smalamennska og framkvæmdir við nýjan matsal

Kæri lesandi

Nú er komið að öðrum pistli mínum í Heimilispóstinn. Undanfarnar vikur hafa, því miður, einkennst af Covid 19. Með hvaða hætti við tæklum þessa bráðhættulegu veiru. Sýnist að við verðum að læra að lifa með veirunni, eins og Þórólfur hefur margoft ítrekað við okkur. Í það minnsta þangað til að alvöru bóluefni verður til reiðu. Líklega verður það á Gísli Páll Pálsson forstjóri fyrri hluta næsta árs. En þangað til Grundarheimilanna við smölun verðum við að passa okkur vel, alls staðar þar sem við förum um. Enn hefur okkur á Grundarheimilunum tekist að halda veirunni frá okkur og verður vonandi áfram. Vegna veirunnar höfum við þurft að takmarka aðgengi að heimilunum okkar. Við höfum miðað við að einungis einn aðstandandi heimsæki hvern heimilismann til að lágmarka líkur á að smit berist inn á heimilin. Hafa allir viðkomandi aðilar tekið þessum takmörkunum vel og þakka ég ykkur öllum kærlega fyrir það jákvæða viðhorf sem við höfum upplifað frá ykkur undanfarnar vikur. Við vitum eðli máls samkvæmt ekki hvernig þetta kemur til með að breytast í vetur. Vonandi þarf ekki að koma til heimsóknarbanns en verði af slíku þá verður það gert með fyrirvara. Ég er nú frekar vongóður að við förum heldur í hina áttina en það kemur allt saman í ljós.

Advertisement

Nýr matsalur í Ási

Framkvæmdir sem ég sagði frá í síðasta blaði eru mislangt á veg komnar. Búið er að steypa upp nýjan matsal í Ási og byrjað að ganga frá þaki og gluggum. Við stefnum að því að opna salinn mánudaginn 21. desember næstkomandi. Á nýju ári verður síðan hafist handa við að breyta gamla matsalnum í eldhús og tengja Stebbaskúr við matsalinn. Við erum ekki búin að tímasetja lok framkvæmda en vonandi verður það fyrir 18. febrúar á næsta ári. Það verður spennandi og krefjandi verkefni að elda og undirbúa allan mat fyrir Grundarheimilin í Ási. En ég treysti Eyjólfi og co til allra góðra verka í þeim málum og hlakka til þessa. Sem formaður Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu hef ég komið að samskiptum samtakannna við Sjúkratryggingar Íslands. Þau hafa ekki verið til gagns. Viðhorf SÍ til okkar sem rekum hjúkrunarheimilin eru heldur óvinveitt, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Veit satt að segja ekki hvað hægt að gera til að laga, líklega ekkert.

Stefnt er að formlegri opnun í desember

Endurbætur á inngöngum Grundar

Framundan er veturinn. Með snjó og jólum. Og framkvæmdum. Breytingar á A2 hefjast nú á haustmánuðum og munu iðnaðarmenn ganga inn um gluggann á suðurenda gangsins þannig að þeir þurfa ekki að koma inn á heimilið. Stefnt er að verklokum fyrir áramót. Í undirbúningi eru einnig breytingar og endurbætur á inngöngum á Grund og Litlu Grund auk merkinga á húsin.

Eiginlega ekki hægt að lýsa frelsistilfinningunni Að lokum á persónulegum nótum. Fór í mína árlegu smalaferð í byrjun september. Þetta árið fór ég fyrst norður að Hallgilsstöðum sem er bær um það bil 10 km sunnan við Þórshöfn á Langanesi. Þar smalaði ég Austurheiðarafrétt sem afmarkast af Litlu Kverká í austri og Kverká og svo Hafralónsá í vestri. Mjög fallegt og gróið svæði en ægilega mikið af stórum þúfum sem erfitt er að keyra

Ytri Hágangur séð frá Kílabrúnum á Austurheiði Heimilispósturinn

fjórhjólið í gegnum. En maður lætur sig hafa það. Talsvert snjóaði daginn áður en smalamennskan hófst og hjálpaði það til við að koma fénu af hæsta svæðinu okkar og sparaði okkur talsverða smalamennsku. Að norðan hélt ég sem leið lá í Skaftártunguna en þar hef ég smalað á fjórhjóli undanfarin 15 ár. Ekki síður fallegt svæði, mjög víðfeðmt og hægt að keyra nánast um allt á fjórhjóli. Og láta gamminn geysa, sem ég geri nú reyndar í þokkalegu hófi. Á þessu svæði eru miklar náttúruperlur, Langisjór, Fögrufjöll, Ófærudal, Rauðabotn og svo mætti lengi telja. Ég á mínar bestu stundir í þessum víðernum einn á fjórhjólinu að eltast við kindur. Frelsistilfinningin er svo mikil og góð, eiginlega ekki hægt að lýsa því með orðum. Þvílík tilbreyting frá skrifborðinu og tölvupóstunum. Og að gista fyrir norðan í gömlum smalakofa, hvorki með rafmagni né rennandi vatni. Með 10 manns í einum skála og hesthúsið í viðbyggingu. Óborganlegt í alla staði. Góðar stundir

Gísli Páll Pálsson

Eystri Morauðavatnshnúkur í Skaftártungu

This article is from: