Grillað í Mörk
Sumar veislur eru bara flottari en aðrar
Þ
að var svo sannarlega glatt á hjalla þegar boðið var í grillveislu á 2. hæðinni nýlega. Skálað var í kampavíni og nýtt sparistell vígt formlega með veislumat. Umræðuefnin voru fjölbreytt en líklega mesta fjörið þegar rætt var um framandi mat sem fólk hafði bragðað. Þar voru á meðal ánamaðkar, krókódílar, pöddur og eiturslanga. Það var svo klappað fyrir starfsfólkinu sem hafði lagt sig fram um að leggja fallega á borðin, sérstaklega þó fyrir Jónu sem hafði lagt mikinn metnað í skreytingar.
Mikill metnaður var lagður í skreytingar
38
Heimilispósturinn