Heimilispósturinn - október 2020

Page 3

Pistill fráJforstjóra Grundarheimilanna ólahugvekja 2019

Smalamennska og framkvæmdir við nýjan matsal Kæri lesandi

N

ú er komið að öðrum pistli mínum í Heimilispóstinn. Undanfarnar vikur hafa, því miður, einkennst af Covid 19. Með hvaða hætti við tæklum þessa bráðhættulegu veiru. Sýnist að við verðum að læra að lifa með veirunni, eins og Þórólfur hefur margoft ítrekað við okkur. Í það minnsta þangað til að alvöru bóluefni verður til reiðu. Líklega verður það á Gísli Páll Pálsson forstjóri fyrri hluta næsta árs. En þangað til Grundarheimilanna við smölun verðum við að passa okkur vel, alls staðar þar sem við förum um. Enn hefur okkur á Grundarheimilunum tekist að halda veirunni frá okkur og verður vonandi áfram. Vegna veirunnar höfum við þurft að takmarka aðgengi að heimilunum okkar. Við höfum miðað við að einungis einn aðstandandi heimsæki hvern heimilismann til að lágmarka líkur á að smit berist inn á heimilin. Hafa allir viðkomandi aðilar tekið þessum takmörkunum vel og þakka ég ykkur öllum kærlega fyrir það jákvæða viðhorf sem við höfum upplifað frá ykkur undanfarnar vikur. Við vitum eðli máls samkvæmt ekki hvernig þetta kemur til með að breytast í vetur. Vonandi þarf ekki að koma til heimsóknarbanns en verði af slíku þá verður það gert með fyrirvara. Ég er nú frekar vongóður að við förum heldur í hina áttina en það kemur allt saman í ljós.

Heimilispósturinn

3


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
Heimilispósturinn - október 2020 by Grund, dvalar- og hjúkrunarheimili - Issuu