Heimilispósturinn - október 2020

Page 28

Flottustu svalirnar í Mörk Jólahugvekja 2019

Réttarholt vann þetta árið

S

ú hefð hefur skapast að senda dómnefnd á svalir hjúkrunarheimilisins í Mörk og meta flottustu svalirnar. Að þessu sinni var valið erfitt því flest heimili höfðu lagt sig í líma við að hafa svalirnar snyrtilegar, litríkar og heimilislegar. Ragnhildur veitir Mörtu verðlaun fyrir flottustu svalirnar

Hugsað fyrir öllu

Fyrstu verðlaun fékk heimilið Réttarholt á fjórðu hæðinni. Þetta voru svalirnar sem voru hvað mest heimilislegar og sjá mátti hvað öll smáatriði höfðu verið hugsuð til enda. Álfastyttum var vel raðað, púðar í stólum, festingar fyrir dúka, bjalla fyrir heimilisfólk til að klingja og hugsað fyrir öllu. Niðurstaðan var að það væri virkilega eftirsóknarvert að setjast niður á þessar svalir til að njóta.

28

Heimilispósturinn


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
Heimilispósturinn - október 2020 by Grund, dvalar- og hjúkrunarheimili - Issuu