Góða Jveðrið nýtt til útiveru ólahugvekja 2019 í Ási
Púttað og farið í leiki
P
úttvöllurinn er fyrir utan Vinnustofuna í Ásbyrgi og starfsmaður frá golfvellinum í Hveragerði sem sér um að hann sé sleginn og haldið við yfir sumarið. Hvenær sem tækifæri gefst, þ.e. þegar ekki rignir eldi og brennisteini fer heimilisfólk út með kylfur og kúlur og tekur hring. Sumir heimilismenn eru með kylfu og kúlu heima hjá sér og nýta sér völlinn líka seinnipart dags og um helgar.
Kubbur og krikket Í vor var fjárfest í nokkrum mismunandi útispilum og leikjum til að geta nýtt þetta dásamlega umhverfi sem er fyrir austan. Að sögn Fanneyjar B. Karlsdóttur iðjuþjálfa var mjög vinsælt að spila kubb og kom þægilega á óvart hvað margir gátu í raun og veru tekið þátt í þessum leik. Þó kubburinn hafi verið vinsælastur var líka farið í krikket og úti mylluspil þegar færi gafst til.
Hvert tækifæri er nýtt til útiveru á sumrin í Ási
Heimilispósturinn
19