Pistill fráJforstjóra Grundarheimilanna ólahugvekja 2019 Brýn og viðamikil verkefni framundan Kæri lesandi
Þ
etta er fyrsti af vonandi mörgum pistlum sem ég skrifa í okkar ágæta heimilisblað sem forstjóri Grundarheimilanna. Undanfarnar vikur og mánuðir hafa einkennst af Covid – 19 aðgerðum sem hafa miðað að því að halda þessari skæðu veiru frá okkar fallegu heimilum. Og það hefur tekist hingað til með samstilltu átaki starfsmanna, heimilismanna og aðstandenda þeirra. Ég vil nota þetta tækifæri og færa öllum framangreindum aðilum kærar þakkir fyrir þeirra góða framlag sem skilaði okkur þessum framúrskarandi árangri í að halda heimilunum smitfríum. Skiljanlega voru ekki allir sáttir við þær aðgerðir sem gripið var til í byrjun mars og fólust fyrst og fremst í heimsóknarbanni en auk þess var gripið til margskonar annarra varúðarráðstafana. Við lærðum mikið af þessum faraldri og hvað við gerðum rétt, að okkar mati, en ekkert síður hvað hefði betur mátt fara. Og það verður allt saman sett á blað, tilbúið til viðmiðunar og notkunar þegar næsti sambærilegi heimsfaraldur skellur á, líklega eftir um það bil áratug.
Njótið samvista við aðstandendur En nú er það versta líklegast yfirstaðið og öllum takmörkunum á heimsóknum hefur verið aflétt. Ég vil því hvetja aðstandendur til þess að njóta sumarsins með sínum ættingjum og vinum sem búa hjá okkur á Grund, Ási og Mörk eins og kostur er. Það eru fallegir Heimilispósturinn
3