
1 minute read
Lífið á Grund
Lífið á Grund
Lífið á heimilunum var oft með öðrum blæ í heimsóknarbanninu en þegar allt er með hefðbundnum hætti. Starfsfólk og heimilisfólk tóku höndum saman og fann upp á hinu og þessu til að stytta stundir, settar voru rúllur í heimiliskonur, boðið var upp á bíókvöld, kósíkvöld, spilastundir, bakað með kaffinu, sungið, lesið upp og nuddaðar lúnar hendur starfsfólks og heimilisfólks svo eitthvað sé tínt til. Það var ótrúlega gaman að fylgjast með öllu því sem starfsfólk og heimilisfólk tók sér fyrir hendur og ekki síst var gefandi að sjá vináttuna blómstra og finna hlýjuna sem einkenndi samskipti allra.
Advertisement
Jón Ólafur gekk daglega um heimilið með harmonikkuna og svo var púslað.



Það var ýmislegt brallað til að stytta sér stundir.

Starfsfólkið gekk í ýmis störf og gerði allt sem í þeirra valdi stóð til að heimilisfólki liði vel.
