HEIMILISPÓSTURINN Heimilisblað Grundar, Áss og Markar 57. árgangur
júní 2020
1. tölublað
Efnisyfirlit Brýn og viðamikil verkefni framundan ............................................................................. 3 Bauð heimilismönnum og starfsmönnum í útskriftarveislu ............................................ 7 Skelltu sér í hjólatúr.......................................................................................................... 9 Laðar að sér menn og dýr.............................................................................................. 10 Er öryggi æðsta dyggðin?...............................................................................................11 Lífið á Grund .................................................................................................................. 14 Lífið í Ási .........................................................................................................................16 Lífið í Mörk ......................................................................................................................18 Fyrsti í aðventu................................................................................................................18 Heimilunum gefnar tuttugu og fimm spjaldtölvur .......................................................... 20 Okkur leiðist ekki í Mörk..................................................................................................22 Rækta sjö þúsund sumarblóm í ár................................................................................. 26 Fósturvísar heimsóttu Grund og Mörk........................................................................... 28 Tæplega 50 kíló farin.......................................................................................................29 Vinkonur í sólbaði........................................................................................................... 31 Ilmur af nýbökuðum vöfflum........................................................................................... 32 150 kg af tómötum á viku............................................................................................... 34 Boðið upp á samsöng................................................................................................... 36 Þjóðsaga og kórsöngur.................................................................................................. 37 Margir sem nýta glæsilegan púttvöllinn......................................................................... 38 Vinkonur í dekri og dúlleríi.............................................................................................. 40 Æfingar hafnar á ný........................................................................................................ 41 Forstjórinn tók vaktir í þvottahúsinu............................................................................... 44 Helstu stórsöngvarar landsins komu í heimsókn........................................................... 46 Heimilismenn í gönguferð til að plokka rusl................................................................... 47 Góðir gestir sem sungu í Mörk....................................................................................... 48 Yfir áttatíu mættu í vöfflukaffi.......................................................................................... 50 Aðal sólbaðsstaðurinn.................................................................................................... 52 Ekkert jafnast á við nýtt smælki...................................................................................... 54 Það er kominn 17. júní................................................................................................... 55 Nostrað við neglur og skálað undir vegg....................................................................... 56 Forsíðumyndina tók Írena McCabe á tónleikum í porti Grundar meðan á heimsóknarbanni stóð. Ritstjóri: Guðbjörg R. Guðmundsdóttir Hönnun og uppsetning: Sigrún Jóna Leifsdóttir Prentun: GuðjónÓ Upplag: 1600
2
Heimilispósturinn
Pistill fráJforstjóra Grundarheimilanna ólahugvekja 2019 Brýn og viðamikil verkefni framundan Kæri lesandi
Þ
etta er fyrsti af vonandi mörgum pistlum sem ég skrifa í okkar ágæta heimilisblað sem forstjóri Grundarheimilanna. Undanfarnar vikur og mánuðir hafa einkennst af Covid – 19 aðgerðum sem hafa miðað að því að halda þessari skæðu veiru frá okkar fallegu heimilum. Og það hefur tekist hingað til með samstilltu átaki starfsmanna, heimilismanna og aðstandenda þeirra. Ég vil nota þetta tækifæri og færa öllum framangreindum aðilum kærar þakkir fyrir þeirra góða framlag sem skilaði okkur þessum framúrskarandi árangri í að halda heimilunum smitfríum. Skiljanlega voru ekki allir sáttir við þær aðgerðir sem gripið var til í byrjun mars og fólust fyrst og fremst í heimsóknarbanni en auk þess var gripið til margskonar annarra varúðarráðstafana. Við lærðum mikið af þessum faraldri og hvað við gerðum rétt, að okkar mati, en ekkert síður hvað hefði betur mátt fara. Og það verður allt saman sett á blað, tilbúið til viðmiðunar og notkunar þegar næsti sambærilegi heimsfaraldur skellur á, líklega eftir um það bil áratug.
Njótið samvista við aðstandendur En nú er það versta líklegast yfirstaðið og öllum takmörkunum á heimsóknum hefur verið aflétt. Ég vil því hvetja aðstandendur til þess að njóta sumarsins með sínum ættingjum og vinum sem búa hjá okkur á Grund, Ási og Mörk eins og kostur er. Það eru fallegir Heimilispósturinn
3
Pistill fráJforstjóra Grundarheimilanna ólahugvekja 2019 garðar í kringum öll heimilin og víða bekkir til að sitja á úti við í fallegu umhverfi og stundum meira að segja góðu veðri. Á Grund er sérstaklega notalegt að sitja á milli Grundar og Litlu Grundar, þar er skjólsælt í norðanáttinni sem fylgir yfirleitt góðu veðri í höfuðborginni. Í Mörk eru fallegir garðar milli húsa og svo kaffihús sem tengist nýju íbúðunum, rétt austan við hjúkrunarheimilið, innangengt þaðan. Og í Ási eru fallegir garðar út um allt og meira segja stutt að rölta yfir í listigarðinn á Fossflöt þar sem eru bekkir og borð og mikið skjól fyrir öllum vindáttum.
Breytt í einbýli með baðherbergi Hjá Grundarheimilunum eru framundan viðamikil og brýn verkefni, aðallega á Grund og í Ási. Á Grund stendur til að breyta 10 herbergjum á A – 2 í sex eins manns herbergi, hvert með eigið baðherbergi. Það verður mikill munur á aðstöðu þeirra sem koma til með að búa í nýju herbergjunum. Líklega hefjast framkvæmdir í október eða nóvember, kemur í ljós þegar nær dregur. Þá er ráðgert að endurnýja innganga á Grund og Litlu Grund, gera aðgengi betra og merkja húsin. Samhliða því verður byggt sorpskýli þar sem núverandi sorpgámur stendur ásamt skyggni fyrir rafskutlur og reiðhjól. Á Grund verður einnig skipt um 30 glugga í vesturhúsinu.
Ráðgert er að endurnýja inngang á Grund og merkja húsið.
4
Heimilispósturinn
Pistill fráJforstjóra Grundarheimilanna ólahugvekja 2019 Svipaður fjöldi og oft áður, en við reiknum með að það taki um það bil fimm ár að ljúka endurnýjun glugga á húsinu við Hringbraut. Í Ási er þegar hafist handa við byggingu á nýjum matsal vestan megin við núverandi matsal sem er kallaður dags daglega Ásbúð. Þegar þeirri framkvæmd lýkur verður gamla matsalnum breytt og hann notaður sem hluti af stærra og betra eldhúsi. Þegar það er allt saman tilbúið munum við undirbúa allan mat fyrir heimilin þrjú í Ási í Hveragerði og senda hann til Reykjavíkur á Grund og Mörk. Ýmist for- eða fulleldaðan ásamt viðeigandi meðlæti. Þannig náum við fram hagræðingu í rekstri en hluti þeirrar hagræðingar verður nýttur til að gera góðan mat og gott hráefni enn betra. Í dag er allur matur á Grund undirbúinn í Mörk þannig að það má
Það eru garðar í kringum öll heimilin og gott að sitja þar í sumar.
Heimilispósturinn
5
Pistill fráJforstjóra Grundarheimilanna ólahugvekja 2019 segja að verkefnið sé þegar hafið. Ekki stendur til að fara í stórar framkvæmdir í Mörk en þó er ég að vinna að því að fá fjármögnun frá opinberum aðilum til að gera talsverður endurbætur á svölunum á fimmtu hæð, bæði norðan og sunnan megin.
Höfðuðum mál á hendur ríkinu Samtals nemur framkvæmdakostnaður þessara framkvæmda 370 milljónum króna. Framkvæmdasjóður aldraðra hefur þegar samþykkt framlag til okkar upp á 130 milljónir og við þurfum því að reiða fram 240 milljónir. Sem við gerum með smá varasjóði sem við vorum búin að koma okkur upp auk sölu fasteigna í Reykjavík og Hveragerði. Þetta eru spennandi verkefni sem gera góða aðstöðu heimilisog starfsfólks Grundarheimilanna enn betri, en langt er í land og talsverða fjármuni vantar upp á til að ljúka því að gera öll okkar rými að einbýli með sér baðherbergi. Má af því tilefni nefna að stjórn Grundarheimilanna ákvað fyrir all nokkrum árum að höfða mál á hendur ríkinu til greiðslu húsaleigu fyrir það húsnæði sem Grund og Ás nota undir þjónustu við heimilismenn. Til að gera langa sögu stutta töpuðum við málinu í héraðsdómi og Landsrétti en Hæstiréttur samþykkti nýlega að taka málið til meðferðar og dóms. Er endanlegs dóms að vænta næsta vetur. Ef dæmt verður okkur í hag munum við fá til okkar all nokkra fjármuni sem verða notaðir beint í endurbætur í anda þess sem framan greinir. Ég krosslegg fingur. Gísli Páll Pálsson
6
Heimilispósturinn
Jólahugvekja Vinátta í Mörk 2019 Bauð heimilismönnum og starfsmönnum í útskriftarveislu
V
inátta, virðing og vellíðan eru lykilorð Grundarheimilanna og hluti af því að eiga vináttu einhvers er að deila gleði og sorg. Þessi lykilorð eiga einnig svo vel við Eden hugmyndafræðina sem við fylgjum dags daglega. Einn starfsmanna Markar, Sigfríður Birna Sigmarsdóttir, útskrifaðist nýlega sem sjúkraliði og bauð heimilismönnum og starfsfólki á annarri hæð til veislu svo vinir hennar gætu samglaðst með henni.
Sigfríður Birna Sigmarsdóttir bauð heimilisfólki og starfsfólki til veislu þegar hún útskrifaðist sem sjúkraliði.
Heimilispósturinn
7
Jólahugvekja Vinátta í Mörk 2019 Af þessu tilefni flutti heimilismaðurinn Kristján þetta ljóð fyrir hana: Hvað er svo glatt sem góðra vina fundur þá gleðin skín á vonarhýrri brá? eins og á vori laufi skrýðist lundur lifnar og glæðist hugarkætin þá; og meðan þrúgna gullnu tárin glóa og guðaveigar lífga sálaryl, þá er það víst, að bestu blómin gróa í brjóstum sem að geta fundið til.
Ekki amalegt að vinna á stað þar sem maður vill fagna með vinum sínum.
8
Heimilispósturinn
Grasagarðurinn Jólahugvekja stutt 2019 frá Mörk Skelltu sér í hjólatúr
Þ
að er svo gott að komast undir bert loft og hvað þá heldur að finna sumarvindinn leika um vanga. Guðrún Hreinsdóttir bauð einmitt heimiliskonunni Margréti Ólafsdóttur á rúntinn og við erum svo heppin að það er stutt í Grasagarðinn frá Mörk og þar er allt í blóma þessa dagana. Við bendum aðstandendum heimilismanna Markar á að það er hægt að fá hjólið lánað og skella sér í hjólatúr þegar vel viðrar og ennfremur bendum við á að það eru reglulega haldin svokölluð hjólaranámskeið. Allar nánari upplýsingar um slík námskeið veitir sjúkraþjálfunin í Mörk og hægt að nálgast upplýsingar á slóðinni www.hoa.is
Guðrún Hreinsdóttir bauð Margréti Ólafsdóttur á rúntinn.
Heimilispósturinn
9
Covid 19 og heimsóknarbannið Grundarheimilunum Jólahugvekjaá 2019
Laðar að sér menn og dýr
A
ð öllum ólöstuðum var einn maður sem var allan sólar hringinn vakandi og sofandi yfir velferð heimilismanna á Litlu og Minni Grund meðan á heimsóknarbanninu stóð og það er hann Jón Ólafur Þorsteinsson. En hann lætur ekki þar við sitja enda laðar hann að sér bæði menn og dýr. Hér er það lítill þröstur sem var eitthvað lúinn og hvar safnaði hann kröftum áður en hann flaug af stað aftur? Jú hjá harmonikkusnillingnum og vini okkar allra á Grund, Jóni Þorsteini eða Nonna nikku eins og gárungarnir segja.
Jón Ólafur með þresti sem hvíldi sig stundarkorn hjá honum.
10
Heimilispósturinn
Horft í baksýnisspegilinn á Covid 19 og hjúkrunarheimilin Jólahugvekja 2019
Er öryggi æðsta dyggðin?
Þ
að var föstudagur í byrjun Covid faraldursins og fyrr um daginn hafði verið fundur um stöðu mála á hjúkrunarheimilum landsins með Samtökum fyrirtækja í velferðar þjónustu og Landlækni. Þar var rætt um hvað ætti til bragðs að taka ef Covid 19 næði fótfestu hér á landi. Það var rætt um heimsóknarbann en niðurstaðan var að hugsa málið um helgina og undirbúa mögulega verkferla í vikunni á eftir. Ég fékk símtal á leiðinni heim úr vinnu rétt fyrir kvöldmat og var sagt „Landspítalinn er búinn að loka fyrir heimsóknir“.
Lokað fyrir heimsóknir Á þessum tíma var orðið ljóst að sjúkdómurinn legðist sérstaklega þungt á aldraða og íbúa hjúkrunarheimila. Ég hafði lesið fréttir frá hjúkrunarheimili í Bandaríkjunum þar sem faraldurinn kom inn öllum að óvörum með hrikalegum afleiðingum. Á hjúkrunarheimilum búa margir einstaklingar alltaf á grunni sjúkdóma eða fötlunar í bland við félagslegar aðstæður. Langflestir aldraðir en aðrir á miðjum aldri, sumir saddir lífdaga en aðrir með lífsvilja. Þar vinnur einnig fjöldi starfsmanna, bæði fagmenntað fólk og almennt starfsfólk, sumir með langvinna sjúkdóma eða áhættuþætti en aðrir ungir og hraustir. Það var ljóst að úr vöndu var að ráða og tekin var sú ákvörðun að loka fyrir heimsóknir strax. Það má taka fram að við Heimilispósturinn
11
Horft í baksýnisspegilinn á Covid 19 og hjúkrunarheimilin Jólahugvekja 2019 fengum fljótt auka birgðir af hlífðarbúnaði en áttum takmarkaðar birgðir af sýnatökupinnum og augljóst mál ef sýking kæmi upp að mögulega myndu íbúar veikjast og deyja.
Starfsfólk lagði mikið á sig
Framhald sögunnar er flestum kunnugt og fór betur en nokkur þorði að vona. Ég tel að sérstaklega beri að þakka starfsfólki hjúkrunarheimila sem augljóslega fór með mikilli gát en ferðir starfsfólks á hjúkrunarheimili og heim til fjölskyldu og vina var líklegasta leiðin til að bera smit. En vegna skilnings á sinni ábyrgð gagnvart íbúum voru margir í sjálfskipaðri sóttkví nánast og fóru að reglum og tilmælum og gengu mun lengra en hægt var að ætlast til. Nú þegar það versta er yfirstaðið a.m.k. í bili er rétt að líta yfir farinn veg.
Gluggaheimsóknir og símtöl í mynd
Það er ljóst að heimsóknarbannið bar tilætlaðan árangur en á kostnað lífsgæða íbúa og aðstandenda. Flestir voru ánægðir með þetta en aðrir liðu fyrir það, sérstaklega makar sem lifa fyrir að 12
Heimilispósturinn
Horft í baksýnisspegilinn á Covid 19 og hjúkrunarheimilin Jólahugvekja 2019 sinna ástvinum sínum. Eins og gerist þegar á reynir, finnur fólk leiðir og gluggaheimsóknir og símtöl í mynd urðu algeng. Þær spurningar sem brenna á okkur stjórnendum núna lúta að því hvort við getum, ef/þegar Covid kemur aftur, veitt fleiri undan tekningar en við gerðum áður? Hvað með sjálfsákvörðunarrétt íbúa og nánustu aðstandenda? Er öryggi æðsta dyggðin í þessu sambandi?
Ættu fulltrúar íbúa og aðstandenda að vera með í ráðum?
Þar sem við höfum skipt hjúkrunarheimilunum í sóttvarnarhólf er okkar von að ef til smits kemur síðar á þessu ári, geti lokanirnar verið takmarkaðri en áður. Einnig veltum við fyrir okkur því sem kallað er sóttkví B fyrir maka sem mættu heimsækja viðkomandi. Ég tek fram að ákvarðanir um þetta hafa ekki verið teknar enn. Uppástungur hafa einnig komið fram um að fulltrúar aðstandenda og íbúa eigi að vera með í nefndinni sem fjallar um þessi mál. Mér finnst einnig að við þurfum að huga vel að hagsmunum okkar almennu starfsmanna sem eiga allt undir að við fagfólkið setjum reglur sem stuðla að þeirra vernd og öryggi. Helga Hansdóttir yfirlæknir Grundar og Markar hjúkrunarheimila.
Heimilispósturinn
13
Covid 19 og heimsóknarbannið Grundarheimilunum Jólahugvekjaá 2019
L
Lífið á Grund
ífið á heimilunum var oft með öðrum blæ í heimsóknarbanninu en þegar allt er með hefðbundnum hætti. Starfsfólk og heimilisfólk tóku höndum saman og fann upp á hinu og þessu til að stytta stundir, settar voru rúllur í heimiliskonur, boðið var upp á bíókvöld, kósíkvöld, spilastundir, bakað með kaffinu, sungið, lesið upp og nuddaðar lúnar hendur starfsfólks og heimilisfólks svo eitthvað sé tínt til. Það var ótrúlega gaman að fylgjast með öllu því sem starfsfólk og heimilisfólk tók sér fyrir hendur og ekki síst var gefandi að sjá vináttuna blómstra og finna hlýjuna sem einkenndi samskipti allra.
Jón Ólafur gekk daglega um heimilið með harmonikkuna og svo var púslað.
14
Heimilispósturinn
Covid 19 og heimsóknarbannið Grundarheimilunum Jólahugvekjaá 2019
Það var ýmislegt brallað til að stytta sér stundir.
Starfsfólkið gekk í ýmis störf og gerði allt sem í þeirra valdi stóð til að heimilisfólki liði vel.
Heimilispósturinn
15
Covid 19 og heimsóknarbannið Grundarheimilunum Jólahugvekjaá 2019
Lífið í Ási
D
aglegt líf í Ási var með öðrum hætti en venjulega þegar heimsóknarbannið var eins og gefur að skilja. Starfsfólk tók höndum saman og var í hálfgerðri sóttkví allan sólarhringinn eins og á hinum Grundarheimilunum og síðan hjálpuðust allir að við að finna upp á einhverju skemmtilegu til að stytta dagana. Heimilisfólk fékk heimsóknir á glugga og svo voru garðarnir nýttir vel þegar sást til sólar.
Það var vel þegið að fá þennan litla unga í heimsókn og svo var allskonar dekur daglegt brauð.
16
Heimilispósturinn
Covid 19 og heimsóknarbannið Grundarheimilunum Jólahugvekjaá 2019
Hér er verið að læra á spjaldtölvu og snyrta.
Móðir og dóttir tala saman og margir notuðu tímann og prjónuðu.
Heimilispósturinn
17
Covid 19 og heimsóknarbannið Grundarheimilunum Jólahugvekjaá 2019
Lífið í Mörk
H
eimsóknir gegnum glugga, hárgreiðsla, púslað, töfradrykkir, söngur og bíókvöld er bara dæmi um það gert var í Mörk meðan á heimsóknarbanni stóð. Allir hjálpuðust að við að gera dagana sem besta og það má með sanni segja að fólkið okkar, bæði starfsfólk og heimilisfólk, hafi gert meira en hægt er að búast við.
Ottó eiginmaðurinn hennar Birnu kom á svalirnar og hringdi þaðan í konuna sína. Og svo er verið að flétta.
18
Heimilispósturinn
Covid 19 og heimsóknarbannið Grundarheimilunum Jólahugvekjaá 2019
Hárgreiðsla og auðvitað tóku einhverjir þátt í að setja bangsa í glugga.
Aldeilis flott kvöldhressing sem stóð til boða.
Margir nýttu svalirnar og hittu þannig ættingja sína.
Heimilispósturinn
19
Covid 19 og heimsóknarbannið Grundarheimilunum Jólahugvekjaá 2019
Heimilunum gefnar tuttugu og fimm spjaldtölvur
Ý
msir reyndu að létta heimilismönnum lífið þegar heim sóknarbannið stóð yfir á Grundarheimilunum. Elko og Vodafone sem og Lionshreyfingin ákváðu að gefa heimil unum spjaldtölvur svo heimilismenn gætu verið í samskiptum við aðstandendur. Elko gaf heimilunum fimm spjaldtölvur, Vodafone átta og Lionshreyfingin tólf stykki. Með þessum rausnarlegu gjöfum gátu nú allar deildir eða heimili átt sína spjaldtölvu og þannig varð auðvelt að koma á samskiptum í mynd milli heimilismanna og ástvina. Elko. Vodafone og Lionshreyfingunni eru færðar bestu þakkir fyrir þessar frábæru gjafir.
Ellert Eggertsson fjölumdæmisstjóri Lions MD109 og Hörður Sigurjónsson formaður Lions - Heiðurssjóðs Guðrúnar Bjartar Yngvadóttur afhenda Sigrúnu Faulk hjúkrunarframkvæmdastjóra Grundar spjaldtölvur með heyrnartólum.
20
Heimilispósturinn
Covid 19 og heimsóknarbannið Grundarheimilunum Jólahugvekjaá 2019
Það munaði miklu að geta talað við ættingja og séð þá í mynd.
Þórunn Sigurðardóttir og Rósa Huld Sigurðardóttir komu heldur betur færandi hendi fyrir hönd Lionsklúbbsins Eden í Hveragerði. Færðu þær heimilinu að gjöf 4 spjaldtölvur og 4 heyrnartól. Birna Sif Atladóttir hjúkrunarframkvæmdastjóri í Ási tók við gjöfinni.
Heimilispósturinn
21
Gerir Jólahugvekja við fatnað fyrir 2019íbúa Okkur leiðist ekki í Mörk
Þ
að gustar af Unu Stefaníu Sigurðar dóttur íbúa í Íbúðum 60+. Það fór ekkert á milli mála þegar ég fylgdist með henni í Mörk um daginn. „Stefanía hvenær eigum við að hittast næst í gróðurskálanum? Klukkan hvað er púttið á eftir?“ spurði fólk á göngunum. Hún er líka í stjórn húsfélagsins og veit sitthvað um það sem er í gangi hverju sinni. Og svo gerir hún við fatnað fyrir íbúa.
Ætlar að sýna föt úr plasti, gardínum og kaffipokum „Ég rak saumastofu í mörg ár og svo þegar við fluttum hingað ákvað ég að taka að mér viðgerðir á fatnaði fyrir þá íbúa sem vilja og það hefur bara verið nóg að gera í því.“ Una Stefanía gerði lengi við leðurflíkur og svo fór hún að aðstoða við fatnað fyrir áramótaskaup sjónvarpsins og bauðst í kjölfarið vinna á saumastofu sjónvarpsins. Að nokkrum árum liðnum tók hún við stjórn saumastofunnar og var í því starfi til ársins 2005. Í mörg ár saumaði hún ásamt vinkonu sinni Ingibjörgu Jónsdóttur búninga fyrir dimmisjón og allskonar uppákomur og svo lærði hún hattasaum af annarri vinkonu sinni, Helgu Rún Pálsdóttur. Það 22
Heimilispósturinn
Gerir Jólahugvekja við fatnað fyrir 2019íbúa
Í mörg ár saumaði Una Sefanía dimnisjón búninga.
kemur uppúr dúrnum í spjalli okkar að innan skamms ætlar hún að hafa dálítið sérstaka sýningu á kaffihúsinu Kaffi Mörk. „Já, ég saumaði einu sinni búninga úr plasti og allskonar afgöngum sem til féllu og sýndi á mörgum stöðum. Á meðan á sýningunni stendur segi ég litla sögu um tilurð fatnaðarins. Ég er bara spennt að fá að sýna flíkurnar hér í Mörk.“
Kvöddu nágrannana með kampavíni Una Stefanía og eiginmaður hennar Þór Magnússon seldu húsið sitt í Fellasmáranum í Kópavogi og fluttu í fyrra í Mörk. Hún saknar í raun einskis nema nágranna sinna og garðsins. „Það fór vel um okkur þar og ég er mikil blómakona. Þór smíðaði gróðurskála við húsið og það er eiginlega garðurinn og skálinn sem ég sé mest eftir. En ég er með sólstofuna hér í Mörk og nota hana mikið.“ Við göngum um blómastofuna og það sést vel hversu græna fingur hún er með á eplasteininum sem hún setti niður nú í ár og er Heimilispósturinn
23
Gerir Jólahugvekja við fatnað fyrir 2019íbúa orðinn a.m.k. einn metri á hæð. Una Stefanía hafði fyrir sið að færa alltaf nágrönnum sínum plöntur á vorin. „Þegar við vorum búin að flytja allt dótið okkar úr húsinu í Fellasmáranum keyptum við kampavín og buðum nágrönnunum í garðinn og leystum út með plöntum.“
Ferðuðumst á Bláskjá um allar trissur Það kemur uppúr kafinu að Þór og Stefanía voru sannkallað húsbílafólk hér á árum áður. „Já ,við ferðuðumst út um allar trissur á húsbíl, bæði innanlands og utanlands. Í tvígang smíðaði Þór hús á bílgrind sem við keyptum og þeir voru frábærir. Svo keyptum við alveg nýjan húsbíl árið 2000 en þá fannst mér hann of ópersónulegur svo við breyttum honum öllum. Þór smíðaði og ég saumaði þangað til okkur fannst við vera búin að gera bílinn að okkar bíl. Húsbílar bera ávallt nafn og okkar fyrsti bíll hét Svenni póstur og bílar númer tvö og þrjú Bláskjár eftir sögunni. Við fórum með fjölskylduna vítt og breitt um landið og við vorum mjög oft 24
Heimilispósturinn
Gerir Jólahugvekja við fatnað fyrir 2019íbúa með Eddu Lýðsdóttir æskuvinkonu minni frá fjögurra ára aldr og Finnboga Sigurðssyni manni hennar og hennar fjölskyldu. Þá fundum við upp á ýmsu skemmtilegu að gera, tókum börnin og seinna barnabörnin með okkur og þá var farið í bingó, veiðiferðir og fundið upp á allskyns óvissuferðum. Enn þann dag í dag fylgjumst við að og okkar fjölskyldur.“
Úr nægu að velja
Nú eruð þið flutt hingað í Mörk og mér sýnist á öllu að þið hafið í nógu að snúast. „Já það er óhætt að segja það. Við höfum alltaf verið frekar dugleg að hreyfa okkur og hafa nóg fyrir stafni. Það hefur ekkert breyst og það er úr nægu að velja hér í Mörk. Við erum í leikfimi, mætum oft á púttvöllinn, erum í tónlistarhópnum sem hittist oft, tökum virkan þátt í ræktunarhópnum í gróðurhúsinu og svo mætti áfram telja. Okkur leiðist ekki í Mörk.“
Una Stefanía hefur saumað ótal búninga um árin.
Heimilispósturinn
25
Gróðurhúsin í Ási Rækta sjö þúsund sumarblóm í ár
Í
Ási er sá háttur hafður á að heimilisfólk velur með starfsfólkinu blómin sem setja á í beð og potta víðsvegar um Ás og saman eru svo allir að puða við gróðursetningu í nokkra daga. Eden hugmyndafræðin í hnotskurn þó þetta hafi líka eflaust verið gert í Ási löngu áður en við fórum að fylgja þessari hugmyndafræði þar. Svona á lífið að vera þó maður sé fluttur á hjúkrunarheimili. Lifa lífinu lifandi og hafa gaman af því. Í gróðurhúsum Grundarheimilanna í Hveragerði eru ræktuð sumarblóm fyrir öll heimilin og í ár eru blómin um sjö þúsund og tegundirnar á þriðja tug segir garðyrkjustjórinn Valdimar Ingi Guðmundsson. Það er því um að gera fyrir heimilismenn að bjóða aðstandendum sínum í göngutúr um garða heimilanna þriggja og virða fyrir sér litskrúðugt blómahafið.
Allir hjápast að við að gróðursetja sumarblómin í Ási.
26
Heimilispósturinn
JG ólahugvekja róðurhúsin í2019 Ási
Það ríkir blómamarkaðsstemning þegar fólk er að velja sér blóm.
Yfir 20 mismunandi sumarblóm voru ræktuð í gróðurhúsunum í sumar.
Heimilispósturinn
27
Covid 19 og heimsóknarbannið Grundarheimilunum Jólahugvekjaá 2019
Fósturvísar heimsóttu Grund og Mörk
Í
heimsóknarbanninu komu ýmsir listamenn í heimsókn og glöddu bæði heimilisfólk og starfsfólk með uppákomum. Það var dásamlegt að hlýða á Fósturvísana sem komu einn sólskinsdag í heimsókn bæði á Grund og í Mörk. Streymt var frá tónleikunum á Grund þannig að heimilismenn sem ekki gátu komið út í glugga eða á svalir gátu horft á í sjónvarpi.
Margir komu út í glugga og aðrir fóru út á svalir.
Fósturvísarnir sungu lög sem heimilisfólk þekkti.
28
Heimilispósturinn
Matjurtaræktun Jólahugvekja 2019 í Mörk Tæplega 50 kíló farin
Tja nú er maður svo léttur á sér og orkumikill og til í að gera ýmislegt“, segir Guðmundur Helgi Helgason matreiðslumaður í Mörk sem var að setja niður vísi að matjurtagarði við eldhúsið í Mörk einn bjartan daginn. Á undanförnum sjö mánuðum hefur hann misst 47 kíló eftir hjáveituaðgerð og segir að lífið sitt hafi gjörbreyst. „Þetta er nýtt líf og nú vílar maður ekki fyrir sér nokkurn skapaðan hlut“, segir pilturinn hress að bragði.
Tínir fíflana úr grasinu Hann hefur líka sést hlaupa um garðinn hér í Mörk og tína fífla eins og enginn sé morgundagurinn. Fíflablómin notar hann svo í fíflasíróp sem hann ber á borð í Mörk. En hvernig hafa þá matarvenjurnar breyst hjá þér? „Þær hafa breyst mikið, lítil sem engin kolvetni, fiskur, kjöt og grænmeti og svo hreyfi ég mig daglega.“ Léttur á fæti og léttur í lund hann Guðmundur. Við báðum hann að lokum um uppskriftina að fíflasírópinu og hér kemur hún. Heimilispósturinn
29
Matjurtaræktun Jólahugvekja 2019 í Mörk
Túnfíflasíróp að hætti kokksins 1 til 2 kg túnfíflar (bara guli blómahnappurinn) 3 stk sítrónur sykur vatn ½ tsk salt Sítrónur skornar í báta og settar í pott ásamt túnfíflum, vatn sett svo fljóti yfir, saltað, suðan látin koma upp og soðið í 20 mínútur hægt og rólega. Vökvinn síaður frá og mældur. Settur helmingi meiri sykur, 2 kg sykur á móti 1 litra túnfíflavökva. Soðið hægt í 2 til 3 tíma þar til sírópið er mátulega þykkt. Að lokum er sírópinu hellt á tandurhreinar krukkur og geymt í ísskáp. Njótið. 30
Heimilispósturinn
JSólahugvekja valirnar á G2019 rund Vinkonur í sólbaði
Þ
að er notalegt að setjast út á svalir Grundar þegar sólin skín. Það fannst að minnsta kosti vinkonunum Salóme og Unni sem nýttu tækifæri sem gafst og tylltu sér út í sólbað.
Salóme og Unnur sleiktu sólina þegar færi gafst.
Heimilispósturinn
31
Bakað á Grund Ilmur af nýbökuðum vöfflum
Þ
að er dásamlegt að finna ilminn af nýbökuðum vöfflum, sumum finnst hann eiginlega betri en að borða sjálfar vöfflurnar. Heimilismenn á V-2 kunnu svo sannarlega að meta það þegar vöfflujárninu var rennt inn á hjólavagni og byrjað var að baka.
Ilmurinn er svolokkandi má með sanni segja.
Fátt jafnast á við nýbakaðar vöfflur.
32
Heimilispósturinn
Jólahugvekja Bakað á Grund 2019
Allir kunna að meta svona bakkelsi.
Það er ekki annað hægt en vera kátur með vöfflurnar.
Heimilispósturinn
33
Ræktum grænmeti fyrir öll Grundarheimilin
150 kg af tómötum á viku
Þ
egar sumarið er komið sést það á diskum heimilisfólks sem borðar með bestu lyst grænmetið úr Ási sem meðlæti, tómata, agúrkur, paprikur og gulrætur. Gróðurhús Grundarheimilanna í Ási í Hveragerði hefur í áratugi séð heimilunum fyrir grænmeti, núorðið reyndar stóran hluta ársins. Að sögn Inga Guðmundssonar stefnir í góða uppskeru þetta árið og um þessar mundir er verið að tína um 150 kg af tómötum á viku og 100 kg af agúrkum. Gulræturnar eru að koma til segir hann, paprikurnar bústnar og fínar og þegar líður á sumarið kemur salat í hús sem kemur í stað ræktunar sumarblóma.
Afrakstur dagsins þegar ljómyndari heimsótti gróðurhúsin.
34
Heimilispósturinn
Ræktum grænmeti fyrir öll2019 Grundarheimilin Jólahugvekja
Gróðurhúsin í Ási sjá öllum heimilunum fyrir grænmeti.
Þessa dagana eru gulrætur að koma í hús.
Heimilispósturinn
35
IJðjuþjálfun ólahugvekja Markar 2019 Boðið upp á samsöng
H
vað er betra en syngja saman í hóp? Það er að minnsta kosti gefandi og yndislegt að stilla saman raddir og syngja falleg lög. Iðjuþjálfun Markar stendur reglulega fyrir söngstundum og hér er slík stund á þriðju hæð heimilisins.
Söngur léttir alltaf lund.
36
Heimilispósturinn
Herrakvöld í Vesturási Þjóðsaga og kórsöngur
Í
vetur var haldið herrakvöld í Vesturási og þangað streymdu herramenn með bros á vör og nutu lífsins saman. Karlakór Hveragerðis mætti og tók nokkur lög við góðar undirtektir og síðan var sýnt atriði úr leiksýningunni Þjóðsaga til næsta bæjar en leikfélag Hveragerðis var með stykkið á fjölunum síðastliðinn vetur. Veislustjóri var Hjörtur Benediktsson og það þarf vart að taka fram að boðið var upp á glæsilegar veitingar eins og snillingunum í eldhúsi Áss einum er lagið.
Karlakór Hveragerðis söng nokkur lög.
Herrakvöldið var mjög vel sótt.
Heimilispósturinn
37
Kunna Jólahugvekja að njóta lífsins 2019 í Mörk Margir sem nýta glæsilegan púttvöllinn
Í
búar sem búa í Íbúðum 60+ í Mörkinni nýta svo sannarlega púttvöllinn þessa dagana en þessi glæsilegi völlur er hannaður af Edwin Roald Rögnvaldssyni. Alla þriðjudaga klukkan 14:00 eru skipulagðir tímar á púttvellinum þar sem íbúar hittast og spila saman. Að því loknu fjölmenna íbúar á Kaffi Mörk þar sem farið er yfir stöðuna yfir kaffibolla.
Alsælar með að búið er að opna púttvöllinn.
38
Heimilispósturinn
Kunna Jólahugvekja að njóta lífsins 2019 í Mörk
Íbúar eru duglegir að mæta og fara svo saman í kaffi á eftir.
Heimilispósturinn
39
J Sólahugvekja aumaklúbbur2019 í Ási Vinkonur í dekri og dúlleríi
Í
vetur hafa nokkrar hressar konur komið saman í Ási til að rækta vináttuna. Þær hafa brallað ýmislegt til að stytta sér stundir, verið með handsnyrtingu, andlitsmeðferð og gúrkumaska, hlustað á skemmtilega tónlist og dillað sér í takt við hana. Þær kalla selskapinn sinn saumaklúbb eins og konur gera gjarnan sem hittast með reglulegum hætti og samkvæmt hefð inni er að sjálfsögðu boðið upp á heimatilbúnar kræsingar. Núna er bíóferð á dag skrá og kaffihúsarölt. Vináttan er svo dýrmæt. Nuddið klikkar ekki.
Að sjálfsögðu er boðið upp á heimatilbúnar kræsingar.
40
Heimilispósturinn
Jólahugvekja Grundarkórinn 2019 Æfingar hafnar á ný
Þ
að er svo mikil gleði með að kóræfingar skuli vera byrjaðar á ný á Grund eftir hlé vegna Covid veirusýkingarhættu. Æfingarnar eru núna haldnar í tengigangi á miðvikudögum og kórfélagar eru ýmist heimilisfólk eða starfsfólk og svo eru aðstandendur og aðrir velunnarar líka boðnir hjartanlega velkomnir. Það er Kristín Waage sem stjórnar Grundarkórnum sem þessa dagana syngur eflaust bara lög um hækkandi sól og blóm í haga.
Grundarkórinn farinn að hittast á ný eftir Covid.
Heimilispósturinn
41
Jólahugvekja Grundarkórinn 2019
Það er eitthvað sérstakt við að syngja saman.
Kristín Waage er kórstjóri.
42
Heimilispósturinn
Jรณlahugvekja Grundarkรณrinn 2019
Heimilisfรณk og starfsfรณlk syngja saman.
Heimilispรณsturinn
43
Covid 19 og heimsóknarbannið Grundarheimilunum Jólahugvekjaá 2019
Forstjórinn tók vaktir í þvottahúsinu
S
törf starfsfólks Grundarheimilanna tóku mörg hver breytingum meðan á heimsóknarbanninu stóð og Gísli Páll Pálsson, forstjóri fór til dæmis í að taka vaktir í þvottahúsi heimilanna ásamt konunni sinni og framkvæmdastjóra Íbúða 60+ í Mörkinni Öldu Pálsdóttur. Þar þurfti að tvískipta vöktum og vantaði nokkra starfsmenn. Birgir Busk, sem er fyrrum starfsmaður í Ási, kom inn tímabundið til að starfa í þvottahúsinu. Einn daginn kom hann færandi hendi í þvottahúsið með nýbakaða tertu með kaffinu og það gladdi starfsfólkið svo sannarlega.
Gísli Páll stóð vaktina við strauvélina.
44
Heimilispósturinn
Covid 19 og heimsóknarbannið Grundarheimilunum Jólahugvekjaá 2019
Þessi stóðu saman vaktina.
Tertan sem Birgir bauð uppá.
Heimilispósturinn
45
Covid 19 og heimsóknarbannið Grundarheimilunum Jólahugvekjaá 2019
Helstu stórsöngvarar landsins komu í heimsókn
E
inn apríldaginn mættu margir af helstu stórsöngvurum landsins í portið á bakvið Grund og sungu saman nokkur lög. Gluggar voru opnaðir og heimilisfólk stóð líka á svölum og hlýddi á þessa fallegu tóna. Þvílík dýrðarinnar stund.
Og söngurinn ómaði…
Gluggar og svalir voru óspart notuð til að hlusta.
46
Heimilispósturinn
Jólahugvekja Snyrtilegt í 2019 Ási Heimilismenn í gönguferð til að plokka rusl
N
ýlega varð Ás sér út um plokktangir og þá var auðvitað farið í göngutúr til að prófa tangirnar og tína rusl. Góða veðrið var því nýtt í góða útivist og hreyfingu og um leið allur óþarfi fjarlægður sem á vegi varð. Heimilismenn í Ási láta sitt ekki eftir liggja í að halda bænum hreinum.
Vígalegir með plokktangirnar.
Allt rusl var tínt sem á vegi varð.
Heimilispósturinn
47
Covid 19 og heimsóknarbannið á Grundarheimilunum
Góðir gestir sem sungu í Mörk
Ý
msir góðir gestir komu að syngja fyrir starfsfólk og heimilismenn í Mörk meðan á heimsóknarbanninu stóð. Meðal þeirra voru sönghópurinn Lóurnar, Ingvar Valgeirsson og Bjarni Baldvinsson sem og Sigríður Thorlacius og Guðmundur Óskar Guðmundsson. Þá komu líka ættingjar og sungu fyrir heimilismenn.
Allir voru til í að koma og gleðja heimilisfók.
48
Heimilispósturinn
Covid 19 og heimsóknarbannið Grundarheimilunum Jólahugvekjaá 2019
Heimilisfólk kunni svo sannarlega að meta góða gesti.
Heimilispósturinn
49
Íbúar Jólahugvekja glaðir að hittast 2019á ný Yfir áttatíu mættu í vöfflukaffi
Þ
að var létt og kátt yfir íbúum í Mörkinni Íbúðum 60+ þegar þeir hittust á ný á Kaffi Mörk í fyrsta vöfflukaffinu eftir að fjöldatakmörkunum var aflétt af sóttvarnarlækni. Yfir áttatíu íbúar mættu í kaffisamsætið og það var mikið hlegið og spjallað.
Allir kátir með að geta aftur komið á kaffihúsið.
50
Heimilispósturinn
Íbúar Jólahugvekja glaðir að hittast 2019á ný
Frábær félagsskapur og nýbakaðar vöfflur. Skotheld blanda.
Heimilispósturinn
51
Sumar Jólahugvekja í portinu á2019 Grund Aðal sólbaðsstaðurinn
Þ
að var kátt yfir heimilismönnum einn góðviðrisdaginn þegar sólin skein svo skært í portinu á Grund. Portið er á milli bygginga og á góðviðrisdögum logn og sólríkt. Jón Ólafur var að sjálfsögðu mættur með nikkuna og auðvitað rauluðu sumir með í þessu blíðskaparveðri.
Margir komu í portið þegar sólin skín.
Ekki amalegt að sóla sig og hlusta á harmonikkuleik.
52
Heimilispósturinn
Sumar Jólahugvekja í portinu á2019 Grund
Vinkonur að njóta veðurblíðunnar.
Sumir taka með sér teppi til að leggja yfir sig.
Heimilispósturinn
53
Útsæði Jólahugvekja sett niður í 2019 Bæjarási Ekkert jafnast á við nýtt smælki
Þ
að fylgir því alltaf sérstök stemning þegar settar eru niður kartöflur í Bæjarási. Síðan er bara að vökva vel og fylgjast með sprettunni á grösunum. Þegar líður á sumar verður hugað að uppskerunni því það jafnast jú ekkert á við nýtt smælki með íslensku smjöri.
Allt að verða tilbúið fyrir útsæðið.
Svo er bara að vökva vel og fylgjast með sprettunni.
54
Heimilispósturinn
Samvinnuverkefni Jólahugvekja 2019 í Mörk Það er kominn 17. júní
G
estir sem koma reglulega í Mörk sjá að samvinnuverkefninu í anddyrinu er reglulega skipt út. Fallega hjartað sem prýtt hefur vegginn undanfarnar vikur hefur nú vikið fyrir skreytingu í tilefni 17. júní. Skreytingin hefur hlotið nafnið Íslenski fuglinn. Hugmyndaflugið fær að ráða ferðinni og heimilsimenn hafa mjög gaman af því að setja upp þessar árstíðabundnu skreytingar.
Listaverkið sem sett var upp fyrir þjóðhátíðardaginn.
Heimilispósturinn
55
Dekurdagar Jólahugvekja í Bæjarási 2019 Nostrað við neglur og skálað undir vegg
S
tundum þróast dagar þannig í Bæjarási að þeir verða sannkallaðir dekurdagar. Það eru þessir ljúfu dagar þegar tíminn líður við að lesa í góðu blaði, baka eitthvað gott með kaffinu, sitja úti og spjalla um allt og ekkert og skála kannski í leiðinni. Nú eða bara sitja saman og nostra við neglur.
Hér er verið að skála, líklega fyrir blíðunni.
Það er notalegt að láta nudda hendur og fá síðan naglalakk.
56
Heimilispósturinn