
1 minute read
Margir sem nýta glæsilegan púttvöllinn
Íbúar sem búa í Íbúðum 60+ í Mörkinni nýta svo sannarlega púttvöllinn þessa dagana en þessi glæsilegi völlur er hannaður af Edwin Roald Rögnvaldssyni. Alla þriðjudaga klukkan 14:00 eru skipulagðir tímar á púttvellinum þar sem íbúar hittast og spila saman. Að því loknu fjölmenna íbúar á Kaffi Mörk þar sem farið er yfir stöðuna yfir kaffibolla.
Alsælar með að búið er að opna púttvöllinn.
Advertisement

Íbúar eru duglegir að mæta og fara svo saman í kaffi á eftir.
