
1 minute read
Lífið í Ási
Daglegt líf í Ási var með öðrum hætti en venjulega þegar heimsóknarbannið var eins og gefur að skilja. Starfsfólk tók höndum saman og var í hálfgerðri sóttkví allan sólarhringinn eins og á hinum Grundarheimilunum og síðan hjálpuðust allir að við að finna upp á einhverju skemmtilegu til að stytta dagana. Heimilisfólk fékk heimsóknir á glugga og svo voru garðarnir nýttir vel þegar sást til sólar.

Advertisement
Það var vel þegið að fá þennan litla unga í heimsókn og svo var allskonar dekur daglegt brauð. 16


Hér er verið að læra á spjaldtölvu og snyrta.


Móðir og dóttir tala saman og margir notuðu tímann og prjónuðu.
