4 minute read

Brýn og viðamikil verkefni framundan

Kæri lesandi

Þetta er fyrsti af vonandi mörgum pistlum sem ég skrifa í okkar ágæta heimilisblað sem forstjóri Grundarheimilanna. Undanfarnar vikur og mánuðir hafa einkennst af Covid – 19 aðgerðum sem hafa miðað að því að halda þessari skæðu veiru frá okkar fallegu heimilum. Og það hefur tekist hingað til með samstilltu átaki starfsmanna, heimilismanna og aðstandenda þeirra. Ég vil nota þetta tækifæri og færa öllum framangreindum aðilum kærar þakkir fyrir þeirra góða framlag sem skilaði okkur þessum framúrskarandi árangri í að halda heimilunum smitfríum. Skiljanlega voru ekki allir sáttir við þær aðgerðir sem gripið var til í byrjun mars og fólust fyrst og fremst í heimsóknarbanni en auk þess var gripið til margskonar annarra varúðarráðstafana. Við lærðum mikið af þessum faraldri og hvað við gerðum rétt, að okkar mati, en ekkert síður hvað hefði betur mátt fara. Og það verður allt saman sett á blað, tilbúið til viðmiðunar og notkunar þegar næsti sambærilegi heimsfaraldur skellur á, líklega eftir um það bil áratug.

Advertisement

Njótið samvista við aðstandendur

En nú er það versta líklegast yfirstaðið og öllum takmörkunum á heimsóknum hefur verið aflétt. Ég vil því hvetja aðstandendur til þess að njóta sumarsins með sínum ættingjum og vinum sem búa hjá okkur á Grund, Ási og Mörk eins og kostur er. Það eru fallegir

garðar í kringum öll heimilin og víða bekkir til að sitja á úti við í fallegu umhverfi og stundum meira að segja góðu veðri. Á Grund er sérstaklega notalegt að sitja á milli Grundar og Litlu Grundar, þar er skjólsælt í norðanáttinni sem fylgir yfirleitt góðu veðri í höfuðborginni. Í Mörk eru fallegir garðar milli húsa og svo kaffihús sem tengist nýju íbúðunum, rétt austan við hjúkrunarheimilið, innangengt þaðan. Og í Ási eru fallegir garðar út um allt og meira segja stutt að rölta yfir í listigarðinn á Fossflöt þar sem eru bekkir og borð og mikið skjól fyrir öllum vindáttum.

Breytt í einbýli með baðherbergi

Hjá Grundarheimilunum eru framundan viðamikil og brýn verkefni, aðallega á Grund og í Ási. Á Grund stendur til að breyta 10 herbergjum á A – 2 í sex eins manns herbergi, hvert með eigið baðherbergi. Það verður mikill munur á aðstöðu þeirra sem koma til með að búa í nýju herbergjunum. Líklega hefjast framkvæmdir í október eða nóvember, kemur í ljós þegar nær dregur. Þá er ráðgert að endurnýja innganga á Grund og Litlu Grund, gera aðgengi betra og merkja húsin. Samhliða því verður byggt sorpskýli þar sem núverandi sorpgámur stendur ásamt skyggni fyrir rafskutlur og reiðhjól. Á Grund verður einnig skipt um 30 glugga í vesturhúsinu.

Ráðgert er að endurnýja inngang á Grund og merkja húsið.

Svipaður fjöldi og oft áður, en við reiknum með að það taki um það bil fimm ár að ljúka endurnýjun glugga á húsinu við Hringbraut. Í Ási er þegar hafist handa við byggingu á nýjum matsal vestan megin við núverandi matsal sem er kallaður dags daglega Ásbúð. Þegar þeirri framkvæmd lýkur verður gamla matsalnum breytt og hann notaður sem hluti af stærra og betra eldhúsi. Þegar það er allt saman tilbúið munum við undirbúa allan mat fyrir heimilin þrjú í Ási í Hveragerði og senda hann til Reykjavíkur á Grund og Mörk. Ýmist for- eða fulleldaðan ásamt viðeigandi meðlæti. Þannig náum við fram hagræðingu í rekstri en hluti þeirrar hagræðingar verður nýttur til að gera góðan mat og gott hráefni enn betra. Í dag er allur matur á Grund undirbúinn í Mörk þannig að það má

Það eru garðar í kringum öll heimilin og gott að sitja þar í sumar.

segja að verkefnið sé þegar hafið. Ekki stendur til að fara í stórar framkvæmdir í Mörk en þó er ég að vinna að því að fá fjármögnun frá opinberum aðilum til að gera talsverður endurbætur á svölunum á fimmtu hæð, bæði norðan og sunnan megin.

Höfðuðum mál á hendur ríkinu

Samtals nemur framkvæmdakostnaður þessara framkvæmda 370 milljónum króna. Framkvæmdasjóður aldraðra hefur þegar samþykkt framlag til okkar upp á 130 milljónir og við þurfum því að reiða fram 240 milljónir. Sem við gerum með smá varasjóði sem við vorum búin að koma okkur upp auk sölu fasteigna í Reykjavík og Hveragerði. Þetta eru spennandi verkefni sem gera góða aðstöðu heimilis- og starfsfólks Grundarheimilanna enn betri, en langt er í land og talsverða fjármuni vantar upp á til að ljúka því að gera öll okkar rými að einbýli með sér baðherbergi. Má af því tilefni nefna að stjórn Grundarheimilanna ákvað fyrir all nokkrum árum að höfða mál á hendur ríkinu til greiðslu húsaleigu fyrir það húsnæði sem Grund og Ás nota undir þjónustu við heimilismenn. Til að gera langa sögu stutta töpuðum við málinu í héraðsdómi og Landsrétti en Hæstiréttur samþykkti nýlega að taka málið til meðferðar og dóms. Er endanlegs dóms að vænta næsta vetur. Ef dæmt verður okkur í hag munum við fá til okkar all nokkra fjármuni sem verða notaðir beint í endurbætur í anda þess sem framan greinir. Ég krosslegg fingur.

Gísli Páll Pálsson

This article is from: