1 minute read

Heimilunum gefnar tuttugu og fimm spjaldtölvur

Ýmsir reyndu að létta heimilismönnum lífið þegar heimsóknarbannið stóð yfir á Grundarheimilunum. Elko og Vodafone sem og Lionshreyfingin ákváðu að gefa heimilunum spjaldtölvur svo heimilismenn gætu verið í samskiptum við aðstandendur. Elko gaf heimilunum fimm spjaldtölvur, Vodafone átta og Lionshreyfingin tólf stykki. Með þessum rausnarlegu gjöfum gátu nú allar deildir eða heimili átt sína spjaldtölvu og þannig varð auðvelt að koma á samskiptum í mynd milli heimilismanna og ástvina. Elko. Vodafone og Lionshreyfingunni eru færðar bestu þakkir fyrir þessar frábæru gjafir.

Ellert Eggertsson fjölumdæmisstjóri Lions MD109 og Hörður Sigurjónsson formaður Lions - Heiðurssjóðs Guðrúnar Bjartar Yngvadóttur afhenda Sigrúnu Faulk hjúkrunarframkvæmdastjóra Grundar spjaldtölvur með heyrnartólum.

Advertisement

Það munaði miklu að geta talað við ættingja og séð þá í mynd.

Þórunn Sigurðardóttir og Rósa Huld Sigurðardóttir komu heldur betur færandi hendi fyrir hönd Lionsklúbbsins Eden í Hveragerði. Færðu þær heimilinu að gjöf 4 spjaldtölvur og 4 heyrnartól. Birna Sif Atladóttir hjúkrunarframkvæmdastjóri í Ási tók við gjöfinni.

This article is from: