1 minute read

Skelltu sér í hjólatúr

Það er svo gott að komast undir bert loft og hvað þá heldur að finna sumarvindinn leika um vanga. Guðrún Hreinsdóttir bauð einmitt heimiliskonunni Margréti Ólafsdóttur á rúntinn og við erum svo heppin að það er stutt í Grasagarðinn frá Mörk og þar er allt í blóma þessa dagana. Við bendum aðstandendum heimilismanna Markar á að það er hægt að fá hjólið lánað og skella sér í hjólatúr þegar vel viðrar og ennfremur bendum við á að það eru reglulega haldin svokölluð hjólaranámskeið. Allar nánari upplýsingar um slík námskeið veitir sjúkraþjálfunin í Mörk og hægt að nálgast upplýsingar á slóðinni www.hoa.is

Guðrún Hreinsdóttir bauð Margréti Ólafsdóttur á rúntinn.

Advertisement

This article is from: