
1 minute read
Tæplega 50 kíló farin
Tja nú er maður svo léttur á sér og orkumikill og til í að gera ýmislegt“, segir Guðmundur Helgi Helgason matreiðslumaður í Mörk sem var að setja niður vísi að matjurtagarði við eldhúsið í Mörk einn bjartan daginn. Á undanförnum sjö mánuðum hefur hann misst 47 kíló eftir hjáveituaðgerð og segir að lífið sitt hafi gjörbreyst. „Þetta er nýtt líf og nú vílar maður ekki fyrir sér nokkurn skapaðan hlut“, segir pilturinn hress að bragði.
Tínir fíflana úr grasinu
Advertisement
Hann hefur líka sést hlaupa um garðinn hér í Mörk og tína fífla eins og enginn sé morgundagurinn. Fíflablómin notar hann svo í fíflasíróp sem hann ber á borð í Mörk. En hvernig hafa þá matarvenjurnar breyst hjá þér? „Þær hafa breyst mikið, lítil sem engin kolvetni, fiskur, kjöt og grænmeti og svo hreyfi ég mig daglega.“ Léttur á fæti og léttur í lund hann Guðmundur. Við báðum hann að lokum um uppskriftina að fíflasírópinu og hér kemur hún.

Túnfíflasíróp að hætti kokksins
1 til 2 kg túnfíflar (bara guli blómahnappurinn) 3 stk sítrónur sykur vatn ½ tsk salt Sítrónur skornar í báta og settar í pott ásamt túnfíflum, vatn sett svo fljóti yfir, saltað, suðan látin koma upp og soðið í 20 mínútur hægt og rólega. Vökvinn síaður frá og mældur. Settur helmingi meiri sykur, 2 kg sykur á móti 1 litra túnfíflavökva. Soðið hægt í 2 til 3 tíma þar til sírópið er mátulega þykkt. Að lokum er sírópinu hellt á tandurhreinar krukkur og geymt í ísskáp. Njótið.