1 minute read

Bauð heimilismönnum og starfsmönnum í útskriftarveislu

Bauð heimilismönnum og starfsmönnum í útskriftarveislu

Vinátta, virðing og vellíðan eru lykilorð Grundarheimilanna og hluti af því að eiga vináttu einhvers er að deila gleði og sorg. Þessi lykilorð eiga einnig svo vel við Eden hugmyndafræðina sem við fylgjum dags daglega. Einn starfsmanna Markar, Sigfríður Birna Sigmarsdóttir, útskrifaðist nýlega sem sjúkraliði og bauð heimilismönnum og starfsfólki á annarri hæð til veislu svo vinir hennar gætu samglaðst með henni.

Advertisement

Sigfríður Birna Sigmarsdóttir bauð heimilisfólki og starfsfólki til veislu þegar hún útskrifaðist sem sjúkraliði.

Af þessu tilefni flutti heimilismaðurinn Kristján þetta ljóð fyrir hana: Hvað er svo glatt sem góðra vina fundur þá gleðin skín á vonarhýrri brá? eins og á vori laufi skrýðist lundur lifnar og glæðist hugarkætin þá; og meðan þrúgna gullnu tárin glóa og guðaveigar lífga sálaryl, þá er það víst, að bestu blómin gróa í brjóstum sem að geta fundið til.

Ekki amalegt að vinna á stað þar sem maður vill fagna með vinum sínum.

This article is from: