Heimilispósturinn - júní 2020

Page 29

Matjurtaræktun Jólahugvekja 2019 í Mörk Tæplega 50 kíló farin

Tja nú er maður svo léttur á sér og orkumikill og til í að gera ýmislegt“, segir Guðmundur Helgi Helgason matreiðslumaður í Mörk sem var að setja niður vísi að matjurtagarði við eldhúsið í Mörk einn bjartan daginn. Á undanförnum sjö mánuðum hefur hann misst 47 kíló eftir hjáveituaðgerð og segir að lífið sitt hafi gjörbreyst. „Þetta er nýtt líf og nú vílar maður ekki fyrir sér nokkurn skapaðan hlut“, segir pilturinn hress að bragði.

Tínir fíflana úr grasinu Hann hefur líka sést hlaupa um garðinn hér í Mörk og tína fífla eins og enginn sé morgundagurinn. Fíflablómin notar hann svo í fíflasíróp sem hann ber á borð í Mörk. En hvernig hafa þá matarvenjurnar breyst hjá þér? „Þær hafa breyst mikið, lítil sem engin kolvetni, fiskur, kjöt og grænmeti og svo hreyfi ég mig daglega.“ Léttur á fæti og léttur í lund hann Guðmundur. Við báðum hann að lokum um uppskriftina að fíflasírópinu og hér kemur hún. Heimilispósturinn

29


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.