Heimilispósturinn - júní 2020

Page 11

Horft í baksýnisspegilinn á Covid 19 og hjúkrunarheimilin Jólahugvekja 2019

Er öryggi æðsta dyggðin?

Þ

að var föstudagur í byrjun Covid faraldursins og fyrr um daginn hafði verið fundur um stöðu mála á hjúkrunar­heimilum landsins með Samtökum fyrir­tækja í velferðar­ þjónustu og Landlækni. Þar var rætt um hvað ætti til bragðs að taka ef Covid 19 næði fótfestu hér á landi. Það var rætt um heimsóknarbann en niðurstaðan var að hugsa málið um helgina og undirbúa mögulega verkferla í vikunni á eftir. Ég fékk símtal á leiðinni heim úr vinnu rétt fyrir kvöldmat og var sagt „Landspítalinn er búinn að loka fyrir heimsóknir“.

Lokað fyrir heimsóknir Á þessum tíma var orðið ljóst að sjúkdómurinn legðist sérstaklega þungt á aldraða og íbúa hjúkrunarheimila. Ég hafði lesið fréttir frá hjúkrunarheimili í Bandaríkjunum þar sem faraldurinn kom inn öllum að óvörum með hrikalegum afleiðingum. Á hjúkrunarheimilum búa margir einstaklingar alltaf á grunni sjúkdóma eða fötlunar í bland við félagslegar aðstæður. Langflestir aldraðir en aðrir á miðjum aldri, sumir saddir lífdaga en aðrir með lífsvilja. Þar vinnur einnig fjöldi starfsmanna, bæði fagmenntað fólk og almennt starfsfólk, sumir með langvinna sjúkdóma eða áhættuþætti en aðrir ungir og hraustir. Það var ljóst að úr vöndu var að ráða og tekin var sú ákvörðun að loka fyrir heimsóknir strax. Það má taka fram að við Heimilispósturinn

11


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
Heimilispósturinn - júní 2020 by Grund, dvalar- og hjúkrunarheimili - Issuu