FÍB Blaðið 2.tbl. 2020

Page 6

FÍB BLAÐIÐ Skipulagningar er þörf til að dreifa umferðinni betur Áhrifa Covid-19 mun gæta hér á landi áfram en ljóst er að það mun taka efnahagslífið langan tíma að ná fullum styrk á nýjan leik. Þegar á móti blæs hefur styrkur íslensku þjóðarinnar ávallt komið ljós og með samstilltu átaki munu hjól efnahagslífsins fara af stað. Það birtir upp um síðir. Þegar faraldurinn stóð sem hæst fór margt úr skorðum í umhverfi okkar og breyta þurfti mörgu frá grunni. Fjöldi fólks á vinnumarkaði fór að vinna heima, skólar lokuðu og tækni í fjarkennslu var nýtt til hins ýtrasta. Öll þessi breyting hafði gríðarlega áhrif á venjulegt líf fólks og varla sást maður á götum úti um langan tíma. Það hægðist á öllu og almenningur komst ekki hjá því að skipuleggja upp á nýtt allar hefðbundnar venjur sínar. Samdráttur í bílaumferð var gríðarlegur og hafa aðrar eins tölur í þeim efnum ekki sést áður. Umferðin á höfuðborgarsvæðinu í apríl var hátt í 30% minni en í apríl í fyrra og hefur aldrei mælst svo mikill samdráttur á svæðinu. Sömu sögu er að segja af umferð á hringveginum en á sumum svæðum minnkaði hún sem nam yfir 50%. Allt í einu var orðið lítið mál að fara á milli staða Gríðarlegi umferðarþunginn, sem flestir kannast við á höfuðborgarsvæðinu, þá alveg sérstaklega snemma á morgnana og síðdegis þegar fólk er að koma sér í og úr vinnu og skóla, var horfinn. Eins og hendi veifað tók orðið mun styttri tíma að koma sér í vinnuna. Allt í einu var orðið lítið mál að koma sér á milli en það tók áður langan tíma. Skaðinn sem Covid-19 olli verður seint bættur og margir eiga um sárt að binda. Getum við samt sem áður, þegar öllu er á botninn hvolft, dregið einhvern lærdóm af þessum skelfilega 6

faraldi. Getum við breytt og skipulagt hlutina til betra vegar frá því sem áður var. Umræðan um, hvort við getum bætt umferðarmenninguna og gert hana skilvirkari, minnkað umferðarþungann með öllum þeim töfum og slysahættu sem hann veldur, er þegar hafin. Það veit vonandi á gott að umræðan er farin af stað um hvernig tekist verður á við þessa þætti og þeim komið í betra horf en nú er. Eitt af því sem komið hefur til tals er hvort ekki sé hægt að dreifa umferðinni á bilinu 7–9 á morgna og síðdegis svo að hún gangi greiðlega fyrir sig. Til að það geti orðið hafa sumir bent á að skólar og önnur atvinnustarfsemi geti hafið starfsemi sína seinna á morgnana. Aðrir geta unnið vinnu sína hluta úr vikunni heima. Allt þetta myndi létta og dreifa umferðinni betur. Í dag fara flestir af stað og heim á sama tíma. Covid-19 hefur kennt okkur það að þurfum að skipuleggja og breyta ýmsu frá því sem áður var. Í allri þessari umræðu má ekki gleymast að gatnakerfið er fyrir löngu komið að fótum fram og á þeim vettvangi þarf heldur betur að taka til hendinni á næstu árum. Umræðan í það minnsta farin af stað Umræðan er í það minnsta komin af stað en við núverandi ástand er ekki hægt að búa við lengur. Við sáum það í Covid-19 að hægt er að gera umhverfið betra með breyttum og skipulegri hætti. Nú þurfa þeir aðilar sem koma að þessum málum að setjast niður og skoða málin með opnum huga. Það skiptir samfélagi okkar gríðarlegu máli að gott skipulag sé á þáttum sem snúa að umferðinni. Jón Kristján Sigurðsson Ritstjóri

Efnisyfirlit 8 Stafræn ökuskírteini 10 Samstöðufundur hjólafólks 11 Ábyrgð veghaldara 12 Þjónustuhús við þjóðveginn 14 Vegagerð fjárfesta 33% dýrari 15 Hleðslustöðvar í fjölbýlishúsum 16 Bílaumboðin sjá til sólar 18 Sjálfkeyrandi bílar - hver er staðan? 22 Á ferð um landið 23 Norðurland 26 Vesturland 30 Vestfirðir 32 Austurland 34 Suðurland 36 Reykjanes 38 Reynsluakstur Tesla Model 3 42 Reynsluakstur Renault Zoe 44 Mótorhjólaferð um Suður-Afríku 48 Eftirvagnar 51 Breikkun milli Hveragerðis og Selfoss 53 FÍB-Aðstoð Höfn


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
FÍB Blaðið 2.tbl. 2020 by Félag íslenskra bifreiðaeigenda - Issuu