3 minute read

Vestfirðir

Next Article
Reykjanes

Reykjanes

Til dæmi um fjölskyldurúnt frá tjaldsvæðinu á Tálknafirði er hægt að byrja daginn á morgunbaði en ekki er nema um klukkutíma rúntur frá Tálknafirði yfir í Reykjafjarðarlaug í Arnarfirði. Þar ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi, sjóðheit og grunn náttúrulaugin er frábær fyrir gamla þreytta foreldrakroppa eftir tjaldsvefn næturinnar á meðan örlítið kaldari sundlaugin er ævintýraland fyrir hressa krakka, slímugur botninn er eins og fínasta skautasvell og dýpri endinn er fullkominn leynistaður til þess að fylgjast með skrímslaferðum í fjöruborðinu. Talandi um skrímsli, segja má að Arnarfjörðurinn sé griðarstaður skrímsla á Íslandi og því er um að gera að vera vel vakandi og hafa augun á fjöruborðinu í rúnti dagsins. Best er þó að skella sér í heimsókn í Skrímslasetrið á Bíldudal og fræðast aðeins betur um þessar verur, það getur verið erfitt að finna þær ef maður veit ekki eftir hverju á að leita. Eftir sundsprett og heimsókn í Skrímslasetrið er ekki ósennilegt að hungur sé farið að láta kræla á sér, hamborgarinn á Vegamótum er vel þess virði að kíkja þar við og það sama má segja um fisk og franskar sem einnig er á matseðlinum. Að hádegisverði loknum er kominn tími á skrímslaleit. Ketildalirnir eru vel til þess fallnir þar sem vegurinn liggur meðfram sjónum og gylltum ströndum sem gaman er að stoppa við og byggja eins og einn kastala eða tvo ef ekkert gengur í skrímslaleit. Bæði Hvestudalur og Bakkadalur eru með stórar hvítar fjörur sem einna helst mætti líkja við fínustu sólarströnd erlendis, veðrið getur þó verið aðeins annað en á sólarströndinni en sandurinn engu síðri og jafnvel betri.

Eftir fjörugleði liggur leið út í Selárdal, þar sem vegurinn endar og verk Samúels Jónssonar taka á móti okkur. Samúel var oft kallaður listamaðurinn með barnshjartað og

Varúðarskilti fyrir sjóskrímsli í Arnarfirði

það er einstaklega auðvelt að ímynda sér ævintýri Arnarfjarðar með verk hans og verur í aðalhlutverkum.

Þegar allir eru orðnir vel mettaðir af ævintýrum og barnslegri list Samúels er kominn tími á að snúa aftur á Tálknafjörð. Hafi engin skrímsli látið á sér bæra nú þegar er um að gera að hafa augun á fjörunni og sjónum á meðan ekið er til baka eftir Ketildölunum. Í versta falli hljóta allavega einhverjir hvalir eða selir að sýna sig. Rúntur dagsins hefur að mestu leyti verið um kræklótta en skemmtilega malarvegi, með sjóinn á aðra hönd og fallega dali eða himinhá fjöllin á hina.

Náttúrulaug í Reykjarfirði í Arnarfirði

Margir áhugaverðir og spennandi staðir eru í boði. Vestfirðir eru draumaland fjallgöngugarpsins og er það hægt að fara í margra daga göngur yfir fjöll og firnindi, en það er líka hægt að fara í létta sögugöngu um Ísafjörð eða fara í matarsmakkferð um Suðureyri. Á Vestfjörðum eru einnig mörg söfn sem skemmtilegt er að heimsækja og má þar nefna helstu náttúruperlur Vestfjarða eins og Látrarbjarg, Rauðasand og Dynjanda. Ísafjörð er gott að heimsækja og óvíða ef nokkurs staðar er jafn stutt að fara úr iðandi mannlífi yfir í ósnortna náttúru og möguleikar til útivistar eru óteljandi, hvort sem er að sumri eða vetri.

Upplýsingamiðstöðvar ferðamála má finna víðsvegar á Vestfjörðum. Starfsfólk þeirra veitir meðal annars upplýsingar um veður, áhugaverða staði, aðstoðar við bókanir og margt fleira. Þar er einnig hægt að nálgast kort og bæklinga. Fyrir svanga og þyrsta er óþarfi að örvænta, því að víða má finna veitingastaði, kaffihús, sjoppur og matvöruverslanir. Það er ýmis afþreying á Vestfjörðum fyrir hópa af öllum stærðum. Sumar ferðir og afþreying takmarkast þó við búnað en þó geta flestir ferðaskipuleggjendur og ferðaskrifstofur leyst úr því t.d. með því að skipta stórum hópum upp í minni hópa.

This article is from: