4 minute read

Þjónustuhús við þjóðveginn

Next Article
Suðurland

Suðurland

Í lok janúar 2020 opnuðu Sannir landvættir þjónustuhús fyrir ferðamenn við Laufskálavörðu í Skaftárhreppi, við vegamótin að Hrífunesi. Við húsið er nýtt og stærra bílastæði en áður var á svæðinu og er ekið inn á það af Hrífunesvegi (209). Húsið er hannað af Stáss arkitektum 2019 og smíðað af félaginu Fjölur ehf. Húsið og bílastæðið er hugsað sem áningarstaður fyrir ferðamenn á leið um Suðurland og í því eru tvö salerni og eru þau með gjaldtökubúnaði. Einnig er gert ráð fyrir að í húsinu verði þvottavél og þurrkari svo að ferðamenn geti skellt í vél og þurrkað á meðan þeir njóta fagurs útsýnis á staðnum og fá sér nesti.

Á þaki hússins er útsýnispallur

Við húsið verða borð sem hægt verður að nota til að borða nesti og hugsanlega verður einnig staðsettur vagn sem selur götubita á bílaplaninu hluta úr ári. Þá verður einnig aðstaða fyrir hjólreiðamenn að dytta að hjólum sínum. Á vesturhlið hússins, sem snýr að Mýrdalsjökli, er bekkur þar sem ferðamenn geta sest og notið fagurrar fjallasýnar og á austurhliðinni er neysluvatnskrani til að fylla á brúsa og flöskur. Á þaki hússins er svo útsýnispallur en af þakinu er víðsýnt og sést Lómagnúpur og Öræfajökull þegar skyggni er gott og einnig Mýrdalsjökull og Skaftártunga.

Salernin eru með snertilausum blöndunartækjum með sambyggðum handblásara og sápuskammtari er einnig snertilaus. Annað salernið er með aðgengi fyrir alla, þá sem eru hreyfihamlaðir og aðra sem þurfa slíka aðstöðu. Gjaldið er 200 krónur fyrir notkun og gjaldtökubúnaðurinn tekur við debet- og kreditkortum, auk myntar. Einnig er hægt að greiða með snjallsímum s.s. Apple pay. Í framtíðinni er stefnt að því að á bílastæðið komi hleðslustöðvar fyrir rafbíla.

Félagar í FÍB verði duglegir að nýta sér aðstöðuna

Starfsemin var rétt hafin þegar Covid–19 faraldurinn skall á þannig að hrun varð í fjölda ferðamanna. Því hefur notkun verið undir væntingum en vonir standa til að það breytist með vaxandi ferðamannastraumi. Við sjáum t.d. að íslenskir ferðamenn taka þessu framtaki vel og höfum við almennt fengið góð viðbrögð, bæði yfir þjónustunni og einnig fengið hrós fyrir húsið, að það sé vel heppnað og íslensk hönnun.

Það er von okkar hjá Sönnum landvættum að félagar í FÍB taki okkur vel og verði duglegir að nýta sér aðstöðuna. Ef rekstur þessa húss gengur vel má reikna með að sambærileg þjónustuhús rísi víðar við þjóðvegi því að þörfin er vissulega fyrir hendi.

Vegagerð fjárfesta 33% dýrari en hjá ríkissjóði

Samkvæmt útreikningum FÍB er 33% dýrara að fela fjárfestum að sjá um vegaframkvæmdir heldur en ríkinu. Munurinn felst í hærri fjármagnskostnaði einkafjárfesta og kostnaði við innheimtu vegtolla.

Vegna þessa hærri kostnaðar hefur FÍB lýst sig andsnúið frumvarpi samgönguráðherra um samvinnuverkefni í vegaframkvæmdum. Þar er gert ráð fyrir að einkaaðilar annist flýtiframkvæmdir í vegagerð að hluta eða öllu leyti og fái greitt fyrir með innheimtu vegtolla. FÍB styður flýtiframkvæmdir til jafns við aðrar vegaframkvæmdir en telur hins vegar rangt að leggja stórauknar álögur á vegfarendur til þess eins að ríkisvaldið geti tekið slíkar framkvæmdir út fyrir sviga í bókhaldi sínu.

FÍB bendir á að í skýrslu starfshóps samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins um leiðir til fjármögnunar vegaframkvæmda, sem kom út í apríl 2019, er eindregið mælt með því að ríkissjóður fjármagni flýtiframkvæmdir í vegamálum. Þar segir: „Æskilegt er að mati starfshópsins að fjármagna flýtiframkvæmdir með viðbótar ríkisútgjöldum eða breyttri forgangsröðun í ríkisútgjöldum. Sú leið er hagkvæmari fyrir ríkið en aðrir kostir vegna lægri fjármagnskostnaðar.“

Í skýrslu starfshópsins segir að vegna tilfærslu á áhættu og hærri fjármagnskostnaðar einkaaðila hafi reynslan verið sú í Evrópu að samvinnuverkefni hafa kostað 20–30% meira en verkefni fjármögnuð með hefðbundinni aðferð, þ.e. af ríkissjóði. Útreikningar FÍB staðfesta þetta.

Þá kemur fram í skýrslunni að reikna megi með að innheimtukostnaður verði um 10% af vegtollum einkafjárfesta. Sá kostnaður nemur milljörðum króna á þeim 30 árum sem fyrirhugað er að innheimtan standi yfir og bætist við framkvæmda- og lántökukostnað. Ekki aðeins það, heldur er 11% virðisaukaskattur lagður ofan á vegtollana. Á hvern milljarð króna í vegtollum bætast við rúmar 100 milljónir í virðisaukaskatt. Ótalin er jafnframt krafa framkvæmdaraðilans sem tekur lánið um arð og áhættuþóknun. Sá kostnaður er ekki einu sinni tekinn með í þessum útreikningum, þannig að 33% er lágmark í þessari umræðu.

Engin þörf er á vegtollum ef ríkisvaldið annast framkvæmdirnar, enda leggur ríkið skatta á ökutæki og umferð. Framkvæmdirnar skila beinum arði í ríkissjóð með fækkun slysa, umhverfisávinningi og betri framlegð með tímasparnaði.

Útreikningar FÍB

Í umsögn við frumvarp um samvinnuverkefni í vegaframkvæmdum sýnir FÍB dæmi um mismun á kostnaði við fimm af þeim sex verkefnum sem nefnd eru sem möguleg flýtiverkefni. Sundabraut er undanskilin í þeim útreikningum. Áætlaður framkvæmdakostnaður þessara fimm verkefna er 44,3 milljarðar króna. Gert er ráð fyrir að ríkisvaldið komi að verkefnunum að hluta, einkum þar sem umferð er lítil. Í eftirfarandi útreikningum FÍB er gert ráð fyrir að hlutur ríkisins verði 16% og hlutur einkafjárfesta 84%. Meðal annars er gert ráð fyrir að einkafjárfestar standi alfarið að tvöföldun Hvalfjarðarganga.

Forsendur útreikninganna eru að ríkissjóður taki framkvæmdalán til 30 ára á 2,23% vöxtum og að vextir lána til einkafjárfesta (líklegast frá lífeyrissjóðum) verði 4,5% á þessum 30 árum. Ef ríkissjóður fjármagnar framkvæmdirnar að öllu leyti verður heildarkostnaður rúmir 60 milljarðar króna. Ef ríkissjóður fjármagnar framkvæmdirnar að hluta á móti einkafjárfestum, t.d. 16% á móti 84%, verður heildarkostnaður u.þ.b. 80 milljarðar króna. Þar af er kostnaður við hlut einkafjárfesta u.þ.b. 70,4 milljarðar króna að meðtöldum innheimtukostnaði vegtolla og kostnaður við hlut ríkisins 9,7 milljarðar króna.

Vegfarendur munu því þurfa að greiða 20 milljörðum króna meira fyrir þessar fimm flýtiframkvæmdir ef þær verða á vegum einkafjárfesta.

This article is from: