5 minute read

Breikkun milli Hveragerðis og Selfoss

Next Article
Eftirvagnar

Eftirvagnar

Annar áfangi af breikkun milli

Hveragerðis og Selfoss

Vegagerðin og Íslenskir Aðalverktakar skrifuðu á vormánuðum undir verksamning vegna annars áfanga breikkunar Suðurlandsvegar á milli Hveragerðis og Selfoss. Verkið er unnið í beinu framhaldi af fyrsta áfanga sem lauk í fyrra og er um að ræða ríflega 7 km kafla.

Verkið heitir formlega Biskupstungnabraut – Hveragerði, 2. áfangi; Biskupstungnabraut – Gljúfurholtsá. Verksamningur hljóðar upp á 5.069 m. kr. í samræmi við tilboð ÍAV hf. sem átti lægsta tilboðið. Heildarkostnaður verður meiri enda er ekki inn í þessari tölu kostnaður við undirbúning, hönnun og eftirlit.

ÍAV var einnig með fyrsta áfanga verksins og þekkir því vel til aðstæðna á þessu svæði. Nú þegar hefur ÍAV hafið undirbúning að uppsetningu vinnubúða og hóf fyrirtækið störf af krafti strax eftir páska. Nánar um verkið. Um er að ræða nýbyggingu Hringvegar að hluta og breikkun og endurgerð að hluta, alls um 7,1 km. Gerð verða ný vegamót við Kirkjuferjuveg og Hvammsveg eystri, ásamt nýju hringtorgi við Biskupstungnabraut. Lagður verður nýr tæplega 5 km Ölfusvegur með hjólareinum ásamt breytingu á Þórustaðavegi og Biskupstungnabraut.

Byggð verða þrjár nýjar brýr á Gljúfurholtsá og Bakkárholtsá, undirgöngum fyrir bíla við Þórustaði og við Kotströnd þar sem Ölfusvegur fer undir nýjan Hringveg. Þá verða byggð tvenn sérstök undirgöng fyrir reiðleiðir og gönguleiðir. Einnig eru breytingar á lögnum veitufyrirtækja innifalin í verkinu.

Markmið framkvæmdarinnar er að auka umferðaröryggi með því að aðskilja akstursstefnur og fækka tengingum við Hringveg ásamt því að auka umferðarrýmd vegakerfisins milli Hveragerðis og Selfoss. Með framkvæmdinni verður jafnframt til nýr samfelldur hliðarvegur, Ölfusvegur, með sérstökum hjólareinum frá Hveragerði að Biskupstungnabraut.

Að loknum framkvæmdum verða einungis tvenn vegamót á kaflanum frá Biskupstungnabraut að Hveragerði.

Til að ljúka breikkun Hringvegar og aðskilnaði akstursstefna frá Biskupstungnabraut að Kömbum er síðan gert ráð fyrir að Hringvegur verði færður til suðurs við Hveragerði í nýja veglínu samkvæmt aðalskipulagi Hveragerðisbæjar. Sú framkvæmd er í undirbúningi og er gert ráð fyrir henni á samgönguáætlun árið 2023. Verkinu skal að fullu lokið 29. september 2023.

Bíllinn hefur staðist allar væntingar og gott betur

Tesla Model 3 er vinsælasti rafbíllinn og á næstunni er búist við að yfir 500 þúsund eintök verði seld í heiminum. Bíllinn kom fyrst á markað 2017 og síðan þá hafa sölutölur rokið upp úr öllu valdi. Hér á landi hefur bíllinn selst gríðarlega vel og sölutölur sýna hann í efstu sætum. Stefán Árni Stefánsson, kerfisfræðingur úr Reykjanesbæ, pantaði Tesla Model 3 í september á síðasta ári og um miðjan mars fékk hann bílinn í hendurnar.

„Það hefur lengi verið draumur minn að eignast Model 3 og það er óhætt að segja að bíllinn hefur staðist allar væntingar mínar og gott betur en það. Ég var að spá í Model S í upphafi en mér fannst hann of dýr. Ég taldi mig fyrirfram vita nokkuð um aksturseiginleika bílsins. Af akstrinum til þessa hefur það staðist fullkomnlega. Það er nánast varla hægt að setja út á neitt. Ég átti e-Golf frá 2016 en Model 3 hefur marga fundist bíllinn sparneytnari í keyrslu Árni.

kosti fram yfir hann,“ sagði Stefán Árni í samtali við FÍB-blaðið en þá var hann á ferð um Snæfellsnes í sumarfríinu.

Alltaf komi drægnin og þægindin á óvart

Stefán Árni sagði að drægni Model 3 sé gríðarlega góður kostur. Hann segist nota bílinn mikið á vegum úti ekki frá því að þeim muni fjölga

á landi og alltaf komi þægindin og drægnin skemmtilega á óvart. Ekki megi heldur gleyma kraftinum sem bíllinn býr yfir.

„Ég ók nýlega frá Akureyri og heim í Reykjanesbæ og það voru 10% eftir á hleðslunni þegar ég kom heim á áfangastað. Eftir því sem hleðslustöðvum Tesla fjölgar á landsbyggðinni er ekkert mál að ferðast á þessum bíl. Ég hef verið að draga tjaldvagn og það er ekkert mál. eins og um bensínbíl væri að ræða. Ég veit um dæmi að bíllinn hefur verið að draga um 900 kg og það var ekkert mál. Mér hefur enn fremur úti á landi en innanbæjar sem er frábært af rafbíl að vera,“ sagði Stefán

Um toppeintak að ræða

Hann sagðist ekki vera hissa á því að þessum bílum fjölgi mikið á götunum. Þarna er bara hreinlega um toppeintak að ræða. Hann væri Í því verkefni er bíllinn vel nothæfur

mikið á næstu árum.

„Orkuskipti eru mikið í umræðunni og þessi bíl er innlegg í þá umræðu. Þetta er bíll með öllu og ljóst að samkeppnisaðilar eru að mæta harðri samkeppni,“ sagði Stefán Árni Stefánsson í spjallinu við FÍB-blaðið.

FÍB-Aðstoð á Höfn Íslendingar mun meira á ferðinni en áður

„Það er óhætt að segja að maður muni tímana tvenna í þessari þjónustu. Maður hefur komið að ýmsu í starfinu en það er gefandi að koma fólki til hjálpar í vandræðum. Þetta verður svolítið öðruvísi í sumar en nú eru nánast engir útlendingar hér á ferð. Við lítum á þetta sem tímabundið ástand”, sagði Guðbrandur Jóhannsson sem annast hefur FÍB-aðstoð á Höfn í Hornafirði og þar í grennd í yfir 15 ár.

Guðbrandur segir að þegar óskir berast um hjálp eru þær af ýmsum toga. Ökumenn hafa sett rangt eldsneyti á bílinn, dekk hefur sprungið og bílar hafa fest sig í snjó eða í drullu. Guðbrandur og félagar eru vel tækjum búnir og veita góða þjónustu þegar kemur að dekkjaskiptum og bílaflutningum.

Verður óvenjulegt sumar á margan hátt

„Kringumstæður eru allar breyttar þegar horft er til sumarsins. Núna verða fáir erlendir ferðamenn hér á ferð en þess heldur verður meira um Íslendinga. Við tökum nú þegar eftir því að Íslendingar eru í meira mæli á ferð um landið sitt. Það er mjög algengt að sjá vagna í eftirdragi og húsbíla, mun meira en áður. Þetta verður óvenjulegt á margan hátt í sumar en við hlökkum til sumarsins og erum alltaf til þjónustu reiðubúnir,“ sagði Guðbrandur Jóhannsson hjá FÍB-aðstoð á Höfn.

ALTERNATORAR & STARTARAR

Í FÓLKSBÍLA, JEPPA, VÖRUBÍLA OG VINNUVÉLAR

Bíldshöfði 14, 110 Reykjavík Sími: 553 1244 ljosboginn@ljosboginn.is www.ljosboginn.is

Á að aka erlendis?

Ekki gleyma alþjóðlega ökuskírteininu. Afgreitt samdægurs.

Nánari upplýsingar á FÍB.is

Notaðu FÍB afsláttinn!

Með því að sýna FÍB skírteinið hefur þú aðgang að fjölda afslátta um land allt. Nánar á FÍB.is

This article is from: