2.tbl. 2020
Á FERÐALAGI ÁHUGAVERÐIR STAÐIR Í ÖLLUM LANDSHLUTUM SJÁLFKEYRANDI
BÍLAR
RAUNVERULEIKI EÐA DRAUMUR?
REYNSLU AKSTUR TESLA 3 1
Mosfellsbæ Kirkjustétt Starengi Knarrarvogi Skúlagötu Háaleitisbraut
Bíldshöfða
Skeifunni
Öskjuhlíð
Sprengisandi
BYKO Breidd
Kópavogsbraut
Búðakór Akureyri (Glerártorgi og Baldursnesi)
Kaplakrika
Hafnarfjarðarhöfn
Egilsstöðum Fagradalsbraut 15
Stykkishólmi
Borgarnesi Mosfellsbæ Reykjavík Reykjanesbæ Hveragerði Selfossi
VELDU ÞÍNA STÖÐ! Akureyri - Glerártorgi Akureyri - Baldursnesi hjá BYKO Borgarnesi Hafnarfirði - Hafnarfjarðarhöfn Hafnarfirði - Kaplakrika* Hveragerði Kjalarnesi Kópavogi - Búðakór Kópavogi - Kópavogsbraut Kópavogi - Byko Breiddinni Mosfellsbæ
Reykjanesbæ - Stapabraut Reykjanesbæ - Hólagata Reykjavík - Bíldshöfða Reykjavík - Háaleitisbraut Reykjavík - Kirkjustétt Reykjavík - Knarrarvogi Reykjavík - Skeifunni Reykjavík - Skúlagötu Reykjavík - Sprengisandi* Reykjavík - Starengi Reykjavík - Öskjuhlíð Selfossi Stykkishólmi Egilsstöðum *afsláttarlaus stöð – okkar langlægsta verð.
ATLANTSOLÍA
FÍB
FÍB félagar eru í uppáhaldi hjá okkur og fá sérlega góð kjör með dælulyklinum, eða allt að 15 krónu afslátt á valinni Atlantsolíustöð.
2
Sæktu um lykil á www.fib.is og byrjaðu að spara.
MEIRA FYRIR
FÍB FÉLAGA
HJÁ ATLANTSOLÍU 15 kr
afsláttur
EF KEYPT ER 150 L EÐA MEIRA
EF KEYPT ER 150 L EÐA MINNA
12+3 KR 10+3 KR
3
Meirihluti þingmanna samþykkir einkavæðingu þjóðvega
ÚTGEFANDI: FÉLAG ÍSLENSKRA BIFREIÐAEIGENDA Ritstjóri Jón Kristján Sigurðsson Ábyrgðarmaður Runólfur Ólafsson Höfundar efnis Björn Kristjánsson Jón Kristján Sigurðsson Runólfur Ólafsson Grímur Axelsson Katrín Edda Þorsteinsdóttir Prófarkalestur Snorri G. Bergsson Ljósmyndir Björn Kristjánsson Jón Kristján Sigurðsson Grímur Axelsson Runólfur Ólafsson Forsíðumynd Inger Birta S. Pétursdóttir Umbrot/Auglýsingar Björn Kristjánsson bjorn@fib.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja UPPLAG 20.000 FÍB-blaðið kemur út þrisvar á ári og er innifalið í árgjaldinu. Árgjald FÍB er kr. 8.580.Heimilt er að vitna í FÍB blaðið í öðrum fjölmiðlum sé heimildar getið. FÉLAG ÍSLENSKRA BIFREIÐAEIGENDA Skúlagötu 19 101 Reykjavík Sími: 414-9999 Netfang: fib@fib.is Veffang: www.fib.is
4
Lög um samvinnuverkefni um samgönguframkvæmdir voru samþykkt á Alþingi 29. júní sl. 55.6% þingmanna samþykktu lögin, 30,2% greiddu ekki atkvæði, 8 þingmenn voru fjarverandi en aðeins einn þingmaður greiddi atkvæði gegn frumvarpinu. Lögin marka tímamót en meirihluti kjörinna fulltrúa er tilbúinn að einkavæða í áföngum þjóðvegi landsins. Stórauknar álögur munu leggjast á almenna vegfarendur. FÍB lagðist eindregið gegn samþykkt samvinnuverkefna laganna og færði fyrir því sterk rök með skriflegum athugasemdum, á fundum með þingnefnd og fréttatilkynningum. Lögin snúast um að fjárfestar fjármagni tiltekin umferðarmannvirki og fái í staðinn tekjur af notkun þeirra. Með aðkomu fjárfesta verða framkvæmdirnar hins vegar dýrari en ef ríkissjóður stendur að fjármögnuninni. Fjárfestar sem taka þátt í samvinnuverkefnunum þurfa að fá áhættuþóknun sem ríkið þarf ekki. Vegtollar eiga að standa undir endurgreiðslum og arðgreiðslum til fjárfestanna næstu 30 árin, með tilheyrandi innheimtukostnaði. Í skýrslu starfshóps samgönguráðherra um leiðir til fjármögnunar vegaframkvæmda frá apríl 2019 er eindregið mælt með því að ríkissjóður fjármagni flýtiframkvæmdir í vegamálum. Þar segir: „Æskilegt er ... að fjármagna flýtiframkvæmdir með viðbótar ríkisútgjöldum eða breyttri forgangsröðun í ríkisútgjöldum. Sú leið er hagkvæmari fyrir ríkið en aðrir kostir vegna lægri fjármagnskostnaðar.“ Fram kemur að vegna tilfærslu á áhættu og hærri fjármagnskostnaðar einkaaðila hafi
reynslan verið sú í Evrópu að samvinnuverkefni hafa kostað 20-30% meira en verkefni fjármögnuð með hefðbundinni aðferð, þ.e. af ríkissjóði. Fram kemur í skýrslunni að hugmyndir um aðkomu einkafjárfesta að vegaframkvæmdum séu til komnar vegna ósveigjanleika laga um opinber fjármál. Ósveigjanlegar fjármálareglur koma í veg fyrir nauðsynlegar framkvæmdir ríkisins. Til að komast fram hjá þessari metnaðarfullu spennitreyju er farið með verkefnin út fyrir sviga í stað þess að breyta fjármálareglunum. Verkefnin eru seld fjárfestum í stað þess að ríkið taki lán á lægstu fáanlegu vöxtum. Á endanum er það þó sama fólkið sem borgar, óháð því hvort kostnaðurinn fellur til hjá ríkisvaldinu eða einkafjárfestum. Greiðslan til þeirra síðarnefndu er hins vegar mun hærri. Kjörnir fulltrúar almennings á Alþingi samþykktu meðvitað að fara illa með almannafé og leggja óþarfa álögur á almenning. Blind trú á einkavæðingu réttlætir ekki þennan gjörning. Úrbætur í samgöngum koma sér vel fyrir alla, stuðla að auknum hagvexti, draga úr slysahættu og bæta nýtingu framleiðsluþátta samfélagsins. Vegtollar eru dýr og ómarkviss aðferð til að innheimta gjald af notkun ökutækja. Við erum bara um 370 þúsund sem byggjum þetta dreifbýla land. Einkavæðing þjóðveganna samræmist ekki þjóðarvilja en kjörnir fulltrúar virðast á öðru máli.
Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri
5
FÍB BLAÐIÐ Skipulagningar er þörf til að dreifa umferðinni betur Áhrifa Covid-19 mun gæta hér á landi áfram en ljóst er að það mun taka efnahagslífið langan tíma að ná fullum styrk á nýjan leik. Þegar á móti blæs hefur styrkur íslensku þjóðarinnar ávallt komið ljós og með samstilltu átaki munu hjól efnahagslífsins fara af stað. Það birtir upp um síðir. Þegar faraldurinn stóð sem hæst fór margt úr skorðum í umhverfi okkar og breyta þurfti mörgu frá grunni. Fjöldi fólks á vinnumarkaði fór að vinna heima, skólar lokuðu og tækni í fjarkennslu var nýtt til hins ýtrasta. Öll þessi breyting hafði gríðarlega áhrif á venjulegt líf fólks og varla sást maður á götum úti um langan tíma. Það hægðist á öllu og almenningur komst ekki hjá því að skipuleggja upp á nýtt allar hefðbundnar venjur sínar. Samdráttur í bílaumferð var gríðarlegur og hafa aðrar eins tölur í þeim efnum ekki sést áður. Umferðin á höfuðborgarsvæðinu í apríl var hátt í 30% minni en í apríl í fyrra og hefur aldrei mælst svo mikill samdráttur á svæðinu. Sömu sögu er að segja af umferð á hringveginum en á sumum svæðum minnkaði hún sem nam yfir 50%. Allt í einu var orðið lítið mál að fara á milli staða Gríðarlegi umferðarþunginn, sem flestir kannast við á höfuðborgarsvæðinu, þá alveg sérstaklega snemma á morgnana og síðdegis þegar fólk er að koma sér í og úr vinnu og skóla, var horfinn. Eins og hendi veifað tók orðið mun styttri tíma að koma sér í vinnuna. Allt í einu var orðið lítið mál að koma sér á milli en það tók áður langan tíma. Skaðinn sem Covid-19 olli verður seint bættur og margir eiga um sárt að binda. Getum við samt sem áður, þegar öllu er á botninn hvolft, dregið einhvern lærdóm af þessum skelfilega 6
faraldi. Getum við breytt og skipulagt hlutina til betra vegar frá því sem áður var. Umræðan um, hvort við getum bætt umferðarmenninguna og gert hana skilvirkari, minnkað umferðarþungann með öllum þeim töfum og slysahættu sem hann veldur, er þegar hafin. Það veit vonandi á gott að umræðan er farin af stað um hvernig tekist verður á við þessa þætti og þeim komið í betra horf en nú er. Eitt af því sem komið hefur til tals er hvort ekki sé hægt að dreifa umferðinni á bilinu 7–9 á morgna og síðdegis svo að hún gangi greiðlega fyrir sig. Til að það geti orðið hafa sumir bent á að skólar og önnur atvinnustarfsemi geti hafið starfsemi sína seinna á morgnana. Aðrir geta unnið vinnu sína hluta úr vikunni heima. Allt þetta myndi létta og dreifa umferðinni betur. Í dag fara flestir af stað og heim á sama tíma. Covid-19 hefur kennt okkur það að þurfum að skipuleggja og breyta ýmsu frá því sem áður var. Í allri þessari umræðu má ekki gleymast að gatnakerfið er fyrir löngu komið að fótum fram og á þeim vettvangi þarf heldur betur að taka til hendinni á næstu árum. Umræðan í það minnsta farin af stað Umræðan er í það minnsta komin af stað en við núverandi ástand er ekki hægt að búa við lengur. Við sáum það í Covid-19 að hægt er að gera umhverfið betra með breyttum og skipulegri hætti. Nú þurfa þeir aðilar sem koma að þessum málum að setjast niður og skoða málin með opnum huga. Það skiptir samfélagi okkar gríðarlegu máli að gott skipulag sé á þáttum sem snúa að umferðinni. Jón Kristján Sigurðsson Ritstjóri
Efnisyfirlit 8 Stafræn ökuskírteini 10 Samstöðufundur hjólafólks 11 Ábyrgð veghaldara 12 Þjónustuhús við þjóðveginn 14 Vegagerð fjárfesta 33% dýrari 15 Hleðslustöðvar í fjölbýlishúsum 16 Bílaumboðin sjá til sólar 18 Sjálfkeyrandi bílar - hver er staðan? 22 Á ferð um landið 23 Norðurland 26 Vesturland 30 Vestfirðir 32 Austurland 34 Suðurland 36 Reykjanes 38 Reynsluakstur Tesla Model 3 42 Reynsluakstur Renault Zoe 44 Mótorhjólaferð um Suður-Afríku 48 Eftirvagnar 51 Breikkun milli Hveragerðis og Selfoss 53 FÍB-Aðstoð Höfn
FERÐASUMARIÐ
MIKLA
VARAHLUTIR
FARANGURSBOX
ÞVERBOGAR
REIÐHJÓLAFESTINGAR
HLIÐARSPEGLAR
TRAPPA
DÚKUR Í FORTJALD
KÆLIBOX
BÓNVÖRUR
NEYSLUGEYMAR
HLEÐSLUTÆKI
STRAUMBREYTIR
DRÁTTARBEISLI
STÓRVERSLUN DVERGSHÖFÐA 2 110 REYKJAVÍK S. 535 9000
Vatnagarðar 12 104 Reykjavík S. 535 9000
Dalshrauni 17 220 Hafnarfirði S. 555 4800
Hafnargata 52 260 Reykjanesbæ S. 421 7510
Hrísmýri 7 800 Selfossi S. 482 4200
Furuvöllum 15 600 Akureyri S. 535 9085
Sólvangi 5 700 Egilsstöðum S. 471 1244
7
Stafrænt ökuskírteini í símann Frá og með síðustu mánaðarmótum var hægt að sækja um og fá stafræn ökuskírteini í símann. Hægt er að nálgast þau á upplýsingaveitunni Ísland.is með því að nota rafræn skilríki. Stafræna ökuskírteinið gengur hvort tveggja fyrir Android- og iOSstýrikerfi og góðar leiðbeiningar fylgja með umsóknarferlinu. Stafræn ökuskírteini verða jafngild hefðbundnum ökuskírteinum á Íslandi en megintilgangurinn er að notendur geti sannað ökuréttindi sín gagnvart lögreglu, að því fram kemur á veg ráðuneytisins. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra, Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, samgönguog sveitarstjórnarráðherra og Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri opnuðu formlega fyrir aðgang að nýju skírteinunum og urðu fyrst til þess að fá stafræn ökuskírteini í símann.
„Tilkoma stafrænna ökuskírteina var eitt af þeim málum sem ég hafði mikinn áhuga á að koma í gagnið strax og ég mætti í ráðuneytið. Það er því afar ánægjulegt að sjá það verða að veruleika,“ segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra. „Það er mikið framfaraskref að fá ökuskírteini í snjallsímann og veitir fólki augljós þægindi. Ísland er annað landið í Evrópu að taka í notkun stafræn ökuskírteini og fetum þar í fótspor Norðmanna. Þetta er stefna stjórnvalda að hið opinbera bjóði upp á stafrænar lausnir í auknum mæli,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. „Stafræn ökuskírteini eru áþreifanlegt skref í þá átt að gera þjónustu hins opinbera stafræna og aðgengilega. Flestir eru með símann á sér öllum stundum, en margir þekkja það að plastið gleymist. Þetta er því liður í að einfalda líf fólks, en það er eitt markmiða okkar með öllum þeim breytingum sem við erum nú að
gera á opinberri þjónustu gegnum Stafrænt Ísland, verkefnastofu fjármála- og efnahagsráðuneytisins,“ segir Bjarni Benediktsson, fjármálaog efnahagsráðherra. Hvernig sæki ég stafrænt ökuskírteini? •
Sótt er um stafræn ökuskírteini á vefnum Ísland.is þar sem notendur auðkenna sig með rafrænum skilríkjum. Með samþykki notenda fer sjálfvirkt umsóknarferli í gang og samstundis birtist tengill til að sækja skírteinið í símann.
•
Notendum Android-síma er bent á að sækja veski (e. Wallets) í símann áður stafrænu ökuskírteini er hlaðið niður.
•
Þeir sem hafa ekki endurnýjað ökuskírteini sín frá því fyrir árið 1998 þurfa að endurnýja þau hjá sýslumanni til að geta fengið stafrænt ökuskírteini í símann.
•
Einungis er hægt að hafa ökuskírteinið í einu símtæki. Ef það er sett upp á öðrum síma afvirkjast það í fyrsta tækinu.
•
Ökuskírteinin gilda aðeins á Íslandi.
Farsælt samstarf Verkefnastofan Stafrænt Ísland vann tæknilausn fyrir stafrænu ökuskírteinin í samstarfi við Ríkislögreglustjóra og dómsmálaráðuneytið. Innleiðingin var samstarfsverkefni samgönguog sveitarstjórnarráðuneytis, sem ber ábyrgð á umferðarlöggjöf og reglum um ökuskírteini, og dómsmálaráðuneytis, sem fer með málefni ríkislögreglustjóra og sýslumanna. Ríkislögreglustjóri gefur út stafræn ökuskírteini en sýslumenn gefa út hefðbundin prentuð ökuskírteini í umboði ríkislögreglustjóra. Ökuskírteini eru almennt viðurkennd gagnkvæmt milli EES ríkja en það gildir ekki um stafræn ökuskírteini, þar sem þau uppfylla ekki kröfur Evróputilskipunar um ökuskírteini. Þau verða aðeins gild á Íslandi fyrst um sinn.
8
Ný reglugerð um hjólbarðamerkingar Evrópuþingið í Strassborg samþykkti á vormánuðum nýja reglugerð um hjólbarðamerkingar fyrir bíla- og vörubílahjólbarða. Gamla reglugerðin um merkingar frá 2009 er þar með fallin úr gildi. Í tilkynningu um nýju reglugerð Evrópuþingsins kemur fram að vonast er til að nýja kerfið leiði til þess að koltvísýringslosun minnki umtalsvert. Nýja merkingaráætlunin fyrir hjólbarða er talin stuðla að aukinni neytendavakningu sem lítur að eldsneytissparnaði, bættu öryggi og minni hávaðamengun. Eftir því sem núningsmótstaða dekkjanna er minni því meiri nýtni verður á allri eldsneytisnotkun. Framleiðsla á hjólbörðum í dag miðar öll í þessa átt. Í nýju merkingunum koma fram upplýsingar um eldsneytisnýtni bílsins, grip á blautum vegi og ytri veltihljóð. Merkingar verða sýnilegri en áður fyrir neytendur þar sem dekkin eru keypt. Í reglugerðinni segir að nýja merkið sé skilvirkt, einfalt, stuðli að öryggi og hvetji til breytinga á hegðun í akstri. Reglugerðin tryggir enn fremur að neytendur fái skýrari og viðeigandi upplýsingar þegar þeir velja dekk undir bílana sína.
Hjólafólk verður að geta treyst vegum landsins Sniglar – Bifhjólasamtök lýðveldisins komu saman til fjölmenns samstöðufundar við húsnæði Vegagerðarinnar í Borgartúni. Efnt var til fundarins vegna banaslyss á Kjalarnesi 28. júní þar sem ökumaður og farþegi bifhjóls biðu bana í árekstri við húsbíl en orsakir slyssins eru raktar til hálku sem myndaðist á nýlögðu malbiki. Jokka G. Birnudóttir, gjaldkeri Sniglanna, las upp yfirlýsingu fyrir hönd bifhjólafólks á fundinum og í kjölfarið var mínútuþögn. Í yfirlýsingunni segir m.a. að þess sé krafist að hjólafólk hefði ástæðu til að geta treyst vegum landsins betur.
„Það er sorg í hjörtum hjólafólks í dag. Hörmulegur atburður hefur orðið til þess að öll sem eitt höfum við risið upp og segjum öll það sama; við erum búin að fá nóg. Hver einasta manneskja sem hefur notað mótorhjól getur sagt sögu af hálum veg-um, lausamöl ofan á malbiki, einbreiðum brúm, hvössum brúnum við ristahlið, sagt okkur sögur þar sem viðkomandi hefur nánast dottið, eða dottið og hlotið skaða af. Í mörg ár hefur verið bent á þetta, kvartað undan þessu, við ráðamenn þjóðarinnar, við Vegagerðina, við verktaka, en upplifun okkar er sú að það er ekki hlustað á okkur,“ sagði m.a. í yfirlýsingunni.
9
Ábyrgð veghaldara
þegar viðhaldi er ekki sinnt
Uppsöfnuð viðhaldsþörf vegakerfisins sem tengist skorti á fjárveitingum frá stjórnvöldum er ástæða slæms ástands vega víða um land. Vegir komu til að mynda illa undan síðasta vetri og mikið var um holur og hvörf í vegum. Auknar fjárheimildir til uppbyggingar og viðhalds duga ekki til að mæta vanrækslu liðinna ára. Nú er sá árstími og það tíðarfar sem eykur verulega hættu á holumyndunum á vegum. Í miklum umhleypingum og þegar þíða kemur í kjölfar frosts og kulda eykst hætta á því að holur myndist í bundnu slitlagi, malbiki og klæðingu. Vegfarendur eru því beðnir að sýna sérstaka árvekni og aka ætíð eftir aðstæðum.
hjólbarða, brotinna fjaðragorma og allskonar annarra skemmda á farartækjunum. Það er sannarlega mál að linni.
er almenningi til frjálsrar umferðar, sé við haldið með eðlilegum hætti miðað við þá umferð sem um hann fer.
Við uppbyggingu og lagfæringar vega eftir veturinn hafa komið fram gagnrýnisraddir um að sparnaður og ódýrari aðgerðir við viðhaldið hafi komið illa við vegfarendur. Töluvert hefur verið um notkun holubóta og fyllingu hjólfara á verstu stöðunum í stað þess að endurnýja slitlagið. Á fáum árum verður vegakerfið ósléttara og ójafnara sem eykur álag á ökutæki og dregur verulega úr akstursgæðum og öryggi vegfarenda.
Jóhann Fannar Guðjónsson, lögfræðingur FÍB, var inntur eftir því hver ábyrgð veghaldara væri þegar viðhaldi væri ekki sinnt sem skildi og hvort það hafi áhrif á ábyrgð hans þegar það er viðurkennt að ástandið sé mun verra vegna þess að fjárskortur hefur hindrað eðlilegt viðhald sem leiði til meiri vandamála vegna mikils niðurbrots og holumyndana?
Hver er réttarstaða bíleigenda vegna tjóna sem tengjast ástandi vega? Sú spurning hlýtur að vakna hver réttarstaða bíleigenda sé vegna tjóna sem tengjast ástandi vega. Í lögum kemur fram að veghaldari beri ábyrgð á því að vegi, sem opinn
Jóhann Fannar benti á að um skyldur veghaldara fari skv. ákvæðum vegalaga nr. 80/2007. Þar sé meðal annars kveðið á um skyldur til viðhalds vega í 43. gr. laganna. Í 1. mgr. 43. gr. laganna komi fram að veghaldari beri ábyrgð á því að vegum, sem opnir eru almenningi til frjálsrar umferðar, sé við haldið með eðlilegum hætti miðað við þá umferð sem um þá fer. Í 2. mgr. 43. gr. sé síðan kveðið
Það getur tekið skamman tíma fyrir holu að myndast, jafnvel djúpa holu sem getur leitt til tjóns. Starfsmenn þjónustustöðva veghaldara fylgjast með eins og kostur er og bregðast við ábendingum um holur. Vegagerðin leitast við að bregst við með viðgerð sem allra fyrst. Þrátt fyrir góðan vilja dugar þetta ekki alltaf til og allt of margir bíleigendur hafa ekið í djúpar holur með alvarlegum afleiðingum. Inn til FÍB berast tilkynningar og ábendingar frá fólki vegna sprunginna og tættra 10
Mynd: Vegagerðin - Ómar Kristófersson
á um veghaldari skuli svo fljótt sem við verður komið, eftir að hann fær vitneskju um skemmdir í vegi sem hættulegar eru umferð, láta gera við þær eða merkja hina hættulegu staði þar til viðgerð hefur farið fram. Í 46. gr. laganna kemur auk þess fram að veghaldari beri ábyrgð á því að vegir sem opnir eru almenningi til frjálsrar umferðar skuli uppfylla kröfur sem gerðar eru með tilliti til öryggis umferðar og ástands vega. Þyki sannað að veghald samræmist ekki þeim skyldum sem vegalög leggja á herðar veghöldurum felist í því vanræksla sem verði ekki afsökuð með fjárskorti, enda gildi ákvæði laganna og skyldur óháð fjárreiðum hverju sinni. Í ljósi þess að um lögbundnar skyldur sé að tefla getur slíkt, að öðrum skilyrðum uppfylltum, leitt til bótaskyldu veghaldara. Bendir hann í því sambandi á að samkvæmt 56. gr. vegalaga beri veghaldari vegar, sem opinn er almenningi til frjálsrar umferðar, ábyrgð á tjóni sem hlýst af slysi á veginum þegar það megi rekja til gáleysis veghaldara við veghaldið og sannað sé að vegfarandi hafi sýnt af sér eðlilega varkárni. FÍB stendur vörð um hagsmuni bifreiðaeigenda vegna tjóna sem reka má til athafnaleysis veghaldara. Félagsmenn í FÍB hafa sett sig í samband við skrifstofu félagsins ogsegjast nú þegar hafa orðið varir við holumyndanir. Þetta eigi bæði við hér á höfuðborgarsvæðinu og víðar um land. Vegfarendur eru því beðnir að sýna sérstaka árvekni og aka ætíð eftir aðstæðum. FÍB vinnur að uppsetningu á vefsíðu sem fer í loftið á næstunni þar sem vegfarendur geta komið ábendingum um holur á framfæri.
Ákvæði vegalaga nr. 80/2007 sem vísað er til í þessari frétt: 43. gr. Viðhald vega. Vegskemmdir. Veghaldari ber ábyrgð á því að vegi, sem opinn er almenningi til frjálsrar umferðar, sé við haldið með eðlilegum hætti miðað við þá umferð sem um veginn fer. Veghaldari skal svo fljótt sem við verður komið eftir að hann hefur fengið vitneskju um skemmdir á vegi, sem hættulegar eru umferð, láta gera við þær eða merkja hina hættulegu staði þar til viðgerð hefur farið fram og skulu merkingar vera í samræmi við ákvæði umferðarlaga. 46. gr. Almennt. Vegir sem opnir eru almenningi til frjálsrar umferðar skulu uppfylla kröfur sem gerðar eru með tilliti til öryggis umferðar, ástands vega, merkinga og annarra þátta sem kveðið er á um í lögum þessum og ber veghaldari ábyrgð á því. 56. gr. Bótaábyrgð veghaldara. Veghaldari vegar sem opinn er almenningi til frjálsrar umferðar ber ábyrgð á tjóni sem hlýst af slysi á veginum þegar tjónið er að rekja til gáleysis veghaldara við veghaldið og sannað er að vegfarandi hafi sýnt af sér eðlilega varkárni.
11
Þjónustuhús við þjóðveginn Í lok janúar 2020 opnuðu Sannir landvættir þjónustuhús fyrir ferðamenn við Laufskálavörðu í Skaftárhreppi, við vegamótin að Hrífunesi. Við húsið er nýtt og stærra bílastæði en áður var á svæðinu og er ekið inn á það af Hrífunesvegi (209). Húsið er hannað af Stáss arkitektum 2019 og smíðað af félaginu Fjölur ehf. Húsið og bílastæðið er hugsað sem áningarstaður fyrir ferðamenn á leið um Suðurland og í því eru tvö salerni og eru þau með gjaldtökubúnaði. Einnig er gert ráð fyrir að í húsinu verði þvottavél og þurrkari svo að ferðamenn geti skellt í vél og þurrkað á meðan þeir njóta fagurs útsýnis á staðnum og fá sér nesti. Á þaki hússins er útsýnispallur Við húsið verða borð sem hægt verður að nota til að borða nesti og hugsanlega verður einnig staðsettur vagn sem selur götubita á bílaplaninu hluta úr ári. Þá verður
einnig aðstaða fyrir hjólreiðamenn að dytta að hjólum sínum. Á vesturhlið hússins, sem snýr að Mýrdalsjökli, er bekkur þar sem ferðamenn geta sest og notið fagurrar fjallasýnar og á austurhliðinni er neysluvatnskrani til að fylla á brúsa og flöskur. Á þaki hússins er svo útsýnispallur en af þakinu er víðsýnt og sést Lómagnúpur og Öræfajökull þegar skyggni er gott og einnig Mýrdalsjökull og Skaftártunga. Salernin eru með snertilausum blöndunartækjum með sambyggðum handblásara og sápuskammtari er einnig snertilaus. Annað salernið er með aðgengi fyrir alla, þá sem eru hreyfihamlaðir og aðra sem þurfa slíka aðstöðu. Gjaldið er 200 krónur fyrir notkun og gjaldtökubúnaðurinn tekur við debet- og kreditkortum, auk myntar. Einnig er hægt að greiða með snjallsímum s.s. Apple pay. Í framtíðinni er stefnt að því að á bílastæðið komi hleðslustöðvar fyrir rafbíla.
Félagar í FÍB verði duglegir að nýta sér aðstöðuna Starfsemin var rétt hafin þegar Covid–19 faraldurinn skall á þannig að hrun varð í fjölda ferðamanna. Því hefur notkun verið undir væntingum en vonir standa til að það breytist með vaxandi ferðamannastraumi. Við sjáum t.d. að íslenskir ferðamenn taka þessu framtaki vel og höfum við almennt fengið góð viðbrögð, bæði yfir þjónustunni og einnig fengið hrós fyrir húsið, að það sé vel heppnað og íslensk hönnun. Það er von okkar hjá Sönnum landvættum að félagar í FÍB taki okkur vel og verði duglegir að nýta sér aðstöðuna. Ef rekstur þessa húss gengur vel má reikna með að sambærileg þjónustuhús rísi víðar við þjóðvegi því að þörfin er vissulega fyrir hendi.
Þjónustuhús fyrir ferðamenn við Laufskálavörðu í Skaftárhreppi, við vegamótin að Hrífunesi. 12
Má bjóða þér 40% afslátt í hraðhleðslu? ON-lyklahafar með heimili eða fyrirtæki í viðskiptum fá afslátt í öllum hraðhleðslum Kynntu þér allt um málið á www.on.is
Hringinn í kringum landið! Bæjarhálsi 1 ∙ 110 RVK ∙ Sími: 591 2700 ∙ on@on.is ∙ www.on.is ∙ @orkanatturunnar
13
Vegagerð fjárfesta 33% dýrari en hjá ríkissjóði Samkvæmt útreikningum FÍB er 33% dýrara að fela fjárfestum að sjá um vegaframkvæmdir heldur en ríkinu. Munurinn felst í hærri fjármagnskostnaði einkafjárfesta og kostnaði við innheimtu vegtolla. Vegna þessa hærri kostnaðar hefur FÍB lýst sig andsnúið frumvarpi samgönguráðherra um samvinnuverkefni í vegaframkvæmdum. Þar er gert ráð fyrir að einkaaðilar annist flýtiframkvæmdir í vegagerð að hluta eða öllu leyti og fái greitt fyrir með innheimtu vegtolla. FÍB styður flýtiframkvæmdir til jafns við aðrar vegaframkvæmdir en telur hins vegar rangt að leggja stórauknar álögur á vegfarendur til þess eins að ríkisvaldið geti tekið slíkar framkvæmdir út fyrir sviga í bókhaldi sínu. FÍB bendir á að í skýrslu starfshóps samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins um leiðir til fjármögnunar vegaframkvæmda, sem kom út í apríl 2019, er eindregið mælt með því að ríkissjóður fjármagni flýtiframkvæmdir í vegamálum. Þar segir: „Æskilegt er að mati starfshópsins að fjármagna flýtiframkvæmdir með viðbótar ríkisútgjöldum eða breyttri forgangsröðun í ríkisútgjöldum. Sú leið er hagkvæmari fyrir ríkið en aðrir kostir vegna lægri fjármagnskostnaðar.“
einkafjárfesta. Sá kostnaður nemur milljörðum króna á þeim 30 árum sem fyrirhugað er að innheimtan standi yfir og bætist við framkvæmda- og lántökukostnað. Ekki aðeins það, heldur er 11% virðisaukaskattur lagður ofan á vegtollana. Á hvern milljarð króna í vegtollum bætast við rúmar 100 milljónir í virðisaukaskatt. Ótalin er jafnframt krafa framkvæmdaraðilans sem tekur lánið um arð og áhættuþóknun. Sá kostnaður er ekki einu sinni tekinn með í þessum útreikningum, þannig að 33% er lágmark í þessari umræðu. Engin þörf er á vegtollum ef ríkisvaldið annast framkvæmdirnar, enda leggur ríkið skatta á ökutæki og umferð. Framkvæmdirnar skila beinum arði í ríkissjóð með fækkun slysa, umhverfisávinningi og betri framlegð með tímasparnaði. Útreikningar FÍB Í umsögn við frumvarp um samvinnuverkefni í vegaframkvæmdum sýnir FÍB dæmi um mismun á kostnaði við fimm af þeim sex verkefnum sem nefnd eru sem möguleg flýtiverkefni. Sundabraut er undanskilin í þeim útreikningum. Áætlaður
Í skýrslu starfshópsins segir að vegna tilfærslu á áhættu og hærri fjármagnskostnaðar einkaaðila hafi reynslan verið sú í Evrópu að samvinnuverkefni hafa kostað 20– 30% meira en verkefni fjármögnuð með hefðbundinni aðferð, þ.e. af ríkissjóði. Útreikningar FÍB staðfesta þetta. Þá kemur fram í skýrslunni að reikna megi með að innheimtukostnaður verði um 10% af vegtollum Malbikun á Hellisheiði Mynd: Vegagerðin 14
framkvæmdakostnaður þessara fimm verkefna er 44,3 milljarðar króna. Gert er ráð fyrir að ríkisvaldið komi að verkefnunum að hluta, einkum þar sem umferð er lítil. Í eftirfarandi útreikningum FÍB er gert ráð fyrir að hlutur ríkisins verði 16% og hlutur einkafjárfesta 84%. Meðal annars er gert ráð fyrir að einkafjárfestar standi alfarið að tvöföldun Hvalfjarðarganga. Forsendur útreikninganna eru að ríkissjóður taki framkvæmdalán til 30 ára á 2,23% vöxtum og að vextir lána til einkafjárfesta (líklegast frá lífeyrissjóðum) verði 4,5% á þessum 30 árum. Ef ríkissjóður fjármagnar framkvæmdirnar að öllu leyti verður heildarkostnaður rúmir 60 milljarðar króna. Ef ríkissjóður fjármagnar framkvæmdirnar að hluta á móti einkafjárfestum, t.d. 16% á móti 84%, verður heildarkostnaður u.þ.b. 80 milljarðar króna. Þar af er kostnaður við hlut einkafjárfesta u.þ.b. 70,4 milljarðar króna að meðtöldum innheimtukostnaði vegtolla og kostnaður við hlut ríkisins 9,7 milljarðar króna. Vegfarendur munu því þurfa að greiða 20 milljörðum króna meira fyrir þessar fimm flýtiframkvæmdir ef þær verða á vegum einkafjárfesta.
Einfaldar alla umgjörð varðandi hleðslustöðvar í fjölbýlishúsum Ríkisstjórnin hefur samþykkt frumvarp Ásmundar Einars Daðasonar, félags- og barnamálaráðherra, um breytingar á lögum um fjöleignarhús með það að markmiði að liðka fyrir rafbílavæðingu landsins í samræmi við stefnu stjórnvalda um orkuskipti. Frumvarpinu er ætlað að draga úr óvissu varðandi þær reglur sem gilda um hleðslubúnað fyrir rafbíla í fjöleignarhúsum. Í frumvarpinu kemur fram að það muni einfalda alla umgjörð varðandi hleðslustöðvar í fjölbýlishúsum og afnema hindranir sem hafa verið til staðar. Til dæmis mun eigandi íbúðar almennt ekki þurfa að fá samþykki annarra eigenda til þess að koma upp hleðslubúnaði fyrir rafbíla, nema það leiði til þess að meira en helmingur bílastæða verði eingöngu til notkunar fyrir rafbíla. Hleðslubúnaður og annar tengibúnaður skuli uppfylla allar þær kröfur sem til hans eru gerðar, meðal annars þá að löggiltur rafverktaki annist uppsetningu á hleðslubúnaðinum. Gert er ráð fyrir að eigandi beri kostnað af uppsetningu hleðslubúnaðar við fjölbýlishús, sé um séreign hans að ræða. Þar sem um sameign er að ræða er hins vegar gert ráð fyrir sameiginlegum kostnaði allra þeirra eigenda sem hafa heimild til afnota af viðkomandi bílastæði, hvort sem það er áfram nýtt sem almennt bílastæði eða eingöngu til hleðslu rafbíla. Minni hluti eigenda getur í undantekningartilfellum krafist þess að framkvæmdum verði frestað í allt að tvö ár á meðan safnað verði fyrir þeim í sérstakan framkvæmdasjóð. Þá hafa húsfélög heimild til að krefjast hóflegrar mánaðarlegrar þóknunar frá þeim eigendum sem nýta hleðslubúnað fyrir rafbíla.
Haft er eftir Ásmundi Einari Daðasyni ráðherra á vef Stjórnarráðsins að rafmagnsbílar verði sífellt algengari á götum landsins og það væri svo sannarlega kominn tími til að gera breytingar á lögunum til þess að endurspegla það betur. Við værum á miðri leið inn í orkuskiptin og þessi breyting sé ein af mörgum vörðum á þeirri leið.
Græn bílafjármögnun Við fellum niður lántökugjöld á lánum vegna kaupa á umhverfisvænni bílum. Kynntu þér græna bílafjármögnun Arion banka.
arionbanki.is
15
Bílaumboðin segjast vera farin að
sjá til sólar Bílamarkaðurinn hér á landi og annars staðar í heiminum hefur fengið að kenna á kórónuveirufaraldrinum. Samdráttur í nýskráningum fólksbifreiða eru í kringum 45% á Íslandi en aftur á móti er niðursveiflan sums staðar í Evrópu töluvert meiri. Það sem af er árinu eru nýskráningar hér á landi um 4000 en ljósið í myrkrinu er að sala á notuðum bílum er nokkurn veginn á pari við sama tíma á síðasta ári. Bílaframleiðendur hafa farið í gegnum miklar hremmingar og eftirspurnin hefur farið niður úr öllu valdi. Staðfestar tölur frá Kína sýna að bílamarkaðurinn þar er að rétta úr kútnum en niðursveifla í efnahagslífi og síðan kórónaveiran hefur leikið stærsta bílamarkað heims grátt síðustu misseri. Í maímánuði var sala á bílum í Kína um 14,5% meiri en í sama mánuði í fyrra. Í apríl jókst salan um 4,4% og eru þetta fyrstu merkin um að betri tímar séu í nánd eftir tveggja ára niðursveiflu. Það segir sína sögu hve kórónaveiran hefur leikið bílaframleiðendur grátt en í aprílmánuði einum voru aðeins framleiddir 197 bílar í bílaverksmiðjum á Bretlandseyjum. Hafa verður í huga að bílaverksmiðjur hafa að mestu verið lokaðar eða starfsemin í lágmarki. Í sama mánuði 16
fyrir ári síðan voru framleiddir 71 þúsund bílar að sögn breskra bílaframleiðenda. Bílasala fyrsta ársfjórðung þess árs í Evrópu dróst saman um 74%. Bílasalan nær yfir 27 aðildarríki Evrópusambandsins auk Bretlands, Noregs, Sviss og Íslands. Bílaumboðin hér á landi eru þó sammála um að þau séu að ganga í gegnum undarlega tíma. Jóhann Ingi Magnússon, vörumerkjastjóri hjá Heklu, segir að niðursveifla um 3040% í nýjum bílum sé auðvitað högg. Á sama tíma hefði salan í notuðum bílum verið ágæt.
krónunnar stórt hlutverk. Samdráttur var farinn að gera vart sig í fyrra eftir einstakt söluár 2018. Við vonum að það fari að rætast úr hlutunum og markaðurinn rétti úr kútnum þegar fram í sækir,“ segir Jóhann Ingi Magnússon hjá bílaumboðinu Heklu. Í rétta átt en gerist ekki í stórum stökkum Páll Þorsteinsson, upplýsingafulltrúi Toyota, sagði að almennt séð hefðu eigendur í þessu óvenjulega ástandi sinnt vel þjónustuþættinum sem snýr að bílunum. Auðvitað dró úr sölu á nýjum bílum eins og tölur gefa til kynna en sala á notuðum hefur verið lífleg.
Markaðurinn réttir úr kútnum þegar fram í sækir „Við merkjum það að markaðurinn er eitthvað að taka við sér og við erum bjartsýnir á framhaldið. Það eru erfiðir
tímar í gangi og þrátt fyrir allt var niðursveiflan meiri í bankahruninu hér um árið. Það eru alltaf sveiflur á þessum markaði og þar leikur gengi
„Við sjáum teikn á lofti um að allt sé að fara í gang á nýjan leik og sala í nýjum bílum er að fara af stað. Þetta er í rétta átt en það mun ekki gerast í stórum stökkum. Stjórnvöld hafa staðið sig vel í Covid-19 og það hefur hjálpað okkur að komast inn á réttar brautir. Við hér hjá Toyota horfum með björtum augum á framhaldið,“ sagði Páll Þorsteinsson hjá Toyota í samtali við FÍB-blaðið.
Sjáum fram á bætta og betri tíma „Það hefur hjálpað mikið til í þessu óvenjulega ástandi að sala í notuðum bílum hefur verið góð. Fólk ákvað að fara þessa leið í endurnýjun á bílnum í stað þess að kaupa nýjan. Nú hins vegar sjáum við fram á betri tími og erum satt best að segja farnir að sjá til sólar. Við finnum að fólk er farið að hugsa sér til hreyfings í kaupum á nýjum bíl,“ sagði Hjalti Harðarson, markaðsstjóri hjá bílaumboðinu Öskju. Hjalti sagði að Covid-19 hefði ekki bara komið niður í sölunni í nýjum bílum heldur sett ýmsa aðra þætti úr skorðum og benti þar m.a. á afhendingartíma í þeim efnum.
„Núna sjáum við fram á bætta og betri tíma. Fyrstu þrjár vikurnar í júní vorum við að selja betur í flestum vörumerkjum en allan maímánuð. Þetta eru merki um að við séum að rétta úr kútnum. Það verður hins vegar eitthvað lengra í það að við verðum komin á eðlilegan stað, ef við
getum sagt svo,“ sagði Hjalti Harðarson hjá bílaumboðinu Öskju í spjalli við FÍB-blaðið. „Það verður að segjast eins og er að þetta er búið að vera ansi strembið. Mars, apríl og inn í miðjan maí var ástandið þungt. Þegar þríeykið svokallaða fór að aflétta ýmsum þáttum í Covid-19 fór að lifna yfir hlutunum jafnt og þétt. Sala í notuðum bílum tók mikinn kipp í maí og þá var salan 60% meiri en í sama mánuði í fyrra. Sala í nýjum bílum hefur verið í rólegri kantinum en hún er upp á við,“ sagði Egill Jóhannsson forstjóri Brimborgar. Egill sagði farið að rofa til. Þar kemur ýmsilegt til, eins og að vextir hafa aldrei verið lægri, fólk ætlar að ferðast meira innanlands í sumar en áður og fjárfestir í notuðum bílum meira en áður. Covid-19 hefur breytt hugsunarhætti, fólk skoðar og skipuleggur áætlanir sínar og kaup í meira mæli á Netinu. „Það er jákvæð þróun í gangi og við erum að forselja meira en áður. Fólk notar Netið, sendir fyrirspurnir og skoðar málin vel áður en ákvarðanir eru teknar. 85% nýrra bíla sem koma á næstu 30 dögum eru seldir og það er breyting frá því sem áður var. Já, ég held að við séum farin að sjá til sólar,“ sagði Egill Jóhannsson hjá Brimborg.
Við komum aftur sterkir til baka „Að sjálfsögðu setti þetta ástand veigamikla þætti úr skorðum. Í grunninn erum við vanir sveiflum í þessum bransa en við nálgumst þetta ástand af æðruleysi og með bjartsýni að vopni. Við komum aftur sterkir til baka,“ sagði Brynjar Elefsen Óskarsson, framkvæmdastjóri sölusviðs BL, í spjalli við FÍB-blaðið. Brynjar sagði að í Covid-19 hefði vinnutilhöguninni verið breytt að mestu og lögð þung áhersla á að gæta að öryggis starfsmanna og viðskiptavina. Rekstur verkstæðisins hefði gengið vel og þar eiga starfsmenn þakkir skildar.
„Salan frá páskum hefur verið upp á við og þá alveg sérstaklega í notuðum bílum. Salan í maí og júni var svipuð og á sama tíma í fyrra. Haustið er í meiri óvissu, við vitum ekki með takmarkanir ef faraldurinn fer aftur af stað. Við vonum að til þess komi ekki en annars erum við bjartsýn á komandi tíma,“ sagði Brynjar Elefsen Óskarsson.
17
Sjálfkeyrandi bílar
Raunveruleiki eða fjarlægur draumur? hafa menn verið mjög vongóðir og spenntir en tíminn líður og fólk verður æ tortryggnara á að þessi draumur verði að veruleika í þeirri mynd sem það gerði sér í upphafi.
Katrín Edda Þorsteinsdóttir Vélaverkfræðingur hjá Bosch í hugbúnaðarþróun fyrir sjálfkeyrandi bíla Allt frá dögum iðnbyltingar hefur draumur mannsins um að vélaraflið leysti manneskjuna undan oki handaflsins verið smám saman að rætast. Við höfum séð töfraorðin auto og magic (sjálft og töfrar) í hillingum framtíðarinnar og sannarlega væru hinar ýmsu sjálfvirku vélar nútímans sannkallaðar galdramaskínur í augum fyrri tíðar manna. Þegar fyrstu bifreiðirnar litu dagsins ljós, og hvorki hestar né menn þurftu lengur að draga vagninn fékk fyrirbærið latneska heitið automobile, það sem hreyfist sjálft, og var svo skemmtilega þýtt beint á íslensku með sjálfrennireið. Ekki hvarflaði að nokkrum manni að fyrirbærið gæti stjórnað sér sjálft. Síðustu áratugi hefur tækninni hins vegar fleygt fram á ofurhraða og virðist sem mannsandanum og tækninni séu engin takmörk sett. ,,Skreppum til tunglsins, kíkjum á mars. Ég má ekkert vera að því að keyra bílinn, látum tölvuna um það, þá get ég gert eitthvað skemmtilegt á meðan.“ Já, því ekki það. Nú á dögum eru sjálfkeyrandi bílar mikið í umræðunni. Hvenær koma þeir? Hverjir verða fyrstir? Bandaríkjamenn, Þjóðverjar, Kínverjar? Þótt köldu stríði sé formlega lokið milli austurs og vesturs og Sovét ekki lengur með í kapphlaupinu, vilja flestir verða fyrstir. Allt frá því fyrir aldamót 18
Sjálfvirkur bíll er öllu hættulegri umhverfi sínu en sjálfvirk þvottavél. Menn eins og Elon Musk framkvæmdastjóri Tesla lofuðu ýmsu upp í ermina og sáu fyrir sér að árið 2020 yrði alvanalegt að sjá sjálfkeyrandi bíla aka um á götunum. Sú er ekki raunin og koma margir þættir í veg fyrir það. Minnsta málið er að kenna bifreiðunum, eða tölvunum í þeim, að keyra, læra að
hver ber ábyrgðina? Tesla var ábyrgt fyrir fimm af þessum sex dauðsföllum og lýsti fyrirtækið því yfir að slysin væru öll vegna mannlegra mistaka. Þýskir framleiðendur, sem fara öllu varlegar en Bandaríkjamenn, hafa hins vegar gagnrýnt Tesla fyrir að hafa sett bíla á markað sem voru ekki nægilega vel prófaðir. Þrátt fyrir miklar efasemdarraddir er þó víst að tæknin bakvið sjálfkeyrandi bíla býður upp á ótrúlegan ávinning fyrir samfélagið og má þar helst nefna bætt umferðaröryggi. Rannsóknir hafa sýnt fram á að 94% árekstra megi rekja til mannlegra
5 stig sjálfstýringar Þegar talað er um sjálfkeyrandi bíla er bíllinn yfirleitt ekki skilgreindur sem annaðhvort sjálfkeyrandi eða alls ekki, heldur er sjálfstýringin breytilegur skali frá handstýrðum til fullkomlega sjálfstýrðs bíls. Hin alþjóðlegu samtök verkfræðinga, SAE, hafa þróað flokkunarkerfi sem skiptir sjálfstýringu niður í fimm mismunandi stig (sex ef núllta stigið er tekið með en þá er engin sjálfstýring til staðar). Flestir bílar sem keyra um á götum í dag eru annaðhvort á stigi núll eða stigi eitt en nýjustu bílarnir ná yfirleitt til annars stigs.
þekkja umferðarreglurnar o.þ.h. Það er hins vegar ófyrirsjáanleiki mannskepnunnar sem tölvunum gengur illa að skilja. Menn segja að tölvur séu klárari menn, eins og oft hefur sýnt sig t.d. á skákmótum og því hljóti að vera hægt að kenna þeim allt það sem menn kunna. Og hvernig gengur það? Hvernig er hægt að tryggja að öll tilvik sem mögulega geta komið fyrir í raunveruleikanum séu fyrirséð og tölvan kunni að bregðast rétt við þeim? Margir eru tortryggnir gagnvart sjálfstýrandi tækninni og ekki bætir úr skák að sex dauðsföll hafa orðið við prófanir á tækninni. Og
mistaka og getur öryggisbúnaður eins og sjálfvirk neyðarhemlun komið í veg fyrir fjölmarga af þessum árekstrum og bjargað mannslífum. Auk bætts öryggis munu sjálfkeyrandi strætisvagnar og leigubílar verða ódýrari þar sem ekki þarf að borga launakostnað og þeir létta jafnframt á umferð þar sem einkabílum mun fækka. Blindir og fatlaðir gætu farið allra sinna ferða og land undir bílastæði minnka. En nú spyrja margir: Hvar erum við stödd í dag og hvenær er eiginlega von á þessum sjálfkeyrandi bílum?
Stig 1 – Aðstoð við ökumann (e. driver assistance) Ökumaður er við stjórn allan tímann og sér sjálfur um verkefni akstursins (bremsa, stýra, auka hraðann). Einstaka stýrikerfi, nefnd ADAS-kerfi (e. advanced driver-assistance system), geta aðstoðað ökumanninn við ákveðin akstursverkefni. Dæmi um fyrsta stigs stýrikerfi er aðlögunarhæfur hraðastillir (ACC – adaptive speed limiter) sem viðheldur öruggri fjarlægð við næsta bíl eða veglínuskynjari (LKA – Lane Keep Assist) sem varar ökumanninn við ef bíllinn fer yfir á rangan vegarhelming eða út í kant. Á stigi 1 getur einungis eitt kerfi getur unnið í einu. Stig 2 – Sjálfstýring að hluta Ökumaður er við stjórn allan tímann en stýrikerfið sér að miklu leyti um að stýra bílnum og auka og draga úr hraða án inngrips ökumanns. Hér geta fleiri kerfi unnið á sama tíma og í ákveðnum aðstæðum getur bíllinn haldið sér innan akreina, bremsað og aukið hraða en ökumaðurinn þarf þó alltaf að vera viðbúinn að taka við stjórninni. Stýrikerfi sem aðstoðar við að leggja í stæði (e. parking assist) eða autopilot-kerfi sem finna má t.d. í Tesla og MercedesBenz eru dæmi um annars stigs stýrikerfi.
Stig 3 – Skilyrt sjálfstýring Ökumaður getur litið frá akstri og þarf ekki lengur að fylgjast með umhverfinu eins og á stigi 1 og 2 heldur sér stýrikerfið um það sjálft. Hann þarf þó að geta tekið við stjórn við tilteknar aðstæður og er ábyrgur fyrir árekstrum eða skemmdum ef hann nær því ekki. Dæmi um þriðja stigs stýrikerfi er sjálfstýring í umferðarteppu (Traffic Jam Pilot).
Stig 4 – Mikil sjálfstýring Ökumaður er hér óþarfur og stýrikerfið getur séð algjörlega um aksturinn sjálft en er takmarkað við ákveðnar aðstæður. Farþegar geta eytt tíma sínum eins og þeir vilja og ef kæmi til áreksturs eða skemmda bera þeir enga ábyrgð heldur framleiðandi bílsins. Ef bíllinn getur ekki skynjað umhverfi sitt eins og í slæmu veðri getur stýrikerfið fært bílinn í öruggt ástand eins og að leggja honum til hliðar. Leigubílaþjónusta sem einungis fer innan afmarkaðs svæðis er dæmi um fjórða stigs sjálfstýringu.
Stig 5 – Full sjálfstýring Stýrikerfið í bílnum sér um allan akstur í öllum aksturs- og veðuraðstæðum.Hér er enginn ökumaður lengur og því engin þörf á stýri. Framleiðandinn ber ábyrgð á árekstrum og slysum.
19
Hvernig virka sjálfkeyrandi bílar? Sjálfkeyrandi stýrikerfi bifreiða þurfa að skynja umhverfið, finna út nákvæma staðsetningu þeirra á veginum og ákveða hvernig skuli bregðast við í ákveðnum aðstæðum. Bíllinn notast við mismunandi skynjara, myndavélar, GPSstaðsetningartæki og gervigreind til þess að reikna út umhverfi sitt og taka ákvarðanir. Margar mismunandi gerðir af skynjurum eru notaðar þar sem hver og ein gerð hefur eigin kosti og galla. Myndavél skynjar til dæmis liti og sér hluti mjög vel en um leið og dimmir hefur hún enga virkni lengur. Þá koma radarskynjarar sér vel en þeir virka mjög vel í myrkri til þess að reikna út vegalengdir og hraða en búa hins vegar ekki yfir góðri upplausn. Með því notast við samsetningu af myndavél, lidarskynjara, radar og úthljóðsskynjara er hægt að tryggja að umhverfið sé allt rétt skynjað og réttar ákvarðanir séu teknar. Lidarskynjarar eru leiserskynjarar sem geta skynjað og mælt mjög langa vegalengd en eru hins vegar dýr tæki. Tesla er eini framleiðandinn
í þróun sjálfkeyrandi bíla sem ekki notast við lidar og segir Elon Musk þá vera óþarfa, eða eins og hann orðaði það sjálfur: „Everyone relying on Lidar is doomed“, (allir sem treysta á lidar eru glataðir) og er þeim orðum beint gegn skoðunum allra annarra fagmanna í þróun sjálfkeyrandi bíla. Elon Musk væri þá ekki að koma í fyrsta sinn með ögrandi staðhæfingar en árið 2016 lofaði hann á fjölmiðlafundi að í árslok 2017 skyldi Tesla koma með fullkomlega sjálfkeyrandi ökutæki og það aka sjálft alla leið frá Los Angeles til New York. Enn í dag hefur það ekki gerst og hefur það vakið upp spurningar hjá almenningi. Hvaða ljón standa í veginum? Það eru margar ástæður fyrir því að það er hægara sagt en gert að hanna og leyfa sjálfkeyrandi bíla fyrir almenning. Til að mynda má nefna siðferðilegu hliðina þegar bíllinn sér um að taka ákvarðanir en ekki ökumaðurinn. Hvað ef slys er óumflýjanlegt? Á bíllinn að fórna einu lífi til þess að bjarga fimm?
Þessi spurning er þekkt vandamál úr siðfræðinni kallað „The Trolley Problem“ og ekki eru allir á sama máli hvernig skuli nálgast það. Hvenær er ákvörðun rétt? Þeirri spurningu hefur ekki enn verið svarað. Helstu takmarkanir í þróun á sjálfstýrðum bílum eru að það er nánast ómögulegt að tryggja að allar prófanir sem gerðar eru á stýrikerfunum hafi tekið tillit til allra ófyrirsjáanlegra aðstæðna og tilvika sem komið geta fyrir í raunveruleikanum. Hjólreiðamaður sem skyndilega hjólar á móti umferð, sorpbílar sem blokka akreinina eða krakki á hlaupahjóli sem hjólar hring eftir hring á hringtorgi eru dæmi um ófyrirsjáanleg atvik sem ekki er hægt að forrita beint inn í hugbúnað bílsins og þarf því að greina til hins ýtrasta. Góð veðurskilyrði eru einnig mikilvægur þáttur þegar sjálfkeyrandi tækni er annars vegar en virkni skynjaranna minnkar verulega í snjókomu eða þegar skyggni er lítið. Það væri því lítið gagn að sjálfkeyrandi bíl uppi á Hellisheiði um hávetur á Íslandi eins og staðan er í dag.
Stýrikerfið raðar umhverfinu í mismunandi viðfangsefni eins og umferðarskilti, vegfarendur og hjólreiðamenn. Heimild: Daimler AG
20
Sjálfkeyrandi bíllinn er ekki alveg næstu grösum líkt og áður var haldið fram Á seinustu mánuðum hafa fagmenn og framleiðendur úr bílaiðnaðinum dregið í land hvað varðar innreið sjálfkeyrandi bílsins. Forstjóri Ford, Jim Hackett kom fram í apríl 2019 og sagði þá hafa ofmetið innleiðingu sjálfkeyrandi bíla og Uber sagði stuttu síðar svipaða sögu og að það yrði löng bið þar til þeir myndu koma með fyrstu sjálfkeyrandi leigubíla sína. Víða í Bandaríkjunum bjóða þó fyrirtæki eins og Waymo nú þegar upp á leigubílaþjónustu með sjálfkeyrandi bílum en þau ökutæki keyra innan mjög afmarkaðs svæðis. Bílarnir eru ávallt með ökumann aftur í til öryggis og getur hann gripið inn í ef eitthvað kemur fyrir. Því er erfitt að skilgreina þessa leigubíla
sem fullkomlega sjálfkeyrandi. „Sjálfkeyrandi bílar munu alltaf hafa sínar takmarkanir” sagði John Krafcik, framkvæmdastjóri Waymo, á ráðstefnu í lok 2018 og átti við að líða myndu áratugir þar til við munum sjá sjálfkeyrandi bíla aka um á götunum, til þess vanti t.d. skynjara sem virka í snjó eða regni. Forstjóri Volkswagen, Thomas Sedran gekk svo langt um mitt ár 2019 að segja að ómögulegt væri að hanna hinn fullkomlega sjálfkeyrandi bíl sem virkar samkvæmt 5. stigi sjálfstýringar og setja í umferð. Til þess þyrfti kortagrunna í fullkomlega nákvæmri upplausn yfir allan heiminn, gífurlega hröð fjarskipti og fullkomnar vegmerkingar. Því er ólíklegt að við munum sjá hinn ökumannslausa sjálfkeyrandi bíl í náinni framtíð. Flestar spár segja þá
ekki verða hluta af umferðinni fyrr en í fyrsta lagi 2050 og eins og áður segir er líklega tæknilega ómögulegt að hanna bíl sem getur séð fyrir allt það sem náttúruöflin og mannshugurinn getur fundið uppá svo að fullkomins öryggis sé gætt. Hitt er svo annað mál að hvort ekki megi fara hálfa leið til að auka öryggi í umferðinni, setja á markað bifreiðar með sjálfstýringu en manni um borð fyrir almenning og hafa ökumannslausa sjálfkeyrandi þjónustubifreiðar eins og leigubíla, strætisvagna eða bíla fyrir afhendingarþjónustu á takmörkuðum svæðum. Svo má ekki gleyma að hugsa til þeirra sem elska að keyra bíla, gera við bíla, bóna bíla, hlusta á bíla... skapa eigin bíla og stýra þeim sjálfir með huga og hönd.
Gæði - Öryggi - Þjónusta
LANDSINS MESTA ÚRVAL AF BARNABÍLSTÓLUM
Maxi-Cosi Jade vagnpartur
Maxi-Cosi 3Way-Fix
Maxi-Cosi Pebble Pro
Maxi-Cosi Pearl Pro
Britax Dualfix M i-Size
21
Faxafeni 8 | 108 Reykjavík | fifa.is
Á FERÐ UM LANDIÐ
Í
slendingar verða líklega aldrei meira á ferð um landið sitt en í sumar. Reyndar hafa landsmenn verið hvattir til að ferðast innanlands í sumar sökum heimsfaraldurs kórónaveirunnar sem hefur óneitanlega sett strik í reikninginn fyrir ferðalög erlendis. Í könnun sem Hvíta húsið og EMC rannsóknir unnu að kom fram að 88% landsmanna telja líklegt að þeir ferðist innanlands í sumar og 63% hyggjast ferðast meira innanlands en síðasta sumar. Flestir ætla að vera á ferðinni í júlí. Hver einasti einstaklingur eldri en átján ára með íslenska kennitölu fær afhent gjafabréf í júní sem nemur rúmum 5.000 íslenskum krónum.
22
Niðurstöður könnunarinnar benda til að umtalsverður ferðavilji sé til staðar hjá Íslendingum og að ýmis áhugaverð tækifæri séu í stöðunni fyrir ferðaþjónustuaðila víða um land. Mynd: Nýidalur á Sprengisandsleið
Norðurland Af hverju ættir þú að heimsækja Norðurland í sumar? Norðurland hefur upp á margt að bjóða, hvort sem það er fyrir fjölskyldufólk, einstaklinga eða vinahópa. Hvergi er fjölbreyttara úrval baða á Íslandi en á Norðurlandi. Prófaðu að dýfa þér ofan í heitan bjór í Bjórböðunum, njóttu stórbrotins útsýnis yfir Skjálfanda í Sjóböðunum og upplifðu þá krafta sem búa í iðrum jarðar með heimsókn í Jarðböðin. Að sjálfsögðu eru síðan sundlaugar að finna í flestum þéttbýliskjörnum. Hvalaskoðun er orðin ein helsta afþreying ferðamanna á Norðurlandi. Við hvetjum ykkur til að fara um borð í bát, sigla um fallega landið okkar og njóta þess að fylgjast með villtum dýrum í náttúrulega umhverfi þeirra. Sum hvalaskoðunarfyrirtæki bjóða jafnframt upp á sjóstangaveiði sem er frábær skemmtun fyrir fólk á öllum aldri. Hægt að sigla út í og heimsækja fjórar mismunandi eyjar: Drangey, Grímsey, Hrísey og Flatey Norðurland er mekka íslenska hestsins. Að fara á hestbak er frábær afþreying og þú upplifir náttúruna og menninguna mjög sterkt. Ótal ferðir, bæði styttri og lengri, eru í boði fyrir vana og óvana. Enginn ætti að ferðast um Ísland án þess að njóta gæða íslenska hestsins í náttúrulegu umhverfi hans.
Bátahöfnin á Húsavík Myndir: Markaðsstofa Norðurlands Á Norðurlandi er að finna marga og fjölbreytilega fossa, t.d. aflmesta foss Evrópu, foss umlukinn stuðlabergi og fossa tengda menningu okkar og sögu. Heimskautsgerðið á Raufarhöfn er eitt sinnar tegundar og alveg einstakt. Komdu í heimsókn og kynntu þér söguna að baki þessara risavöxnu steina og hvernig þeir tengjast fornum sagnaheimi.
Fjaran í Skagafirði með Drangey í baksýn
Á Norðurlandi eru fjölmörg söfn og fræðasetur sem mörg hver hafa vakið verðskuldaða athygli, bæði innan lands og utan. Upplifið einn stærsta bardaga Íslandssögunnar í gegnum sýndarveruleika á Sauðárkróki, farið um borð í bát á Síldarminjasafninu, kíkið inn í einn af gömlu torfbæjunum sem hafa varðveist svo vel og mátið skóna hans Jóa risa á Dalvík. Fjölmörg skemmtileg söfn, sýningar og setur eru um allt Norðurland. 23
Selaskoðun er frábær afþreying fyrir alla fjölskylduna. Selir eru falleg og skemmtileg dýr og einstakt tækifæri að upplifa þá í sínu umhverfi. Besti staðurinn á landinu til að fara í selaskoðun er á Vatnsnesinu Svartar strendur eru einkennandi fyrir Ísland þar sem oft á tíðum er hægt að finna rekavið, skeljar og annað áhugavert sjávarfang. Þessar strendur eru vel aðgengilegar og fátt meira hressandi en göngutúr meðfram strandlengjunni og anda að sér fresku sjávarloftinu.
Ferðamannaleiðirnar Norðurstrandarleið og Demantshringurinn Norðurstrandarleið er fyrir þá sem hafa áhuga á að fara út af hringveginum og upplifa fáfarna og afskekkta staði Norðurlands. Leiðin fer um alla strandlengjuna frá Hvammstanga í vestri til Bakkafjarðar í austri og er síkvik og breytileg. Í heildina er leiðin 900 km og þar gefast ótal tækifæri til að finna frelsið og njóta náttúrunnar og fjölbreyttrar
Hraunhafnartangi, nyrsti tangi landsins, er rétt um kílómetra frá heimskautsbaug. Gönguleið við allra hæfi er að vitanum. Á Norðurlandi er mikill fjöldi af veitingastöðum og kaffihúsum þar sem aðaláherslan er á að matreiða fjölbreyttan mat úr fersku hráefni. Einnig er hægt er að heimsækja bændur sem bjóða upp á mat beint frá býli, bruggsmiðjur og margt fleira. Láttu mat úr héraði leika við bragðlaukana. Fjölmargar áhugaverðar gönguleiðir eru á Norðurlandi og möguleikarnir því miklir. Gönguferðir eru hin fullkomna leið til að kynnast landinu á nýjan hátt og njóta kyrrðarinnar úti í náttúrunni.
Grettislaug í Skagafirði
afþreyingar. Leiðin liggur um friðsæl sjávarþorp þar sem fólk hefur lengi búið og á sér sögu og menningu mótaða af nánd við hafið og heimskautsbauginn. Fjölbreytilegt og kyrrlátt andrúmsloft þessara staða lætur engann ósnortinn. Hér er hægt að njóta slökunar, varpa frá sér áhyggjum hversdagslífsins og eignast ógleymanlegar og einstakar minningar. www. nordurstrandarleid.is
Áningastaðurinn í Skagafirði 24
Demantshringurinn er önnur ferðamannaleið á Norðurlandi. Hann er stórkostlegur 250 km langur hringvegur en þar er að finna magnaðar náttúruperlur og landslag. Á Demantshringnum eru fimm lykiláfangastaðir sem eru hinn sögufrægi
og myndræni Goðafoss, náttúruperlan Mývatn, hinn ógurlegi Dettifoss sem er vatnsmesti foss í Evrópu, náttúruundrið Ásbyrgi og Húsavík sem er hvalaskoðunarhöfuðborg landsins. Á Demantshringnum getur þú líka fundið hulda fjársjóði og afvikna staði sem koma jafn mikið á óvart og þeir frægustu. Demantshringurinn snýst ekki einungis um stórkostlega náttúru, þar er líka að finna fjölbreytta afþreyingarmöguleika, hvort sem það eru gönguferðir, hjólaferðir, bátaferðir eða jeppaferðir. www. diamondcircle.is Ásbyrgi
Eyjafjörður
Vaðlaheiðargöng Þetta þarf ekki að vera flókið
- keyrðu í gegn og fáðu rukkun í heimabanka
Athugið að eftirvagna þarf ekki að skrá né borga fyrir sérstaklega!
Akureyri
Akureyri Seyðisfjörður
Reykjavík
Þjónustuver Vaðlaheiðarganga er opið 10 til 12 og 13 til 15 virka daga 464 1790
veggjald@veggjald.is
25
Vesturland Á Vesturlandi blasir sagan ljóslifandi við í hverju skrefi: Íslendingasögur, þjóðsögur eða jafnvel bara sögur af mönnum og málefnum. Sögusvið þessara sagna er hvarvetna að finna á svæðinu. Margar Íslendingasögurnar eru skráðar á Vesturlandi, svo sem Egilssaga, Sturlunga, Laxdæla og Eyrbyggja, og því er svæðið oft kallað Sögulandið Vesturland. Landslagið, náttúran og menningin endurspeglar þessa arfleifð og færir sögunum líf. Styrkleikar Vesturlands liggja í náttúruundrum þess, ríkri sögu og góðu aðgengi allt árið um kring. Sagan var að stórum hluta skrifuð í Borgarfirði og allt í kringum Vesturland má sjá og upplifa merkar minjar frá landnámi Íslands. Þjónusta hefur aukist verulega á síðustu árum og auðvelt er að skipuleggja hið fullkomna ferðalag sem innifelur fjölbreytta afþreyingu, góðan mat og gistingu sem hentar mismunandi þörfum. Hvalfjörður er talinn einn af fegurri fjörðum landsins. Hann er einn lengsti fjörður á landinu, staðsettur nærri höfuðborgarsvæðinu og útsýnið þar er stórkostlega fallegt á góðviðrisdögum. Innst í botni fjarðarins er vinsælt útivistarsvæði og skemmtileg en krefjandi gönguleið að fossinum Glym. Kyrrð og friður ríkir í firðinum og fuglalíf er fjölbreytt. Víða í Hvalfirði má finna ýmsar minjar frá hernámsárunum 1940–1945, þar sem Bandaríkjamenn reistu mikla bækistöð í landi Sveitasæla á Vesturlandi. ljósmyndari: Dagbjört Dúna Rúnarsdóttir
Miðsands og Litlasands við Hvalfjörð. Þar má einnig finna heillega bragga sem herlið Bandamanna reisti á stríðsárunum og safn þar sem rakin er einstök og merkileg saga hernámsins. Akranes er stærsta bæjarfélagið á Vesturlandi. Strandlengjan þar er fjölbreytt og skemmtileg og kjörið að byggja þar sandkastala með fjölskyldunni, njóta útsýnis, baða sig í sjónum eða heitri náttúrulaug í grjótgarðinum. Þar er einnig að finna vita sem hægt er að ganga upp í, stórt safnasvæði og útivistarsvæði margvísleg. Borgarfjörður og Mýrar er svæði sem er rómað fyrir náttúrufegurð. Það er að miklu leyti hulið gömlu og grófu hrauni þar sem ár og lækir renna um og búa til einhverja glæsilegustu fossa á Íslandi. Í Borgarfirði má finna öflugasta hver Evrópu, einn fallegasta foss landsins, stærsta hraunhelli á landinu, næststærsta jökul í Evrópu, náttúruböð og sögulega staði. Borgarfjörðurinn er sannkölluð jarðhitaparadís þar sem sagan drýpur af hverju strái og fjölmörg söfn, setur og menningartengd þjónusta er á svæðinu ásamt gnægð af veitingastöðum, úrvali gististaða og fjölbreyttri afþreyingu. Hraunfossar í Borgarfirði. ljósmyndari: Ragnar Th.
26
Snæfellsnes er sannkölluð útivistarparadís og er þar margar náttúruperlur að finna. Nesið er stundum kallað Ísland í hnotskurn en á þessu 90 km langa nesi er hægt að upplifa flest það sem Ísland hefur upp á að bjóða eins og, eldfjöll, hraun, jökla, náttúrulaugar, eyjar, fjöll, stórkostleg stuðlaberg og klettamyndanir. Snæfellsnes er í fararbroddi áfangastaða í heiminum þegar kemur að sjálfbærri þróun í umhverfismálum. Þar er hægt að njóta lífsins í sjávarþorpum með litríkum húsum, heimsækja söfn, listamenn og upplifa áhugaverða og spennandi afþreyingu. Veitingastaðir eru margir og fjölbreyttir og gistingu af öllu tagi er að finna víðsvegar um nesið. Yst á nesinu trónir hinn dulmagnaði Snæfellsjökull og umhverfis hans liggur yngsti þjóðgarður landsins, Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull. Sérstaða þjóðgarðsins felst í nálægðinni við sjóinn og samspili mannlífs og náttúru en þar má finna gönguleiðir um stórbrotna náttúru undir Jökli, sjá mikið af ýmsum tegundum sjófugla og margbreytilegt gróðurlendi frá fjöru til fjalls. Dalir er svæði sem býður upp á ótal möguleika til útiveru, gönguferða, hjólaferða og einveru með náttúrunni. Dalirnir umlykja Hvammsfjörð og liggja að Breiðafirði og við alla strandlengjuna má finna heillandi náttúru, fjölbreytt
Stálpastaðir í Skorradal. ljósmyndari: Dagbjört Dúna Rúnarsdóttir
Fossá í Hvalfirði. ljósmyndari: Thelma Dögg Harðardóttir
fuglalíf og seli. Haförninn, konungur íslenskra fugla er einnig algeng sjón við sjávarsíðuna. Fá svæði landsins státa af jafn ríkulegri sögu og Dalir en marga sögufræga staði, sem skrifað er um í sögum frá þjóðveldistímanum , er að finna í Dölum. Þar má heimsækja lifandi safn þar sem fólk, klætt að fornum sið, fræðir gesti, smakka dásamlegar mjólkurvörur á meðan fylgst er með kúnum í sínu náttúrlega umhverfi, hitta talandi krumma og margt fleira. Velkomin á Vesturland
27
LÆGSTA VE ÖLLUM LAN UM OG ÓDÝ ELDSNEYTI Á DALVEGI REYKJAVÍK SKILYRÐISLAUST
28
ERÐIÐ Í NDSHLUTÝRASTA I LANDSINS OG Á KURVEGI 29
Vestfirðir Til dæmi um fjölskyldurúnt frá tjaldsvæðinu á Tálknafirði er hægt að byrja daginn á morgunbaði en ekki er nema um klukkutíma rúntur frá Tálknafirði yfir í Reykjafjarðarlaug í Arnarfirði. Þar ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi, sjóðheit og grunn náttúrulaugin er frábær fyrir gamla þreytta foreldrakroppa eftir tjaldsvefn næturinnar á meðan örlítið kaldari sundlaugin er ævintýraland fyrir hressa krakka, slímugur botninn er eins og fínasta skautasvell og dýpri endinn er fullkominn leynistaður til þess að fylgjast með skrímslaferðum í fjöruborðinu. Talandi um skrímsli, segja má að Arnarfjörðurinn sé griðarstaður skrímsla á Íslandi og því er um að gera að vera vel vakandi og hafa augun á fjöruborðinu í rúnti dagsins. Best er þó að skella sér í heimsókn í Skrímslasetrið á Bíldudal og fræðast aðeins betur um þessar verur, það getur verið erfitt að finna þær ef maður veit ekki eftir hverju á að leita.
30
Eftir sundsprett og heimsókn í Skrímslasetrið er ekki ósennilegt að hungur sé farið að láta kræla á sér, hamborgarinn á Vegamótum er vel þess virði að kíkja þar við og það sama má segja um fisk og franskar sem einnig er á matseðlinum. Að hádegisverði loknum er kominn tími á skrímslaleit. Ketildalirnir eru vel til þess fallnir þar sem vegurinn liggur meðfram sjónum og gylltum ströndum sem gaman er að stoppa við og byggja eins og einn kastala eða tvo ef ekkert gengur í skrímslaleit. Bæði Hvestudalur og Bakkadalur eru með stórar hvítar fjörur sem einna helst mætti líkja við fínustu sólarströnd erlendis, veðrið getur þó verið aðeins annað en á sólarströndinni en sandurinn engu síðri og jafnvel betri. Eftir fjörugleði liggur leið út í Selárdal, þar sem vegurinn endar og verk Samúels Jónssonar taka á móti okkur. Samúel var oft kallaður listamaðurinn með barnshjartað og
Varúðarskilti fyrir sjóskrímsli í Arnarfirði
það er einstaklega auðvelt að ímynda sér ævintýri Arnarfjarðar með verk hans og verur í aðalhlutverkum. Þegar allir eru orðnir vel mettaðir af ævintýrum og barnslegri list Samúels er kominn tími á að snúa aftur á Tálknafjörð. Hafi engin skrímsli látið á sér bæra nú þegar er um að gera að hafa augun á fjörunni og sjónum á meðan ekið er til baka eftir Ketildölunum. Í versta falli hljóta allavega einhverjir hvalir eða selir að sýna sig. Rúntur dagsins hefur að mestu leyti verið um kræklótta en skemmtilega malarvegi, með sjóinn á aðra hönd og fallega dali eða himinhá fjöllin á hina.
Sundlaugin í Reykjarfirði í Arnarfirði
Náttúrulaug í Reykjarfirði í Arnarfirði
Margir áhugaverðir og spennandi staðir eru í boði. Vestfirðir eru draumaland fjallgöngugarpsins og er það hægt að fara í margra daga göngur yfir fjöll og firnindi, en það er líka hægt að fara í létta sögugöngu um Ísafjörð eða fara í matarsmakkferð um Suðureyri. Á Vestfjörðum eru einnig mörg söfn sem skemmtilegt er að heimsækja og má þar nefna helstu náttúruperlur Vestfjarða eins og Látrarbjarg, Rauðasand og Dynjanda. Ísafjörð er gott að heimsækja og óvíða ef nokkurs staðar er jafn stutt að fara úr iðandi mannlífi yfir í ósnortna náttúru og möguleikar til útivistar eru óteljandi, hvort sem er að sumri eða vetri. Upplýsingamiðstöðvar ferðamála má finna víðsvegar á Vestfjörðum. Starfsfólk þeirra veitir meðal annars upplýsingar um veður, áhugaverða staði, aðstoðar við bókanir og margt fleira. Þar er einnig hægt að nálgast kort og bæklinga. Fyrir svanga og þyrsta er óþarfi að örvænta, því að víða má finna veitingastaði, kaffihús, sjoppur og matvöruverslanir. Það er ýmis afþreying á Vestfjörðum fyrir hópa af öllum stærðum. Sumar ferðir og afþreying takmarkast þó við búnað en þó geta flestir ferðaskipuleggjendur og ferðaskrifstofur leyst úr því t.d. með því að skipta stórum hópum upp í minni hópa. Listasafn Samúels Jónssonar í Selarárdal
31
Austurland Á Austurlandi eru lítil þorp, stórbrotin strandlengja, þröngir firðir, fossar og fjöll. Nálægðin við náttúruna er mikil og landslagið er heillandi. Hér eru frábærir og fjölbreyttir möguleikar til útivistar, allt árið um kring. Hálendið er stórbrotið og útsýnisferðir meðfram ströndinni við jaðar NorðurAtlantshafsins eru ógleymanlegar. Austurland er sannkölluð paradís gönguáhugamannsins. Að ganga, með eða án leiðsagnar, er sívinsæll ferðamáti og gönguleiðirnar á Austurlandi eru óþrjótandi. Í raun einungis ímyndunaraflið sem takmarkar ferðamanninn. Baðstaðir VÖK BATHS Þrátt fyrir að Ísland sé þekkt fyrir jarðhita er Austurland skilgreint sem kalt svæði. Jarðhitinn í Urriðavatni uppgötvaðist þegar ákveðnar vakir héldu sér á vatninu sama hvernig frysti. Þær eru innblásturinn fyrir heitu laugarnar, sem nú fljóta í vatninu og eru helsta kennimerki Vök Baths. Vök Baths stendur á bökkum Urriðavatns rétt fyrir utan Egilsstaði. Tvær heitar laugar eru á strönd vatnsins en sérstaða Vök Baths eru vakirnar tvær sem eru fljótandi laugar staðsettar úti í Urriðavatni. Í þeim ná gestir að upplifa einstaka tengingu við náttúruna og með útsýni í allar áttir. Auk þess eru á svæðinu gufubað, köld úðagöng og laugarbar. SUNDLAUG ESKIFJARÐAR Sundlaugin á Eskifirði opnaði árið 2006 og er sú nýjasta af klassísku sundlaugunum á Austurlandi. Laugin er 25 metra löng og við hana eru heitir pottar, vaðlaug, þrjár rennibrautir og gufubað. Laugin er vel staðsett við innkomuna í bæinn og af svæðinu er hægt að njóta tilkomumikils útsýnis til fjallanna í kring. LAUGARFELL 32
Við Laugarfell eru tvær gamaldags náttúrulaugar en sögur segja að heita vatnið í þeim búi yfir lækningarmætti. Úr laugunum er glæsilegt útsýni þar sem Snæfell gnæfir yfir í fjarska. Það er dásamlegt að slaka á í heitum laugunum og njóta kyrrðarinnar eftir fjallgöngur eða útsýnisferðir. Fossar Austurland er þekkt fyrir stórbrotna náttúru: þrönga firði, gróðursæla dali og víðáttumiklar heiðar. Svæðið er ein stór útivistarparadís. Sérstaklega er mikið um fossa af öllum stærðum og gerðum sem skemmtilegt er að skoða. Merktar gönguleiðir eru að mörgum þeirra. HENGIFOSS Hengifoss er í norðanverðum Fljótsdal á móts við innri enda Lagarfljóts. Hann er næst-hæsti foss landsins, 128 m hár. Í fossbrúninni eru blágrýtislög en undir þeim sandsteinn. Í berginu finnast steingerðir trjástofnar sem vitna um mun hlýrra loftslag, enda er sandsteinninn myndaður á tertíertíma. Nokkru neðan við Hengifoss er annar foss, Litlanesfoss, umvafinn óvenju fallegri stuðlabergsumgjörð. YSTI – RJÚKANDI Þann tignarlega foss má sjá þegar keyrt er eftir Hringveginum um Jökuldal. Ofan við veginn er bílastæði og þaðan er göngustígur upp að fossinum. Hann er einn þriggja fossa sem bera nafnið Rjúkandi en hinir eru mun vatnsminni. GUFUFOSS Gufufoss fellur í Fjarðará innst í Seyðisfirði við rætur Fjarðarheiðar. Hann sést vel frá veginum og gott aðgengi er að honum. Gufufoss dregur nafn sitt af miklum úða sem myndast þar sem hann fellur í ánna. FARDAGAFOSS Fardagafoss er skammt frá Egilsstöðum við rætur Fjarðarheiðar. Hann er efstur þriggja fossa í Miðhúsaánni en hinir heita Gufufoss og Folaldafoss. Merkt gönguleið
liggur að Fardagafossi og er hún greiðfær næstum alla leið. Bak við fossinn er hellir. Sagnir herma að í honum hafi haldið til tröllskessa og var því trúað að frá þeim helli lægju jarðgöng yfir í Gufufoss í Fjarðará, handan heiðarinnar. Önnur sögn hermir að náttröll búi í hellinum er hafi í fórum sínum ketil fullan af gulli.
Á Austurlandi er fjöldi áhugaverðra staða sem gam að heimsækja. Smelltu kortinu á ísskápinn og haka þá staði sem þú heimsækir í sumar.
Fangaðu augnablikin í ferðalaginu og merktu myn með #AUSTURLAND og #ELSKAAUSTURLAND og þú gætir unnið vegleg verðlaun! Dregið 1. september 2020. Á austurland.is og visitausturland.is er að finna upplýsingar um landshlutann. Þú finnur okkur á Facebook og Instagram undir merkjum Austurlands og VisitAusturland.
Dagleiðir á Austurlandi NORÐURHRINGURINN 3 klst. Vopnafjörður – Sænautasel – Möðrudalur HÁLENDISMENNING 45 mínútur Sænautasel – Möðrudalur HÁLENDISHRINGURINN 3 1/2 klst. Egilsstaðir – Laugarfell – Kárahnjúkar – Jökuldalur FLJÓTSDALSHRINGURINN 1 1/2 klst. Egilsstaðir – Valþjófsstaður – Fellabær STEFNUMÓT VIÐ LUNDA 1 1/2 klst. Borgarfjörður eystri VÍKKAÐU SJÓNDEILDARHRINGINN 30 mínútur Seyðisfjörður DREIFBÝLISMENNING 1 klst. Mjóifjörður FLAKKAÐ UM FIRÐI 45 mínútur Reyðarfjörður – Eskifjörður – Norðfjörður
AUSTURSTRÖNDIN 3 1/2 klst. Egilsstaðir – Fáskrúðsfjörður – Stöðvarfjörður – Breiðdalsvík – Djúpivogur
SUÐURHRINGURINN 3 klst. Egilsstaðir – Fáskrúðsfjörður – Stöðvarfjörður – Breiðdalsvík – Breiðdals
Aksturstími dagleiða er áætlaður út frá þægilegum og löglegum aksturshraða. Athugið að ferðatími er gefinn upp án stoppa. Fylgstu með færð og veðri á vef Vegagerðarinnar, vegagerdin.is
Topp 5 gönguleiðir fyrir fjölskyldufólk Tröllatjörn - Í Álftafirði er stutt gönguleið sem leynir á sér. Hún er ekta staður til þess að heimsækja á góðum sumardegi. Gilsárfoss - Gilsárfoss er ævintýralegur foss með helli og steinboga á bak við. Fossinn er skammt utan við þorpið í Fáskrúðsfirði. Haukafell - Haukafell er mjög fjölskylduvænn staður á Mýrum, austan við Hornafjörð. Þar eru tjaldsvæði og merktar gönguleiðir. Stapavík - Í Stapavík er frábær gönguleið fyrir fjölskyldur. Þar er gengið með fram fjöru og í henni er margt að sjá. Hálsaskógur - Skammt frá Djúpavogi er lítill skógur sem heitir Hálsaskógur. Þar er skemmtileg gönguleið um svæðið.
Selárdalslaug Ljósastapi
Stórurð Eggin í Gleðivík
Eskifjörður Seyðisfjörður
Hellisheiði
Stuðlagil
SEGJUM SÖGUR Hafnarhólmi
Bustarfell
man er aðu við
Vatnsskarð
Stórurð
Víknaslóðir
Sjálfsali
ndirnar D
Norræna Danmörk - Ísland
Rjúkandi Vök Baths Fardagafoss Tvísöngur – Hljóðskúlptúr
Möðrudalur
Lagarfljótsormurinn
Sænautasel
Páskahellir
Stuðlagil Klifbrekkufossar Hengifoss Hallormsstaðaskógur
Grænafell
Snæfellsstofa
Hólmanes Helgustaðanáma
Skriðuklaustur
Franska safnið
Hafrahvammagljúfur ´
Óbyggðasetrið
Steinasafn Petru
Kárahnjúkar
Fossahringur Meleyri Öxi
Teigarhorn
Snæfell
Streitishvarf
Eggin í Gleðivík Kverkfjöll
r – Öxi
sheiði Lónsöræfi
33
Suðurland Leyfum okkur að prófa allskonar
Gullfoss er foss í Hvítá upp af Haukadal í Árnessýslu. Fossinn er einn vinsælasti ferðamannastaður landsins.
Íslendingar hafa alltaf verið duglegir að ferðast um landið sitt. Líklega er algengasti ferðamáti Íslendinga innanlands með þeim hætti að keyra um landið, fara í útilegur með fjölskylduna eða í sumarbústaðinn. Notalegt er að grilla í bústaðnum og á tjaldsvæðum vítt og breitt um landið og frábært að skella sér í sund á fjölmörgum stöðum. Á Íslandi er fjölbreytt afþreying í boði. Á Suðurlandi er til að mynda fjölbreytt afþreying á borð við hellaferðir, fjórhjólaferðir, rib bátaferðir, kajak, zipline, hestaferðir, köfun, hjólaferðir, jeppaferðir, íshellaferðir, snjósleðaferðir, gönguferðir með leiðsögn, fuglaskoðun, skoðunarferðir á margvísleg söfn, heimsókn í húsdýragarða og margt fleira. Matarupplifun á fjölbreyttum veitingastöðum er víða að finna á Suðurlandi þar sem boðið er upp á mat úr sunnlensku hráefni. 34
Einnig er hægt að finna fjölbreytta gistingu um allt Suðurland eins og gistihús, hótel, íbúðagistingu, tjaldstæði, hostel og sumarhús í útleigu. Þetta fjölbreytta framboð af veitingastöðum, afþreyingu og gistingu er hluti af þeim jákvæðu áhrifum sem ferðaþjónustan hefur á samfélagið.
Gleymum við að upplifa Ísland á sama hátt og við leyfum okkur að upplifa þegar við erum erlendis? Við erum vön því að geta gert skemmtilega hluti á Íslandi þar sem við getum séð að mestu um okkur sjálf, eins og að fara í útilegu og sund, og leyfum okkur oft á tíðum ekki að kaupa afþreyingu og upplifun á Íslandi líkt og við gerum erlendis. En hvað gerum við þegar við ferðumst erlendis? Við kaupum okkur gistingu, förum út að borða, förum jafnvel í leiðsagðar ferðir þar sem við fáum tækifæri til að heyra um sögu staðarins, við förum á söfn og kaupum okkur allskonar afþreyingu. Sem sagt, við leyfum okkur að upplifa og kynnast svæðinu sem við heimsækjum og hvað það hefur upp á að bjóða. Hvernig viljum við hafa sumarfríið okkar í sumar þegar við komumst ekki af landi brott? Viljum við ekki fá aukna upplifun í ferðalagið, hvort sem það er langt eða stutt? Það gerum við með því að upplifa matinn og veitingastaðina, ferðast um landið með augum ferðamannsins og jafnvel með leiðsögumann okkur við
Skógafoss er 60 metra hár og 25 metra breiður foss í Skógá við Skóga í Rangárþingi eystra á Íslandi. Fossinn var friðlýstur árið 1987 og telst náttúruvætti.
og það staðbundna hráefni sem við getum notið á ferðalagi okkar um landið. Ekki svo að við hættum að ferðast erlendis en við gætum stefnt að meira jafnvægi í ferðalögunum okkar og um leið minnkað flugviskubitið svokallaða. Við mælum með því að fólk ferðist um Suðurland og landið allt í sumar og leyfi sér að upplifa allt það sem íslensk ferðaþjónusta býður upp á. Eins og sjá má eru kostirnir fjölmargir og ættu allir geta upplifað Suðurland út frá eigin áhugasviði og óháð veðri, þar sem lykillinn er klæðnaður við hæfi. Hægt er að nálgast upplýsingar um fjölbreytta afþreyingu, viðburði, veitingastaði og gistingu á www.sudurland.is. hlið sem segir okkur sögu svæðisins og fræðir okkur, við nýtum okkur hestaleigur, skoðum ævintýraheim jöklanna í íshellaferð, ísklifri eða snjósleðaferð, við heimsækjum flottu söfnin okkar sem minnir okkur á sögu lands og þjóðar eða skellum okkur í ferð sem fær adrenalínið af stað eins og bátsferð, zipline, fjórhjól eða svifflug. Vestmannaeyjar er áhugaverður staður sem allir verða að heimsækja enda er það auðvelt. Daglegar siglingar eru farnar frá Landeyjarhöfn og er hægt að skilja bílinn eftir eða taka hann með ef maður hefur áhuga á því. HUGUM AÐ KOLEFNISSPORINU Varðandi kolefnissporið er mun umhverfisvænna fyrir okkur sem búum á Íslandi að ferðast um Ísland heldur en að taka flugið á erlenda grundu. Í því samhengi má bæði nefna samgöngumátann
Svartifoss Í Skaftafelli er einn af frægustu fossum landsins.
Jökulsárlón er lón við rætur Breiðamerkurjökuls í suðurhluta Vatnajökulsþjóðgarðs. Úr lóninu rennur Jökulsá á Breiðamerkursandi. Það er 284 metrar að dýpt samkvæmt mælingum frá 2009.
35
Reykjanes Á Reykjanesi er tilvalið fyrir fjölskylduna að njóta útivistar og afþreyingar enda er þar fjölmargt í boði. Inn á milli leynast faldar perlur sem margir eiga eftir að uppgötva. Hér höfum við tekið saman lista yfir það markverðasta fyrir barnafjölskyldur og fólk á öllum aldri sem nýtur útivistar og menningar eða er að leita eftir dægradvöl. Sundferð Öll góð ferðalög enda á sundferð. Á Reykjanesi má finna sundlaug í hæsta gæðaflokki í hverju einasta sveitarfélagi. Innilaugin í Reykjanesbæ er einstaklega hentug fyrir yngstu börnin en allar hafa laugarnar ákveðin sérkenni og sjarma. Fjöruferð Reykjanes á nóg af fjörum sem auðvelt er að sækja. Hvíti sandurinn á Garðskaga, svarti sandurinn í Sandvík eða magnað landslagið við Kleifarvatn þar sem tilvalið er að busla og njóta náttúru á góðviðrisdegi.
36
Skógarferð Já, það er hægt að fara í skógarferð á Reykjanesi. Sólbrekkur er tilvalið svæði fyrir fjölskyldur að heimsækja. Skógi vaxið svæði þar sem leiktæki eru til staðar, auk þess sem þar er hægt að grilla. Þar eru góðir göngustígar og tilvalið að hjóla, hlaupa eða ganga meðfram Seltjörn. Háibjalli við Snorrastaðartjarnir er afar fallegur trjálundur í skjóli kletta þar sem einnig er hægt að grilla og njóta. Þar sem er mikið fuglalíf. Þaðan er einnig hægt að ganga eftir Hrafnagjá sem er gróðurmikil sprungugjá. Selskógur er eitt af útivistarsvæðum Grindvíkinga og liggur við rætur Þorbjörns. Þar eru gönguleiðir og glæsilegt nestishús. Svo er stutt í Bláa Lónið. Gönguleiðir Gönguleiðir eru um gjörvalt Reykjanes og margar þeirra eru einstaklega aðgengilegar og hentugar fyrir börn. Nægir þar að nefna Eldborg við Geitahlíð en hægt er að ganga upp að Stóru-
Eldborg, sem margir telja fegursta gíg Suðvesturlands, og þaðan niður í LitluEldborg þar sem hægt er að sjá ofan í gíginn. Stampar eru mjög aðgengilegir fyrir fríska fætur. Þaðan er magnað útsýni yfir Sandvík, úfið hraunið og Reykjanestá. Staðarborg er ótrúlegt hlaðið hringlaga mannvirki sem er staðsett 2–3 km frá Kálfatjarnarkirkju. Brú milli heimsálfa er einstök á heimsvísu enda staðsett á plötuskilum Evrópu og Ameríku. Selatangar hafa að geyma verðbúðarrústir og stórbrotið umhverfi. Safna- og menningarferð Reykjanes hefur að geyma fjölmörg söfn þar sem allir finna eitthvað við sitt hæfi. Má þar nefna: Skessuna í hellinum, Rokksafn Íslands, Víkingasafnið, Duus hús, byggðasafnið á Garðskaga, Þekkingarsetrið í Sandgerði og Saltfisksetrið í Grindavík. Glæsileg bókasöfn eru einnig á Reykjanesi þar sem gaman er að grúska í bókum og leika.
Sogin við Trölladyngju og Grænudyngju.
Golfferð Á Reykjanesi eru þrír afbragðsgóðir 18 holu golfvellir og tveir 9 holu vellir. Tilvalið er fyrir fjölskylduna að spila golf saman með sjávarútsýni á hverjum velli. Vellirnir eru: Hólmsvöllur Leiru, Húsatóftavöllur í Grindavík, Kirkjubólsvöllur Sandgerði og Kálfatjarnarvöllur í Vogum (vantar ekki einn?). Hellaferð Ævintýraferð um hellinn Leiðarenda er tilvalin fyrir alla fjölskylduna. Að lokinni göngu er svo tilvalið að skella sér í kakóbolla hjá norðurljósamiðstöðinni Aurora Basecamp og skoða umhverfið við Kleifarvatn og Seltún. Hjólaferð Hvergi er betra að hjóla en á Reykjanesi þar sem útsýni er með eindæmum gott og lítið um brekkur. Eins er einstök upplifun að skella sér á fjórhjól frá Grindavík með börnum eldri en sex ára. Þar er einnig hægt að leigja reiðhjól fyrir fjölskylduna. Bíltúr um Krýsuvíkurleiðina Auðvelt er að keyra um gjörvalt Reykjanesið á einum degi með nokkrum góðum stoppum. Staðir sem óhætt er að mæla með til þess að bregða sér út, njóta náttúru, borða nesti og smella af mynd eru til dæmis: Seltún og Kleifarvatn, Brimketill, Reykjanesviti, Gunnuhver, Hvalsneskirkja, Garðskagaviti og Brú milli heimsálfa. Fjallganga Á Reykjanesi eru fjölmargir tindar sem hæfa reynslulitlu fjallgöngufólki. Þorbjörn við Grindavík er afar hentugur fyrir fjölskylduna alla. Þar er stórbrotin Þjófagjá sem allir ættu að skoða. Auk þess er útsýnið magnað og stutt í Selskóg og Bláa Lónið. Fleiri hugmyndir: Ljósmyndaferð - Reykjanesið er fullt af stöðum þar sem ljósmyndarar geta notið sín. Lautarferð - Fjölmargir ofantaldir staðir eru hentugir til lautarferðar.
Rétt austan við Reykjanesvita er mikið jarðhitasvæði, eitt af mörgum á Reykjanesi. Gunnuhver er þekktasti hverinn þar. Mynd: Þráinn Kolbeinsson
Vitaferð - Alls eru 13 vitar á Reykjanesi sem gaman er að heimsækja. Berjamó - Víða má finna góð berjalyng á Reykjanesi í stórbrotinni náttúru. Rólóferð - Leikvellir eru í hverju sveitafélagi. Tilvalið að kíkja í bakarí að leik loknum. Sigling - Hægt er að bregða sér í siglingu frá Vogum þar sem hægt er að veiða og skoða hvali og náttúru.
Kayak - Frá Vatnsleysuströnd er hægt að bregða sér á sjókajak. Frábær upplifun fyrir alla fjölskylduna. Veiðiferð - Hægt er að dorga á öllum bryggjum á svæðinu. Hægt er að veiða í Djúpavatni, Kleifarvatni og hornsíli má finna í Seltjörn og Snorrastaðartjörn.
37
Reynsluakstur
Tesla Model 3 Bandaríska fyrirtækið Tesla Motors var stofnað árið 2003 með áherslu á þróun rafbíla og annarra umhverfisvænna orkulausna. Tesla Roadster var fyrsti fjöldaframleiddi rafbíllinn frá fyrirtækinu og kom hann á markað árið 2008. Um var að ræða tveggja sæta sportbíl sem var um margt merkilegur þar sem hann var fyrsti fjöldaframleiddi bíllinn með litíum rafhlöður og einnig fyrsti rafmagnsbíllinn til að hafa yfir 300 km drægni á einni hleðslu. Athugið að þetta var að gerast árið 2008, tveimur árum áður en Nissan Leaf kom á markað með 117 km drægni. Einungis 2450 Roadster bifreiðar voru seldar á þeim fjórum árum sem bíllinn var í framleiðslu en henni var hætt 2012. Sama ár kom Model S á markað og fékk hann mikla athygli, þá einna helst fyrir drægni og hröðun. Bíllinn var þó heldur dýr fyrir hinn almenna neytanda og því ríkti mikil eftirvænting þegar Elon Musk, stofnandi og forstjóri Tesla, kynnti til sögunnar Model 3 sem átti að bjóða allt það besta frá Tesla á viðráðanlegu verði. Um mitt ár 2017 fóru fyrstu bílarnir í afhendingu í Bandaríkjunum og tæpu einu og hálfu ári síðar voru fyrstu bílarnir afhentir í Evrópu. Haustið 2019 opnaði loks Tesla útibú hér á landi og ekki létu viðbrögðin standa á sér. Þrátt fyrir langan biðtíma eftir afhendingu voru allir bílar seldir í fyrstu sendingu sem kom til landsins 6 mánuðum síðar en það voru um 300 eintök af Tesla 3. Að því sögðu ríkti mikil eftirvænting hjá undirrituðum þegar komið var að reynsluakstri enda var löngu kominn tími á að kynnast því yfir hverju menn voru svo spenntir.
38
Model 3 kemur í þremur útgáfum. Fyrst er það „Standard Range“ sem hefur drægni upp á rúmlega 300 kílómetra en þessi útgáfa er sú eina sem kemur eingöngu með drifi á afturöxli. Næst er „Long Range“ sem er með drifi á öllum hjólum og drægni í allt að 560 kílómetra. Að lokum er það dýrasta útgáfan „Performance“ en eins og nafnið gefur til kynna er sá bíll með aukna hröðun, betri bremsur og fjöðrun en þessar breytingar eru gerðar á kostnað drægninar sem fer niður í 530 kílómetra. Reynsluaksturbíllinn var „Long Range“ útgáfan og var hún án allra frekari aukahluta. Aðgangskortið (lykillinn) að bílnum er eins og greiðslukort. Til að opna bíllin þarf að bera það upp að hurðastafnum og síðan er það lagt á milli framsætanna svo hægt sé að ræsa bílinn. Þetta kort er í raun aukalykill að bílnum því að eigendur geta notað símann til að framkvæma þessar aðgerðir án þess að þurfa að taka hann úr vasanum. Að utan Model 3 er fremur einfaldur í útliti og ekki verið að skreyta hann að óþörfum. Mikil vinna hefur verið lögð í að draga úr allri loftmótstöðu og fyrirstöðum sem geta valdið hávaða í akstri. Bílarnir eru í boði með fimm litum og var viðkomandi bíll fallega perluhvítur. Þakið er úr gleri og svart á öllum útgáfum. Innfeldir hurðahúnar vöndust furðuvel en það verður ekki hjá því komist að athöfnin verði klunnaleg við fyrstu opnun. Reynsluakstursbíllinn er afhentur á fremur óspennandi 18 tommu felgum og plast hjólkoppum. En þegar betur er að gáð þá gegna þessir koppar ákveðnu hlutverki við að draga úr vindmótstöðu og auka drægni. Lítið mál er að kippa þeim af og þá koma í ljós steingráar tíu arma felgur sem fara bílnum einstaklega vel. Það verður ekki litið fram hjá þeim umræðum sem hafa loðað við Tesla bílaframleiðandann varðandi gæðavandamál í samsetningu og þá sérstaklega í Model 3. Litamismunur
Model 3 er fremur einfaldur í útliti og ekki verið að skreyta hann að óþörfum.
og frávik í samsetningu virðast hrjá bílaframleiðandann og var því sérstaklega litið til þessara hluta á viðkomandi reynsluakstursbíl. Í stuttu máli stóðst bíllinn alla skoðun hvað varðar gæði og frágang. Að innan Innréttingunni verður best lýst sem einfaldri og lágstemmdri. Ljóst viðarlíki liggur þvert yfir mælaborðið en á því miðju er áfastur fimmtán tommu snertiskjár þar sem allar stillingar bílsins eru framkvæmdar. Stór og djúpur stokkur er á milli framsætanna með miklu geymsluplássi. Plássið í aftursætunum er þokkalegt og ágætlega fer um tvo fullorðna en sá þriðji myndi ekki njóta sýn vel. Mögulega er það stærðin á rafhlöðunni sem veldur því að gólfið er fremur hátt og minnkar það fótaplássið. Stórt og mikið glerþak gefur góða tilfinningu og stækkar rýmið. En með svo stórum og hörðum fleti koma vandamál sem snúa að hljóðvist því að óvenju mikið bergmál er í farþegarými og var það sérstaklega áberandi þegar ökumaður var einn í bílnum og var til dæmis að notast við handfrjálsan búnað. Möguleg lausn á þessu máli er að setja upp net sem er fáanlegt sem aukabúnaður og skermir af glugga. Þá hafa hönnuðir tekið einfaldleikann einu númeri of langt með því að fjarlægja handföng í lofti fyrir farþega. Hiti er í öllum fimm sætum í bílnum og eru framsætin
þægileg með fjölbreyttum stillingum. Það kom á óvart að enginn hiti er í stýri eins og er orðinn staðalbúnaður í mörgum nýjum bílum í dag og þá sérstaklega rafmagnsbílum. Því er eykst þörfin fyrir akstur í hönskum á köldum dögum en það skarast á við snertiskjá bílsins sem virkar ekki nema hanskarnir séu sérstaklega gerðir fyrir slíka notkun. Engar sjáanlegar miðstöðvarristar eru í mælaborði og kemur blástur eftir því endilöngu og virkar þetta ágætlega þar sem hægt er að stilla stefnu og kraft á einfaldan hátt úr tölvu bílsins. Skottið er ágætlega stórt og varð enn rýmra þegar lúga í botninum var opnuð og er það því samtals um 425 lítrar. Það gæti valdið smá ergelsi fyrir suma að hlerinn yfir auka rýminu helst ekki opinn. Að framan er einnig smá geymslupláss sem dugir ágætlega fyrir íþróttatösku eða innkaupapoka. Stjórntæki Vegna þess hversu frábrugðinn Tesla er í raun frá öðrum bílum á markaðnum þykir ástæða til að fara sérstaklega vel yfir stjórntæki bílsins. Tesla er í raun eins og stór tölva þar sem allar stýringar fara í gegnum einn snertiskjá. Notendaviðmótið og gæðin í skjánum og tölvunni á bakvið hann gerir gríðarlega mikið fyrir alla upplifun af akstri og umgengni við bílinn. 39
Ljóst viðarlíki liggur þvert yfir mælaborðið en á því miðju er áfastur fimmtán tommu snertiskjár þar sem allar stillingar bílsins eru framkvæmdar.
Bíllinn er nettengdur og fylgir tenging frítt fyrsta árið með öllum nýjum bílum. Þannig er hægt að tengjast beint inn á netvafra, nota streymisveitur eins og Spotify og Netflix (jafnvel þegar bíllinn er ekki í akstri). Þrátt fyrir það krefjandi verkefni að setja allar stýringar í eitt viðmót hefur Tesla tekist það sérlega vel. Ökumaður var fljótur að átta sig á öllum helstu aðgerðum og brást skjárinn, sem er úr gleri, hratt við öllum snertingum. Í stýrinu voru síðan skrunhjól á hvorri hlið fyrir sig sem voru virkjuð fyrir ákveðnar skipanir í gegnum snertiskjáinn. Stefnuljósasveifin er enn á sínum stað ásamt rofa fyrir rúðuþurrkur en frekari stýring fyrir þær, eins og hraði, fór um snertiskjáinn góða. Hægri sveifin sá síðan um að skipta um „gír“.
greinilegar og mætti mögulega skrifa það á dekkin. Vindgnauður er í lágmarki en veghljóð var í meira lagi en búist var við og vil ég einnig kenna dekkjunum um þann þátt þar sem þau breið og stíf ásamt því að bergmál í farþegarými gæti einnig virkað sem magnari. Hröðunin í bílnum er langt umfram það sem maður má venjast úr fjöldaframleiddum bílum en „Long Range“ útgáfan er 4,6 sekúndur í hundraðið og er þetta ekki öflugasta útgáfan. Í reynsluakstrinum var ekið austur fyrir fjall og gafst gott tækifæri til að prófa sjálfstýringuna. Undirritaður
hefur prófað þó nokkuð marga bíla á þessari leið sem hafa skynvædda sjálfstýringu af einhverju tagi en Teslan bar af við þessa prófun. Þannig gat hún haldið stefnu og hraða á akbraut sem var nær ómerkt. Aksturinn var átakalaus og ekkert svig eða rykkir þegar bíllinn hélt sér innan línanna eða skipti um akgrein. Endurhleðslubremsan var ágæt í bílnum og nær alltaf hægt að aka án þess að þurfa að stíga á bremsuna. Það hefði verið góður kostur ef bíllinn stoppaði alveg niður í 0 og héldi kyrru fyrir á ljósum án þess að tippla í bremsu.
Akstur Því verður ekki leynt að Model 3 er einstaklega þægilegur akstursbíll. Fjöðrun er þétt án aukahljóða en ójöfnur voru aftur á móti full 40
Skottið er ágætlega stórt og varð enn rýmra þegar lúga í botninum var opnuð og er það því samtals um 425 lítrar.
Tesla Model 3 Long Range Aflrás: 361 kW rafmagnsmótor Hámarksafl: 442 hö. Hámarkstog: 600 Nm. Verð frá: 5.683.000 kr. Rafhlaða: 75 kWst. Rafmagnsnotkun (WLTP): 15 - 18 kWh/100km Drægni skv. framleið.: 560 km. Losun CO2: 0 g/km Eiginþyngd: 1881 kg Lengd / Breidd / Hæð (mm): 4.694 / 1.849 (án spegla) / 1.443 Veghæð (mm): 140 mm. Drægni, staðalbúnaður, notkun
Að framan er einnig smá geymslupláss sem dugir ágætlega fyrir íþróttatösku eða innkaupapoka.
Niðurstaða Fyrir mig sem áhugamann um bifreiðar og tækni er Tesla einstaklega góður og vel hannaður bíll. Bíllinn er góður sem fjölskyldubíll með gott pláss fyrir farþega og farangur. Drægnin er umfram allt sem maður hefur mátt venjast en eftir að hafa tekið við bílnum í 80% hleðslu og ekið honum til vinnu, heim og áfram í gegnum Þrengslin með viðkomu á Stokkseyri, Selfossi og fleiri stöðum þá átti ég enn 180 kílómetra í drægni þegar honum var skilað daginn eftir.
í farartæki fyrir heimilið og má fá marga frambærilega rafbíla á markaðnum fyrir um fjórar milljónir. En það virði sem Tesla er að bjóða upp á er umtalsvert og því mikið sem kaupendur fá fyrir peninginn. Vissulega er enginn bíll eða tæki gallalaus en þau fáu atriði sem hægt var að benda á skipta litlu þegar litið er á heildina. Það er á mörgu að taka varðandi þennan bíl og því er gott að benda á að þessi umfjöllun er alls ekki tæmandi. Ef þú hefur
Hljóðvist
áhuga á að fræðast frekar um Tesla þá hafa myndast margir áhugahópar um bílana á samfélagsmiðlum og netinu sem geta gefið aukna og upplýsingar. Tesla gefur okkur innsýn fjölda ára fram í tímann um hvað það er sem koma skal í hönnun bifreiða og notendaviðmóts. Björn Kristjánsson
Notendaviðmótið fór langt fram úr væntingum og er það greinilegt að ökumaður er í fyrsta sæti þegar kemur að hönnun á stýrikerfi. Þrátt fyrir að vera með yngri bílaframleiðendum í heimi tókst Tesla að skila framúrskarandi árangri í árekstrarprófunum Euro NCAP og fékk fimm stjörnur. Vissulega er verðmiðinn hærri en margir eru tilbúnir til að eyða 41
Reynsluakstur
Renault Zoe Það var með svolítilli tilhlökkun að ég ók rafbílnum Renault Zoe Intense á fallegum og sólríkum degi í byrjun júnímánaðar. Þetta er bíll sem hefur vakið nokkra athygli og fengið nýtt útlit sem lyftir honum á hærri stall. Renault Zoe er eitt af flaggskipum franska framleiðandans en hann hefur fengið góðar viðtökur og skildi engan undra. Drægi hans er mun meira en áður og það eitt kitlar fólk sem hefur í huga fjárfestingu á rafbíl og kannski sínum fyrsta á lífsleiðinni. Þegar rennt var af stað út úr borginni kom strax þægilega á óvart krafturinn sem þessi bíll býr yfir. Snerpan er fín og 136 hestöfl eru aðeins um sjö sekúndur að koma farartækinu á 100 km metra hraða. Bíllinn virkar þægilegur á margan hátt, lipur og mjúkur sem kom bersýnilega í ljós þegar á malarvegi var komið. Þetta er
42
með hljóðlátari bílum sem verður að teljast mjög góður kostur. Bíllinn er enn hljóðlátari á malbiki en á möl en samt ekkert til að kvarta yfir eða setja út á. Það skal hafa í huga að bíllinn er einnig fánlegur með minni rafmótor. Þegar kemur að drægi bílsins er hún un sögð 383 km og þá er verið að tala um við bestu hugsanlegu aðstæður. Það verður að teljast nokkuð gott en það er eins með þennan bíl sem og aðra að drægið er alltaf að aukast og það gerir rafbílinn enn álitlegri kost en þegar þessir bílar komu fyrst á markað. Eins og flestir rafbílaeiegndur kannast við verður drægið minna þegar veðurskilyrði eru ekki hagstæð eins og þegar hitastigið fer niður á við. Þegar kemur að hleðslunni sjálfri kemur fram að hægt er að hlaða bílinn í 80% hleðslu á um klukkutíma með 50kW hleðslustöð. Hleðslan
tekur skemmti tíma en áður sem er auðvitað mikill kostur. Taka skal fram að hægt er að fá aukabúnað, hraðrafhleðslu, sem kostar um 140.000 krónur. Að festa kaup á fyrsta rafbílnum sínum eru ákveðin tímamót hjá mörgum. Þessi ákvörðun er búin að standa fyrir dyrum í langan tíma þangað til að ákvörðunin er loksins tekin. Renault Zoe stendur vel undir nafni að mörgu leyti þótt annað mætti vera betra. Af smábíl að ræða er bara nokkuð gott rými í bílnum og frammi í fer nokkuð vel um stóran einstakling, bæði ökumann og farþega. Aftur á móti mætti plássið vera meira í aftursætum. Þetta á alls ekki bara um þennan bíl heldur langflesta í þessum stærðarflokki. Það er kannski furðulegt að framleiðendur skuli ekki huga meira að þessum þætti.
Mörgum finnst farangursrými í bílum almennt séð hafa minnkað með tímanum en í Renault Zeo kemur það þægilega á óvart. Af smábíl að vera leynir það svo
Af smábíl að ræða er bara nokkuð gott rými í bílnum
sannarlega á sér. Áður en lagt var upp í reynsluakstur var okkur sérstaklega tjáð af sölumanni að efnið í mælaborði bílsins og í hurðarspjöldum væri úr endurunnum gólfteppum og öryggisbeltum. Skemmtilegt er að hægt sé að nota efnin til ýmissa nota. Mælaborðið er stílhreint og góð útfærsla er á 9,3 tommu skjá sem kemur vel út.
Þegar allt er á botninn hvolt, hvað stendur þá upp úr eftir reynsluakstur á Renault Zeo. Þetta er bíll sem kemur að góðum notum sem annar bíll á heimili, alveg kjörinn í allt snatt og er lipur í akstri. Af hreinum rafbíl að vera er Renault Zeo álitlegur kostur. Að reynsluakstri loknum er alltaf hægt að týna eitthvað til, bæði kosti og galla. Fleiri kostirnir eru í þessum bíl. Þegar sett er út á smábíl er plássleysi og rými fyrst gagnrýnt. Í framsætum er ekki hægt að setja út á það en rýmið í aftursætum er fulllítið eins og áður kom fram. Bíllinn býr yfir svo mörgum góðum hlutum og er að auki hreinn rafbíll með ágætis drægi. Bíll sem sannarlega kemur til greina þegar næstu bílakaup eru skoðuð.
Renault Zoe Intens Aflrás: 100 kW rafmagnsmótor Hámarksafl: 136 hö. Hámarkstog: 245 Nm. Verð frá: 4.450.000 kr. Rafhlaða: 52 kWst. Rafmagnsnotkun (WLTP): 13,2 kWh/100km Drægni skv. framleið.: 340 km. Losun CO2: 0 g/km Eiginþyngd: 1563 kg Lengd / Breidd / Hæð (mm): 4.004 / 1.730 (án spegla) / 1.562 Veghæð (mm): 120 mm. Lipur, mjúkur, snöggur, drægi. Rými í aftursætum
Meira pláss mætti vera í aftursætum fyrir farþega
43
22. febrúar – 7. mars 2020
Mótorhjólaferð um Suður-Afríku Þegar ljóst varð í byrjun vetrar að okkur feðgum, Grími Axelssyni og Axel Eiríkssyni, ásamt félögum í BMW–mótorhjólaklúbbi Íslands, stóð til boða að taka þátt í þaulskipulagðri mótorhjólaferð um Suður-Afríku með þýsku vinafélagi okkar var bara eitt svar — við látum okkur ekki vanta. (MYND NR.1)
Íslendingarnir héldum nokkra undirbúningsfundi. Á þeim stilltum við saman strengi, útdeildum verkum, fórum yfir öryggisatriði, tryggingamál og hvað hver og einn ætti að taka með af hinu og þessu sem miklvægt er að hafa meðferðis í ferðalag sem þetta og þegar ýmislegt getur farið úrskeiðis.
Mikill undirbúningur liggur að baki slíkri ferð, bæði varðandi leyfi, útbúnað, alla tilhögun ferðarinnar og gistingu. Menn eru sammála um að maður þarf að vera í góðu formi líkamlega. Einnig þarf að gæta þess að fá sprautur við hinum ýmsu framandi sjúkdómum og að tryggingar séu í lagi svo að fátt eitt sé nefnt og allt þarf þetta að gerast tímanlega.
Sjö glaðir meðlimir úr BMW– mótorhjólaklúbbi Íslands mættu í Leifsstöð að morgni dags þann 20. febrúar síðastliðinn. Flogið var til London og þaðan í 14 klukkustundir í beinu næturflugi til Höfðaborgar. Á flugvellinum í Höfðaborg biðu hermenn okkar farþeganna með hitamæla að vopni til að fyrirbyggja að Covid-19 smit væru að berast til landsins. Allir sluppu í gegn með eðlilegan líkamshita og því gat fátt hindrað ævintýrið sem var að hefjast.
Ekki má gleyma að sækja um og hafa meðferðis alþjóðlegt ökuskírteini sem Félag íslenskra bifreiðaeigenda sér um útgáfu á með sinni alkunnu lipurð og þjónustulund. Við
Feðgarnir Axel Eiríksson og Grímur Axelsson njóta hafgolunar af Indlandshafi 44
Þátttakendur voru alls 32 á BMW– mótorhjólum, ásamt tveimur Suður– afrískum fararstjórum á mótorhjólum
og trússbíl sem flutti birgðir af vatni, varahlutum, sjúkragræjum og auka mótorhjól. Hjólin voru ný eða mjög nýleg og flest af gerðinni BMW R 1250 GS og öll voru sett á ný dekk í upphafi ferðar sem sagði okkur svolítið um álagið sem framundan var. Tvær BMW–mótorhjólaleigur í Höfðaborg sáu um að útvega hjólin. Þetta var stærsta ferð bæði hvað varðar fjölda þátttakenda og fjölda daga sem bæði þýski BMW GS klúbburinn og Suður–afrísku mótorhjólaleigurnar höfðu tekið þátt í. Hið sama átti við okkur frá Íslandi. Ferðin stóð í 13 daga á mótorhjólum og var búið að gera nákvæma leiðar- og upplýsingabók þar sem hver dagur var settur upp og með öllum helstu upplýsingum. Frá Höfðaborg lá leiðin í austur og var fyrsta næturstopp í Montagu Springs þar sem náttúrulegar heitar vatnsuppsprettur eru og ótrúleg náttúrufegurð.
Pálmatré og BMW GS 1250
Dagleiðirnar voru ca. 200 – 350 km. og voru ávallt tvær til þrjár leiðir í boði eftir því hversu krefjandi menn vildu hafa daginn. Mánuðina fyrir ferðina var búið að liggja yfir öllum vegum, slóðum og vegleysum til að setja saman hið fullkomna mótorhjólaævintýri með því besta sem Suður–Afríka hefur upp á að bjóða fyrir BMW GS mótorhjól. Á þessum 13 dögum var ekið um svæðið frá Höfðaborg til Port Elizabeth og svo í átt að Höfðaborg aftur. Gera verður ráð fyrir að óhöpp og slys geti orðið þegar svo krefjandi leið er farin og fór hópurinn ekki varhluta af því. Strax á þriðja degi missti aðalleiðsögumaður ferðarinnar BMW– hjól sitt í sandvilpu er hann missti einbeitingu eitt augnablik. Hann féll við og axlarbrotnaði. Það er því ekki úr vegi að minnast aftur á tryggingar og hversu mikilvægt er að hafa þær í lagi því að þegar ferðast er í útlöndum, svo að ekki sé talað um ferðalög í öðrum heimsálfum, getur verið kostnaðarsamt að þurfa að leita á sjúkrahús.
Grímur Axelsson og Axel Eiríksson við topp Swartberg fjallaskarðsins
Ekki urðu fleiri beinbrot í ferðinni þó að einhverjir hafi fengið byltur eða óvænt runnið til í sandi á grófum slóða og fengið smáskrámur. Það var aðallega stoltið sem varð fyrir hnjaski. (mynd nr.3) Allir ferðadagarnir voru einstakir og skipulagðir með þeim hætti að bjóða upp á sem mesta upplifun í akstri BMW GS við krefjandi aðstæður en með það að marki að aka um og sjá fallegustu og torsóttustu svæði í suð- austanverðri Suður–Afríku. Má þar nefna Swartberg Pass sem er um 30 km langur fjallvegur sem liggur um svæði á heimsminjaskrá UNESCO og var lagður árið 1888 og Seweweekspoort sem er um 18 km langur malarvegur sem hlykkjast um fjallaskörð með einstakri náttúrufegurð og er einnig á heimsminjaskrá UNESCO.
Tvisvar sinnum í ferðinni voru skipulagðir hvíldardagar fyrir þá sem það vildu. Þá var hópurinn tvær nætur á sama stað. Fyrra skiptið var á sjötta degi þar sem dvalið var í Addo Elephant Park sem er þriðji stærsti þjóðgarður Suður–Afríku og var stofnaður árið 1931. Þar var farið í safaríferð og horft á ljón, sebrahesta, gíraffa, flóðhesta og fleiri framandi dýr vera í sínu náttúrulega umhverfi. Síðari hvíldardagurinn sem boðið var upp á var níundi dagur. Þá var gist í tvær nætur í Oudtshoorn sem er bær sem breskir trúboðar stofnuðu árið 1814. Þeim sem fannst sól, hiti og svöl sundlaug ekki heillandi var boðið upp á að fara leiðina til helvítis sem heitir á frummálinu „The road to Die Hell“. Hjálpsamir vegfarendur hjálpuðu til eftir að hjól hafnaði utan vegar. Einar Halldórsson, Jóhannes Sigurðsson og Skúli Kristófer Skúlason
45
Vegurinn sem er um 37 km langur liggur um Swartberg–fjöllin og endar í afskekktum dal sem nefnist Gamkaskloof og er staðsettur milli Oudtshoorn og Prince Albert. Árla var farið af stað í nokkrum minni hópum með fullan tank, mat og nóg af vatni. Þegar komið var að hinum magnaða slóða til helvítis var þar áberandi skilti sem varar fólk við veginum sem framundan væri. Ekki voru sýnileg fleiri umferðaskilti á leiðinni en svo sannarlega hefði verið þörf á því. Við tók hápunktur ferðarinnar þar sem sandar, fjöll, dalir, fjallaskörð og stórgrýti voru allsráðandi. Þá þurfti að nota bæði huga, hendur og fætur til að halda sér á slóðanum og
Mæðinni kastað í Steytlerville - Eggert Árni Gíslason, Einar Halldórsson, Jóhannes Sigurðsson og Axel Eiríksson
móttaka fegurðina, allt í senn. Það var ljóst að hér mátti engin mistök gera sér í lagi þar sem þröngur og illfær vegurinn hlykkjaðist um snarbrattar hlíðar fjallanna en því vorum við orðnir vanir þegar hér var komið. Þegar lagt er í ferð sem þessa skiptir undirbúningur miklu máli eins og fyrr er getið. Til dæmis er vinstrihandarumferð í Suður–Afríku og getur tekið tíma að venjast henni. Við Íslendingarnir tókum með okkur límmiða með rauðri ör sem við deildum með félögum okkar. Menn límdu þessar rauðu áberandi örvar á framrúðuna á mótorhjólunum til að það færi ekki á milli mála hvorum megin á veginum átti að keyra. Það veitti ekki af því í upphafi ferðar og varð líklega einhverjum til happs.
Grímur Axelsson - Við upphaf leiðarinnar til helvítis - Enter at own risk!
46
Einnig kom í ljós að rafmagnsöryggi er ekki upp á marga fiska í Suður–Afríku vegna einokunarstöðu rafmagnsfyrirtækis í landinu. Þar er jafnan slökkt á
Jóhannes Sigurðsson, Skúli K. Skúlason, Eggert Árni Gíslason og Einar Halldórsson kæla mótorfáka sína
rafmagninu í þrjár klukkustundir á sólarhring milli svæða og því þurfti til öryggis að taka með eigin rafgeymi. Að leiðarlokum, að kveldi 7. mars, var mikil gleði í brjóstum allra þátttakenda og einnig þakklæti fyrir
Fararskjóti ferðarinnar BMW 1250 GS. Eknir voru um og yfir 3000 km í ferðinni og takkarnir á nýju dekkjunum búið við lok ferðar.
frábæra þjónustu fólks og viðmót allt og ekki má gleyma að geta þess að við hinir sísvöngu fengum mjög góðan og næringaríkan mat allan tímann. Á heimleiðinni varð okkur ljóst að eitthvað mikið hafði breyst í heiminum vegna faraldursins af völdum Covid-19 veirunnar. Við félagarnir erum þakklátir forsjóninni fyrir að hafa geta farið í þessa mögnuðu og áhyggjulausu ævintýraferð. Útsýni við topp Montagu fjallaskarðsins
Útsýni á leiðinni til Gamkaskloof 47
Eftirvagnar
Mikilvæg atriði sem er gott að hafa í huga
Allt virðist stefna í eitt stærsta ferðasumar hér á landi í langan tíma en sala á tjöldum, tjaldvögnum, fellihýsum og hjólhýsum hefur sjaldan verið meiri. En áður en farið er af stað er mikilvægt að kynna sér vel ástand bílsins og ekki síður ástandið á eftirvagninum. Oft á tíðum hafa vagnarnir staðið við misjafnar aðstæður í marga mánuði og er þeim síðan skellt aftan í bílinn og haldið af stað. Hér verður stiklað á nokkur mikilvæg atriði sem er gott að hafa í huga áður lagt er af stað. Dekk Með aldrinum þornar gúmmí í dekkjum og þau verða stífari og sleipari í bleytu. Þá fara að myndast litlar sprungur og eykst hætta á dekkið springi. Á öllum dekkjum er stimpill sem segir til um framleiðsluviku og ár. Þetta eru fjórar tölur þ.e. tvær fyrstu segja til um hvaða vika ársins er um ræða og síðan seinni tvær segja til um ártal. Á meðfylgjandi mynd má sjá tölurnar 0907 sem segir okkur að dekkið er framleitt í 9. viku 2007.
Þegar dekk eru orðin fimm ára má ætla að eiginleikar fari að glatast og er ekki ráðlagt að nota dekk sem hafa náð 10 ára aldri. Þessa reglu ætti að virða þrátt fyrir að dekk séu nær óslitin því að sprungur, þreyta og tapað grip þarf ekki endilega að sjást.
Burðarþolstöflu má finna síðar í greininni.
Val á dekkjum skiptir einnig máli, sérstaklega undir þyngri eftirvagna eins og felli- og hjólhýsi. Hér er ekki sérstaklega verið að tala um framleiðenda heldur hvert burðarþol dekkjana er. Burðarþol er tilgreint með tveimur til þremur bókstöfum og hægt að sjá nánar á meðfylgjandi töflu. Þá eru dekk, sem sérstaklega eru gerð fyrir mikinn burð, merkt C. Dæmi má nefna að algengt burðarþol á 13 tommu dekki er um 390 til 450 kíló sem er ágætt undir smábíl þar sem fjögur dekk deila álaginu. En séu þessi dekk sett undir hjólhýsi sem hefur t.d. heildarþyngd upp á 1500 kg er hýsið beinlínis orðið hættulegt þar sem dekkin hitna undan álagi, eru óstöðug og hætta á að þau hvellspringi. Loftþrýsingur
Aldur dekkja er táknaður með fjögurra stafa tölu þar sem fyrstu tvær tákna viku og seinni tákna ár. Því er þetta dekk framleitt í níundu viku árið 2007.
48
Það verður aldrei of oft kveðið að passa upp á að hafa réttan loftþrýsting. Séu upplýsingar ekki aðgengilegar á hýsinu sjálfu er um að gera að heyra í innflytjenda eða jafnvel nálgast frekari upplýsinga á Netinu. Brýnt er að hafa í huga að æskilegur loftþrýstingur er yfirleitt hærri á dekkjum sem hafa aukna hleðslu. Sé loftþrýstingur rangur
getur hýsið byrjað að „dansa“ aftan í bílnum,dekkin hitnað óeðlilega, hættan á að sprengja dekk eykst og svo veldur aukið viðnám meiri eldsneytiseyðslu. Hjólabúnaður Hjólalegur eru einn af þeim slithlutum sem vilja oft gleymast. Þær slitna með tímanum og þá byrjar að myndast slag í dekkinu. Sé ekkert að gert geta afleiðingarnar orðið þær að dekkið fer undan vagninum með ófyrirsjánlegum afleiðingum. Þrátt fyrir að þetta sé hluti af aðalskoðun vagna er góð regla að tjakka vagninn upp og taka á dekkinu. Sé hægt að hreyfa dekkið þegar togað er út eða ýtt inn þarf að láta kíkja nánar á málið. Þá er einnig ágætt að þreifa á felgunum eftir lengri akstur og hvort óeðlilegur hiti sé að myndast á öðru hvoru dekki. Ath! það þarf ekki endilega að benda til að eitthvað sé að ef einhver hiti sé frá dekkjunum og hann sé jafn báðum megin. Ljós Ljósin verða að sjálfsögðu að vera í lagi, bremsuljós, stöðuljós og breiddarljós að framan, svo að eitthvað sé nefnt. Hafið hugfast að
Hleðsla Eitt af mikilvægustu atriðum þegar kemur að öryggi við drátt á eftirvagni er að hafa rétta hleðslu. Hlaða skal vagninn þannig að þyngdin hvíli sem mest á öxlum hans. Sé hleðslan of mikil fyrir framan öxul leggst þyngdin á beislið og bílinn. Bíllinn hefur nóg með sjálfan sig, allan farangur í skottinu og því getur aukin þyngd skert virkni fjöðrunarbúnaðar, aukið álag á dekk og bíllinn fer að láta illa
ljósin á vagninum eru þau einu sem bílarnir á eftir sjá þar sem bíllinn er í hvarfi. Bremsur Á öllum eftirvögnum sem eru skráðir yfir 750 kg að heildarþyngd er gerð krafa um sjálfstæðan bremsubúnað á vagninum sjálfum. Bremsukerfin eru misjöfn en algengt er að sjá þrýstibremsur á beisli og síðan rafmagnsbremsur. Þennan búnað þarf að yfirfara reglulega, sérstaklega með tilliti til þess hversu lengi vagnar standa ónotaðir. Gott er að hafa sömu reglu varðandi hjólalegurnar, þ.e. ef óeðlilega mikill hiti er að myndast getur það bent til að bremsubúnaður liggi út í bremsuskálina. Speglar Ekki má gleyma framlengingum á hliðarspeglum því að ökumaður sem veit ekki hvað er að gerast fyrir aftan sig getur skapað mikla hættu, t.d. þegar víkja þarf fyrir lögreglu- og/eða sjúkrabílum í forgangsakstri.
hætta skapast á að lásinn nái ekki lengur að halda öruggri tengingu. Á sumum beislum er öflugri læsing eða þvinga sem læsist um kúluna og hægir á snöggum hreyfingum. Þennan búnað þarf að yfirfara reglulega og skipta um fóðringar í. Á flestum vögnum sem hafa bremsur er bremsuvír festur í bílinn þegar vagninn er tengdur. Ef vagninn skyldi losna frá á ferð togast í vírinn og bremurnar virkjast á vagninum. Því er mjög mikilvægt að setja ekki auka keðju festingar sem geta haldið í vagninn þegar bremsuvír hefur verið virkjaður.
Sé eftirvagninn breiðari en bíllinn sjálfur þá er mikilvægt að hafa framlengingar á hliðarspegla svo ökumaður geti séð aftur fyrir vagn.
Þrátt fyrir að dekk séu með gott munstur geta þau misst eiginleika vegna aldurs. Á þessu dekki má sjá hvernig sprungur eru farnar að myndast og því dekkið byrjað að missa styrk.
Sífellt fleiri setja þráðlausar bakkmyndavélar á hjólhýsi og þær geta skipt sköpum þegar verið er að bakka, t.d. innan um fólk og börn á tjaldsvæðum. Beisli Með tímanum slitnar kúlusætið á beislinu og þá getur myndast sláttur þegar hýsið fjaðrar og tekur í bílinn. Sé ekkert að gert versnar ástandið og getur farið að skemma kúluna og 49
af stjórn. Þá eru flest dráttarbeisli ekki gerð fyrir nema um 75–100 kg hleðslu og því er mikið í húfi. Sama gildir um of mikla þyngd fyrir aftan öxul. Hýsið byrjar þá að toga í bílinn og rykkja afturendanum upp í ójöfnum. Þetta ástand getur skapað mikla hættu þar sem hýsið getur farið á flökkt sem stigmagnast þar til ekki verður aftur snúið og ökumaður missir alla stjórn á bílnum.
Táknkóði fyrir burðarþol
Burðarþol í kílóum
Táknkóði fyrir burðarþol
60
250
86
530
61
257
87
545
62
265
88
560
63
272
89
580
64
280
90
600
65
290
91
615
66
300
92
630
67
307
93
650
68
315
94
670
69
320
95
690
70
335
96
710
71
345
97
730
72
355
98
750
73
365
99
775
74
375
100
800
Réttindi
75
385
101
825
Að sjálfsögðu þurfa öll réttindi að vera í lagi til að draga viðkomandi vagn. Með B réttindum má vagnlestin, þ.e. heildarþyngd eftirvagns og heildarþyngd bíls, samanlagt ekki fara yfir 3500 kg. Þeir sem tóku bílpróf fyrir 1997 fengu einnig BE réttindi sem veita rétt til að heildarþyngd vagns megi vera allt að 3500 kg og síðan heildarþyngd bíls 3500 kg.
76
400
102
850
77
412
103
875
78
425
104
900
79
437
105
925
80
450
106
950
81
462
107
975
82
475
108
1000
83
487
109
1030
84 85
500 110 1060 515 111 1090 Burðarþol er táknað með tölustöfum á hlið dekksins.
Æskilegt er að eftirvagnar séu í eins beinni línu við bílinn eins og hægt er. Sé dráttarkúlan of hátt upp hallar vagninn upp á við og lætur illa að stjórn. Til að leysa þessi mál er mögulega hægt að fá lægri krók, breyta beisli eða jafnvel hækka eftirvagn upp.
Burðarþol kílóum
í
Sé ökumaður óvanur að draga þungan eftirvagn eða ef um nýtt tæki er að ræða er gott að taka prufuakstur áður en lagt er af stað í langa ferð. Fylgist þá með því hvernig vagninn lætur, hvort hann sé að rása til eða rykki óeðlilega í bílinn í ójöfnum? Hvernig hegðar bíllinn sér? Er hann að fjaðra eðlilega að aftan og lætur hann vel að stjórn? Óeðlilegur hávaði eða víbringur er ekki eðlilegt ástand og þarf að skoða nánar áður en lengra er haldið. Að lokum snýst þetta allt um almenna skynsemi. Hafið einbeitinguna í lagi og hagið akstri í takt við það sem er verið að draga því að akstureiginleikar bílsins eru ekki þeir sömu og umfang bílsins á veginum hefur margfaldast. Njótum þess að ferðast og gleðilegt sumar. 50
Björn Kristjánsson
Annar áfangi af breikkun milli
Hveragerðis og Selfoss
Vegagerðin og Íslenskir Aðalverktakar skrifuðu á vormánuðum undir verksamning vegna annars áfanga breikkunar Suðurlandsvegar á milli Hveragerðis og Selfoss. Verkið er unnið í beinu framhaldi af fyrsta áfanga sem lauk í fyrra og er um að ræða ríflega 7 km kafla. Verkið heitir formlega Biskupstungnabraut – Hveragerði, 2. áfangi; Biskupstungnabraut – Gljúfurholtsá. Verksamningur hljóðar upp á 5.069 m. kr. í samræmi við tilboð ÍAV hf. sem átti lægsta tilboðið. Heildarkostnaður verður meiri enda er ekki inn í þessari tölu kostnaður við undirbúning, hönnun og eftirlit. ÍAV var einnig með fyrsta áfanga verksins og þekkir því vel til aðstæðna á þessu svæði. Nú þegar hefur ÍAV hafið undirbúning að uppsetningu vinnubúða og hóf fyrirtækið störf af krafti strax eftir páska.
Nánar um verkið. Um er að ræða nýbyggingu Hringvegar að hluta og breikkun og endurgerð að hluta, alls um 7,1 km. Gerð verða ný vegamót við Kirkjuferjuveg og Hvammsveg eystri, ásamt nýju hringtorgi við Biskupstungnabraut. Lagður verður nýr tæplega 5 km Ölfusvegur með hjólareinum ásamt breytingu á Þórustaðavegi og Biskupstungnabraut. Byggð verða þrjár nýjar brýr á Gljúfurholtsá og Bakkárholtsá, undirgöngum fyrir bíla við Þórustaði og við Kotströnd þar sem Ölfusvegur fer undir nýjan Hringveg. Þá verða byggð tvenn sérstök undirgöng fyrir reiðleiðir og gönguleiðir. Einnig eru breytingar á lögnum veitufyrirtækja innifalin í verkinu. Markmið framkvæmdarinnar er að auka umferðaröryggi með því að aðskilja akstursstefnur og fækka tengingum við Hringveg ásamt því að auka umferðarrýmd vegakerfisins milli Hveragerðis og Selfoss.
Með framkvæmdinni verður jafnframt til nýr samfelldur hliðarvegur, Ölfusvegur, með sérstökum hjólareinum frá Hveragerði að Biskupstungnabraut. Að loknum framkvæmdum verða einungis tvenn vegamót á kaflanum frá Biskupstungnabraut að Hveragerði. Til að ljúka breikkun Hringvegar og aðskilnaði akstursstefna frá Biskupstungnabraut að Kömbum er síðan gert ráð fyrir að Hringvegur verði færður til suðurs við Hveragerði í nýja veglínu samkvæmt aðalskipulagi Hveragerðisbæjar. Sú framkvæmd er í undirbúningi og er gert ráð fyrir henni á samgönguáætlun árið 2023. Verkinu skal að fullu lokið 29. september 2023.
51
Bíllinn hefur staðist allar væntingar og gott betur Tesla Model 3 er vinsælasti rafbíllinn og á næstunni er búist við að yfir 500 þúsund eintök verði seld í heiminum. Bíllinn kom fyrst á markað 2017 og síðan þá hafa sölutölur rokið upp úr öllu valdi. Hér á landi hefur bíllinn selst gríðarlega vel og sölutölur sýna hann í efstu sætum. Stefán Árni Stefánsson, kerfisfræðingur úr Reykjanesbæ, pantaði Tesla Model 3 í september á síðasta ári og um miðjan mars fékk hann bílinn í hendurnar. „Það hefur lengi verið draumur minn að eignast Model 3 og það er óhætt að segja að bíllinn hefur staðist allar væntingar mínar og gott betur en það. Ég var að spá í Model S í upphafi en mér fannst hann of dýr. Ég taldi mig fyrirfram vita nokkuð um aksturseiginleika bílsins. Af akstrinum til þessa hefur það staðist fullkomnlega. Það er nánast varla hægt að setja út á neitt. Ég átti e-Golf frá 2016 en Model 3 hefur marga
52
kosti fram yfir hann,“ sagði Stefán Árni í samtali við FÍB-blaðið en þá var hann á ferð um Snæfellsnes í sumarfríinu. Alltaf komi drægnin og þægindin á óvart Stefán Árni sagði að drægni Model 3 sé gríðarlega góður kostur. Hann segist nota bílinn mikið á vegum úti á landi og alltaf komi þægindin og drægnin skemmtilega á óvart. Ekki megi heldur gleyma kraftinum sem bíllinn býr yfir. „Ég ók nýlega frá Akureyri og heim í Reykjanesbæ og það voru 10% eftir á hleðslunni þegar ég kom heim á áfangastað. Eftir því sem hleðslustöðvum Tesla fjölgar á landsbyggðinni er ekkert mál að ferðast á þessum bíl. Ég hef verið að draga tjaldvagn og það er ekkert mál. Í því verkefni er bíllinn vel nothæfur
eins og um bensínbíl væri að ræða. Ég veit um dæmi að bíllinn hefur verið að draga um 900 kg og það var ekkert mál. Mér hefur enn fremur fundist bíllinn sparneytnari í keyrslu úti á landi en innanbæjar sem er frábært af rafbíl að vera,“ sagði Stefán Árni. Um toppeintak að ræða Hann sagðist ekki vera hissa á því að þessum bílum fjölgi mikið á götunum. Þarna er bara hreinlega um toppeintak að ræða. Hann væri ekki frá því að þeim muni fjölga mikið á næstu árum. „Orkuskipti eru mikið í umræðunni og þessi bíl er innlegg í þá umræðu. Þetta er bíll með öllu og ljóst að samkeppnisaðilar eru að mæta harðri samkeppni,“ sagði Stefán Árni Stefánsson í spjallinu við FÍB-blaðið.
Stefán Árni Stefánsson búinn að koma sér fyrir á tjaldsvæði á vesturlandi
FÍB-Aðstoð á Höfn
Íslendingar mun meira á ferðinni en áður „Það er óhætt að segja að maður muni tímana tvenna í þessari þjónustu. Maður hefur komið að ýmsu í starfinu en það er gefandi að koma fólki til hjálpar í vandræðum. Þetta verður svolítið öðruvísi í sumar en nú eru nánast engir útlendingar hér á ferð. Við lítum á þetta sem tímabundið ástand”, sagði Guðbrandur Jóhannsson sem annast hefur FÍB-aðstoð á Höfn í Hornafirði og þar í grennd í yfir 15 ár. Guðbrandur segir að þegar óskir berast um hjálp eru þær af ýmsum toga. Ökumenn hafa sett rangt eldsneyti á bílinn, dekk hefur sprungið og bílar hafa fest sig í snjó eða í drullu. Guðbrandur og félagar eru vel tækjum búnir og veita góða þjónustu þegar kemur að dekkjaskiptum og bílaflutningum. Verður óvenjulegt sumar á margan hátt „Kringumstæður eru allar breyttar þegar horft er til sumarsins. Núna verða fáir erlendir ferðamenn hér á ferð en þess heldur verður meira um Íslendinga. Við tökum nú þegar eftir því að Íslendingar eru í meira mæli á ferð um landið sitt. Það er mjög algengt að sjá vagna í eftirdragi og húsbíla, mun meira en áður. Þetta verður óvenjulegt á margan hátt í sumar en við hlökkum til sumarsins og erum alltaf til þjónustu reiðubúnir,“ sagði Guðbrandur Jóhannsson hjá FÍB-aðstoð á Höfn.
53
Verkstæði - Varahlutir - Smurþjónusta - Metan ísetningar
Vantar
NÝJA lykla? Smíðum og forritum flestar gerðir bíllykla Húslyklar Lyklakerfi Sílendrar
Láshús og fylgihlutir Peningaskápar Hurðapumpur
Skemmuvegi 4, Kóp. . www.las.is . s: 510 8888 . Opið alla virka daga 8-17
54
ALTERNATORAR & STARTARAR Í FÓLKSBÍLA, JEPPA, VÖRUBÍLA OG VINNUVÉLAR
✔ Bíldshöfði 14, 110 Reykjavík ✔ Sími: 553 1244 ✔ ljosboginn@ljosboginn.is ✔ www.ljosboginn.is
Á að aka erlendis? Ekki gleyma alþjóðlega ökuskírteininu. Afgreitt samdægurs. Nánari upplýsingar á FÍB.is
Notaðu FÍB afsláttinn! Með því að sýna FÍB skírteinið hefur þú aðgang að fjölda afslátta um land allt.
Nánar á FÍB.is 55
Varahlutir í bílinn Ve r ksmiðju á byrgð á þ í n u m b í l er tr y g g ð með vot t u ðu m va rah l u tu m f rá Sti l l i n g u
Smursíur
Rafgeymar
Kerti, háspennukefli, kveikjuþráðasett, súrefnisskynjarar og loftflæðiskynjarar
Tímareimar og vatnsdælur
Kúplingar
Demparar, gormar og stýrisendar Hemlahlutir
56 56
Allt fyrir bílinn St il l in g hf. | Sí mi 5 2 0 8 0 0 0 | w w w. s t i l l i n g . i s | s t i l l i n g @ s t i l l i n g . i s