FÍB Blaðið 2.tbl. 2020

Page 42

Reynsluakstur

Renault Zoe Það var með svolítilli tilhlökkun að ég ók rafbílnum Renault Zoe Intense á fallegum og sólríkum degi í byrjun júnímánaðar. Þetta er bíll sem hefur vakið nokkra athygli og fengið nýtt útlit sem lyftir honum á hærri stall. Renault Zoe er eitt af flaggskipum franska framleiðandans en hann hefur fengið góðar viðtökur og skildi engan undra. Drægi hans er mun meira en áður og það eitt kitlar fólk sem hefur í huga fjárfestingu á rafbíl og kannski sínum fyrsta á lífsleiðinni. Þegar rennt var af stað út úr borginni kom strax þægilega á óvart krafturinn sem þessi bíll býr yfir. Snerpan er fín og 136 hestöfl eru aðeins um sjö sekúndur að koma farartækinu á 100 km metra hraða. Bíllinn virkar þægilegur á margan hátt, lipur og mjúkur sem kom bersýnilega í ljós þegar á malarvegi var komið. Þetta er

42

með hljóðlátari bílum sem verður að teljast mjög góður kostur. Bíllinn er enn hljóðlátari á malbiki en á möl en samt ekkert til að kvarta yfir eða setja út á. Það skal hafa í huga að bíllinn er einnig fánlegur með minni rafmótor. Þegar kemur að drægi bílsins er hún un sögð 383 km og þá er verið að tala um við bestu hugsanlegu aðstæður. Það verður að teljast nokkuð gott en það er eins með þennan bíl sem og aðra að drægið er alltaf að aukast og það gerir rafbílinn enn álitlegri kost en þegar þessir bílar komu fyrst á markað. Eins og flestir rafbílaeiegndur kannast við verður drægið minna þegar veðurskilyrði eru ekki hagstæð eins og þegar hitastigið fer niður á við. Þegar kemur að hleðslunni sjálfri kemur fram að hægt er að hlaða bílinn í 80% hleðslu á um klukkutíma með 50kW hleðslustöð. Hleðslan

tekur skemmti tíma en áður sem er auðvitað mikill kostur. Taka skal fram að hægt er að fá aukabúnað, hraðrafhleðslu, sem kostar um 140.000 krónur. Að festa kaup á fyrsta rafbílnum sínum eru ákveðin tímamót hjá mörgum. Þessi ákvörðun er búin að standa fyrir dyrum í langan tíma þangað til að ákvörðunin er loksins tekin. Renault Zoe stendur vel undir nafni að mörgu leyti þótt annað mætti vera betra. Af smábíl að ræða er bara nokkuð gott rými í bílnum og frammi í fer nokkuð vel um stóran einstakling, bæði ökumann og farþega. Aftur á móti mætti plássið vera meira í aftursætum. Þetta á alls ekki bara um þennan bíl heldur langflesta í þessum stærðarflokki. Það er kannski furðulegt að framleiðendur skuli ekki huga meira að þessum þætti.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
FÍB Blaðið 2.tbl. 2020 by Félag íslenskra bifreiðaeigenda - Issuu