Reykjanes Á Reykjanesi er tilvalið fyrir fjölskylduna að njóta útivistar og afþreyingar enda er þar fjölmargt í boði. Inn á milli leynast faldar perlur sem margir eiga eftir að uppgötva. Hér höfum við tekið saman lista yfir það markverðasta fyrir barnafjölskyldur og fólk á öllum aldri sem nýtur útivistar og menningar eða er að leita eftir dægradvöl. Sundferð Öll góð ferðalög enda á sundferð. Á Reykjanesi má finna sundlaug í hæsta gæðaflokki í hverju einasta sveitarfélagi. Innilaugin í Reykjanesbæ er einstaklega hentug fyrir yngstu börnin en allar hafa laugarnar ákveðin sérkenni og sjarma. Fjöruferð Reykjanes á nóg af fjörum sem auðvelt er að sækja. Hvíti sandurinn á Garðskaga, svarti sandurinn í Sandvík eða magnað landslagið við Kleifarvatn þar sem tilvalið er að busla og njóta náttúru á góðviðrisdegi.
36
Skógarferð Já, það er hægt að fara í skógarferð á Reykjanesi. Sólbrekkur er tilvalið svæði fyrir fjölskyldur að heimsækja. Skógi vaxið svæði þar sem leiktæki eru til staðar, auk þess sem þar er hægt að grilla. Þar eru góðir göngustígar og tilvalið að hjóla, hlaupa eða ganga meðfram Seltjörn. Háibjalli við Snorrastaðartjarnir er afar fallegur trjálundur í skjóli kletta þar sem einnig er hægt að grilla og njóta. Þar sem er mikið fuglalíf. Þaðan er einnig hægt að ganga eftir Hrafnagjá sem er gróðurmikil sprungugjá. Selskógur er eitt af útivistarsvæðum Grindvíkinga og liggur við rætur Þorbjörns. Þar eru gönguleiðir og glæsilegt nestishús. Svo er stutt í Bláa Lónið. Gönguleiðir Gönguleiðir eru um gjörvalt Reykjanes og margar þeirra eru einstaklega aðgengilegar og hentugar fyrir börn. Nægir þar að nefna Eldborg við Geitahlíð en hægt er að ganga upp að Stóru-
Eldborg, sem margir telja fegursta gíg Suðvesturlands, og þaðan niður í LitluEldborg þar sem hægt er að sjá ofan í gíginn. Stampar eru mjög aðgengilegir fyrir fríska fætur. Þaðan er magnað útsýni yfir Sandvík, úfið hraunið og Reykjanestá. Staðarborg er ótrúlegt hlaðið hringlaga mannvirki sem er staðsett 2–3 km frá Kálfatjarnarkirkju. Brú milli heimsálfa er einstök á heimsvísu enda staðsett á plötuskilum Evrópu og Ameríku. Selatangar hafa að geyma verðbúðarrústir og stórbrotið umhverfi. Safna- og menningarferð Reykjanes hefur að geyma fjölmörg söfn þar sem allir finna eitthvað við sitt hæfi. Má þar nefna: Skessuna í hellinum, Rokksafn Íslands, Víkingasafnið, Duus hús, byggðasafnið á Garðskaga, Þekkingarsetrið í Sandgerði og Saltfisksetrið í Grindavík. Glæsileg bókasöfn eru einnig á Reykjanesi þar sem gaman er að grúska í bókum og leika.
Sogin við Trölladyngju og Grænudyngju.