Suðurland Leyfum okkur að prófa allskonar
Gullfoss er foss í Hvítá upp af Haukadal í Árnessýslu. Fossinn er einn vinsælasti ferðamannastaður landsins.
Íslendingar hafa alltaf verið duglegir að ferðast um landið sitt. Líklega er algengasti ferðamáti Íslendinga innanlands með þeim hætti að keyra um landið, fara í útilegur með fjölskylduna eða í sumarbústaðinn. Notalegt er að grilla í bústaðnum og á tjaldsvæðum vítt og breitt um landið og frábært að skella sér í sund á fjölmörgum stöðum. Á Íslandi er fjölbreytt afþreying í boði. Á Suðurlandi er til að mynda fjölbreytt afþreying á borð við hellaferðir, fjórhjólaferðir, rib bátaferðir, kajak, zipline, hestaferðir, köfun, hjólaferðir, jeppaferðir, íshellaferðir, snjósleðaferðir, gönguferðir með leiðsögn, fuglaskoðun, skoðunarferðir á margvísleg söfn, heimsókn í húsdýragarða og margt fleira. Matarupplifun á fjölbreyttum veitingastöðum er víða að finna á Suðurlandi þar sem boðið er upp á mat úr sunnlensku hráefni. 34
Einnig er hægt að finna fjölbreytta gistingu um allt Suðurland eins og gistihús, hótel, íbúðagistingu, tjaldstæði, hostel og sumarhús í útleigu. Þetta fjölbreytta framboð af veitingastöðum, afþreyingu og gistingu er hluti af þeim jákvæðu áhrifum sem ferðaþjónustan hefur á samfélagið.
Gleymum við að upplifa Ísland á sama hátt og við leyfum okkur að upplifa þegar við erum erlendis? Við erum vön því að geta gert skemmtilega hluti á Íslandi þar sem við getum séð að mestu um okkur sjálf, eins og að fara í útilegu og sund, og leyfum okkur oft á tíðum ekki að kaupa afþreyingu og upplifun á Íslandi líkt og við gerum erlendis. En hvað gerum við þegar við ferðumst erlendis? Við kaupum okkur gistingu, förum út að borða, förum jafnvel í leiðsagðar ferðir þar sem við fáum tækifæri til að heyra um sögu staðarins, við förum á söfn og kaupum okkur allskonar afþreyingu. Sem sagt, við leyfum okkur að upplifa og kynnast svæðinu sem við heimsækjum og hvað það hefur upp á að bjóða. Hvernig viljum við hafa sumarfríið okkar í sumar þegar við komumst ekki af landi brott? Viljum við ekki fá aukna upplifun í ferðalagið, hvort sem það er langt eða stutt? Það gerum við með því að upplifa matinn og veitingastaðina, ferðast um landið með augum ferðamannsins og jafnvel með leiðsögumann okkur við
Skógafoss er 60 metra hár og 25 metra breiður foss í Skógá við Skóga í Rangárþingi eystra á Íslandi. Fossinn var friðlýstur árið 1987 og telst náttúruvætti.