Vestfirðir Til dæmi um fjölskyldurúnt frá tjaldsvæðinu á Tálknafirði er hægt að byrja daginn á morgunbaði en ekki er nema um klukkutíma rúntur frá Tálknafirði yfir í Reykjafjarðarlaug í Arnarfirði. Þar ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi, sjóðheit og grunn náttúrulaugin er frábær fyrir gamla þreytta foreldrakroppa eftir tjaldsvefn næturinnar á meðan örlítið kaldari sundlaugin er ævintýraland fyrir hressa krakka, slímugur botninn er eins og fínasta skautasvell og dýpri endinn er fullkominn leynistaður til þess að fylgjast með skrímslaferðum í fjöruborðinu. Talandi um skrímsli, segja má að Arnarfjörðurinn sé griðarstaður skrímsla á Íslandi og því er um að gera að vera vel vakandi og hafa augun á fjöruborðinu í rúnti dagsins. Best er þó að skella sér í heimsókn í Skrímslasetrið á Bíldudal og fræðast aðeins betur um þessar verur, það getur verið erfitt að finna þær ef maður veit ekki eftir hverju á að leita.
30
Eftir sundsprett og heimsókn í Skrímslasetrið er ekki ósennilegt að hungur sé farið að láta kræla á sér, hamborgarinn á Vegamótum er vel þess virði að kíkja þar við og það sama má segja um fisk og franskar sem einnig er á matseðlinum. Að hádegisverði loknum er kominn tími á skrímslaleit. Ketildalirnir eru vel til þess fallnir þar sem vegurinn liggur meðfram sjónum og gylltum ströndum sem gaman er að stoppa við og byggja eins og einn kastala eða tvo ef ekkert gengur í skrímslaleit. Bæði Hvestudalur og Bakkadalur eru með stórar hvítar fjörur sem einna helst mætti líkja við fínustu sólarströnd erlendis, veðrið getur þó verið aðeins annað en á sólarströndinni en sandurinn engu síðri og jafnvel betri. Eftir fjörugleði liggur leið út í Selárdal, þar sem vegurinn endar og verk Samúels Jónssonar taka á móti okkur. Samúel var oft kallaður listamaðurinn með barnshjartað og
Varúðarskilti fyrir sjóskrímsli í Arnarfirði
það er einstaklega auðvelt að ímynda sér ævintýri Arnarfjarðar með verk hans og verur í aðalhlutverkum. Þegar allir eru orðnir vel mettaðir af ævintýrum og barnslegri list Samúels er kominn tími á að snúa aftur á Tálknafjörð. Hafi engin skrímsli látið á sér bæra nú þegar er um að gera að hafa augun á fjörunni og sjónum á meðan ekið er til baka eftir Ketildölunum. Í versta falli hljóta allavega einhverjir hvalir eða selir að sýna sig. Rúntur dagsins hefur að mestu leyti verið um kræklótta en skemmtilega malarvegi, með sjóinn á aðra hönd og fallega dali eða himinhá fjöllin á hina.
Sundlaugin í Reykjarfirði í Arnarfirði