FÍB Blaðið 2.tbl. 2020

Page 26

Vesturland Á Vesturlandi blasir sagan ljóslifandi við í hverju skrefi: Íslendingasögur, þjóðsögur eða jafnvel bara sögur af mönnum og málefnum. Sögusvið þessara sagna er hvarvetna að finna á svæðinu. Margar Íslendingasögurnar eru skráðar á Vesturlandi, svo sem Egilssaga, Sturlunga, Laxdæla og Eyrbyggja, og því er svæðið oft kallað Sögulandið Vesturland. Landslagið, náttúran og menningin endurspeglar þessa arfleifð og færir sögunum líf. Styrkleikar Vesturlands liggja í náttúruundrum þess, ríkri sögu og góðu aðgengi allt árið um kring. Sagan var að stórum hluta skrifuð í Borgarfirði og allt í kringum Vesturland má sjá og upplifa merkar minjar frá landnámi Íslands. Þjónusta hefur aukist verulega á síðustu árum og auðvelt er að skipuleggja hið fullkomna ferðalag sem innifelur fjölbreytta afþreyingu, góðan mat og gistingu sem hentar mismunandi þörfum. Hvalfjörður er talinn einn af fegurri fjörðum landsins. Hann er einn lengsti fjörður á landinu, staðsettur nærri höfuðborgarsvæðinu og útsýnið þar er stórkostlega fallegt á góðviðrisdögum. Innst í botni fjarðarins er vinsælt útivistarsvæði og skemmtileg en krefjandi gönguleið að fossinum Glym. Kyrrð og friður ríkir í firðinum og fuglalíf er fjölbreytt. Víða í Hvalfirði má finna ýmsar minjar frá hernámsárunum 1940–1945, þar sem Bandaríkjamenn reistu mikla bækistöð í landi Sveitasæla á Vesturlandi. ljósmyndari: Dagbjört Dúna Rúnarsdóttir

Miðsands og Litlasands við Hvalfjörð. Þar má einnig finna heillega bragga sem herlið Bandamanna reisti á stríðsárunum og safn þar sem rakin er einstök og merkileg saga hernámsins. Akranes er stærsta bæjarfélagið á Vesturlandi. Strandlengjan þar er fjölbreytt og skemmtileg og kjörið að byggja þar sandkastala með fjölskyldunni, njóta útsýnis, baða sig í sjónum eða heitri náttúrulaug í grjótgarðinum. Þar er einnig að finna vita sem hægt er að ganga upp í, stórt safnasvæði og útivistarsvæði margvísleg. Borgarfjörður og Mýrar er svæði sem er rómað fyrir náttúrufegurð. Það er að miklu leyti hulið gömlu og grófu hrauni þar sem ár og lækir renna um og búa til einhverja glæsilegustu fossa á Íslandi. Í Borgarfirði má finna öflugasta hver Evrópu, einn fallegasta foss landsins, stærsta hraunhelli á landinu, næststærsta jökul í Evrópu, náttúruböð og sögulega staði. Borgarfjörðurinn er sannkölluð jarðhitaparadís þar sem sagan drýpur af hverju strái og fjölmörg söfn, setur og menningartengd þjónusta er á svæðinu ásamt gnægð af veitingastöðum, úrvali gististaða og fjölbreyttri afþreyingu. Hraunfossar í Borgarfirði. ljósmyndari: Ragnar Th.

26


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
FÍB Blaðið 2.tbl. 2020 by Félag íslenskra bifreiðaeigenda - Issuu