Þjónustuhús við þjóðveginn Í lok janúar 2020 opnuðu Sannir landvættir þjónustuhús fyrir ferðamenn við Laufskálavörðu í Skaftárhreppi, við vegamótin að Hrífunesi. Við húsið er nýtt og stærra bílastæði en áður var á svæðinu og er ekið inn á það af Hrífunesvegi (209). Húsið er hannað af Stáss arkitektum 2019 og smíðað af félaginu Fjölur ehf. Húsið og bílastæðið er hugsað sem áningarstaður fyrir ferðamenn á leið um Suðurland og í því eru tvö salerni og eru þau með gjaldtökubúnaði. Einnig er gert ráð fyrir að í húsinu verði þvottavél og þurrkari svo að ferðamenn geti skellt í vél og þurrkað á meðan þeir njóta fagurs útsýnis á staðnum og fá sér nesti. Á þaki hússins er útsýnispallur Við húsið verða borð sem hægt verður að nota til að borða nesti og hugsanlega verður einnig staðsettur vagn sem selur götubita á bílaplaninu hluta úr ári. Þá verður
einnig aðstaða fyrir hjólreiðamenn að dytta að hjólum sínum. Á vesturhlið hússins, sem snýr að Mýrdalsjökli, er bekkur þar sem ferðamenn geta sest og notið fagurrar fjallasýnar og á austurhliðinni er neysluvatnskrani til að fylla á brúsa og flöskur. Á þaki hússins er svo útsýnispallur en af þakinu er víðsýnt og sést Lómagnúpur og Öræfajökull þegar skyggni er gott og einnig Mýrdalsjökull og Skaftártunga. Salernin eru með snertilausum blöndunartækjum með sambyggðum handblásara og sápuskammtari er einnig snertilaus. Annað salernið er með aðgengi fyrir alla, þá sem eru hreyfihamlaðir og aðra sem þurfa slíka aðstöðu. Gjaldið er 200 krónur fyrir notkun og gjaldtökubúnaðurinn tekur við debet- og kreditkortum, auk myntar. Einnig er hægt að greiða með snjallsímum s.s. Apple pay. Í framtíðinni er stefnt að því að á bílastæðið komi hleðslustöðvar fyrir rafbíla.
Félagar í FÍB verði duglegir að nýta sér aðstöðuna Starfsemin var rétt hafin þegar Covid–19 faraldurinn skall á þannig að hrun varð í fjölda ferðamanna. Því hefur notkun verið undir væntingum en vonir standa til að það breytist með vaxandi ferðamannastraumi. Við sjáum t.d. að íslenskir ferðamenn taka þessu framtaki vel og höfum við almennt fengið góð viðbrögð, bæði yfir þjónustunni og einnig fengið hrós fyrir húsið, að það sé vel heppnað og íslensk hönnun. Það er von okkar hjá Sönnum landvættum að félagar í FÍB taki okkur vel og verði duglegir að nýta sér aðstöðuna. Ef rekstur þessa húss gengur vel má reikna með að sambærileg þjónustuhús rísi víðar við þjóðvegi því að þörfin er vissulega fyrir hendi.
Þjónustuhús fyrir ferðamenn við Laufskálavörðu í Skaftárhreppi, við vegamótin að Hrífunesi. 12