FÍB Blaðið 3tbl. 2021

Page 8

Græðgi tryggingafélaganna á sér engin takmörk FÍB hefur um árabil gagnrýnt okur tryggingafélaganna á bílatryggingum. Félögin stunda ekki verðsamkeppni, Fjármálaeftirlitið gerir ekkert og stjórnmálamenn líta í hina áttina. Oft virðist þessi barátta fyrir hagsmunum bíleigenda vera hálf vonlaus. Þó er ekki í boði að gefa tryggingafélögunum svigrúm til að ganga enn lengra í okrinu og því heldur FÍB áfram að varpa ljósi á framferði þeirra til að halda græðginni í skefjum. Í ágúst síðastliðnum birti Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, grein um gengdarlaust iðgjaldaokur á bíleigendum. Hann benti á tölur um mikinn hagnað þeirra undanfarin misseri, 50 milljarða króna bótasjóð vegna bílatrygginga og iðgjaldahækkanir langt umfram almennar verðhækkanir. Runólfur minnti á könnun FÍB sem sýndi að iðgjöld bílatrygginga væru að jafnaði tvöfalt hærri hér en á hinum Norðurlöndunum, þrátt fyrir svipaðan kostnað. Hann benti á að fjölskylda með húseign og tvo bíla borgar yfir 400 þúsund krónur á ári í iðgjöld trygginga. Aðeins brot af þessum peningum fer til að kaupa raunverulega tryggingavernd. Restin rennur í ávöxtunarsjóðina og arðgreiðslurnar.

8

FÍB-blaðið

Óvænt sameiginleg viðbrögð tryggingafélaganna Tryggingafélögin svara nánast aldrei gagnrýni FÍB. Þau vita sem er að iðgjaldaokrið er óverjandi. Þau vita að umræðan deyr fyrr út með því að taka ekki þátt í henni. Það kom því nokkuð á óvart að þau skyldu fá Samtök fjármálafyrirtækja (SFF) til að svara grein Runólfs og réttlæta gjaldtökuna. Í skýringum sínum fór framkvæmdastjóri SFF með rangt reiknaðar tölur og gamlar tuggur tryggingafélaga um að þau ættu í samkeppni.

má SFF ekki taka þátt í umræðu á opinberum vettvangi um verð og verðbreytingar aðildarfélaga eða um kröfur viðskiptavina um lægra verð eða bætt viðskiptakjör. Ljóst er að framkvæmdastjóri SFF braut gegn þessum skilyrðum þegar hann reyndi að réttlæta iðgjöld tryggingafélaganna. Lögmaður FÍB sendi ábendingu þess efnis til Samkeppniseftirlitsins. Hann benti á að það samræmdist ekki samkeppnislögum og banninu að verðstefna íslenskra vátryggjenda væri varin opinberlega af hálfu SFF. Samkeppniseftirlitið rannsakar málið

Framkvæmdastjórinn gekk einnig svo langt að segja að tryggingafélögin gætu ekki treyst á fjárfestingatekjur og því þyrftu iðgjöld að standa undir allri ábyrgð þeirra. FÍB spurði á móti hvers vegna lífeyrissjóðir og bankar gætu treyst á fjárfestingatekjur en ekki tryggingafélög.

Tveimur dögum eftir ábendingu FÍB sendi Samkeppniseftirlitið bréf til framkvæmdastjóra SFF og tilkynnti um frumkvæðisathugun á brotum við banninu um fyrirsvar vegna verðlagningar.

Verðsamráð er bannað Í kappsemi sinni virðist framkvæmdastjóri SFF hafa gleymt því að samtökunum er bannað að svara fyrir verðlagningu og þjónustu tryggingafélaganna. Þetta bann má rekja til þess að árið 2004 settu samkeppnisyfirvöld Sambandi íslenskra tryggingafélaga (SÍT) ýmis skilyrði til að þau fengju að starfa áfram. Ástæðan fyrir þessum skilyrðum var ærin, því að tryggingafélögin höfðu stundað víðtækt samráð innan SÍT áratugum saman. Seinna meir rann SÍT inn í SFF og því áttu þessi skilyrði einnig við á þeim vettvangi. Meðal annars

Í bréfi Samkeppniseftirlitsins var bent á að öll þátttaka hagsmunasamtaka í umræðu um verðlagningu á fákeppnismarkaði væri sérstaklega varhugaverð og ætti ekki að eiga sér stað. Vísaði Samkeppniseftirlitið til skilyrðanna sem sett voru árið 2004. Vegna viðbragða SFF við gagnrýni FÍB, auk svara í maí síðastliðnum um vaxtastefnu bankanna, óskaði Samkeppniseftirlitið eftir afriti af öllum samskiptum SFF við aðildarfyrirtæki sín frá 1. maí til 16. september, þar á meðal af tölvupóstum, minnisblöðum,


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
FÍB Blaðið 3tbl. 2021 by Félag íslenskra bifreiðaeigenda - Issuu