
29 minute read
Vetrardekkjakönnun 2021
VETRARDEKKJA KÖNNUN FÍB 2021
Spennandi nýjungar og einnig vonbrigði
Í þessari könnun eru tvö vinningsdekk, nagladekk og naglalaust dekk. Ekki er sjálfgefið að vinningsdekkið sé það besta fyrir alla. Eins og venjulega er vetrardekkjakönnunin rækileg og nákvæm og framkvæmd á þann hátt að hver og einn getur valið það dekk sem hentar best eigin þörfum og vetraraðstæðum.
Vetrardekkjakönnunin er unnin af NAF, systurfélagi FÍB í Noregi, í samvinnu við aðila í Svíþjóð og Noregi.
Eins og áður nær könnunin sérstaklega til þeirra dekkja sem eru gerð til að mæta vetraraðstæðum á norðlægum slóðum. Að prófununum komu sérfræðingar á ýmsum sviðum og tóku út margvíslega eiginleika dekkjanna. Prófunarbílunum var ekið bæði utan- og innandyra þar sem hægt var að hafa yfirsýn og stjórnun á öllum aðstæðum. Unnið var eftir ströngum faglegum kröfum varðandi alla verkferla í prófununum. Dekkjastærðin var 205/55 R16.
Stærstu dekkjaframleiðendur heims koma vel frá þessari könnun í ár líkt og áður. Í könnuninni voru prófuð átta nagladekk og átta vetrardekk án nagla. Goodyear – Ultra Grip Arctic 2 skoraði hæst í nagladekkjaflokki með 87 stig. Michelin – Ice North 4 lenti í öðru sæti með 81 stig og Nokian-Hakkapeliitta 10 í þriðja sæti með 79 stig. Nordman 8, Pirelli – Ice Zero 2 og Continental – Ice Contant komu þar skammt á eftir. Nexen-Winguard Winspike e frá SuðurKóreu hafnaði í neðsta sæti.

Í flokki ónegldra vetrardekkja skoraði Continental Viking – Contact 7 hæst, alls 91 stig. Goodyear – Ultra Grip Ice 2 hlaut 85 stig og Pirelli – Ice Zero Fr 84 stig. Kínversku dekkin Nordexx náðu aðeins 50 stigum.
Taka skal skýrt tekið fram að dekkið sem skorar hæst hverju sinni þarf ekki að vera besti kosturinn. Mælt er eindregið með því að ekki séð horft á heildareinkunnina. Könnunin gefur ítarlegar upplýsingar um mismunandi eiginleika dekkjanna við margvíslegar aðstæður sem ætti að hjálpa ökumönnum varðandi dekkjavalið fyrir veturinn.
Þannig eru stigin reiknuð
Einkunn frá 1 til 5:
Í öllum prófununum eru dekkin flokkuð á kvarðanum frá 1 til 5. Gildin eru sem hér segir: 5 er ágætiseinkunn, 4 er gott, 3 er í meðallagi, 2 er þokkalegt og 1 er lélegt.
Hlutlæg og huglæg mæligögn:
Einkunnagjöfin er byggð á mælanlegum gögnum en við mat á aksturseiginleikum og hávaða er huglæg reynsla ökumanna einnig hluti af einkunninni.
Mismunandi vægi eftir mikilvægi:
Sum prófin eru metin mikilvægari en önnur. Einkunn í ákveðnum prófunarþáttum margfaldast þess vegna með tveimur eða þremur. Til dæmis má nefna veggrip á ís og snjó vegur þungt og er margfaldað upp með þremur sem gefur 15 stig að hámarki. Þannig fáum við niðurstöður sem meta meira góða eiginleika við erfiðar vetraraðstæður en eiginleika á þurru malbiki þar sem gripið er yfirleitt mun betra.
Þarfagreining:
Veðurfarslegar aðstæður geta verið mismunandi eftir svæðum. Notkun ökutækis ræðst af búsetu og þörfum hvers og eins. Sumir fara lítið út fyrir nærumhverfi sitt á meðan aðrir sækja vinnu eða tómstundir um langan veg. Hver og einn þarf að vera meðvitaður um algengustu aðstæður til að meta á eiginleika dekkjanna. Þannig er ekki víst að sama dekk henti íbúa í kjarna Höfuðborgarsvæðisins og þeim sem býr á Vopnafirði.
Alla leið á öruggari dekkjum

Pantaðu tíma í dekkjaskipti á n1.is
Michelin X-ICE North 4

Besta hemlun í hálku, hvort sem dekkin eru ný eða ekin 10.000 km. Betri aksturseiginleikar í samanburði við helstu samkeppnisaðila. Hámarksgrip með sérhönnuðu mynstri fyrir hverja stærð. Einstök ending. Lágmarks hljóðmengun.


Notaðu N1 kortið
Michelin X-ICE Snow
Nýjasti meðlimurinn í vetrardekkjalínu Michelin. Aukið grip í hálku, snjó og slabbi. Endingargott grip út líftímann. Einstakir akstureiginleikar og þægindi við erfiðustu aðstæður. Allir bestu eiginleikarnir – Michelin Total Performance. Vefverslun
Skoðaðu úrvalið og skráðu þitt fyrirtæki
Hjólbarðaþjónusta N1
Henta vel undir rafbíla
Michelin Alpin 6
Nýr mynsturskurður sem opnast eftir því sem dekkið slitnar. Endingargott grip út líftímann. Lagskipt gúmmíblanda sem veitir. hámarksgrip.

Aksturseiginleikar
Aksturseiginleikar og veggrip í akstri er metið með tímatökum á þar til gerðum brautum sem eru ýmist ísilagðar, snæviþaktar eða auðar og þá bæði þurrar og votar. Í prófununum er bílunum ekið til skiptis og markmiðið að ná sem stystum brautartíma þannig að ökulagið er hranalegt og samsett úr hröðun, hemlun og hröðum akstri í beygjum. Út frá meðaltali brautartíma allra ökumanna eru lokaeinkunnir reiknaðar.
Hröðun
Grip dekkjanna á ís og í snjó er mælt með því að ná upp mestri mögulegri hröðun bílsins. Tími hröðunarinnar á tilteknu hraðabili er síðan mældur. Á ís er hraðabilið 5–20 km/klst. Í snjó er það 5–35 km/klst. Þetta er margendurtekið yfir nokkurra daga tímabil, bæði utan- og innanhúss.
Hemlun
Hemlunarvegalengdir eru mældar í snjó, votu og þurru malbiki. Hvert hemlunarpróf er margendurtekið, 15–20 sinnum, við mismunandi hitastig yfir nokkurra daga tímabil. Á ís er hemlað frá 20 km hraða niður í 5 km en í snjó frá 35 km hraða niður í 5 km. Á votu og þurru malmbiki er hemlað af 80 km hraða niður í 5 km. Hemlunarprófanir á snjó og ís fara fram bæði utan- og innanhús við mismunandi hita- og rakastig sem hægt er að stjórna og þannig lágmarka áhrif veðurs á niðurstöðu.
Veggnýr
Ökumenn mæla og meta veggný hjólbarðanna eftir akstur á grófu vegyfirborði. Þeir meta veggnýinn, bæði sem ökumenn og farþegar í aftursæti. Niðurstaðan er meðaltal mælinga og einkunna bílstjóranna. Þetta er blindpróf.
Rásfestan
Rásfestan er metin með akstri í snjó eða á ísilögðu vegyfirborði með skröpuðum rásum. Þrír ökumenn meta hver í sínu lagi rásfestuna í þessum aðstæðum og einkunnin er meðaltal af mati þeirra. Þetta er blindpróf. Ökumenn sem annast prófunina vita ekki hvaða dekkjategund er undir hverju sinni.
Aksturstilfinning
Ökumenn gefa hverri dekkjategund persónulega einkunn fyrir það hversu stöðugt og öruggt þeim finnst dekkið vera í akstri. Þá skiptir máli hvernig þeim fannst dekkið hegða sér í mismunandi akstursaðstæðum. Þetta er blindpróf sem þýðir að prófunarökumennirnir vita aldrei hvaða tegund er undir bílnum á hverjum tíma.
Nagladekk 1
Goodyear Ultra Grip Arctic 2
Fjöldi nagla: 190 Hörkustig (Slitflötur): 59 Hraða- og burðarþol: 94T Þyngd: 10,2 kg Framleiðsludags: Vika 31 2020 Framleiðsluland: Pólland Söluaðili: Klettur
Verð per. dekk:
87
STIG
Nýja Arctic 2 dekkið frá Goodyear setur ný viðmið hvað varðar hemlun á ís og skorar vel á öllum sviðum á ís og í snjó. Í akstri þar sem reynir á grip til hliðanna fer dekkið að erfiða. Vart verður við skort á jafnvægi og er það öðrum dekkjum síðri í svigakstri. Goodyear skipar sér í efstu sætin í nær öllum prófunum á malbiki. Það sama gildir um akstur á malbiki og í snjó. Dekkið sýnir bestu hliðar sínar við akstur á beinum vegi en dregur aðeins undan þegar kemur að svigakstri. Góður stöðugleiki og tilfinning í akstri skilar góðu dekki við flestar aðstæður og sérstaklega gott við akstur á ís. Kostir: Gott grip á ís, hemlun við allar aðstæður Ókostir: Mikið viðnám, lítil akstursánægja
3
NOKIAN HAKKAPELIITTA 10
Fjöldi nagla: 220 Hörkustig (Slitflötur): 54 Hraða- og burðarþol: 94T Þyngd: 9,3 kg Framleiðsludags: Vika 1 2021 Framleiðsluland: Finnland Söluaðili: Max1 Verð per. dekk: 28.531 kr. Nýja nagladekkið frá Nokian stóð sig vel eins og við mátti búast. Í samanburði við fyrri útgáfu virðist Nokian hafa lagt aukna áherslu á hemlunareiginleika. Það er ekki alveg jafn gott í beygju og jafnvægið virðist hafa dvínað eftir því sem þær urðu krappari. Gripið er samt áfram á sínum stað. Við akstur á blautum vegi eru eiginleikarnir enn mjög góðir en tilhneiging til að fara á flot við aukinn vatnsaga. Á þurrum vegi er tíunda kynslóðin stöðugri en fyrirrennari þess og sérstaklega við akstur á beinum vegi. Veggnýr hefur einnig minnkað en dekkið er samt sem áður ekki jafn hljóðlátt og þau bestu. Áhersla og vetrarakstur og eiginleikar á auðum vegi skila dekkinu þriðja sæti. Kostir: Gott grip jafnt í snjó og blautu malbiki. Ókostir: Bremsuvegalengd á þurru malbiki, flot í vatnsaga.
79 STIG Nordman deilir fjórða sæti með Pirelli. Dekkið er byggt á Hakkapeliitta 8 og skilar þessu nýja norska dekki stuttri hemlunarvegalengd í snjó og ís. Einnig skilar það góðu jafnvægi þegar ekið er inn í beygjur og við svigakstur. Gripeiginleikar voru aðeins lakari en hjá Nokian án þess þó að hafa tapað karakter. Nordman 8 hefur tekið miklum framförum miðað við fyrirrennara sinn en Nokian hefur þó vinninginn varðandi jafnvægi milli snjó og malbiksaksturs. Nordman er með slakari rásfestu á þurru yfirborði og ónákvæmni í stýri ásamt auknum veggný. Á heildina litið er þetta gott dekk en ekki jafn gott og þau bestu. Kostir: Gott grip við vetraraðstæður, lætur vel að stjórn undir álagi. Ókostir: Hemlun á blautum vegi, tilfinning á þurrum vegi.
2
MICHELIN X-ICE NORTH 4
Fjöldi nagla: 250 Hörkustig (Slitflötur): 54 Hraða- og burðarþol: 94T Þyngd: 9,9 kg Framleiðsludags: Vika 44 2020 Framleiðsluland: Rússland Söluaðili: Costco / N1 Verð per. dekk: 28.799/29.990 kr. 81
STIG
Michelin lendir í öðru sæti að þessu sinni eftir að hafa sigrað tvö ár í röð. Grunnur að fyrri sigri hefur verið góð frammistaða í ísilögðum hringakstri. Gripið er enn frábært en ekki það besta. Eins og Goodyear-dekkið koma bestu eiginleikarnir fram við vetrarakstur en einnig er það rásfastara. Á malbiki sýnir dekkið góðan stöðugleika og tilfinningu upp í stýri. Grip og nákvæmni minnkar þó þegar kemur að kröppum beygjum. Hljóðvist er sú besta af öllum dekkjum sem prófuð voru. Góð niðurstaða er við hemlun á þurru malbiki en á móti var gripið ekki jafn mikið á því blauta. Þægileg dekk með góða vetrareiginleika skila öðru sæti. Kostir: Gott grip við vetraraðstæður, stöðugleiki á þurrum vegi. Ókostir: Grip á blautu malbiki.
4-5
NORDMAN 8
Fjöldi nagla: 190 Hörkustig (Slitflötur): 56 Hraða- og burðarþol: 94T Þyngd: 9,2 kg Framleiðsludags: Vika 51 2020 Framleiðsluland: Rússland Söluaðili: Max1 Verð per. dekk: 16.990 kr. 76
STIG
Nagladekk 4-5
PIRELLI ICE ZERO 2
Fjöldi nagla: 190 Hörkustig (Slitflötur): 56 Hraða- og burðarþol: 94T Þyngd: 9,8 kg Framleiðsludags: Vika 5 2021 Framleiðsluland: Rússland Söluaðili: Nesdekk Verð per. dekk: 27.990 kr. 76
STIG
Pirelli Ice Zero 2, sem kom nýtt fram í fyrra, deilir í ár fjórða sætinu með Nordman 8. Þó er mjög ólíkt með þessum tveimur hvernig stigin raðast upp. Hjá Nordman koma þau mest frá árangri á snjó og ís en Pirelli nær sínum árangursstigum á auðum vegum þar sem það er best dekkja að þessu sinni. Það hefur stystu hemlunarvegalendirnar á bæði á þurrumog blautum vegum og þægilegustu almennu aksturseiginleikana meðal negldu dekkjanna á auðum vetrarvegum. Því til viðbótar er Pirelli í hópi þeirra sem minnst er hætt við að fljóta upp í vatnsaga. Akstursánægjan á Pirelli skilar sér reyndar einnig í akstri í vetrarfæri, þ.e. snjó og hálku og er vel stöðugt í beygjunum þar. Því miður er gripið á ís nokkuð langt frá þeim bestu. Kostir: Best og skemmtilegast í akstra af negldu dekkjunum. Ókostir: Slakt grip á ís.
7
LL GREENMAX WINTERGRIP2
Fjöldi nagla: 252 Hörkustig (Slitflötur): 59 Hraða- og burðarþol: 94T Þyngd: 9,9 kg Framleiðsludags: Vika 37 2020 Framleiðsluland: Kína Söluaðili: Verð per. dekk: 64
STIG
Þetta er önnur kynslóð Winter Grip hjólbarðanna í Greenmaxlínunni frá Linglong í Kína. Af þeim negldu er þetta dekk með flesta naglana, hvorki meira né minna en 252 nagla í hverju dekki. Það segir sína sögu um markmiðin þegar verið var að hanna og þróa dekkið og það skilar sér vissulega í öllum ísprófunum þar sem Linglong gerir umtalsvert betur en vænta mátti. Hemlun á ís er þannig með því besta og ekki versnar það á ísbrautinni. Þar er gripið með besta móti. Þar með eru góðu fréttirnar á enda því að grip á öðru undirlagi er mun síðra og á auðum vegum er mikill veggnýr leiðigjarn. Gripið á votum vegi er heldur ekki sérstakt en að lokum verður að segja að það er gjarnast dekkjanna til að fljóta upp í vatnsaga. Linglong er gert fyrst og fremst fyrir vetraraðstæður, einkum ísingu. Þar á það heima. Tæpast annarsstaðar. Kostir: Gott grip á ís. Ókostir: Slakt grip í snjó. Gjarnt á að fljóta upp í vatnsaga.
6
CONTINENTAL ICECONTACT3
Fjöldi nagla: 190 Hörkustig (Slitflötur): 61 Hraða- og burðarþol: 94T Þyngd: 9,9 kg Framleiðsludags: Vika 5 2021 Framleiðsluland: Þýskaland Söluaðili: BJB Verð per. dekk: 29.905 kr. 73
STIG
Continental veldur vonbrigðum að þessu sinni. Nú hefur það fengið venjulega álnagla í stað hinna misheppnuðu nagla síðustu tveggja vetra sem voru úr gúmmíi en með málmodda. Í fyrra stóð Continental sig í meðallagi á ís en í ár skaga naglarnir óvenju stutt út úr slitfletinum og það skilar sér í vondu beyjugripi á ísnum. Hreint út sagt er gripið á ís ekki gott. Aðra sögu er að segja í snjó. Þar má aftur finna þá tryggu eiginleika sem lengstum hafa einkennt Continental. Í beygjunum grípur það vel, er stöðugt og gripið minnkar þar stig af stigi í réttum takti við vaxandi hraða – ekki snöggt og óvænt. Svipað er að segja um akstur á auðum vegum. Þar eru góðu eiginleikarnir ríkjandi og það svarar vel og örugglega í neyðartilvikum þegar bregðast þarf snögglega við til að forða hættu. Lélegt ísgrip dekksins dregur það hins vegar niður og af þeim sökum nær það einungis 6. sæti að þessu sinni. Kostir: Öruggt og auðvelt, ekki síst þegar hætta steðjar að. Ókostir: Slakt grip á ís.
8
NEXEN WINGUARD WINSPIKE 3
Fjöldi nagla: 192 Hörkustig (Slitflötur): 60 Hraða- og burðarþol: 94T Þyngd: 9,9 kg Framleiðsludags: Vika 51 2020 Framleiðsluland: Kórea Söluaðili: Klettur Verð per. dekk: 56
STIG
Þetta nýþróaða Nexen vetrardekk veldur vonbrigðum. Í prófunum á ís stóð það hinum dekkjunum langt að baki. Þar missti það mjög snögglega gripið í beygjum og var alltaf fyrst á afturhjólunum. Það þýðir óumbeðið og óæskilegt skrens sem erfitt getur orðið að vinda ofan af. Vetrardekk, sem er ætlað norrænum aðstæðum, verður að vera betra en þetta. Það er ekki flóknara. Á snjóbrautinni eru það á hinn bóginn framhjólin sem líða undir lélegu gripi. Þar vantar hliðargripið mjög og það er eins og dekkið vilji ekki taka beygjur heldur halda áfram beint ef gefið er aðeins í út úr beygju. Nexen hefur þó vissa kosti á auðum vegum, ekki síst á blautu malbiki. Þar hefur það gott beygjugrip og stuttar hemlunarvegalengdir.Mikill vegdynur og greinilegt hljóðendurkast er svo lokastaðfestingin sem tryggir Nexen neðsta sætið að þessu sinni. Kostir: Hemlunarvegalengdir eru hóflegar á auðum vegum. Ókostir: Afleitt beygjugrip á ís.
Hröðun á ís Hemlað á ís Akstur á ís
Stig á ís
Hröðun í snjó Hemlun í snjó Akstur í snjó
Stig í snjó
Hemlað í vætu Ekið í vætu Uppflotun
Stig í bleytu
Hemlað á þurru Akstur á þurru
Stig á þurru
Orkueyðsla Veggnýr
Stig alls Sæti Stig alls Goodyear Michelin Nokian Nordman Pirelli Continental Linlong Nexen
5 5 5 5 4 3 2 4 1 15 15 12 12 12 3 6 12 3 15 15 15 12 12 9 9 15 3 35 35 32 29 28 15 17 31 7 5 4 4 4 4 5 4 3 3 10 10 8 8 8 8 10 6 8 10 8 8 8 8 10 10 4 4 25 22 20 20 20 23 24 13 15 10 8 4 8 8 10 8 6 10 5 4 3 4 4 5 4 2 5 5 4 4 3 3 5 4 2 5 20 16 11 15 15 20 16 10 20 5 4 5 3 2 5 4 3 4 5 3 4 4 3 5 4 2 4 10 7 9 7 5 10 8 5 8 5 4 4 5 5 4 4 4 4 5 3 5 3 3 4 4 1 2
100 87 81 79 76 76 73 64 56 1 2 3 4 5 6 7 8
Hvernig var prófað
Um miðjan mars 2021 voru ís- og snjómælingar gerðar að nóttu til á tilraunabrautum fyrir utan sænska bæinn Alvsbyn. Prófunarbílarnir voru af gerðinni VW Golf VII. Rafrænu aðstoðarkerfin, hemlalæsivörn (ABS) og skrikvörn, voru tengd. Skrikvörnin var með sportstillingu til að auka á snúning hjólanna, rásun í hálku og auka flæðið í akstri sem aftur hjálpar til við að vega og meta eiginleika dekkjanna við erfiðar aðstæður. Í hemlunar- og hröðunarprófunum byrjuðu mælingar og enduðu við 5 km/klst til að lágmarka skekkjumörk sem tæknibúnaður bílsins getur framkallað (ABS og snúningsvörn). Prófanir á þurru og og blautu malbiki voru gerðar í bænum Gislaved í Svíþjóð í byrjun maí og í þeim voru notaðir bílar af gerðinni Seat Leon ST. Eldsneytisnotkunin var mæld á braut fyrir utan Tampere í Finnlandi. Notast var við VW Golf GTI og ekið á stöðugum hraða, 60 km/klst. Þarna voru einnig framkvæmdar rannsóknir á flotun og vatnslosun dekkjanna.

Nokian Michelin Goodyear Nordman LL Greenmax Pirelli Continental Nexen 2,26 Goodeyar 2,32 Michelin 2,35 Nokian 2,39 LL Greenmax 2,42 Nordman 2,50 Continental 2,93 Pirelli 3,76 Nexen 3,48 Goodyear 3,67 Michelin 3,74 LL Greenmax 3,76 Nokian 4,00 Nordman 4,70 Pirelli 5,12 Continental 5,57 Nexen 49,40 49,43 49,47 50,36 50,50 51,54 51,69 52,85
Hröðun frá 5 til 15 km/klst. Meðaltal úr tveimur aksturslotum og 12 hröðunum á hvert dekk. Frábært grip hjá hinum nýju Nokian og Goodyear sem jafna árangur fyrrum ísmeistarans frá Michelin. Nordman og Linglong grípa líka vel en Continental veldur vonbrigðum og Nexen er vonlaust. ABS hemlun frá 15 til 5 km/klst. Meðaltal 36 hemlana í þremur lotum. Mjög misjafn árangur. Goodyear er í sérflokki með stystu hemlunarvegalengd. Næst kemur Michelin og Linglong kemur á óvart og nær næstum að jafna Nokian. Hin hemla mun verr. Ekið er á íslilagðri braut. Brautartímar eru meðaltal þriggja tilrauna. Linglong kemur aftur á óvart, nú með góðu beygjugripi. Michelin og Goodeyar hemla betur en hin inni í beygjunum og hafa betra grip út úr þeim en kínverska dekkið er þeim næstum jafnfætis.
HRÖÐUN Í SNJÓ
Hröðun frá 5 - 35 km/h mælt í sekúndum
Pirelli Nokian Nordman Michelin Goodyear Continental LL Greenmax Nexen
HEMLUN Í SNJÓ
ABS hemlun úr 35 - 5 km/h mælt metrum
3,97 Continental 4,07 Goodyear 4,09 Michelin 4,11 Pirelli 4,13 Nokian 4,15 Nexen 4,17 Nordman 4,17 LL Greenmax
AKSTUR Í SNJÓ
Brautarakstur mælt í sekúndum
11,16 Continental 11,27 Michelin 11,33 Pirelli 11,38 Nokian 11,44 Goodyear 11,50 Nordman 11,56 Nexen 11,80 LL Greenmax 76,59 80,43 80,51 80,56 81,01 81,58 83,07 84,15
Hröðun 5–35 km/klst. Meðaltal 12 tilrauna í þremur lotum. Í snjó skiptir dekkjamynstrið öllu en naglar litlu sem engu. Pirelli hefur besta snjógripið en þau sem á eftir því koma eru furðujöfn. ABS hemlun frá 35 til 5 km/ klst. Meðaltal 24 tilrauna í tveimur lotum. Lítill munur er á dekkjunum í snjó, sérstaklega þeim þurra kalda snjó sem lá yfir þegar þessi prófunarþáttur stóð yfir. Continental og Goodyear mælast með stystu hemlunarvegalengdirnar. Linglong er með slakasta gripið. Meðaltími sex umferða um akstursbraut í tveimur lotum. Conti hefur gott jafnvægi í öllum akstri og gefur ökumanni snemma og stig af stigi merki um þegar veggrip tekur að losna og auðvelt er að stýra bílnum inn í krappar beygjur. Hvorki Michelin, Nokian né Goodyear eru því jafnfætis í þessu.
HEMLUN Í BLEYTU
Hemlun úr 80 - 5 km/h mælt í metrum
Pirelli Nexen Goodyear Nokian Nordman Continental LL Greenmax Michelin
HEMLUN Í ÞURRU
Hemlun úr 80 - 5 km/h mælt í metrum
32,88 Pirelli 33,64 Michelin 34,28 Continental 34,31 Nexen 34,69 Goodyear 34,74 LL Greenmax 34,87 Nokian 35,49 Nordman
FLOT
Mældur hraði við flot
28,28 Pirelli 28,98 Nexen 29,86 Continental 29,91 Goodyear 30,02 Michelin 30,15 Nordman 30,31 Nokian 30,74 LL Greenmax 71,40 70,00 67,30 67,20 66,10 65,00 64,10 63,10
Hemlað niður frá 80–5 km/klst. Pirelli hemlar best og sömuleiðis Nexen. Þau dekk sem á eftir þeim koma eru nokkuð jöfn og þeirra á meðal er Goodyear sem sýnir að ekki þurfi að vera mótsögn fólgin í góðu gripi á ís og á blautu malbiki. Michelin er slakast í bleytunni. Hemlað niður frá 80–5 km/klst. Eins og í bleytunni hemlar Pirelli best á þurru. Michelin ræður miklu betur við hemlun á þurru en í bleytu. Nokian, Linglong og sérstaklega Nordman þurfa lengri hemlunarvegalengd. Hér er sýndur hraðinn þegar dekk flýtur upp (planar) í 7 mm djúpu vatni. Þetta er gert við hröðun og kannað er á hvaða hraða það missir veggripið ,byrjar að spóla og snúast 15 prósent örar en það ætti að gera miðað við hraða bílsins. Niðurstöðurnar eru meðaltal fimm tilrauna. Mynstur Pirelli og Nexen ryður vatni best frá sér. Linglong er síst.
ÓNegld dekk 1
CONTINENTAL VIKING CONTACT 7
Hraða- og burðarþol: 94T Hörkustig (Slitflötur): 51 Þyngd: 9,5 kg Framleiðsludags: Vika 44, 2020 Framleiðsluland: Þýskaland Söluaðili: BJB Verð á eitt dekk: 29.905 kr. 91
STIG Viking Contact 7 er það vetrardekk sem þeir sem aka þurfa á svelluðum vegum að vetrarlagi þarfnast. Þetta er dekk sem megnar að halda bílnum, eftir því sem mögulegt er, tryggilega við veginn, enda þótt engir naglar séu í því til að krafsa í ísinn. Mjög alhliða og gott vetrardekk við flestallar vetraraðstæður. Í harkalegum akstri, hvort heldur í snjó, ísingu eða á auðum vegum, lætur það ökumanninn finna stig af stigi þegar og ef losna tekur um veggripið, en tapar því ekki óvænt og skyndilega. Þá er hálkugrip þess einstaklega gott. Hálkugripið er að hluta að þakka hve mjúkt dekkið er, jafnvel í nístandi kulda. Þrátt fyrir sérlega mýkt er það þó stöðugt og rásfast í öllum akstri. Þótt það sýni ekki stystu hemlunarvegalengdir í mælingum á þurru og blautu malbiki stöðvast það vel innan ásættanlegra marka. Mynstrið á slitfletinum er smágert og skilar hljóðlátum akstri. Hið fínlega mynstur á erfiðara með að ryðja frá sér vatni og krapi og því er það ekki meðal þeirra sem mestum hraða ná í vatnselg áður en þau fljóta upp (plana). Allir aksturseiginleikar eru jafnir og góðir og þeir skila Continental Viking Contact 7 í efsta sætið í ár. Kostir: Besta vetrargripið. öruggt og hljóðlátt við allar aðstæður. Ókostir: Flýtur fremur fljótt upp í vatnsaga.
3
PIRELLI ICEZERO FR
Hraða- og burðarþol: 94T Hörkustig (Slitflötur): 56 Þyngd: 9,4 kg Framleiðsludags: Vika 46, 2020 Framleiðsluland: Rússland Söluaðili: Nesdekk
Verð á eitt dekk:
84
STIG Pirelli dekkið er ættað frá Ítalíu en framleitt í Rússlandi. Það sameinar hið illsameinanlega, nefnilega að hafa gott grip í vetrarfæri en vera um leið gott og öruggt á auðum vegum. Pirelli er með þeim skemmtilegustu í akstri óháð því hvert undirlagið er. Það er svarar öllum hreyfingum stýris og bíls í heild og er síst ónegldu norðurslóðadekkjanna til að undirstýra. Pirelli skilar tiltölulega stuttum hemlunarvegalengdum á auðum, þurrum eða votum vegum samanborið við önnur vetrardekk. Það er auðvelt í akstri í vetrarfæri en hafa skal í huga að hemlunarvegalengd á ís er í lengra lagi. Hvað veggný varðar er það viðkvæmt fyrir vegyfirborðinu og gerð þess og er fremur hávær á sumu vegyfirborði. Pirelli Icezero FR er í senn ágætis vetrardekk en jafnframt prýðilegt á auðum vegum og verðskuldar fyllilega þriðja sætið í þessari könnun. Kostir: Fyrirtaks aksturstilfinning við allar aðstæður. Ókostir: Hemlunarvegalengd á ís full löng. Viðkvæmt fyrir flotun í vatnsaga. Nokian var og er frumkvöðull í því að gera góð, ónegld vetrardekk enda þótt þetta dekk skipi ekki sigursæti einmitt nú. R3–dekkið skilar vissulega sínu sem vetrardekk en þykir ekki skila jafn góðri og tryggri aksturstilfinningu en sum hinna, sérstaklega á auðum vegum. Ökumönnum fannst það heldur ekki svara stýrinu vel þegar snöggvikið var frá hindrun og dekkin svöruðu stýrinu ,,ólínulega“. Þetta dregur Nokian dekkið niður í stigagjöfinni. Mælingarnar tala þó sínu máli og þær sýna tiltölulega stuttar hemlunarvegalengdir á þurrum og votum vegum, ágætis veggrip í beygjum og við hröðun í snjó og á ís. Hemlunarvegalengd á ís og snjó var hins vegar í lengra lagi. Núningsmótstaða Nokian (eldsneytiseyðsla) er sömuleiðis lág. Það er talsvert hávært, sérstaklega á sumum hraðastigum og í þeim efnum er það viðkvæmt fyrir því hvers konar vegyfirborði er ekið á. Að öllu þessu samanlögðu fleytir þetta allt Nokian inn í fjórða sætið. Kostir: Gott veggrip og góðir aksturseiginleikar í öllu vetrarfæri Ókostir: Viðkvæmt fyrir flotun. Hávært. Slakara í akstri á auðum vegum.
38 FÍB-blaðið
2
GOODYEAR ULTRA GRIP ICE2
Hraða- og burðarþol: 94T Hörkustig (Slitflötur): 58 Þyngd: 8,6 kg Framleiðsludags: Vika 40, 2020 Framleiðsluland: Pólland Söluaðili: Klettur Verð á eitt dekk: 32.990 kr. 85
STIG Þetta Goodyear–dekk er besta óneglda vetrardekkið í vætu og bleytu en slakir vætueiginleikar hafa áður verið fylgifiskur frá þessu fyrirtæki. Ultra Grip ICE2 er á hinn bóginn ekki aðeins gott í bleytu heldur líka á auðum þurrum vegum og náði það bestu brautartímunum á akstursbrautunum. Þrátt fyrir að sjaldan fari saman jafngóðir eiginleikar í öllum akstursaðstæðum má geta þess að Goodyear nær einum stystu hemlunarvegalengdum í snjó og á ís, hefur líka stystu hemlunarvegalengdirnar á auðum og þurrum vegum en það tvennt hefur sjaldnast farið saman. Dekkið er þó ekki alfullkomið. Það getur virkað óstöðugt í beygjum í vetrarfæri og eins flökti það á milli þess að yfirstýra og undirstýra í beygjum og við það að missa gripið nokkuð skyndilega. Á heildina litið er þetta dekk eins konar millistig frá meginlandsdekkjunum sem eru frábær í vatni og krapi en síðri í snjó og ísingu. Ultra Grip ICE2 brúar vel bilið milli norðurslóðadekkjanna og meginlandsdekkjanna vegna góðra eiginleika sinna í snjó og ísingu sem þau fyrrnefndu skortir. Kostir: Besta norðurslóðadekkið á auðum en blautum eða þurrum vegum. Ókostir: Getur virkað eins og ,,taugaveiklað“ þegar það er við að tapa gripi á ís og snjó.
4
NOKIAN HAKKAPELIITTA R3
Hraða- og burðarþol: 94T Hörkustig (Slitflötur): 55 Þyngd: 8,3 kg Framleiðsludags: Vika 33, 2020 Framleiðsluland: Finnland Söluaðili: Max1 Verð á eitt dekk: 26.790 kr. 80
STIG
ÓNegld dekk 5
MICHELIN X-ICE SN0W
Hraða- og burðarþol: 94H Hörkustig (Slitflötur): 57 Þyngd: 10,3 kg Framleiðsludags: Vika 31, 2020 Framleiðsluland: Kína Söluaðili: Costco / N1 Verð á eitt dekk: 26.499/27.990 kr. 73
STIG Til er sú saga að Michelin leggi sig fram um. í framleiðslu sinni á hjólbörðum til daglegra nota, að leggja megináherslu á góða hemlun fremur en traust veggrip í beygjum. Miðað við frammistöðu X-Ice Snow dekksins gæti þetta svo sem verið rétt. Í það minnsta hemlar dekkið ágætlega, það þarf ekki langar vegalengdir til þess og sömuleiðis er það fljótt að ná upp hröðun. Beygjugripið er hins vegar ekki eins traust. X-Ice Snow skrensar auðveldlega og undirstýrir gjarnan og bregst eiginlega ekki vel við snöggum stýrishreyfingum. Á þurrum vegum er það vel rásfast og hemlar prýðilega en öðru máli gegnir um votan veg. Þar eru hemlunarvegalengdir í lengra lagi og dekkið skrensgjarnt í beygjum. Enn fremur er það viðkvæmt gagnvart flotun eins og raunar mörg fleiri. Loks er það nokkuð hávært í akstri þannig að allt þetta skilar X-Ice Snow inn í fimmta sætið í ár. Kostir: Stuttar hemlunarvegalengdir á ís og snjó. Rásfesta á þurrum vegi. Ókostir: Veikara beygjugrip en flest hin í könnuninni. Langar stöðvunarvegalengdir í bleytu.
7
CONTINENTAL TS870
Hraða- og burðarþol: 91H Hörkustig (Slitflötur): 67 Þyngd: 8,1 kg Framleiðsludags: Vika 48, 2020 Framleiðsluland: Þýskaland Söluaðili: BJB Verð á eitt dekk: 61
STIG
Þetta nýja óneglda TS870 vetrardekk frá Continental er tekið með í þessari könnun á vetrardekkjum sem sérstaklega hafa verið framleidd til að mæta aðstæðum og þörfum akandi fólks á norðlægum slóðum. TS870 er svo ekki, heldur er það hugsað og framleitt fyrir algengustu vetraraðstæður á meginlandi Evrópu þar sem sjaldnar snjóar og snjór og ís liggja sjaldan mjög lengi á vegum en rigningar og væta eru þeim mun algengari. Því þarf varla að koma á óvart að TS870 hefur mikla yfirburði í bleytu yfir norðurslóðadekkin. Það þarf miklu meiri hraða í bleytu áður en það missir gripið og spjarar sig ágætlega í snjó en hreint ekki á ís. Á ísnum geta stöðvunarvegalengdir orðið skuggalega langar. Allt kemur þetta skýrt fram í töflunum í þessari könnun. Kostir: Lítt næmt fyrir flotun. Góðir aksturseiginleikar á auðum vegum. Ókostir: Stöðvunarvegalengdir á ís. Heldur háværara en norðurslóðadekkin almennt.
6
NEXEN WINGUARD ICE PLUS WH43
Hraða- og burðarþol: 96T Hörkustig (Slitflötur): 57 Þyngd: - kg Framleiðsludags: Vika 49, 2019 Framleiðsluland: Suður Kórea Söluaðili: Klettur Verð á eitt dekk: 16.990 kr. 64
STIG
Nýja óneglda Nexen–vetrardekkið vitnar um að þessi suður-kóreski framleiðandi er að sækja í sig veðrið. Þetta Nexen–dekk kemur á óvart með að vera meðal þeirra bestu í bæði hröðun og hemlun og hemlunarvegalengd á ís, sem er reyndar sú stysta í þessari prófun. Beygjugripið er hins vegar ekki jafn gott og í beygjum vill dekkið undirstýra. Í samanlögðum snjó- og ísþrautum fengu einungis Nokian og Continental fengu hærri meðaleinkunn en Nexen. Því miður er eins og þessi góði árangur í vetrarfæri sé á kostnað aksturseiginleika á auðum vegum. Á þurrum malbikuðum vegi er tilfinningin í stýrinu ójöfn og bíllinn er óstöðugur í akstri og hemlunarvegalengdin er of löng. Á blautu malbiki er hætta á að bíllinn yfirstýri í beygjum þar sem afturhjólin verða fyrst til að missa veggripið ef svo ber undir. Að öllu athuguðu er Nexen ekki slæm viðbót inn á vetrardekkjamarkaðinn og kostirnir skila dekkinu inn í fimmta sætið. Kostir: Tiltölulega gott veggrip í öllu vetrarfæri Ókostir: Langar hemlunarvegalengdir á þurru malbiki.
8
NORDEXX WINTERSAFE ICE
Hraða- og burðarþol: 91T Hörkustig (Slitflötur): 56 Þyngd: 9,1 kg Framleiðsludags: Vika 23, 2020 Framleiðsluland: Kína Söluaðili: Nesdekk Verð á eitt dekk: 11.990 kr. 50
STIG Nordexx er lágverðsdekk, sérstaklega framleitt í Kína fyrir stórt danskt dekkjainnflutningsfyrirtæki sem heitir NDI og dreifir hjólbörðum um öll Norðurlönd. Þrátt fyrir þessa norrænu tengingu er þetta Wintersafe–dekk ekki eftirsóknarvert og veldur vonbrigðum enda er það einfaldlega ekki nógu gott. Það er lélegt bæði í snjó en þó sérstaklega á ís og það versta við það í akstri er að það á það til að missa skyndilega veggripið án nokkurs aðdraganda eða merkjanlegra fyrirboða af einhverju tagi og það getur sett ökumenn í slæman og alvarlegan vanda þegar síst skyldi. Þetta getur ekki aðeins gersta í snjó og ísingu heldur líka á auðum vegi, sérstaklega í votviðri en líka þegar snöggbeygja þarf framhjá hindrun og vegur er skraufþurr. Enn fremur er hljóðvistin í bílnum óskemmtileg þegar ekið er um á Wintersafe því að dekkið er háværasta óneglda vetrardekkið sem prófunarfólkið hefur komist í tæri við hingað til. Skilaboð prófunarfólksins eru því þessi: Forðist að kaupa Nordexx Wintersafe Ice. Kostir: Fremur lítið næmt fyrir flotun Ókostir: Erfitt að hafa fulla stjórn á bílnum. Mjög hávaðasamt
Hröðun á ís Hemlað á ís Akstur á ís
Stig á ís
Hröðun í snjó Hemlun í snjó Aksur í snjó
Stig í snjó
Hemlað í vætu Ekið í vætu Uppflotun
Stig í bleytu
Hemlað á þurru Akstur á þurru
Stig á þurru
Orkueyðsla Veggnýr
Stig alls
Sæti
Stig alls Continental Goodyear Pirelli Nokian Michelin
Nexen Conti TS870 Nordexx
5 5 4 3 5 4 1 1 3 15 15 12 9 12 15 12 3 9 15 15 12 15 12 9 9 6 3 35 35 28 27 29 25 22 10 15 5 5 5 5 4 5 4 3 4 10 10 8 10 8 10 8 6 8 10 10 6 10 10 8 4 6 4 25 25 19 25 22 23 16 15 16 10 8 10 8 8 4 6 10 4 5 4 5 4 4 3 3 5 2 5 3 5 3 3 3 4 5 4 20 15 20 15 15 10 13 20 10 5 4 5 5 4 4 4 5 3 5 3 5 5 3 4 2 5 1 10 7 10 10 7 8 6 10 4 5 4 4 4 5 4 3 3 4 5 5 4 3 2 3 4 3 1
100 91 85 84 80 73 64 61 50 1 2 3 4 5 6 7 8

Bókaðu dekkjaskiptin á klettur.is
KLETTAGÖRÐUM 8—10 HÁTÚNI 2A SUÐURHRAUNI 2B LYNGHÁLSI 2
TÍMAPANTANIR Á KLETTUR.IS OG Í SÍMA 590 5100
Nokian Continental Michelin Goodyear Nordexx Pirelli Nexen Continental TS870 3,82 Continental 3,95 Michelin 4,05 Goodyear 4,13 Nexen 4,23 Nokian 4,27 Pirelli 4,95 Nordexx 5,47 Continental TS870 4,54 Continenta 4,78 Pirelli 4,78 Goodyear 4,84 Nokian 4,88 Michelin 5,00 Nexen 5,02 Continental TS870 6,73 Nordexx 50,97 51,59 52,90 53,91 53,92 54,26 54,98 55,53
Hröðun frá 5 til 15 km/klst. Meðaltal úr tveimur aksturslotum og 12 hröðunum á hvert dekk. Besta gripið er hjá Nokian og Continental en síst hjá Nexen. Meginlandsdekkið, sem ekki er framleitt sérstaklega til notkunar á norðlægustu slóðum, hefur allt annað og verra grip en hin öll. ABS–hemlun frá 15 til 5 km/ klst. Meðaltal 36 hemlana í þremur lotum. Stysta hemlunarvegalengdin er hjá Continental og hún er umtalsvert lengri hjá Pirelli og Nordexx. Meginlandsdekkið sker sig síðan algerlega úr og er greinilega ekki vel til þess fallið að bremsa á ísilögðum brautum norðlægra slóða. Ekið er á ísilagðri braut. Brautartímar eru meðaltal þriggja tilrauna. Continental hefur besta gripið í beygjunum en Pirelli gerir það líka mjög gott. Goodyear og Nokian tapa tíma í miklu frosti og þegar ísinn er mjög þurr. Þessu er alveg öfugt farið með Nexen, því að því gengur betur eftir því sem kaldara er. Nordex á það til að tapa gripinu snögglega og fyrirvaralaust. Meginlandsdekkið reyndist vera auðveldara í akstrinum en það.
HRÖÐUN Í SNJÓ
Hröðun frá 5-35 km/h mælt í sekúndum
Pirelli Michelin Continental Goodyear Nordexx Nexen Nokian Continental TS870
HEMLUN Í SNJÓ
ABS hemlun úr 35 - 5 km/h mælt í metrum
4,04 Pirelli 4,08 Continental 4,08 Michelin 4,08 Nokian 4,12 Goodyear 4,12 Nordexx 4,16 Nexen 4,25 Continental TS870
AKSTUR Í SNJÓ
Brautarakstur mælt í sekúndum
10,73 Continental 10,83 Pirelli 10,94 Nokian 11,16 Michelin 11,16 Goodyear 11,39 Nexen 11,39 Noredexx 11,63 Continental TS870 79,51 79,62 80,03 81,05 81,07 81,16 81,30 82,34
Hröðun 5–35 km/klst. Meðaltal 12 tilrauna í tvemur lotum. Meginlandsdekkið stendur sig vel í snjónum og sker sig lítið úr norðurslóðadekkjunum. Pirelli er á toppnum hér. ABS–hemlun frá 35 til 5 km/ klst. Meðaltal 24 nauðhemlana í tveimur lotum. Munur á dekkjunum hér er ekki mikill og aftur er Pirelli best. Meginlandsdekkið er með lengstu hemlunarvegalengdina en munurinn er þó hóflegur. Meðaltími sex umferða um akstursbraut í tveimur lotum. Þrjú efstu eru Continental, Pirelli og Nokian en þau hafa öll ágæta og jafna eiginleika. Nordexx vill missa gripið snögglega og fyrirvaralaust og Nexen nær beygjum treglega. Meginlandsdekkið er létt í akstri allt til endimarka gripþols síns.
HEMLUN Í BLEYTU
Hemlun úr 80 - 5 km/h mælt í metrum
Continental TS870 Goodyear Nokian Continental Pirelli Nexen Nordexx Michelin
HEMLUN Í ÞURRU
Hemlun úr 80 - 5 km/h mælt í metrum
28,64 Continental TS870 32,93 Goodyear 34,27 Pirelli 35,40 Continental 35,60 Michelin 35,92 Nexen 36,77 Nokian 37,09 Nordexx
FLOT
Mældur hraði við flot
26,61 Continental TS870 28,16 Goodyear 28,35 Nexen 28,90 Nordexx 29,06 Pirelli 29,07 Michelin 29,51 Continental 29,88 Nokian 87,90 68,30 66,00 64,40 63,00 62,50 62,40 62,00
Hemlað frá 80–5 km/klst. Meginlandsdekkið er í algerum sérflokki hér með langstystu hemlunarvegalengdina. Í ,,norðurslóðadekkjaflokknum“ er Goodyear ljóslega betri en hin. Nexen er endurbætt frá fyrra ári en loks er það Michelin sem vermir neðsta sætið. Hemlað frá 80–5 km/ klst. Eins og í bleytunni er það meginlandsdekkið, af Bridgestone-gerð, sem hefur stystu hemlunarvegalengdina. Nexen er í þriðja neðsta sæti nær þó að stansa innan ásættanlegra marka en Nordexx varla. Hér er sýndur hraðinn þegar dekk flýtur upp (planar) í 6 mm djúpu vatni. Þetta er gert við hröðun og kannað er á hvaða hraða það er þegar það missir veggripið og byrjar að spóla og snúast 15% hraðar en það ætti að gera miðað við hraða bílsins. Niðurstöðurnar eru meðaltal fimm tilrauna. Enn skipar meginlandsdekkið sér í sérflokk hér en Goodyear er best norðurslóðadekkjanna.